Alþýðublaðið - 13.09.1968, Blaðsíða 9
Símavibtal Opnunnar er við
Hinrik Bjarnason
Fyrsta sunnudagf í október verður aftur farið að
sýna Stundina okkar í sjónvarpinu. Við hringdum
í Hinrik Bjarnason og spurðum hvaða nýjungar
væru á döfinni. ,
Hinrik kvaðst vera búinn
að skipuleggja þættina í stór-
um dráttum fram til áramota
en sjálfur væri hann á förum
til Svíþjóðar og yrði þar í 3
mánuði á stjórnendanám-
skeiði. Á meðan yrði Tage
Ammendrup stjórnandi þátt-
arlns, en hann hefur verið
samstarfsmaður Hinriiks frá
byrjun. Kynnir verður þá
Rannveig Jóhannsdóttir, en
ekki er okkur kunnugt um
hvort Krummi ætlar að að-
stoða hana við það verk.
SUÐUR HEIÐAR
Þá má gera ráð fyr'r að
margir kunni að hafa gaman
af að heyra Gunnar ]H. Magn-
úss lesa framhaldssöguna Suð
ur hejðar. Þórdís Tryggvadótt
ir, tei.knari, sér urn mýnd-
skreytingaT við söguna og
verða sýndar 5—10 myndir í
hverjum þætti, sem tekur um
10 mínútur.
FÖNDUR
Systurnar Gullveig og Mar- :
grét Sæmundsdætur munu sjá ,
reglulega um föndurþætti, og
ýmiskonþr fifnf við hæfi
barna frá sjónvarpsstöðvum á
Norðurlöndum verður sýnt í
haust.
MYND ÚR LEIR.
13. október verður sýnd
kvikmyndin MYND ÚR I.EIR
þar sjáum við börn í Barna-
deild Mynlistask vinna að vegg
mynd, sem sett verður innan
tíðar upp í Álftamýrarskóla.
Veggmyndin verður hvorkí
meira né'minna en 16 fermetr
ar að stærð og túlka börnin
ýmsa þætti úr skólalífinu. Sýn
ingartími er 22 mínútur.
Stjórnandi er Hinrik, kvik-
myndatökumaður Þórarinn
Guðnason, kljppingu annast
Ása Finnsdóttir og Oddur Gúst
afsson sér um hljóð.
Að sjálfsögðu koma svo
fram ýmsir þekktir og óþekkt
ir innlendr skemmtikraft-
ar ejns og í fyrravetur.
FUNDUR
SJÖNVARPSMANNA
Þá sagðj Hinrik að í næstu
viku yrði haldinn hér' fundur
með sjónv.arpsfólki frá öllum
Norðurlöndunum er hefur með
að gera sjónvarpsefni xyrir
börn og unglinga. Þingið mun
standa yfir í 4 daga og þar
hefur hver þjóð 3 klukkustund
ir til að kynna sjónvarpsefni
fyrir börn og verður sá tími
nýttur til fulls af íslands
hálfu, og standa vonir til að
e'tthvað af því efni falli frænd
um okkar í geð. Fram til þessa
hefur íslenzkt sjónvarpseíni
fyrir börn ekki verið boðið
til sölu meðal erlendra sjón-
varpsstöðva og verður- því
spennandi að fylgjast með því
hvaða dóma íslenzka efn'ð fær.
V ð óskum svo Hinrik góðr-
ar ferðar.
úr söntlum I
Alþýoubiöoum |
Mfðvikudaginn 8. nóvember 1933
er forsíðufrétt í Allþýðublaðinu
undir fyrirsögninni: GÖBBELS
FÆR ALÞÝÐUBLADIÐ og seg-
ir síðan:
,,í gær ikornu nazistár í af-
gljeiðslu Alþýðublaðsins og
'keyptu 10 eintök laf blaðinu til
að senda til þýzkra istjórnarvalda
siikum þess að í blaðinu birtist
mynd af leinu ódáðaverki naz-
ista. Myndin vakti míkla athygli
í' bænum í gær, og munu sendi-
menn Hitlers hér á landi, sem
ráðnir eru til að gefa honum
. Skýrslu um menn og málefni,
hafa fundið hvöt hjá sér til þess
að gefa honum bendingu um
það, að Alþýðublaðið muni vera
skaðlegt stefnu hans hér á
landi.
Alþýðublaðið mun framvegis
verða sent til margra .íslenzkra
námsmanna í Þýzkalandi, og urn
leið verður iséð svo um, að
Jósef Göbbels, útvarþsstjórai'
með meiru, berist blaðið í hend í
ur, svo að ekki verði hægt að;
segja að það sé sent xnn í lahd-
ið á bak við harin!“
í Reykjavfkurfráttum sama
dag:
„Leikið á lögregluna
Eíns og kunnugt er halda
margir leynivínsalar sig fyrir
utan hinn svonefnda Réykja-j
víkurbar við höfnina til að selja
þeim mörgu drykkfelldu mönn-
um sem þar halda sig. Lög-
ire.gim veit þetta eikki Síður
en aðrir og befir því haft vak-
andi auga á þessum stað. Bar
það svo við í fyrrakvöld, að
lögreglan ætlaði að tafca einn,
er hún taldi leynivinsala. Gekk
lögregluþjónn að honum og
ætlaði að grípa hann, en hann
slapp úr höndum hans og hljóp
hð Verkamannaskýlinu en þar
varpaði hann sér í sjóinn. —
líiupu lögregluþjónarnir nú
meðfram höfnihni. því þeir
héldu að maðurinn hefði drekkt
sér, en svo var ,ekki. Hann
buslaði í sjónum um stund, eins
og hamn væri að tæma vasana,
en synti svo knálega að stein-
bryggjunni og þar tók lögregl-
an á móti honum. Þá voru allir
vasar hans tómir. Maður þessi
mun áður hafa leikið þennán
leik. Kastaði hann sér þá milli
skips o'g h'afnarbakkans við
kolákranann og synti þaðan að
steinbryggjunni. Mun haiin þá
einnig hafa ihaft eitthvað ólög-
legt í vösunum og verið að
verja sig fyrir lögreglunni."
--j ...............
Blððburðarfólk óskast
á Lynghága, Stanhaga, Túngötu, Garða-
stræti, Framnesveg, Bræðraborgastíg, Haga-
mel, Melhaga, Grenimel, Grundargerði,
Teigagerði, Steinagerði, Arníargerði, Austur-
stræti, Hafnárstæti og Seltjarnarnes.
GOTT KAUP.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ sími 14900
Húsmæðraskóli Reykjavikur
verður settur þriðjudáginn 17. september, kl.
2 síðdegis. Heimavistarnemendur skilli far-
angri sínum 1 skólánn mánudaginn 16. sept.
milli kil. 6-7 síðdegis.
SKÓLASTJÓRI. i
Afvinna
VANTAR STRAX
1 stúlku í mötuneyti.
2 stúlkur í spunaverksmiðju, vaktavinna.
1 karhnann við kembivélar.
2 karlmenn 20-27 ára tiil að læra vefnað.
■
1 kárlmann við útivinnu, þarf að hafa bílpróf.
Aðeins reglusamt og duglegt fólk kemur til
igreina. Upplýsingar í síma 66300.
ÁLAFOSS H.F.
Hafnarfjöröur Hafnarfjöröur
Stúlka, vön afgreiðslustörfum óskast.
HRAUNVER
Álfaskeiði 115 — Sími 52790.
Skólaföt í fjölbreyttu
úrvali ,
O.L Laugavegi 71
■ r ' ' '7 ■ „ i „ , , SÍMI 20141. ;
# •
Innrðmmuii
MBBJÖBNS BENEDIKTSSONAB
Ingólfsstræti 7
Athugið opiS frá kl. 1 — 8 e.h.
13. sept. 1968
ALÞÝÐUBLAÐIÐ $