Alþýðublaðið - 13.09.1968, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 13.09.1968, Blaðsíða 2
 ÍEMItO) Bttstjórar: Krlstján Bersi Ólafsson (áb.) og BenediKt Gröndal. Símar: 14900 — 14903. — Auglýsingasími: 14906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið við Hverfisgötu, Reykjavik. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. Síml 14905. — Askrlftargjald kr. 120,00. - í lausasölu kr. 7,00 eintakið. — Útgefandi: Nýja útgáfufélagið hf. Nýir tímar i iðnaði Núverandi ríkisstjórn hefur frá upphafi lagt mikla áherzlu á efl ingu og uppbyggingu heilbrigðs iðnaðar í landinu. Á þetta jöfn- urn höndum við nýjastóriðju, svo sem álbræðsluna, og margvís- legan annan verksmiðjuiðnað. Er sérstök ástæða til að gefa gaum þeim iðngreinum, sem veita mesta átvinnu, en það verður ekki sagt um stóriðjuna, nema hvað byggingu mannvirkja snert ir. Meginatriðið í iðnaðarmálium er að skapa samræmi milli ís- lenzks iðnaðar og þess umheims, sem við lifum í. 1 marga áratugi) ríkti stefna verndartolla um all ah heim. Hver þjóð girti sig há- um tollmúrum og byggði upp verndaðan iðnað innan þeirra. Þetta gerðu íslendingar einnig, og hefur þeirrar stefnu gætt allt til þessa dags. Nú er ástandið í þessum efn- um gerbreytt. Um allan heim er að taka við ný stefna, markaðs- bandalög, þar sem tollmúrar eru rifn.'lr og háþróaður nútímaiðpað ur starfar fyrir víðlend markaðs svæði. Við þetta fæst skynsam Tegri verkaskipting og hagkvæm ari framleiðsla, og stuðlar hvort tiveggja að betri lífskjörum. Við- reisnarstjórnin skildi á undan öðrum í þessu landi, að ísland. gæti ekki til lengdar staðið utan við þessa þróun og lifað einangr að í heirni, þar sem tollmúrar væru horfnir. Þess vegna hefur verið reynt að beina iðnþróun inn á braut hins nýja tíma, að vísu ekki sársaukalaust, en með árangri. Áður fyrr varð iiðnaðurinn að greiða fyrir tollverndina á ýms an 'hátt á sviði fjármála, opin- berrar aðstoðar, skatta ofl. Þeg ár íslenzkur iðnaður nú verður að llaga sig að hinum nýja, opna heimi, verður að breyta þessu. Hann verður að sjálfsögðu að fá sömu starfsaðstöðu og aðrar út- ílutningsgreinar. Um þetta er varla hægt að deila, en þetta hef ur meginþýðingu fyrir þróun iðn fyrirtækjanna. Íslenzkur Jðnaður er án eía miklum mun sámkeppnishæfari en álmennt hefur verið háldið. Þess vegna er ástæða til að ætla að hann geti fliutt út varning í stórum stíl, ef honum eru skap aðar svipaðar aðstæður og hann á rétt á. Þó ekki sé 1-itið lengra en til Grænlands og Færeyja eru þar verulegir markaðir, að því er kunnugir telja, og liggja þeir sérlega vel yið íslandi. Hvað má þá segja um stærri þjóðir, sem lifa í nágrenni við okkur? Það eru nýir tímar framundan fyrir Menzkan iðnað. Viðreisn- arstjórnin hefur þegar stigið fyrstu skrefin, og nú verður að sækja fram til nýrra möguleika, en ekki hörfa aftur á bak til gamla hafta og einangrunar. ÚTBOÐ TilboS óskast í að byggja áhorfendastúku íþróttaleik- vangs í Laugardal. Útboðsgögn eru afhent í skrifstofu vorri gegn 3.000.— króna skilatryggingu. INNKAUPASTOFNUN REYKIAVÍKURBORGAR VONARSTRÆTI 8 - SÍMI 18800 Sambandsráð Sambands ungra jafnaðarmanna er hér með kvatt saman til fundar í Alþýðuhúsinu í Hafn arfirði dagana 14. og 15. september n.k. ENSKA fyrir fullorðna BYRJENDAFLOKKAR FRAMHALDSFLOKKAR SAMTALSFLOKKAR HJÁ ENGLENDINGUM SMÁSÖGUR FERÐALÖG BYGGING MÁLSINS VERZLUNARENSKA LESTUR LEIKRITA Síðdegistímar — kvöldtímar Málaskólinn Mímir Brautarholti 4, simi 10004 og 11109 (kl. 1—7 e.h.). Het opnað TANNLÆKNINGASTOFU að Hverfisgötu 50. —- Sími 16511. Stefán Ingvi Finnbogason tannlæknir. ÖKUKENNARAPRÓF og próf í 'akstri fólfcsbifreiða fyrir fleiri en 16 farþega verða haldin í Reykjavík og á Akureyri. Umsóknir um þátttöku sendilst bifreiðaeftirlitinu í Reykjavík og á Akur- eyri fyrir 16. september n.k. ; . ; ■ . r/r .•»- •'< BIFREIÐAEFTIRLIT RÍKISINS. Engar þvottahendur ? ÞÉR ÞOKFSÐ EKKI LEWGUR A® ÚTTAST ÞURRT 0Q SPMUMQm HÖitlJfW OG ÞRÚTNAR ÞVOTTA- HENDURy. ÞVÍ A® NÚ ER ÞEL Komm í VERZLANBÍNAR. Þ E L er líislenzkur „lúxu»« þvottalögur" og hefur inni að halda „Dermal“, efni, sein vemdar og mýkir hendumar, eins og handábuíður, gerlí þær enn Segurri og gúmmí- hanzkana algjðrlega óþarfa. Þ E L er fyrir allan við- ‘kvæman iþvott, einnig uppþvoti, virmur fljótt og vfll og hefur góðan ilm. ÞVOIÐ ÚR Þ E « OG VERNDIÍD HENDURNAR. | ALLUR 1 ÞVOTTUR VERÐUR ^ ÁNÆGJULEGRI SViEÐ Þ E L ÞEL ísJestók úrvals- framleiðsla frá •j^. 13. sept- 1963 - ^ÞÝÐUBI-AÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.