Alþýðublaðið - 13.09.1968, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 13.09.1968, Blaðsíða 11
Heimsmet í 400 m. grindahlaupi í gær ÚRTÖKUMÓT Bandaríkja- manna í frjálsum íþróttum fyr- ir Olympíuleikana í Mexikó er hafið í South Lake Thahoa í Kaliforníu. í fyrradag sigraði Jimmy Hines í 100 m. hlaup. inu á 10 sek. réttum. Greene varð annar á 10,1 sek. og í þriðja sæti varð Mel Pender, gamal- kunnur hlaupari á' 10,2 sek. og Ray Smith, einn af þremenn- ingunum, sem setti heimsmet- ið í sumar, 9,9 sek. varð að láta sér nægja fjórða !sæti, hann hljóp á sama tíma og Pender. George Wood sigraði í kúlu. varpi, varpaði 20,73m„ annar varð Dave Haggard, varpaði 20,53m. ig fjórði heimsmethaf- inn Randy Matson hann varpaði 20,45m. Heimsmet hans er 21,82m. ígær setti Vanderstock nýtt heimsmet í 400m. grindahlaupi, hljóp á 48,8 sek. Annar varð Gittins á 49,1 sek. þriðji Whitney á 49,2 sek. Víða þættu þetta góðir tímar í 400m. hlaupi án. grinda. Tom Farrell sigraði í 800m. hlaupi á 1:46,5 mín., annar varð Wade Bell á 1:47,1 mín. Jay Silvester kastaði kringlu 63,24 m., annar varð Carlsen með 62,54m. og fjórði A1 Oerter, hann kastaði 62,28m. Þorvaldur Ben. i 10,8 sek. í 100 m.i; Á innanfélagsmóti í Vest.(| mannaeyjum í gær hljóp(! Þorvaldur Benediktsson 100 d m. á 10,8 sek., sem er bezti(l tími hérlendisi á þessu ári. . Enginn meðvindur var, þegþ ar hlaupið fór fram, að sögn(l forráðamanna mótsins. Ann.([ ar varð Sigmar Pálmason á \ 12,5 sek. Þorvaldur stökkþ 6,40m. í langstökki. (( Hverjir sigra á OL í Mexíkó? Bandaríkjamenn sigur- sælir í spretthlaupum í dag er aðeins einn mánuff ur þar til Olympíuleikarnjr í Mexíkó hefjast, XIX, sumar- le:kar vorra tíma. Þeir fyrstu fóru fram í Aþenu 1896. í- þróttasíðan hefur oft komið með spádóma um væntanleg úrslit og við skulum einnig reyna nú. Fyrst skulum við spá um væntanlega sigurvegara í spretthlaupunum, þ. e. 100, 200 og 400 m. hlaupum. Eins og sézt i annarri frctt á íþróttasíðunni stendur úrtóku I Benfica Valur: MIÐAR SELDIR FYRIR 600 ÞÚS. Sala aðgöngumiða að leik Vals og Benfica hefur gengið mjög að óskum. i gær höfðu verið seldir að- göngumiffar fyrir 6 t'l 700 þúsund krónur. Er hér um algera metsölu að ræða forsölu að Ieik. Leikúrinn verður háður næstkomandi miðvikudag á Laugar- dalsvellinum. iWWWWWWMMWMWWW máí Bandaríkjanna yfir í Kali forníu og þeir koma áre'lðan- lcga við sögu í spretthlaupun um nú sem undanfarna leiki. Baráttan stendur milli Hin- es, Greene og Pender. Sá síðast nefndi verður áreiðanlega stndur, þó að Smith eigi betri tíma.. Auk þremenninganna, Hines, Greene og Smith, seni allir hafa hlaupið á 9,9 sek. eru 10 næstu menn með tím- ann 10 sek. á heimsafreka- skránni svo að baráttan verð- ur hörð. Nash frá S.-Afriku er einn af þeim en hannfærekki að reyna s:g í Mexíkó, þar sem S. Afríka er ekki með. Bamb- uck, Frakklandi og Sapeja, So- vétríkjunum eru einu Evrópu- búarnir, sem hlaupið hafa á 10 sek., sá fyrrnefndi getur kom ið á óvart, en Sapeja er korn ungur og reynslulaus og hætt er við, að taugarnar bili. Þó er aldrei að vita. Figuerola Kúbu, sem telzt til hinna „gömlu“ er harður kepjmis- maður. Ýmsir fleiri geta kom ið á óvart, en baráttan verður gtysihörð. Spá: 1: Hines, USA. 2. Greene, USA 3. Bambuck, Frakklandi. Margir þeir sömu eru með í 200 m. hlaup:nu, en þó eru nokkrir með þar, sem varla komast í verðlaunasæti í 100 m. hlaupinu. Fray frá Jamaica er beztur á afrekaskránni með 20,1 sek. Sjgur Bandaríkja- manna er alls ekki öruggur í þessu hlaupi, en við erum samt á þeirri skoðun. Carlos, USA s'graði á reynslulejkun- um í fyrra og verður skeinu- liættur og hver veit nema Hin es keppi í báðum greinunum og sigri, en slíkt er þó óvíst Framhald á bls. 14. Ron Clarke, Ástralíu er heímsmeistari í 5000 m. hlaupi, met hans er 13:16,6 mín. Á móti í London í síðasta mánuði sigraði Clarke í 5000 m. hlaupi á móti í London og náði þá bezta tíma ársins — 13:27,8 mín. Þessum snjalla ástralska hlaupara hefur ekki gengið vel á Olympíuleíkum, en nú reikna allir með, að hon um takist að lokum að krækja sér í olympísk gullverðlaun. Keppn- in í Mexikó hefst eftir nákvæmlega einn mánuð. i 13. sept- 1968 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ H SPRERHÚRÐ Þessi snjalla brezka frjáls íþróttakona, Lillian Board sigraði í 400 m. hlaupi í landskeppni Breta og Pól. verja í London. Board náði bezta tíma, sem hlaupið hefur verið á íEnglandi. ritstj. örn EIÐSSON ÍÞR®TTIR

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.