Alþýðublaðið - 18.10.1968, Page 5

Alþýðublaðið - 18.10.1968, Page 5
18. október 1968 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5 ÓLYMPÍUMEl Heimsmet var sett á heimsmet ofan í úrslitakeppninni í þrí- stökki í írær á Ólympíuleiknn- um, en sigurvegari í Krejninni varð Viktor Sanejev frá Sovét- ríkjunum, stökk 17,39 metra. Heimsmeíið í greininni var fjóriun sinnum slegið í úrslita- keppninni. í 1. umferð stökk ítalinn Gjuseppe Gentile 17,22 og bætti þar með sitt eigið heimsmet frá deginum áður. Þetta met stóð þó ekki nema fram í þriðju umferð keppn- innar, en þá stökk Sanejev 17,23. í 5. umferð kom Brazilíu- maðurinn Nelson Prudeneio og bætti metið enn, stökk 17,27, en í lokaumferðínni tryggði Sovétmaðurmn sér sigurinn með því að stökkva 17,39. Þegar blaðið var að fara í pressuna bárust úrslit í 5 km. hlaupi. Sigurvegari var Gamm- údi, Túnis, annar varð Keino, Kenya, þriðji varð Temu, Ken- ya, fjórði varð Martinez, Mexikó og fimmti varð Clarke, Ástral- íu. Tím-ar voru ekki komnir. Davenport, USA, sigraði í 110 m. grind á 13,3, Hall, USA og Ottoz, Ítalíu, hlupu á' 13.4. Úrsl;t í sleggjukasti á Olym- píulejkunum í Mexíkó urðu iþau að Guyla Zsivotsky, Ung- verjalandi, sigraði og setti nýtt olympíumet, kastað' 73,36. Annar varð Klim frá Sovét- ríkjunum með 73,28 m. og í 3. sæti Lazar Lovasz frá Ung- verjalandi með 69,78 m. Bandaríkjamaðurinn Ralph | Boston setti nýtt olympíumet í i langstökki í undankeppninni í gær, stökk 8,27 m. Eldra metið var 8,12 og á'tti hann það sjálf- ur. Annar í undankeppninni varð samlandi hans, Bob Beamon, sem stökk 8,19 m. og 3. varð Lynn Davies, Bretlandi, stökk 7,94 m. Sovétmaðurinn Tynö Lepik var í 4. sæti, stökk 7,91 metra. ">•. V" .. . ■ NÝ TOGARAÚT- GERÐ STOFNUÐ Stofnað hefur verið nýtt útgerðarfyrirtæki í Reykjavík og hefur það fest kaup á botnvörpunguum Gylfa frá Patreksfirði og hyggst gera hann út frá Reykjavík. Forráðamenn fyrirtækisins eru bjartsýnir á reksturinn og stefna að því að eignast skut- togara er tímar Iíða fram. Hið nýja útgerðarfyrirtæki nefnist Almenna útgerðarfélag- ið h.f. og er tilgangur félagsins „újgerð, fiskverkun og annar skyldur atvinnurekstur.” Hefur verið leitað til manna um land allt og þeim boðið að gerast -hluthafar í félaginu. Félagið hef- ur þegar kjörið sér bráðabirgða- stjórn og er Snorri Ólafsson for- maður hennar, og skýrði hann Alþýðublaðinu frá því í gær, að félagið hefði samið um kaup á togaranum Gylfa fyrir 11 millj- ónir króna, en skipið hefur ver- ið í eigu ríkisá'byrgðasjóðs. — Skipið verður gert' út frá Rvík, en ráðgert er að það leggi ekki síður upp úti á landi, ef það þyk- ir hentugra. Snorri kvað stofnendur hins nýja félags vera bjartsýna um að rekstur togarans gangi vel, en mikil viðgerð hefur farið fram á togaranum nýlega. Hann* kvaðst' gera sér vonir um, að út- gerðin gæti hafizt um áramót, ef allt gengi að óskum. Almenna útgerðarfélagið hefur skrifstofu að SjáVarbraut 2 í Reykjavík, en framkvæmdastjóri hefur enn ekki verið ráðinn. — Hins vegar hefur bráðabirgða stjórnin ráðið nokkra fulltrúa til kynningar á félaginu og til hluta fjjársöfnunair. Gera forsvaírs- menn félagsins ráð fyrir því, að síðar verði hlutafé félagsins aukið og þá stefnt að útgerð skuttogara, smíðuðum hér innan lands, ef reksturinn á Gylfa gengi að óskum. STÆRSTA SKIPIÐ Stærsta skjp se'm lagzt hefur að bryggju á íslandi liggur nú í Hafnarfjarðar höfn. Skipjð er frá Colum bíu, í eigu hers Columbiu, tæplega 25 þúsund lestir og heitir Tumaco. Þetta er glænýtt skip, aðeins fjög- urra mánaða gamalt, en Columbíuher le;gir skipið á opnum markaði og hér losar það flugvélabe'nzín, gasolíu og steinolíu fyrir herinn á Keflavíkurflug- velli. Áður en það kom til Hafnarfjarðar hafði það losað helming farmsins í tanka he'rsins í Ilval- firði. 47 manna áhöfn er á Tumaco, allt hermenn. WMWWMWMWWWWWMW FH VANN HG y;' ; Starfsmenn Landssímans undirbúa viðgerð á símastrengnum, í gaarkvöldi sigruðu FH-ingar Damnerkurm eistarana HG í handknattleik í Laugardalshöll- jnní skoruðu 21 mark gegn 16. í leikhléi var staðan 11:9 FH í hag. FH-ingar léku á köflum með miklum ágætum, en þó bar Geir Hallsteinsson af og var bezti maður vallarins, en þó er í lið- inu eini Daninn, sem komst i svokallað heimslið, Carsten Lund. FH hafði oftast yfir í mörk- um, aðeins einu sinni í fyrri háífleik hafðil HG eitt mark yfir og tvívegis í síðari hálfleik. Danir þoldu tapið illa og £ lokin urðu dómararnir að visa einum þeirra af lelkvelli. abilun SÍMASAMBAND við Kópavog og Hafnarfjörð, frá Reykjavík, rofnaði í gærmorgun. Ástæðan var sú, að jarðýta, sem var að störfum við nýju vegargerðina í Fössvogi hjó í sundur 500 lína streng, sem liggur frá Reykja- vík í Kópavog og Hafnarfjörð. Hægt' var að hringja innan bæjar í Kópavogi og Hafnar- firðí, svo og á milli bæjanna. Viðgerðarflokkar frá Lands- símanum komu þegar á staðinn, þar sem óhappið varð, og í gær tjáði einn af vei’kstj. Landsímans okkur að unnið yrði að verkinu, í nótt og lykí viðgerð að líkind um í fyrramálið. Þar af leið að símasamband ætti nú að .era komið á milli Reykjavíi-ur og Kópavogs-Hafnarfjarðar, ef við- gerð' hefur gengið samkvæmt áætlun. ;

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.