Alþýðublaðið - 13.11.1968, Side 5
13. nóvember 1968 ALÞYÐUBLAÐIÐ 5
Reykjavík — HEII - SJ - VG.V.
Heilldsafar reyndu
aS bjarga sér
— Ég lield að lieildsalar hafi
reynt að bjarga sér, þegar sýnt
var ag hverju stefndi, og borgað
niður að einhverju leyti erlend-
ar skuldir, en auðvitað eru til
undantekningar. — Þetta sagði
Árni Gestsson, forstjóri Glóbuss,
er við spjölluðum við liann í gær
um ástand og horfur hjá heild-
sölum eftir gengisbreytinguna í
fyrradag.
— Ég álít að minni heildsalar
með minni veltu og minna um-
fang eigi meiri möguleika að
halda velli heldur en hinir sem
þurfa að veita meiri þjónustu og
hafa meiri veltu.
— Hvernig lítið þið til fram,
tíðarinnar?
— Því er ekki að neita að við
lítum mjög svörtum augum á
framtiðina. Lagerinn fæst ekki
umreiknaður og á einu ári þarf
100% meira fé til að velta'fyrir-
tækinu ófram. Það er að mínu
áliti mjög ósanngjarnt að fá ekki
að umreikna vörubirgðirnar eft-
ir slíkar ráðstafanir og ég held
að mér sé óihætt að segja, — að
hvergi i heiminum þekkist slíkt.
Tökum sem dæmi að vara-
hlutur hafi legið á lager í 2 ár
Og kostl 50 krónur. Nú kemur
nýr hlutur, sömu tegundar og
kostar 150 krónur. Ef tveir
menn koma og biðja um sama
hlutinn, hvor á þá að fá hann
á 50 krónur og hvor á að fá hann
á 150 krónur?
— Verðið þið að draga saman
seglin að verulegu leyti?
— Hjá því verður ekki komizt.
Kaupmáttur almennings dregst
að líkindum saman. Álagningin
verður lækkuð, en það kostar
heildsalana meira að endurnýja
vörubirgðirnar og skortur verður
á rekstrarfé. Eg álít að verzlunin
eigi eftir að dragast verulega
saman, en auðvitað fer þetta að
nokkru eftir því hvort næg at-
vinna verður í landinu.
Milffl hækkyn á
l" —
I gær hafði Flugfélag Islands
lokið við að reikna úr nýtt verð
á flugleiðum milli íslands og Ev-
rópu og fer hér á eftir saman.
burður á nýja verðinu og því
gamla miðað við flug frá Reykja-
vík til Kaupmannahafnar, til
London og til Glasgow.
Kaupmannahöfn
er nú :
! kr. 16.778 + 1258 í söluskatt,
I var:
1 kr. 10.867 + 815 í söluskatt.
London
er nú :
kr. 14,886 + 1116 í söluskatt,
1 var:
kr. 9.643 + 723 í söluskatt.
Glasgow
j er nú:
kr. 11,841 4- 888 í söluskatt,
1 var:
] kr. 7.665 + 754 í söluskatt.
Alþýðublaðið kannar
HÆKKANIRNAR
Þessar tölur eru að frádregn-
um 5 % afslætti á farmiðum
fram og til baka. Ekki er þess
að vænta að flugfargjöld á inn-
anlandsleiðum hækki á næst
unni. , |
Bókffajldsatriði
í viðtali við Alfreð Elíasson,
forstjóra Loftleiða, kom það
fram, að skuldir félagsins myndu
að sjálfsögðu stóraukast í ís-
lenzkum krónum, en þar sem fé-
lagið hefði að undanförnu alltaf
skilað gjaldeyrj til ríkisins væri
hér meir um bókhaldsatriði að
ræða. Erlendir ferðamenn, sem
hafa hér viðdvöl á’ vegum félags-
ins ættu að fá meir fyrir snúð
sinn, a.m.k. fyrst um sinn og
gæti það verkað örvandi fyrir
hótelreksturinn og þá sem sjá um
farþegafliitningana innanlands.
Ef athugað er hve miklu liækk.
unin nemur á leiðinni Reykjavík
— Luxemborg og Reykjavík New
York, þá er breytingin þessi: —
Til Luxemborgar, fram og til
baka án söluskatts — var áður
kr. 12.273, en nú 18.942.
Til New York, fram og til baka
án söluskatts og miðað við vetr-
arfargjald — var áður kr. 12.579
en er nú kr. 19.418, og sama leið
á 21 dags gjaldi — var áður kr.
9.988, en nú kr. 15.418.
Nú reysifr á að
b|éga gott verS
4
%
— Fargjöldin eru miðug við
gengi dollars og það verður 55%
hækkun á öllum fargjöldum til
útlanda og á hótelkostnaði, sagði
Guðni Þórðarson, forstjóri
Sunnu, í viðtali við blaðið í
gær. Þetta er að sjálfsögðu mik.
il og ógnvænleg hækkun, en þá
reynir á okkur að bjóða sem
hagstæðast verð í hópferðum.
Þrátt fyrir allt spái ég þvi að
ódýrustu orlofsferðir okkar verði
enn viðráðanlegar fyrir almenn-
ing og að þær muni kosta sem
svarar mánaðarlaunum vellaun-
aðrar skrifstofustúlku.
Þá er hin hliðin á ferðamál-
unum, móttaka erlendra ferða.
manna. Ef áhrif gengislækkunar-
innar verða ekkj sléttuð út þeg-
ar í stað, verður hagstætt fyrir
erlenda ferðamenn að koma
hingað, en annað mál er það, að
við getum varla tekið á móti
stærri hóp en þegar hefur pant-
að far hingað yfir hásumartím-
ann. Til þess þurfum við fleiri
og jafnframt ódýrari hótel.
77 þúsund króna
hækkun á bíl.
— Bifreiðar hækka verulega
við gengisbreytinguna. Ingi-
mundur Sigfússon, forstjóri
Heklu, tjáði okkur í gær, að nú
kostaði Volkswagen 1200 230
þúsund, en slík bifreið kostaði
fyrir gengisbreytingu 161 þús.
Hækkunin nemur því 69 þús. kr.
Volkswagen 1300 hækkar úr 183
þús. í 260 þús. kr. og nemur því
hækkunin 77 þús. kr.
Ekki er búið að reikna út
hækkun á varahlutum í bifreið-
arnar, en það verður gert næstu
daga.
Hjólbaröar
Hjólbarðainnflytjandi eínn
gizkaði á að verðhækkun á hjól-
börðum undir meðalstóran fólks.
bíl yrði ca. 28%, en verðlagsráð
á eftir að ákveða verðið endan-
lega og er ekki að búast við loka-
niðurstöðu fyrr en um næstu
helgi.
Eftir því sem við komumst
næst í gær kostar hjólbarði und-
ir meðalstóra fólksbifreið um
1500 krónur. Ef 28% verðhækk-
un verður á þessum varningi
kosta hjólbarðarnir rúmlega
1900 krónur, og verður því um
að ræða rúmlega 400 króna
hækkun.
Nevtenda-
samtökin
Framhald af 1. síðu.
upphaflega vegna starfsemi
Neytendasamtakanna en ekki
vegna ráðningar Sveins Ás-
gejrssonar sem framkvæmda-
stjóra samtakanna. Því telur
stjómin, að Neytendasamtökin
eigi að #á styrkinn greiddan hér
eftir sem hingað til þrátt, fyrir
það, að Sveinn Ásgeirsson hafi
látið af störfum fyrir samtökin.
Greiðsla styrksins hefur ver-
ið með iþeim hætti, að fram-
kvæmdastjóra samtakanna hafa
verið greidd laun úr borgar-
sjóði skv. 21. launaflokki opin-
berra starfsmanna. Skilningur
minn á því, hver upphæð styrks
ins skuli vera, er sá, að hann
pigi að vera jafnhár árslaunum
opinberra starfsmanna í 21.
launaflokki.
Neytendasamtökin hafa ekki
fengið greiddan þennan styrk,
síðan Sveinn Ásgeirsson lét af
störfum fyrir samtökin í byrj-
un september s.l.“
Stendur uppsögn lögfræðings
samtakanna í einhverju sam-
Benzígilítri
hækkar
ir-m kr. 1.20
Fundur mun verða lialdinn I
verðlagsnefnd í dag og vprður
þá að líkindum fjallað um verð-
hækkanir, sem verða á hinum
ýmsu nauðsynjavörum, i kjölfar
gengisfellingarinnar. Einíj og
kunnugt er, verður verfclags-
nefnd að samþykkja allar verð-
hækkanir á vörum, sem háðar
eru verðlagsákvæðum. Aðeins
ein verðhækkun hefur þegar
verið auglýst, síðan gengisfell-
ingin var gerð, en það er hækk-
unin á benzíni og olíum, sen*
kom til framkvæmda í gærmorg-
un. Nú kostar hver benzínlítri
11,00 krónur, en hann kostaði
áður 9,80 krónur, Hver lítri hrá-
olíu, sem seldur er í bifreiðir
frá smásöludælum olíufólaganna,
kostar nú 3,72 krónur, en hann
kostaði áður 3,21 krónu. Hver
lítrj hráolíu til kyndingar húsa
kostar nú 3,25 krónur, en kostagi
áður 2,76 krónur. Þá hefur svart-
olía einnig hækkað. Kostar nú
hvert tonn af svartolíu 2.120 kr.,
en áður kostaði hvert tonn kr.
1.745 krónur.
HvaS með vín
oþ: tóbak?
t
Og svo kynnu ýmsir að spyrja:
Hvenær og hvað mikið hækkar
vín og tóbak. Við hringdum til
Jóns Sigurðssonar, deildarstjóra
í fjármálaráðuneytinu, og sagði
hann að engin ákvörðun hefðí
enn verið tekin um hækkun eða
hvenær hún yrði framkvæmd. —
Hækkun þessa neyzluvarnings er
ákveðin af ráðherra.
bandi við rannsókn þá, sem ná
fer fram, á fjárreiðum Neytcnda
samtakanna tll bess tíma, er
liin nýja stjórn þeirra tók við?
„Uppsögn Birgis Ásgeirssonar.
lögfræðings, er fyrst og freinst
íil komin vegna skipulagsbreyt-
ifigb. sem' nú er vcrið að gera
á p-nlSkimUm. en þær miða að
ibvj. pð þjónusta skrifstofunnar
við félagsmenn verði aukin H1
muna. Nýlega hefur verið ráðin
stúlka til starfa á skriírtofunni.
Skrifstofan verður nú framveg-
is opin alla da@a á venjulegum
skrifstofutíma til klukkan 19 á
kvöldin. Hingað tjl hefur skrif-
stofan aðeins verið opin milli
klukkan 17 og 19, og hefur lög-
fræðingur samtakanna séð um
afgreiðslu mála fyrir hana.
Hér eftir mun ég sinna þessu
starfi ásamt öðrum störfum fyr-
ir Neytendasamtökin. Ef um
það verður að ræða, að skrif-
stofan þurfi á lögfræðj’egri að-
stoð að halda, þá mun verða
leitað til lögfræðinga í þeim
tilvikum. Þetta hefur í för mef
sér sparnað á útgjöldum sanv*
takanna og aukna þjónustu vLÓ
neytendur í landinu.“