Dagur - 10.01.1946, Side 8

Dagur - 10.01.1946, Side 8
8 D A G U R Fimmtudaginn 10. janúar 1946 BÆJARSTJÓRNARKOSNINGAR. Kosning 11 aðalfulltrúa, auk varafulltrúa, í bæjarstjórn Akureyrarkaupstaðar til næstu fjögurra ára, fer íram í Samkomuhúsinu, Hafnarstr. 57, sunnucL 27. þ. m. og hefst kl. 10 f.h. í kjöri eru eftirtaldir 4 listar og frambjóðendur: A-listi B-listi C-listi D-listi Friðjón Skarphéðinsson Steindór Steindórsson Bragi Sigur jónsson Albert Sölvason Þorsteinn Svanlaugsson Jón M. Árnason Tryggvi Haraldsson Jóhann Þorkelsson Árni Þorgrímsson Stefán Þórarinsson Gústav B. Jónasson Björn Einarsson Þorsteinn Jónsson Halldór Halldórsson Júlíus Davíðsson Svanlaugur Jónasson Baldvin Sigurðsson Heiðrekur Guðmundsson Jón Hallgrímsson Hallgrímur Vilhjálmsson Hafsteinn Halldórsson Þórarinn Björnsson Jakob Frímannsson Þorsteinn M. Jónsson Marteinn Sigurðsson Guðmundur Guðlaugsson dr. Kristinn Guðmundsson Ólafur Magnússon Gunnar Jónsson Sigurður O. Bjömssoq Ármann Dalmannsson Haraldur Þorvaldsson Jón Oddsson Ingólfur Kristinsson Guðmundur Jónsson Eggei^ St. Melstað Halldór Jónsson Haukur Snorrason Snæbjörn Þorleifsson Júníus Jónsson Árni S. Jóhannsson Þorsteinn Davíðsson Egill Jóhannsson ' Snorri Sigfússon Steingrímur Aðalsteinsson Tryggvi Helgason Elísabet Eiríksdóttir Jón Kr. H. Ingimarsson Tryggvi T. Emilsson Eyjólfur Árnason Guðmundur Snorrason Sigríður Gróa Þorsteinsd. Lárus Björnsson Meldal Loftur K. Páll Indriðason Björn Jónsson Snædal Rósberg G. Guðrún Guðvarðardóttir Kristján Einarsson Gestur Jóhannesson Sigurjón Jóhannesson Steingrímur Eggertsson Ólafur Aðalsteinsson Sverrir Áskelsson Óskar Sigvaldi Gíslason Áskell Snorrason Indriði Helgason Svavar Guðmundsson Jón G. Solnes Helgi Pálsson Guðmundur Guðmundsson Sverrir Ragnars Gunnar H. Kristjánsson Páll Sigurgeirsson Sigfús Baldvinsson Eiríkuf Einarsson Anna Laxdal Haraldur Guðmundsson Jón E. Sigurðsson Hallur Helgason Ari Hallgrímsson Tómas Björnsson Gunnhildur Ryel Kristján P. Guðmundsson Jakob Ó. Pétursson Friðjón Axfjörð Jón H. Sigurbjörnsson Jón Sveinsson ATHUGIÐ! Auglýsingin sýnir útlit kjörseðilsins áður en kjósandinn set- ur kjörmerkið (X) íraman við upphaísstaf þess lista, sem hann kýs. Auk krossins framan við listabókstafinn, getur kjósandi hækkað eða lækkað at- kvæðatölu frambjóðanda með því að setja tölustafinn 1, 2 eða 3, o. s. frv. framan við nafn hans, og með því að strika yfir nafn. Hvers konar merki önnur, stafir eða strik, ógilda kjörseðilinn. En heimilt er kjósanda að biðja um annan kjörseðil vegna óviljandi merkingar. — Sá, sem kjósandi setur tölustafinn 1 framan við, telst kosinn sem efsti maður listans, sá sem 2 er framan við, annar maður o. s. frv. — Yfirstrikaður frambjóðandi fær engan hlut úr atkvæði kjósandans. Akureyri, 7. janúar 1946. Kjörstjórtiin. frá þessum stjórnmálaflokkum: — A-listi Alþýðuflokknum. B-listi Framsóknarflokknum. <9 C-listi Sameiningarflokki alþýðu Sósíalistaflokknum. D-listi Sjálfstæðisflokknum. - — íþróttaþátturinn Framhald af 5. síðu hefir flest sér til ágæús sem íþróttasvæði, legu í bænum, auð- veldur til vinnslu og lagfæringar og býður góða aðstöðu fyrir áhorfendur. Vitanlega hefir ver- ið þrábeðið um þetta svæði, en svarið ætíð verið neitandi. Það er ætlað til annars, ákveðið á skipulagsuppdrætti. En því ákvæði mætti vissulega breyta, ef sannanlegt væri að um van- hugsaða ákvörðun væri að ræða. Ekki er mér ljóst hverju er ætl- aður staður þarna, en gata mun eiga að liggja þar um, byggingar að rísa og e. t. v. á að hafa þar einhvern almenningsgarð, sem vissulega væri gleðilegt. En svæð- ið er svo stórt, að jafnframt íþróttavöllum gæti þar líka — og í brekkunni — verið mjög skemmtilegur og fallegur al- menningsgarður. Og hvaða byggingum er svo nauðsynlegt að fá grunn þarna? Sagt er að þar eigi nú á næstunni að rísa glæsilegasta- og mesta ,,hótel“ bæjarins — líklega landsins,, — og að samþykkt sé fengin fyrir slíku í bæjarstjórn. Mikil skamm sýni er það og hörmuleg, ef ráða- mönnum bæjarin svirðist unga fólkinu hér — þjóðinni — nauð- synlegra eitt „hótel“ enn, en góð aðstaða til íþróttaiðkana úti. — Gefum okkur tíma til að hugsa málið. Hvað höfum við af sam- komusölum? „Gúttó“, Skjald- borg, Hótel KEA, Verklýðshús- ið, Norðurland o. £1. Sumir eru notaðir daglega að kalla, aðrir, — þó að mörgu sæmilegir — ein- stöku sinnum. Erfitt mun með gistingu yfir hásumarið, og þó ekki illa statt í því efni hér, en meirihluta ársins standa gisti- herbergin ónotuð. Gefum okkur tíma til að líta inn í veitingasalina og út á íþróttavalla-nefnurnar, horfum á fólkið, sem kemur út frá dans- sölum og bjórstofum og berum saman við hitt, sem kemur frá íþróttunum. Munurinn er oft mikil'l — þótt vitanlega sé að miklu leyti um sama fólk að ræða. Hvorum megin þarf frekar að fylkja liði til framgangs og eflingar? Hvor svipurinn hæfir okkur betur og hvar er mann- dáðarþektar að vænta? Vitan- lega þurfum við skemmtistaði, fallega danssali með góðum hljómsveitum. Hvort tveggja þetta getur verið hér til staðar nú þegar. En íþróttasvæðið — gott á góðum stað — vantar og verður nú að fást. -Franrhjá því má bæjarstjóru ekki horfa — og aðgæta vel hvort ekki er rétt að reyna — þótt nokkuð kosti — að verða við þeirri kröfu íþrótta- áhugans í bænum, að taka um- rætt svæði neðan við Brekkugöt- una fyrir íþróttavelli, fremur en sumt annað, sem þar er áætlað. Á komandi vori verða íþróttafé- lögin að eiga vísan framtíðarstað til að starfa við og æfa sig á. Þar á kann að velta ekki aðeins ein- stakra þeill, heldur félaga og Ak- ureyrarbæjar. Tilkynning frá viðskiptaráði Til 15. janúar 1946 heimilast tollstjórum og um- boðsmönnum þeirra að tollafgreiða vörur, sem komnar eru til landsins, gegn innflutningsleyf- um, sem giltu til 31. des. 1945. Til sama tíma framlengis gildi gjaldeyrisleyfa, sem féllu úr gildi 31. des. 1945, þó því aðeins að þau séu fyri-r innheimtum, sem komnar eru í banka og tilheyra vörum, sem komnar eru til landsins. Eftir 1. janúar 1946 er óheimilt að stofna til nýrra vörukaupa og yfirfæra gjaldeyri í sambandi við þau, gegn leyfum, sem falla úr gildi 31. des. 1945, nema því aðeins að þau séu sérstak- lega framlengd af Viðskiptaráði. Reykjavík, 31. desember 1945. 1 1 | 1 y I :■

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.