Dagur - 15.12.1948, Side 6
f.
D AGUR
Miðvikudaginn 15. desember 1948
Bóndi skrifar um fyrirhuguð fjárskipti:
Telur vafasamí9 að rétt sé að slátra
-100 þásimd fjár uæsta liaust
vegua garnaveiki
Aðalsteinn Guðmundsson bóndi
í Flögu hefiv ritað blaðinu bréf
um fyrirhuguð fjárskipti hér og
segir þar m. a.:
Svo sem kunnugt er hefir mik-
ið verið rætt um niðurskui’ð á
sauðfé á svæðinu vestan frá Hér-
aðsvötnum og norður að mæði-
veikigirðingunni í Eyjafirði. Má
segja, að fjárskipti hafi þegar að
nokkru leyti verið samþykkt að
fram skuli fara haustið 1949. —
Það er margt við þetta mál að at-
huga. í fyrsta lagi hefir aldrei
nokkur rannsókn farið fram á
því, hvort hér væri um mæði-
veiki að ræða, og mun það lítið
eða ekki vera, heldur aðeins um
‘garnaveiki, sem fróðir menn telja,
að ekki verði útrýmt með niður-
skurði, og mun hún þó vera á
lágu stigi á þessu svæði. í öðru
lagi er hér um svo mikið blóðbað
að ræða, að slíks eru engin dæmi
á landi hér, og hefir þó mörgum
fundist nóg um undanfarin ár. —
Það má ganga út frá því, eftir
þeirri fjártölu, sem nú er á svæð-
inu, að drepa verði á næsta hausti
80—100 þúsund fjár, ef svæðið er
tekið fyrir allt í einu, og ætti þá
hverjum bónda að vera ljóst,
hvað honum yrði úr slátrunum,
því að hér eru ekki til kaupendur
á þessu svæði til að kaupa allan
innmat fyrir viðunandi verð. En
margur bóndi hefir haft töluverð-
ar tekjur af slátursölu undanfarin
ár.
Nú mundi máske einhver segja
sem svo, að það sé betra að tapa
sláturverðinu en að láta kindina
aragast upp og drepast, og get eg
vel gengið inn á það, þar sem um
alvarlega veiki er að ræða, en
hvar er garnaveiki og hvar er hún
ekki? Það er með öllu órannsak-
að mál, og eitt er víst, að margar
þær sögur, sem ganga manna a
milli um fjárskaða, hafa ekki við
þau rök að styðjast, að hér sé um
alvarlega fjárpest að ræða. Um
garnaveikina er það að segja, að
hún mun vera búin að vera eitt-
hvað á milli 10 og 20 ár hér fyrir
vestan heiðar í Akra- og Hóla-
hreppum, og búið að prófa fjár-
skipti hennar vegna í Hólahreppi
og dugði ekki, en hvar er þá ör-
yggið með niðurskurðinn?
Víst er um það, að veiki þessi
fer mjög gætilega, það sannar
bezt hinn geysimikli samgangur,
sem er á fé okkar Hörgdæla og
Skagfirðinga, í afréttinum og
réttum haust og vor, því að Skag-
firðingar sækja fé sitt hingað
norður í hundraðatali á hverju
hausti og það fé hefir samgang
við okkar fé bæði í réttum og
húsi, og á voi’in er það komið
margt hingað þegar smalað er til
rúnings.
Að mínum dómi gengur það
gjörræði næst, að brytja niður al-
heilbrigt fé í heilum hreppum,
jafnvel á stærri’ svæðum, til þess
að bjarga nokkrum kindum, sem
taldar eru hafá veikina, en finna
þó ekki fullkomið öryggi í niður-
skurðinum gegn veikinni. Þá er
og ekki fyrir hendi hér ósýktur
fjárstofn til að flytja inn á þetta
svæði - aftur, svo fljótt sém þörf
krefur. Að mirihstá. kosti hagar
svo til hér í Skriðuhreppi, að
meiri hluti bænda þarf að fá féð
fljótt upp aftúr, ef nokkur bú-
skapur á að vérða rekinn, svo að
það geti talist lífvænlegur at-
vinnuvegur fyrir menn. Að vísu
veit ég, að enginn, hreppur Eyja-
fjarðarsýslu er jafn illa settur
hvað samgöngur snertir sem
Skriðuhreppur, enda með öllu ó-
hugsandi að meiri hluti bænda
hér, geti lifað'af nautgriparækt
eins og sakir standa svo að segja
eingöngu, og því miður ekki lík-
legt að úr verði bætt á næstunni,
eða svo var að heyra á útvarps-
umræðum frá Alþingi um fjár-
lagafrumvarp ríkisstjórnarinnar,
þar sem gert var ráð fyrir niður-
skurði * f jáfframlags til vega í
sveitum.
i;,g vil nota þetta tækifæri og
senda hér með hinu háa Alþingi
áskorun um að veita nú til þess-
ara héraða ríflegri fjárhæð til
samgöngubóta en nokkru sinni
fyrr, og hlutast til um að þær
sveitir og hreppar, sem verst eru
staddir í samgöngumálum, fái ríf-
legan hlut af því fé. Með því eru
slegnar tvær flugur í einu höggi,
bætt úr brýnni þörf sveitanna í
samgöngumálum, og bændum
þeim, sem búlausir verða um
lengri eða skemmri tíma, en
hvorki vilja né geta yfirgefið jarð-
ir sínar, gefinn kostur á atvinnu
eftir möguleikum.
) 555555554444555555555555555555555555555555555555554555555554455555555555555445555555555®
5?
Jólin nálgast
Eins og að undanförnu bjóðum vér yður |
mest úrval af allskonar fáanlegum matvör-
Y um o. fl., með beztu kjörum:
Hafragrjón, Kandís
í pökkum og lausri vigt Kardemommur
Hrísgrjón, í pökkum
Gerduft
Hjartarsalt
Natron
Eggjaduft,
Kanill, heill
Tóbaksvörur:
Vindlar
Smávindlar
Cigarettur
Cigarettuveski
Vindlakveikjarar
Sendum heim!
Kúmen
Maisduft
Kartöflumjöl
Soyahveiti
Strásykur
Púðursykur
Sælgætisvörur:
Brjóstsykur,
ýmsar tegundir
Hnetustengur
Konfekt,
í pokum, q. jl.
Baunir allskonar, í pökk-
um og dósum
Síróp, í glösum
Bankabygg
Búðingar, frá Flóru, 5
tegundir
Snyrtivörur
Hreinlætisvörur
Þvottaduft
Sólsápa
Octagonsápa
Andlitspúður
Andlitsvötn
Hárolíur
Kinnalitur
og fle.ira
Hringið eða símið í næsta útibú vort!
Útibú:
Nýlenduvörudeild
Strandgötu 25 - Simi 391
Hafnarstræti 20 . Símr 409
Brekkugötu 47 Simi 446
Hamarstig 5 Simi 494
15555555555554455555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555!:
5 555aW5555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555ít
ÞJÓÐLEGASTA,
bezta og ódýrasta gjöfin er:
BYSKUPA SÖGUR, STURLUNCA SAGA, ANNÁLAR og NAFNASKRÁ
7 bindi fyrir aðeins kr. 300.00 í góðu skinnbandi, en kr. 235, 00 ób.
Þetta eru bækurnar, sem hver íslendingur þarf að eiga.
r
Islendingasagnaútgáfan - líankadalsúlgáfan
Pósthólf 73 — Túngötu 7 — Simi 7508 — Reykjavik
1&55555555555555555555555555555555555555555555545555555555S5555555455555555555555555555555
J