Dagur - 12.09.1951, Blaðsíða 4
4
D A G U R
Miðvikudaginn 12. sept. 1951
FRÁ BÓKAMARKAÐINUM
NÝ LJÓÐABÓK
Guðmundur Frímann:
Svört verða sólskin. —
Bókaforlag Þorst. M.
Jónssonar, Ak. 1951. 30
ljóð með 14 pennateikn-
ingum eftir höf. 112 bls.
í stóru broti.
Svört verða sólskin er skugga-
legur titill ljóðabókar ,enda grip-
.inn á lofti úr óhugnanlegri lýs-
íngu Völuspár á hnignandi heimi.
Þó skín sól jafnan skærast í skýja
rofum, er virðast þá svo sterk og
áberandi, sem væru þau úr átt-
um tveggja heima: hásal ljóss og
húmsins gáttum. Átök milli
cveggja stórvélda. Þannig er
eínnig' mannshjartanu farið: sí-
ielld skýjarof og átök milli ljóss
og myrkurs. Gleði og sorgar.
Vonar og kvíða.
Augljóst er að andstæður þess-
ar eru ríkar í eðli Guðmundar
Frímanns og huga. Og í ljóðum
þessum eru þau jafnvel enn
meira áberandi en í fyrri ljóðum
hans ,Störin syngur. Voru þær
þar þó grunntónn þeirra og víða
einna fyllsti hljómstyrkur. En
hér eru skýjarofs-átökin tíðari
og svipbrigðin sterkari, jafnvel í
einu og sama Ijóði. Verða því ljóð
þessi nokkru einhæfari og eigi
eins fjölbreytt sem hin fyrri.enda
hér allmiklu færri. Er eigi held-
ur furða, þótt naumur verði tími
til að sinna hugðarefnum skálds,
sem gengur að daglegum störfum
og verkstjórn árum saman. Gætir
þess eðlilega í snögvatrega næm-
geðja skálds.
í ljóðum þessum bregður víða
íyrir hinum sérkennilegu eig-
indum höfundar. Hinni ríku ein-
ing andstæðnanna í eðli hans.
Títt svo ljóðræn og leikandi létt,
að lesanda verður á að raula
undif, jafnvel í sjálfu rökkrinu.
Því að víða leynast hljóðaklettar
mannshjartans og svara klið-
mjúkum ómi unaðar og ama, er
til þeirra berst með söngva-
seiddri rödd lífsins í dúr og moll.
Sérstakan hreim og ljúfsáran
eiga ljóð höfundar um æsku-
aninningarnar. Eru þau allmörg,
þar á meðal fyrsta ljóðið Haust
við Blöndu. Þar syngur störin
enn í huga höf. og gleði og sorg
æskuáranna skiptast ört á, þar
sem kjörrin kveðast á í heiðar-
ásnum og söngvalyng kliðar. —
Um þær slóðir liggur enn flótta-
ferill skáldsins í haustsins hyr.
Og störin syngur. Og það gerir
einnig ljóðið sjálft. Látlaust og
innilega. — Með sama blæ er
einnig. Þjóðvísa, skínandi falleg,
ofin úr bernskuminningum. Til
einnar sumarlilju og Draumur
um Skógar-Rósu sindra af ljúf-
sárum endurminningum og
draumum æskumanns á mörkum
tveggja heima. Brot úr gömlu
iljóði er einnig sömu ættar og átt-
ar. Þar eiga hörpustrengir höf
iundar enn sinn ylþrungna,
hreimglaða hljóm. Látlaust ljóð,
hreint og tært. — Hjá gömlu
smiðjunni (heima) og Mamma,
hið fyrra kveðjutorrek liðinna
ára, sem aldrei koma til baka ,og
hið síðara „ljúfsárt ljóð“ og
„máttug minning“, innilegt ljóð
og fagurt. „Því börnunum þínum
brást það ei / þitt blessaða móð-
urhjarta."
Sérstæð lýrisk ljóð eru t. d.
Sunnanátt, Lítið heiðarljóð, með
seiðandi hrynjandi, er syngur
lengi í huga manns, Frá liðnum
árum, óður um konuna, ástina og
dauðann — o. fl.
Angurvær ljóð og tregaþrung-
in eru t. d. Svífur að haustið, Um
valköst rósanna, Haustnótt í
Ambáttardal, þar sem hnökrótt
hrynjandi og óhugnanleiki auðn-
arinnar haldast í hendur, Svart-
ur skógur o. fl.
Sérstæð ljóð og athyglisverð
mætti telja allmörg. Einna minn
isstæðast verður sa'mt f hofi Efa
konungs, djúpsótt Ijóð og magn-
þrungið. yf- Iníermezzo er dulúð-
ugt ljóðj þar sem aðalefnið felst á
milli orða og lína. Innilegt á'sta
ljóð, þar sem hvergi logar upp úr.
En „sá er eldurinn heitastur, sem
brennur í leynum.“ — Vísan um
gleðina, vorið og þig er sömu
ættar og fleiri falleg ljóð, þýð og
söngræn.
Fiðlarinn í Vagnbrekku er
prýðileg eftirmælí og sérkenni
leg með jafn prýðilegri teikn-
ingu og sérkennilegri. Húsgang-
ur um Blálands-Rósu, hressileg
þjóðsaga um fáráða förukonu, er
lifir enn á kulnandi glæðum fjöl-
breyttra æskuævintýra. Síðustu
dagar Smyrlabergs-Kobba, Við
gröf Péturs o. fl. eru eftirminni
legar ævilýsingar olnbogabarna
örlaganna.
f fylgd með farandskáldi (Stein
dóri Sigurðssyni) er samúðar-
þrungið ljóð og skilningsríkt um
þennan hrjáða flóttafugl á öræf-
um auðnuleysis síns. Og við sem
lítið þekktum S. S. tökum með
hlýjum huga undir lokalínur
lóðsins:
Guð blessi þína hinztu flóttaför,
þú farandskáld og bróðir!
I Surrender Dear |
Aðalhlutverkin:
GLORÍA JEAN
DAVID STREET |
iiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiimnMiiiinmmiiiiiiiiiiinmtmí
rm 11| • 11III11 ■ 11 ■
niimmmmmmmimmii'iimm*
j SKJÁLDBORGAR [
BÍÓ
! FRUMSKÓGA- I
STÚLKAN
(Jungle Girl) \
I. h 1 u t i
I Mjög spennandi og við- I
I burðarík ný amerísk kvik- i
| mynd, gerð eftir sam- i
í nefndri skáldsögu eftir höf- I
i und Tarzan-bókanna, Ed- i
i gar Rice Burroughs.
Aðalhlutverk:
| FRANCES GIFFORD !
\ TOM NEAL j
~i i pwhiiiiiiiiiiiiiiiii'iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii'u
Karlmanns-armbandsúr
tapaðist sl. miðvikudags
kvöld frá Hótel Norður
land niður á eyri. Finnandi
vinsamlega beðinn að skila
því á afgreiðslu Dags gegn
fundarlaunum.
Tvö góð lierbergi
til leigu í miðbænum.
Afgr. vísar á.
Gegnum flest ljóð Guðmundar
Frímanns streymir kliðmjúk og
þýð hrynjandi fjölbreyttra hátta,
og sumra all-nýstárlegra, er falla
sérkennilega vel að efninu. Gætir
þar sennilega hagleiks höfund-
ar, jafnt hugar sem handa. — Þó
hrekkur mitt austfirzka eyra upp
öðru hvoru við hina þrálátu
norðlenzku stuðlun með hv og k,
sem var með öllu ókunn eystra í
æsku minni.
Auk ljóða höfundar eru hér
einnig þrennar ágætar þýðingar
úr sænsku á ljóðum eftir Dan
Andersson og Bertil Gripenberg.
Er áberandi hve hér gætir and-
legs skyldleika höfundar og þess-
ara tveggja sænsku skáldbræðra.
Helgi Valtýsson.
íbúð óskast
Tvö herbergi og eldhús.
Mikil fyrirframgreiðsla. —
Lítils háttar hushjálp gæti
komið til greina.
Afor. vísar á.
Bifreiðakennsla
Kenni akstur og meðferð
bifreiða.
Höskuldur Hclgason,
Norðurg. 17. Sínri 1191.
Eða B. S. O. Sími 1760.
Stúlku.
vantar nrig til húsverka í
vetur. Vil greiða hátt kaup
Sérherbergi. Talið við mig
sem fyrst.
Sveinbjörg Kristjánsdóttir,
Brekkugötu 13.
Tvö herbergi
til legu á syðri brekkunni
Hentug fyrir skólafólk. —
Uppk í síma 1774.
Mótorhjól
Ariel-mótorhjól, 6 ha, ti!
sölu.
Baldur Stefánsson,
Pétursborg.
Strigaskór kvenna
1
nýkomnir
Skóbúð KEA
Koddaveráléreft
Sængurveraefni
hvit og mislit
Lakaléreft
bl. og óbl. (Stout)
Kaupfélag Eyfirðinga
Vefnaðarvörudeilcl
Gula bandið er búið til úr beztu f áan-
legum hráefnum og í nýtízku vélum.
Samvinnumeun nota smjörlíki frá
samvinnuverksmiðju
Fœst í Nýlenduvörudeild KEA og öllum útibúunum.
Glæsibæjarhreppur
Hross úr Glæsibæjarhreppi, sem rekin voru á Bark-
árdal í sumar, verða tekin úr afréttinni laugardaginn
22. þ. m. Eigendur hrossanna vitji þeirra í Vaglarétt
nefndan dag og greiði áfallinn kostnað. Gert er ráð
fyrir að hrossin verði komin í réttina kl. 1—2 e. m.
10. september 1951.
F. h. hreppsnefndar Glæsibæjarhrepps,
Stefán Sigurjónsson.
AUGLÝSIÐ í DEGI
KHKHSIStStWStWHSíStKHKHIHSOÞíStKHKHKHKHÍHKHKHKHKHÍíKHKHSlKHíH