Dagur - 12.09.1951, Síða 8

Dagur - 12.09.1951, Síða 8
8 D A G U R Miðvikudaginn 12. sept. 1951 Ðr. Kristinn Guðmundsson, skattstjóri: Svar i „skaffgrelðanda" Síðasti „Alþýðum." birtir eina af sínum dæmalausu rógsgrein- um um skattstjórann og niður- jöfnunarnefndina. Odrengskapur og rógskrif hafa lengi verið sér- grein þessa blaðs, en svo langt er gengið með síðustu grein, að jafnvel ritstjórinn lætur sem sér sé nóg boðið. Til þess þó að bregðast ekki eðli sínu og inn- ræti birtir hann greinina nafn- lausa ,og ber hann því ábyrgð á henni, enda þótt hún sé undirrit- uð „skattgreiðandi“. Höf. telur upp útsvör og skatta margra hér á Akureyri og er eitt- hvað hneykslaður á ósamræmi í þeim. Eigi eru þó nefnd nöfn. Vitanlega er ekki heimilt að gefa opinberlega skýringu á orsök þessa meinta misræmis, því að ekki er hægt að skýra frá heimil- isástæðum nafngreindra manna í opinberum blöðum. Vert er þó að benda „skattgreiðanda“ á, að tekjuskattur er oft áætlaður vegna vanrækslu á framtali o. fl., en útsvarið er ekki ávallt lagt á eftir þeirri áætlun. Algengasta misræmið stafar þó af því, að niðurjöfnunamefnd slær af út- svörum eftir reglunni um efni og ástæður, og hefur hún samkv. lögum ótvírætt vald til þess. Onnur útásetningin er sú, að niðurjöfnunarnefndarmennirnir hlífi sér og sínum nánustu. Er þetta mjög alvarleg og ódrengi- leg ásökun. Væri fróðlegt að heyra, hvernig höfundur ætlar að standa við þetta. Nefnir hann form. niðurjöfnunamefndar sem sönnun. Farið er þó rangt með flest í þeim samanburði. Er það ómakleg aðdróttun, að hann hafi haft áhrif á útsvar sitt, enda var hann ekki viðstaddur, er það var lagt á. Sömu reglur gilda um hann og aðra. — Aðalrúsínan í greininni er þó árás á mig. Er talið furðulegt, hvaða „vald skattstofunni er falið um álagn- inguna“. Mér er ekki kunnugt um, að henni sé falið nokkurt vald. Mér er ekki kunnugt um, að skattstofan ákveði nokkurt útsvar. Niðurjöfnunarnefndin fjallar um hvert einasta útsvar. Höfundur segir orðrétt: „Þá mun það einsdæmi hér á landi og sjálfsagt í víðri veröld, að skatt- stjórinn sé bæjarfulltrúi og nið- jöfnunarnefndarmaður allt í senn.“ Það er ekki ófróður mað- ur sem talar hér! Allt er þetta ósatt. Til skamms tíma var skatt- stjórinn í Rvík form. niðurjöfn- unarnefndar að lögum! Þessu var breytt að ósk skattstjóra vegna annríkis hans. Skrifstofu- stjóra skattstjóra er skylt að lög- um að aðstoða niðurjöfnunar- nefnd. Þar sem ekki eru skatt- stjórar í bæjum á íslandi, eru bæjarstjórar bæði formenn nið- urjöfnunarnefndar og skatta- nefndar. Það er borgaraleg skylda að vera í bæjarstjórn, og hlýtur mér því að vera heimilt að vera það! í Hafnarfirði er skattstjóri. Kratar hafa þar meiri hluta bæjarstjórnar. Skattstjór- inn er krati, og hann er í niður- jöfnuunarnefnd. Eigi hef eg heyrt að kratar hafi lmeykslast á þvi, og eigi er mér kunnugt um, að hann hafi orðið fyrir árásum af pólitískum andstæoingum út af þessu. Höfpndur telur mig „liggja hlífðarlausan undir háskalegum grun um ,,partisku“.“ Skora eg á hann að' birta einhver dæmi' um þessa „partisku“.-Geti hann það ekki, þá v.erður hann að.sætt.a.sig við naínbóti,na rógberi, Annars vil eg benda „skatt- greiðanda“ á, sem að öllum lík- indum er krati ,að hægt er að kæra yfir verkum mínum til yf- irskattánefndar, en formaður hennáf ér flokksbróðif hans, bæjarfógetinn. ; Athugasemd Það er rétt athugað hjá íslend- ingi, -að skekkja hefur orðið hjá mér á einum stáð í útreikningi útsvara í Reykjavík. Eg sagði að útsvar af kr. 25000 væri þar kr. 1420, en á að vera kr. 1355. Skekkja þessi stafar af því, að mér sást yfir það, að ákveðið var, að útsvör frá 1000-1995 hækkuðu aðeins um 5%, en útsvör þar fyr- ir ofan um 10%. Að vísu hafa Reykvíkingar kært þessa mis- munandi hækkun, sem ólöglega, og býður það úrskurðar dómstól- anna, hvort svo sé. Eg hef ekki getað fundið aðra skekkju í út- reikninginum, enda hefur ritstj. íslendings ekki bent á það. Rit- stjórinn er prýðilega glöggur maður á tölipr og hann veit það vel ,að Reykjavík leggur mun hærri útsvör á þurftartekjur fjöl- skyldumanna en Akureyri. Aftur á móti skal það viðurkennt, að útsvör á einhleypinga og hátekj- ur eru hærri á Akureyri en í Reykjavík. Eg veit, að hvorki ritstjóri ís- lendings né eg viljum láta Reykjavíkurblöðin halla á Akur- eyri. Vil eg að Dagur leiðrétti, ef Tíminn hallar á Akureyri og svo ísl., ef Morgunblaðinu verður slíkt á. Þyrfti hann því að byrja á því að leiðrétta það, sem stóð í næst síðasta sunnudagsbl. Morg- unblaðsins, að hjón með 3 börn á Akureyri greiði kr. 915 af 20.000 kr. tekjum. Sannleikurinn er samt sá, að útsvar af þessum tekjum er kr. 330 — á Akureyri, en kr. 680 í Rvík. — Annars er það undarlegt, að deila þurfi um staðreyndir sem slíkar. Kr. Guðm. Herbergi er til leigu fyrir kvenmann eða reglusaman karlmann. Aðgangur að síina og nauð- synlegustu húsgögn geta fylgt. Hentugur staður fyr- ir nemendur í framhalds- skólunum. Afgreiðslan vísar á. Stúlka óskast nú þegar eða 1. okt. Guðm. Björnsson Sírni 1788. úsgögn Við smíðum fyrir yður hús- gögn, bæði lieil sett og ein- staka liluti. Höfum nokkur sýnishorn í búðinni lijá Stefni. Kynnið yður verð og greiðsluskilmála áður en þér ákveðið önnur kaup. Armann & Gísli Tvö samliggjandi herbergi óskast á góðum stað í bænum frá 1. okt. Sími 1576. FATAEFNI Nýkomin góð efni í karl- mannaföt og frakka. Sigurður Guðmundsson klæðskeri Helgamagrastr. 26 Strásykur Molasykur fínn og grófur Púðursykur Kandís Kaupfélag Eyfirðinga Nýlenduvörudeild og útibú. Gólfklútar Gólfbón Ræstiduft Kaupfélag Eyfirðinga Nýlenduvörudeildin og útibú. NIÐURSOÐNIR ÁVEXTIR: Apricosur lieil- og hálfdósir Perur heil- og hálfdósir Ferskjur Ananas Kaupfélag Eyfirðinga Nýlenduvórudeild og útibú. Rauð budda með rennilás, og lítill lyk- ill, sem i Iienni var, helur tapazt. Vinsamlegast skilist á afgreiðslu Dags. Bifreiðin A-566 ALUMINIUM sem er sex manna Mérkury fólksbifreið, er til sýnis og sölu nú þegar. — Upplýs- ingar gefur Kaffikörmur Jón Tryggvason, Brekkug. 15, sfmi 1502. 09 kaflar Til leigu stofa og gott eldunarpláss. Al’gr. vísar á. Járn- og glervörudeild. Gott herbergi til leigu. Filmur KEÁG Afgr. vísar á. * <^þ> í útibúinu í Ránargötu 10 er Járn- og glervörudeildÍA sími 1622 Niðursuðuglös Vinsamlegast skrifið það inn í símaskrána. Járn- og gleruörudcild. NÝJAR Kartöflur Smjörpappír Gulrófur Sendum heim! Járn- og glervörudeild. Kjötbúð KEA Sími 1714 og útibúið Ránargötu 10. Sími 1622 Járn- og glervörudeildin Niðursoðnir ávexíir: Perur Ferskjur Apricosur Ananas Blandaðir Kjötbúð KEA. Sími 1714 og útibúið Ránargölu 10 Simi 1622 Járn- og glervörudeildin Olíulampar Járn- og glervörudeildin Karlmannasokkar ull og nylon, mjög endingargóðir Kaupfélag Eyfirðinga Vejnaðarvörudeild English Elecfric i Nokkrar þvottavélar til viðbótar komnar til lands. Koma með næsta Fossi frá Reykjavík. Rílasalan h.f. Símar 1649 — 1749.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.