Dagur - 12.09.1951, Side 10
10
D A G UR
Miðvikudaginn 12. sept. 1951
Þorp í álögum
Saga eftir Julia Truitt Yenni
4. DAGUR.
(Framhald).
„Getið þér sagt mér, hvar eg
get hitt fröken Faith Goodbind?“
Konan leit hvasst á hann, lagði
frá sér kaffibollann, sem hún
hélt á.
„Hana? Einkennilegu konuna,
sem býr handan við múrsteina-
hlaðana?"
„Einkennilegu?“ endurtók
Hampton í spurnartón.
„Eg á ekki við, að hún sé tal-
in skrýtin í venjulegri merkingu.
Hún er sjálfsagt eins og fólk er
fl&t að því leyti. Heldur hitt, að
hún er ókunn hér. Kom hingað
einhvers staðar frá fyrir nokkru,
og hér þekkir enginn hana.“
„Einmitt það. En koma ekki
gestir til hennar, ættingjar eða
vinir?"
„Ekki það eg veit til. Og hér á
hún enga ættingja.11
Hampton hrærði í kaffibollan-
um sínum, en konan stóð kyrr.
„Ert þú kannske kunningi
hennar?“ spurði hún.
„Nei, ekki er það nú. Hef aldrei
séð hana.“
„Ættingi?11
„Nei.“
Hún horfði á hann og beið eftir
skýringu. En hann brosti bara
sakleysislega, eins og hann hafði
brosað framan í Georg Hauer.
Hún beið enn drykklanga stund,
en þegar engin skýring kom, varð
kveneðlið að fara sínar götur,
hvað sem öðru leið: „Mér er
ekkert um það gefið að skipta
mér af málefnum annarra,“ sagði
hún, „en ef þér tekst betur en
fólkinu hér að fá að vita eitthvað
um hana, þá þætti mér gaman ef
þú vildir segja mér á hverju hún
lifir. Og ef hún á peninga, hvers
vegna klæðir hún sig þá ekki eins
og annað fólk og hvers vegna fær
hún sér ekki permanent og hvers
vegna í ósköpunum kaus hún þá
að búa hér úti á Ármóti og það
þarna út úr bænum.“
„Fyrir utan bæinn?“ endurtók
Hampton.
„Já, það er utan við bæinn.
Vatnslögn og raflögn ná ekki út
fyrir múrsteinshleðsluna. Hún
hefur ekki einu sinni hin frum-
stæðustu þægindi þarna út frá.“
—o—
Hampton hafði lokið máltíðinni
og færði stólinn lítið eitt frá
borðinu. Hann bar virðingu fyrir
þessari konu, því að enda þótt
hann þættist sjá að eldamennska
hennar hefði ekki mýkt hana
neitt, hvorki til sálar né líkama,
varð því ekki neitað, að hún var
fyrsta flokks. Þetta var kven-
maður, sem kunni að búa til mat!
„Eg skil afstöðu ykkar,“ sagði
hann með mikilli kurteisi. „En
kunningsskapurinn — ef hann
verður nokkurn tíma — verður
aðeins viðskiptalegs eðlis.“
„Sölumaður?" spurði konan
óðara.
„Nei,“ svaraði Hampton og
brosti um leið og hann stóð á fæt-
ur og hneigði sig lítið eitt fyrir
henni um leið og hann setti upp
hattinn og gekk fram að af-
greiðsluborðinu frammi í and-
dyrinu, þar sem líklegt mátti
telja að hægt væri að panta her-
bergi fyrir nóttina og tókst sú
fyrirætlun prýðilega. Um leið og
hann gekk að útidyrunum, mætti
hann konu, sem var á leið inn i
veitingasalinn. Hampton var svo
upprifinn yfir skemmtilegum og
vel heppnuðum xnorgni, að hann
stillti sig ekki um að líta á hana
og sá á augabragði, að hún var
sérlega fögur,. vel klædd, ekki
mjög ung, minnti á fullþroskað-
an ávöxt. Hún horfði líka á hann,
vottur af brosi lék um varir henn
ar. Hún havrf inn í veitingasal-
inn. í hendinni hélt hún á körfu.
Innihald hennar var hulið með
hvítum dúk.
„Halló, Evá,“ héyrði hann kon-
una í veitingasalinum segja. „Það
eru steiktir kjúklingar í dag.
Skildu körfuna eftir, eg skal
senda Jane með hana niður eft-
ir.“
„;Þakka þér fyrir, Rósa. Viltu
fylla á karöfluna úr einni af
flöskunum hans pabba?“
Ekki ætlar hún að passa illa í
rammann, hugsaði Hampton. —
Méð sig'urbros á vör, gekk hann
út á strætið.
- f i.;; —o—
Joe, Stafford .. renndi bílnum
sínum inn um járnhliðið fyrir
framan Saddlers veitingahsúið.
Hann rataði óstuddur inn að af-
greiðsluborðinu í anddyrinu, en
þar var enginn til þess að af-
greiða hann .Fyrstu dyrnar, sem
hann reyndi að komast inn um,
opnuðust inn að bar, en þar inn-
an við var veitingasalur, sem
augsýnilega var búið að loka fyr-
ir daginn. En á háum stól á bak
við barinn, sat stór, beinaber
kona og virtist mundi afgreiða
þar. Stafford tók sér sæti við bar-
inn. Konan hætti að leggja kabal
og sneri sér að honum.
„Mætti eg biðja um glas af
bjór,“ sagði Stafford. „Er annars
of seint að biðja um eitthvað að
borða?“
„Matsalurinn er lokaður.“
„Já, eg veit það. Eg bjóst nú
ekki við að fá heilan kvöldverð.
Aðeins það, sem hægt væri að af-
greiða hér við barinn.“
„Hjá Larkie Drumhellar er
hægt að fá að borða eitthvað á
öllum tímum. En sá siður hefur
aldrei verið innleiddur hér. En
kannske get eg fundið eitthvað í
eldhúsinu, sem notandi væri.“
Hún hvarf inn í eldhúsið. Eftir
litla stund kom hún aftur með
disk hlaðinn alls konar góðgæti.
Þetta var sýn, sem kom honum
þægilega á óvart og vakti í brjósti
hans aðdáun á Ármóti, sem átti
eftir endast lengi. Hann hafði ek-
ið allan daginn og var í senn
svangur og þreyttur. Vatnið
kom fram í munninn á honum, er
hann leit yfir diskinn.
„Þakka yður fyrir,“ sagði hann,
er hann sá að hún horfði rann-
sakandi á hann.
„Þetta eru nú bara leifar,“
sagði hún.
Hann lyfti bjórglasinu, dreypti
á því og kinkaði kolli til hennar,
eins og hann væri að drekka skál
ágætrar frammistöðu. Hún roðn-
aði lítið eitt í vöngunum, en gat
ekki varizt ofurlitlu brosi, þótt
það kæmi aðeins með erfiðis-
munum fram á varir hennar, svo
sneri hún aftur að barnum, en
miðja vegu leit hún við og horfði
á hann, þar sem hann sat að mat
sínum.
„Hvernig stendur á því, að þér
komið hingað að Ármóti á þess-
um tíma sólarhringsins?“ spurði
hún.
„Eg er í viðskiptaerindum,“
svaraði hann kæruleysislega. ■—
Ekkert annað en að njóta góðrar
máltíðar komst að í huga hans
þessa stundina. Konan sneri sér
að honum aftur. Hann fann frem-
ur en sá, að hún horfði á hann og
hann varð sér þess meðvitandi,
að þeir aðrir, sem inni voru,
horfðu líka á hann. Samtalsklið-
urinn hafði algerlega þagnað. —
Konan horfði þegjandi á hann
nokkra stund, en tók síðan til
máls:
„Skrítið er það,“ sagði hún.
Heilt ár líður svo, að enginn
kemur að Ármóti nema vörubíl-
stjórar, ættingjar þorpsbúa og
svo sölumenn. En nú koma hér
tveir ferðamenn á einum og sama
degi.“
Hún þagnaði og beið. En Staf-
ford var að hræra í kaffibollan-
um sínum og kaffið var gott og
hann vildi njóta þess, jafnvel
þótt allra augu hvíldu á honum
á meðan.
1..""wii".-”"’iiiin"i:M:ii)nunir,”"’iMwn)iinuii>
Konan gafst ekki upp. „Kann-
ske þér séuð hér líka til þess að
finna fröken Faith------------Good-
bind.“ Hún lagði sérstaka
áherzlu á þrjú síðustu orðin, í
tóntegund, sem átti að vera
háðsk og fyrirlítandi í senn.
„Jú, reyndar er það svo. Eg er
kominn til að finna hana.“
Aftur fann hann, fremur en sá,
að einhver hreyfing kom á gest-
ina við barinn, en enginn annars
sagði orð.
„Lögfræðingar," sagði konan.
„Þar kom skýringin. Raunar
væri gott ef hún erfði einhvern
pening, því að ekki eru neinar
horfur á því, að hún ætli að hafa
fyrir því að vinna fyrir sér.
Stafford sötraði kaffið sitt.
Þetta var ekki erfiðislaust, en úr
því að Faith Goodbind hafði
ekki talið ástæðu til þess að til-
kynna þorpsbúum að hún væri
að gefa út skáldsögu, taldi hann
ekki sitt hlutverk að koma frétt-
unum á framfæri.
Hann brosti vingjarnlega.
„Hvar á hún heima?“ spurði
hann.
„Þarna hinum megin við múr-
steinshleðsluna, eins og eg sagði
hinum gestinum í morgun. En eg
hef ekki séð neitt af honum síð-
an. Enginn taldi þetta hús hæft
til íbúðar eftir að Pappy Wicom-
ber dó og enginn bjó þar eftir það
fyrr en hún flutti inn.“
„Fyrir handan múrsteinsgarð-
inn?“ Stafford leit út um glugg-
ann.
„Þér munuð finna húsið. Hald-
ið yður bara við aðalgötuna,'’ og
þá munuð þér koma að ánni eða
múrsteinsgarðinum. Hún býr
handan við garðinn í ómáluðu
húsi, sem stendur þarna á grund-
inni, sem ekki hefur verið slegin
í ein fimmtán ár.“
„Þakka yður fyrir.“ Hann stóð
á fætur og brosti til hennar. „Það
er nægur tími á morgun. Get eg
fengið herbergi hér í nótt?“
„Jú, því ekki það. Þér getið
fengið næsta herbergi við vin yð-
ar — ef hann kemur einhvem
tíma. Baðherbergið er fyrir enda
gangsins.
Stafford mjakaði sér út að dyr-
um. „Eg athuga herbergið
seinna,“ sagði hann í flýti. —
„Haldið því bara lausu fyrir mig.
Stafford, Jósep Stafford, New
York.“ Hann skauzt út.
Faith Goodbind labbaði nokkra
metra niður brekkuna bakdyra-
megin og skvetti uppþvottar-
vatninu með mjúkri sveiflu út í
grasið. Hún þurrkaði fatið að
■innan með klút, sem hún hafði
haft á öxlinni — og gekk svo til
baka inn í húsið. Hún setti fatið í
skáp í eldhúsinu, en klútinn
hengdi hún upp. Að því búnu
gekk hún inn í stofu.
Herbergin voru fátækleg og
fáum húsgögnum búin, en allt
var tandurhreint. Hún horfði í
kringum sig með innilegri
ánægju. „Þetta er samt yndislegt
hús, mitt eigið hús,“ hugsaði hún.
Og svo: „Já, hafðu ekki áhyggjur
af mér, pabbi minn, því að ég er
ekki öll á valdi eigingirninnar, en
það er gaman að eiga blessaðan
kofann og hafa tilheyrt honum
svona lengi.“ Og um leið og hún
fór út um dyrnar og út á stéttina,
þá strauk hún blíðlega hurðar-
húninn.
Hún ætlaði að ganga niður í
þorp og sækja póstinn sinn, ef
einhver væri, en þegar hún kom
niður á grundina, sá hún hvar
Amos Tucker lá endilangur í
grasinu undir perutrénu. Iiún sá
ekki andlitið, en hún þekkti
slitnu hermannsbuxurnar og
upplituðu skyrtuna. Henni hitn-
aði innanbrjósts. Hún gekk til
hans, og hann settist upp, er hann
sá hana. Þau brostu hvort til
annars, og hún settist í grasið hjá
honum. Sólin skein mildilega á
þau gegnum laufskrúða peru-
trésins. Henni leið vel að sitja
þarna hjá honum. Það lá ekkert
á með póstinn. Og hún hafði lært
fyrir löngu síðan að njóta líðandi
stundar. Þau sátu þögul um
stund, en svo lagðist hún aftur á
bak í grasið og deplaði augunum
á móti sólinni.
Hann sat og horfði á hana. Eft-
ir stundarkorn sneri hann sér og
lagðist á grúfu með hönd undir
kinn og horfði beint í augu henn-
ar.
„Ef til vill veiztu það ekki,“
sagði hann, „að það eru allir í
þorpinu í uppnámi, þín vegna.“
„Mín vegna! Eg sem hef ekki
farið út úr húsi í þrjá daga!“
„Eg veit það. En fjöllin hafa
komið til Múhameðs, og þau hafa
farið um Saddlersveitingahúsið.“
„O, þú átt við litla manninn frá
New York.“
„Það voru tveir menn, Faith,“
sagði hann. „Ef til vill fleiri. Þeg-
ar eg fékk mér bjórglas í gær-
kvöldi, þá skyldist mér á Rósu,
að þeir væru heill tugur, allt
saman leyndardómsfullir náung-
ar, sem einskis góðs er að vænta
hjá.“
Hann brosti hæga brosinu sínu,
sem hún þekkti svo vel, en það
bjó eitthvað á bak við brosið —
kvíði — ótti?
„Eg hef aðeins séð einn,“ sagði
hún. Hún bar hönd fyrir augu og
horfði hvasst á hann. „Amos,“
sagði hún. Hana langaði til að
snerta hann með hendinni, en
hún gerði það ekki. „Amos, —
ert þú líka kvíðinn og órór út af
þessu?“
„Eg er ekkert órór þín vegna,“
sagði hann. Eg brýt ekkert heil-
ann út af því, hvers vegna þú
sért hér eða hvaðan þú sért. Þú
ert hérna, það er mér nóg. Að-
eins------“ Hann leit undan og
hvíldi ennið á handlegg sér.
„Faith, við skulum gifta okkur.“
Hún horfði rannsakandi á
hann, en sagði ekkert. Það greip
hana ótti. Hið áhyggjulausa líf
hvarf á þessu augnabliki, hún,
vildi ekki þurfa að fara að rök-
ræða um ástina sína, taka
ákvörðun, nei, hún vildi ekki
taka ákvörðun, hún vildi ekki —
Amos, ó, Amos.
(Framhald).
Dansleik
heldur kvenfélagið Aldan
að Þverá í Öngulsstaða-
hreppi laugardaginn 15.
sept. kl. 10 e. h. Góð músík.
Kaffisala.
Brennimark
okkar er R.vík.
Sigfús Þorsteinsson,
Adólf Gíslason,
Rauðuvík.
Karlmanns-
armbandsúr
tapaðist á Hrafnagili sunnu
daginn 2. sept. Finnandi
vinsaml. skili því á afgr.
Dags gegn fundarlaunum.
Atvinna
Stúlku vantaí mig til heim-
ilisstarfa í vetur. Sérher-
, bergi og öll kvöld frí.
Kristinn Jónson,
Hafnarstræti 90, Akureyri.
Símar 1196 og 1422.
Kýr til sölu
Haraldur Davíðsson,
Stóru-Hámundarstöðum