Dagur - 17.12.1955, Side 6
6
JÓLABLAÐ DAGS
'hins n'afntogaða Hudsonsflóa-
félags, sem meira en nokkuð annað
styrkti veldi Breta í Kanada á liðn*
u.m öldum og átti meginþátt í
könnun og landnámi mikils hluta
landsins.
Upphaf Hudsonflóafélagsins.
Bretar gerðu út könnunarleið-
angur til Hudsonflóastranda sum-
arið 1668, og var Rabison með í
lörinni. Þeir höfðu lítið skip, „The
Nonesink", og héldu suður um fló-
ann og inn í Jamesflóa, og fór allt
eins og Rabison hafði sagt um feng
þeirra. Var skipið hlaðið dýrindis
grávöru, og síðan 'haldið heim til
Bretlands. Þótti förin giftus'amleg,
og fyrir atbeina Ruperto konungs-
frænda í Bretlandi leiddi þessi sigl-
ing beinlínis til stofnunar Hudson-
flóafélagsins árið 1670.
iÞetta féliag hlaut svo úr hendi
brezku krúnunnar einkaleyfi til
verzlunar og landnáms á flæmi því,
er nefnt var í stofnskrá félagsins
„Ruperts land“, en enginn. vissi þá
takmörk 'þess. En reynsl'an átti eft-
ir að sýna, að aldrei í sögum hala
neitt viðlíka mikil landflæmi verið
seld á leigu með einu skjali og
einni unddirskrift. Með einkaleyf-
isveitingu Karls II. Bretakóngs árið
1670 hlaut félagið raunverulega
umráðarétt yfir allri strönd Hud-
sonflóa og síðan, eftir því sem lönd
opnuðust, rakleitt vestur að Kyrra-
hafi, og öll þau lönd, sem nú nel'n-
ast kanadisku óbyggðirnar og gífur-
leg flæmi. þar setn nú eru mið- og
vesturfylki Kanada. Að vísu afhenti
Alexander páfi VI. Spánverjum og
Portúgölum gjörvallan hinn nýja
lieim til helmingaskipt'a, eignar og
ábúðar, en aldrei varð það nema
nafnið eitt og draumur og ljar-
stæða. En stofnskrá Hudsonfióa-
félagsins reyndist þeim mun traust-
ari og raunhæfari.
Hudsoníióa-félagið sat síðan að
völduin öldum saman, viei-tti geysi-
legumauðæfum lveim til Bretlands,
hafði 'inikil og víðtæk áhrif á sögu
Kanada og Kanadamanna. Enn í
dag bera mannabyggðir á Hudson-
flóa-strönd merki lélagsins.
Nú er sá tími liðinn fyrir löngu,
að grávaran ráði stríði eða friði að
kalla má. Loðskinn eru enn dýr-
mæt, en þau eru nú til dags tekin
á búgörðum frernur en í veiðilönd-
um. Þó eru loðdýraveiðar í Kanada
enn atvinnuvegur fjölda manna,
'einkum á norðurslóðum, og frá
■þessum löndunr berst mikið af dýr-
mætri grávöru á heimstnarkaðinn.
Höfn hveitilandanna.
En siglingaleiðin til Hudsonflóa-
stranda er ekki lengur dýrmæt af
þeim sökum. Hún er dýrmæt vegna
þess, að Hudsonflói er í nokkrum
skilningi liöín hinna miklu hveiti-
landa mið- og vestur ICanada.
Hann má kalla höfn Winnipeg eða
Saskatnhewan og Caigary. Stórfljót-
in, er falla í Hudsonflóa vestan og
sunnan úr landi, eru geng smáskip-
u'm. En þannig er beint samband
til dæmis frá Winnipegvatni um
Nelsonfljót tjl Hudsonflóa um óra-
vegu. Vegna legu flóans er hag-
kvænrt fyrir sléttid'ylkin að senda
hveiti sitt á markað með skipum,
ersæk ja það til Hudsonflóa-hafnar-
innar Churchill. En frá Winnipeg,
miðstöð hveitilandsins Manitoba,
er 800 kílómetrum styttri vega-
lengd til Liverpool á Bretlandi, sé
farið um Churchill og Hudsonflóa
en unt Montreal og Lawrencefljót,
og frá Edmonton í Albertafylki er
munurinn 1600 kílómetrar.
Churchill er því orðin mikil út-
skipunafhöln á hveiti og öðru
korni sléttubænda, en háð þeim
náttúruskilyrðum, sem norðlæg
lega og íslagt innhaf skapar. Sigl-
ingatíminn er 'aðeins skammur, ör-
fáar vikur hásumarsins, en þá
streyma skipin til Churchill og
eru fiermd ómöluðu hvciti úr stór-
um hleðslustrokkum, sem geyma
það fyrir bændur til þessa tíma.
Þá er alveg vafalaust, að þegar sá
draumur rætist, að við íslendingar
komum okkur upp kornmyllu og
tökum að mala og sekkja okkar
korn, eins og við eigum vissulega
að gera sjálfir, þá sækjum við það
ekki á skipum okkar suður til New
York eða Montreal, heldur þá leið,
sem er langt stytzt fyrir okkur og
hagkvæmust, — um kverk Huclson-
flóans til Churchill. En sú leið er
nær því beint í vestur frá Islandi.
Það er kannske ekki fjarlægur
draumur, að íslenzk skip sæki
sléttukornið til Jressara stranda, sem
eru flestum Islendingum ókunnar í
dag — flestum, en ekki öliu-m. Því
að einnig á þessum slóðum, og
raunar hvar sem komið ’cr í Kan-
ada, rekst maður á íslendinga. Þeir
-eru þó ekki sagðir nem-a rösk 20
þúsund alls í landinu og taldir
flestir í mið- og vesturfylkjunum.
En furðanlega hcfur þeim samt tek-
izt að dreifa sér um landið, og þessi
staðreyncl styrkir þá skoðun, að við
séum miklir ferðalangar og ævin-
týramenn að eðlisfari, unitm lítt
kyrrsetum og tióglífi, len kjósum
frekar áhættur og erfiðí. Eða má
ekki líka sjá ævintýraþrána í því,
livernig þessi kynslóð tekur til
höndum við að byggja upp l'andið
nú í dag?
Komið til Fort ChurcliilL
En nú skal staðar numið að sinni
með að lýsa sögu landkönnunar við
Hu-dsonflóa eða ræða sögu Hud-
sonflóa-félagsins; hvort tveggja geta
þeir sem vilja, kynnt sér af bók-
um. Er sá fróðleikur, er ég hef hér
þulið, líka að sjálfsögðu sóttur í
-bækur og að mestu leyti grafinn
þar upp úr -gleymsku nú í sumar er
leið, er ég átti fyrir höndum að
heimsækja þessar slóðir og dveljast
um stund í Fort Churchill við ósa
Churchill-fljóts, en þar er sögu-