Dagur - 17.12.1955, Blaðsíða 10

Dagur - 17.12.1955, Blaðsíða 10
10 JÓLABLAÐ D AGS sína. Hann bjó með konu og barni í timburhúsi, sem hann hafði þá nýlokið við að byggja. I>að var stórt, en myndi ekki talið nýtízku- íbúð hér hjá okkur. Úr forstbfu var gengið beint inn í eldhúsið, sem var í senn eldhús, borðstofa og dag- stol'.a. Kuldaúlpur og leðurjakkar voru hengdir á króka, en byssur á veggi. Bakarasveinninn frá Kaup- mannahöfn er orðinn veiðimaður í Cliurcliill við Hudsonflóa. Á vetr- um gengur hann á skíðum með byssu um öxl og leggur að velli héra, refi og carbiou-hreindýr. Þótti mér örlög danska bakara- sveinsins nokkuð iinnur, en vænta mátti að óreyndu. Þeim hjónum 'þótti Veturinn langur og strangur, en efnahagsafkoman allgóð. Húsið sagðist hann myndi eiga skuldlaust eftir 5 ára vist í landinu. Norðmaðurinn leystur út með gjöfum. jVorðmanninum varð líka vel agengt. Hann uppgötvaði að helztu framkvæmdamenn þorpsins og að- alkapítalistar voru norskir feðgar. Gengum við allir því á fund þeirra. Þetta var fyrirfólk; okkur var boðið til stáss-stofu, sem var vel búin hús- gögnum. Norðmennirnir voru rót- grónir í Churchill, höfðu komið sér vel fyrir. Sonurinn hafði verið á herskipum á Kyrrahafi á stríðsár- unum og ræddi gjarn'a um dvöl nteð blóðheitum. Suðurhafseyja- meyjum á kóraleyjum jaeirra ævin- týraslóða; en hér í Churchill átti liann samt heima, og hér ætlaði liann að byggja sitt hús til fram- búðar. Norðmaðurinn okkar naut jress, 'að hans menn voru norskir fyrir- menn þeirra, er við hittum Jætta kvöld, því að hann var leystur út með gjölfum. Fengu landar hans honum mikinn hvítabjarnarfeld að skilnaði, og var það höfðingleg gjöf. Hafði sonur hússins lagt björn þann að velli í marzmánuði þá um veturinn allskammt frá Churchill. Að áliðnu kvöldi snerum við þre- menningarnir til flugstöðvarinnar og bárum feldinn í milli okkar. Þótti ítölsku, frönsku og grísku ferðafélögunum það mikilfengleg sjón, er við Norðurlandabúarnir birtumst hróðugir með hvítbjarn- arfeldinn í milli okkar. Og víst var gjöfin góð og vitnaði um norræna höfðingslund. Sérkennileg byggð. Snemma næsta morgun var lagt af stað frá Churchill. Vegalengdin til næstu lendingarstöðvar revndist 2200 kílómetrar. En margar klukkunstundir liðu, áður en sást til byggða. Freðmýrin og hinn strjáli skógur norðurslóða þessara er tilbreytingarsnautt land. F.n við ós Churchillfljótsins er sérkennileg og sögurík byggð, sem gaman er að minnast. H. Sn. c- 1

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.