Dagur - 17.12.1955, Blaðsíða 16

Dagur - 17.12.1955, Blaðsíða 16
 I I 1 t I I i I I t i I I I I I I I i I i I i i 1 i V.r I I i i 1 I I Gömul kvœði og vhur Jón Jónson var fæddur að Mýri í tíárðardal 4. september 1851. Foreldrar hans voru Jón Ingjaldsson, bóndi á Mýri, og kona lians, Aðalbjörg Jónsdótir, Sigurðssonar á Lundar- brekku. Arið 1879 gekk liann að eiga Kristjönu Helgu Jóns- dóttur, Rögnvaldssonar, frá Leifsstöðum í Eyjafirði. Jón hóf þá buskap á Mýri og bjó þar til 1903, cr hann fluttist tfi Ameríku með öll börn sín nema tvær dætur, en þau voru alls 12. Þá var Jón orðinn ekkjumaður. — Arið 1899 ‘kom upp taugaveiki og barst lnin í Mýri, og veiktist allt fólkið, 15 manns. Veikin var væg á flestum, en úr henni dó vinnu- kona, sem hjá þeim var, og Kristjana 12. apríl árið 1900, efir Jöng og ströng veikindi. — Eins og fyrr segir, fluttist Jón til Ameriku árið 1903. Áður voru tvö börnin larin til frænd- fólks síns, móðursystur sinnar og manns hennar. Jón stund- aði fyrst búskap, en síðan var hann hjá börnum sínuin. Hanu mun ætíð hafa verið sem útlagi Jtar í landi og kvalinn af lieimjrrá. Jón Jónsson írá Mýri — eins og hann skrifaði sig ætíð — fékkst nokkuð við ritstörf, bæði í bundnu og óbundnu máli. Nokkuð af Jjví, sem eftir hann liggur á Jtví sviði, birt- ist í blöðum og tímaritum vestan hafs, en ekkcrt hefur birzt eftir hann hér heima. — Hér birtast kvaiði cftir Jón og fá- einar stökur. ALDEYJARFOSS (1889) Sífellt hugur hingað leitar, liátt að örælanna rönd. Tignum öldung æskusveitar enn skal rétta vinarhönd. Sjá, hve tímatönnin bitra tuggið hefur prýði lands; iinna blágrýtt bergið titra beint á móti ásýnd hans. Fljót í einu falli brunar fram af bergi, lrvítt sem snær; sunnar fram úr bergi bunar blárra linda straumur tær. Líkt: og indversk hofahvelfing hinum megin bergið er. Háleit unun, engin skelfing anda mannsins gripur hér. Fyrrum var hér frjósemd mesta, foldu Jjakti gróðurskart; nú er liorfið bhhnskrúð bezta, bergið eftir stendur iiart. Tíminn vinnur súlna salinn seint, Jrví bygging hans er trú. Þegar Bárður byggði dalinn, berg og foss var líkt og nú. Hér Jrótt íslands æskublómi ekki brosi vorri sjón, tigins öldungs afl og ljómi oss að nokkru bætir tjón. Kenn oss, foss, Jiitt fjör og hreysti, frá oss deyfðar mókið hrek, svo vor aldrei svefninn freisti, sanna frelsis löngun vek. Á SUMARDAGINN FYRSTA (1915) Kom blessað, þú skínandi skrúðbúna vor, í skapandi guðdómsins nafni, og vektu í sálum Jrað sjálfstæðisþor, að sundrung og mannvígum hafni. A íslenzkri hátíð ég ávarpa Jrig og alla, er feta J)inn blessaða stig. _

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.