Dagur - 02.10.1980, Blaðsíða 7

Dagur - 02.10.1980, Blaðsíða 7
Niðurstaða rannsóknarinnar cr einfaldlega sú að bregðast þurfi við nú þegar og fyrirbyggja að frekari mengun geti átt sér stað. Mynd: Helgi Hallgrímsson. ’ , ............... Astandið ekki eins slæmt „Mengunarástandið í heild sinni er ekki eins slæmt og ýmsir hafa talið að það væri og við hefðí mátt búast við núverandi að- stæður. Á hinn bóginn verður ekkert fullyrt um þær breytingar á gróðri og dýralífi sjávarins í innanverðum Eyjafirði, sem kunna að hafa orðið á undan- förnum áratugum vegna meng- unar, því samanburð vantar frá fyrri tímum. Samt ættu núverandi rannsóknir að vera nokkuð stað- góður grundvöllur til saman- burðar við athuganir er síðar verða gerðar til að fylgjast með mengunarástandinu, en á því hljóta allar ráðstafanir til úrbóta að byggjast. Verði ekkert aðhafst til úrbóta getur ástandið aðeins og búist var við þegar rannsóknir hófust versnað og fyrr en varir getum við setið uppi með „dauðan sjó“ segir í heildarniðurstöðum. Þar segir að í yfirborðslagi Pollsins og innsta hluta fjarðarins (innan Krossaness) séu áhrif skólpmengunar auðsæ, einkum nteð vesturlandinu, næst útrásum skólpsins og í lygnum víkum. Áhnfin koma m.a. fram í: a) miklu magni saurgerla í yfir- borðslaginu. b) óvenju háu hlutfalli jurtanær- ingarefna, einkum fosfórs. c) litlu gagnsæi að suntrinu, sem bendir til mikils svifgróðurs. d) fátæklegum gróðri og dýralífi í fjörum og á grunnum með föstum botni. e) óvenjulegu magni vissra dýra- tegunda (orma) sem geta nýtt úrganginn. Sum þessara atriða má þó að einhverju leyti skrifa á reikning ferskvatns sem fellur í fjarðar- botninn og hefur óheppileg áhrif á sjávarlíf. Djúplagið í Pollinum og álnum þar fyrir utan virðist hins vegar hafa orðið fyrir furðu litlum áhrifum af skólpmengun. sem fram kemur m.a. í: a) nægilegu magni uppleysts súrefnis við botninn og vönt- un á brennisteinsvetni í leðj- unni. b) ríkulegu og fjölbreyttu botn- dýralífi. Skýringa á þessum mismun er að leita í lagskiptingu sjávarins í firðinum sem rekja má til fersk- vatnsstreymisins í fjarðarbotninn og mismunandi strauma í lögun- um (Sbr. straumaskýrsluna). Líklegt er þó að einhverra „áburðaráhrifa" gæti á bolnlífið í Pollinum, sem eigi þátt í að auka magn sumra tegunda. Aðgerða er þörff Nú hefur Náttúrugripasafnið lokið sínu hlutverki í þessu verki að sinni og heilbrigðisncfnd á næsta leik. Reyndar var boðað til fundar fyrir skömmu þar sem þeir sérfræðingar sem unnu skýrslurnar kynntu niðurstöður þeirra fyrir heilbrigðisnefnd, starfsmönnum bæjarins og nokkrum bæjarstjórnarfulltrú- um. Nefndarmenn munu nú fjalla um málið og leggja frani tillögur til úrbóta fyrir bæjar- stjórn þegar þar að kemur. „Sérfræðingarnir telja að ástandið geti aðeins versnað og við erunt sammála því. Það þarf að grípa til einhverra aðgerða". sagði Valdimar Brynjólfsson. heilbrigð- isfulltrúi á fundi þar sem niður- stöður rannsóknanna voru kynntar fulltrúum fjölmiðla. En hvað er hægt að gera til að draga úr mengun? Valdimar kvað það nauðsynlegt að setja ákveðin mengunarntörk og hefjast handa nú þegar. í því sambandi hefur verið rætt um forhreinsun á þvi skolpi sem rennur nú til sjávar. Með forhreinsun er átl við það að sett eru sigti í rörin og reynt með því móti að sía úr föstu efnin. Forhreinsun er fyrsta skrefið að hreinsistöð en bæjaryfirvöld hafá þegar tekið frá lóð fyrir slíka stöð við Glerárósa. Þegar er farið að vinna að því að safna saman út- rennslisopum og má í því sambandi minna á að sífelll minna skolp rennur í sjóinn sunnan við Odd- eyrartanga. Til dæmis hefur lögn- um í Strandgötu verið snúið svo skolpið rennur i safnæð i Gránufé- lagsgötu. En hvenær mun svo full- komin hreinsistöð rísa á Akureyri? Þeirri spurningu er erfitl að svara. Sjálfsagt mun þeim kandidötum sem bjóða sig fram við bæjar- stjórnarkosningar i framtíðinni þykja vænlegra að lofa ntalbiki og grænum svæðum en skolphreinsi- stöð við Glerárósa. ttna&wtoiilriim Dæmi um nokkmvalkDSti af mörgum sem 'bjóöast. SPARNAÐAR- TÍMABIL DÆMI UM MANAÐARLEGA INNBORGUN SPARNAÐUR í LOK TÍMABILS IÐNAÐARBANKINN LÁNARÞÉR RÁÐSTÖFUNAR- FÉ MEÐ VÖXTUM MANAÐARLEG ENDURGREIÐSLA ENDURGR. TÍMABIL 100.000 300.000 300.000 613.000 105.940 rz; / 125.000 375.000 375.000 766.125 132.425 o , IXlðxIlL, 150.000 450.000 450.000 919.250 158.910 man. 100.000 600.000 600.000 1.252.250 110.545 v—J , 125.000 750.000 750.000 1.565.062 138.181 maii. 150.000 900.000 900.000 1.878.376 165.817 man. 12 100.000 1.200.000 1.200.000 2.609.503 120.135 JJhO , 125.000 1.500.000 1.500.000 3.261.872 150.169 iliáii. 150.000 1.800.000 1.800.000 3.914.250 180.203 man. Þúsundir fólks hafa notfært sér IB-lán Iðnaðarbankans. Tilgangurinn er auðvitað margskonar. Sumir sjá fyrir þunga afborgun, aðrir hyggjast kaupa sér eitthvað, - eða fara í ferðalag. Allir eiga það sameiginlegt að sýna fyrirhyggju, - hugsa nokkra mánuði fram í tímann. Margir notfæra sér líka þjónustu Iðnaðarbankans, sem IB ráðgjafarnir veita, hver í sínu útibúi. Þeir veita fólki allar upplýsingar um IB-lánin og þá fjölbreyttu möguleika sem bjóðast. Vertu velkominn í Iðnaðarbankann og ræddu við IB-ráðgjafana um IB-lán. BanMþeirra sem hyggja aó foamtíómni Mnaðarbankinn Akureyri: Glerárgata7 Hafnarfjörður: Strandgata 1 Reykjavík: Dalbraut 1, Drafnarfell 14-18 Háaleitisbraut 58-60, Lækjargata 12 Selfoss: Austurvegur38 T fl 11 E3 DAGUR.7 s - .' V,

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.