Dagur - 16.06.1981, Qupperneq 7
Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar. Frá vinstri eru Rögnvaldur Val-
bergsson, Geirmundur Valtýsson, Hörður Ólafsson og Viðar Sverrisson.
Tvær plötur frá
Tónaútgáfunni
Iðnskólanum slitið
Hallgrimur Valsson i nýju versluninni i Kaupangi. Ljósm. H.Sv.
Skrifstofuval
í Kaupangi
í síðustu viku var opnuð ný
verslun í Kaupangi sem verslar
með skrifstofuvélar og áhöld.
Verslunin heitir Skrifstofuval
h.f. og fyrirtækið mun einnig
annast viðgerðarþjónustu á
skrifstofutækjum.
Aðaleigandi verslunarinnar er
Hallgrímur Valsson og starfar hann
í nánu samstarfi við Gísla J.
Johnsen h.f. í Kópavogj.
I versluninni fást nánast allar
vörur sem tilheyra skrifstofurekstri
s.s. ritvélar, reiknivélar, ljósritun-
arvélar og skrifstofuhúsgöng, þ. á.
m. skrifborð, stólar, ritvélaborð og
hljóðeinangruð skilrúm, þar sem
festa má á borð og hillur og eru
mjög einföld í uppsetningu. Vöru-
úrval verslunarinnar verður aukið
smátt og smátt og má t.d. geta þess,
að í Júlí byrjar verslunin að selja
ódýrar heimilistölvur og búða-
kassa. Aðalvörumerkin sem seld
verða eru Facit og Sharp.
Gjafir til
Fjórðungs-
sjúkrahúss
Hinn 30. desember s.l. gaf frú
Lilja Valdamarsdóttir, Dvalar-
heimilinu Hlíð, Akureyri,
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur-
eyri 3 milljónir gamalla króna
og stuttu síðar 300 þúsund
gamlar krónur, til minningar um
mann sinn Steingrím S.
Guðmundsson.
Tilskilið var af hálfu gefandans
að fjárupphæð þessari skyldi varið
til tækjakaupa fyrir hjartasjúklinga
á Lyflækningadeild F.S.A.
Lilju eru f.h. Fjórðungssjúkra-
hússins færðar þakkir fyrir þessa
höfðinglegu gjöf.
Ásgeir Höskulilsson,
franik vœmdastjóri.
Tónaútgáfan hefur sent frá sér
tvær nýjar hljómplötur, tveggja
laga plötu með hljómsveit Geir-
mundar Valtýssonar og 12 laga
plötu með lögum við gömlu
dansana.
Á þeirri plötu sem ber nafnið
„GLEÐIHOPP" leikur Jón
Hrólfsson á Raufarhöfn á hnappa-
harmoniku, en með honum leika
Birgir Karlsson á gítar, Finnur
Finnsson á bassa og Steingrímur
Sigurðsson á trommur.
Á tveggja laga plötu hljómsveitar
Geirmundar Valtýssonar eru lögin
„Sumarfrí" eftir Geirmund við
texta Geirmundar og Harðar
Ólafssonar bassaleikara. Hitt lagið
heitir „Ferðalag" eftir Hörð bassa-
leikara sem samdi einnig textann.
Auk þeirra Geirmundar og Harðar
eru í hljómsveitinni Rögnvaldur
Valbergsson pianoleikari og Viðar
Sverrisson trommuleikari. Platan
er tekin upp í Hljóðrita í Hafnar-
firði.
Jón Hrólfsson.
Iðnskólanum á Akureyri var
slitið í sal skólans 27. maí s.l. í
upphafi máls síns gerði skóla-
stjórinn Aðalgeir Pálsson grein
fyrir vetrarstarfinu. Þetta var
76. árið frá stofnun skólans
1905. Skólinn starfaði á fjórum
stöðum, í skó'akúsinu við Þór-
unnarstræti, í smíðahúsi að
Glerárgötu 2b, í vélasal við
Gránufélagsgötu og í gamla
Verslunarmannahúsinu, sem nú
er búið að rífa. Nemendafjöldi
var á haustönn 228 en 248 á
vorönn, ails voru innritaðir í
skólann 360 nemendur, sem
kennt var í 26 deildum.
Nemar voru í 15 iðngreinum,
tréiðnamenn 29, málmiðnamenn
70, rafvirkjar 23 en færri í'öðrum
greinum. I grunndeildum verk-
náms voru 43 nemendur. í frum-
greinadeildum Tækniskóla voru 26
nemendur. í vélskóladeildum und-
ir forstöðu Björns Kristinssonar
voru 26 nemendur. í vélskóladeild-
um undir forstöðu Björns Kristins-
sonar voru 26 nemendur.
Fastráðnir kennarar eru 17, þrír
þó aðeins í hlutastarfi, stunda-
kennarar 33 þar af tveir sem kenna
meira en '/: kennslu. Stöðugildi á
vorönn voru 25.
Frá skólanum brottskráðust 133
nemendur þar af 97 iðnnemar. Nú
útskrifuðust fyrstu 12 nemendur
Meistaraskólans eftir þriggja anna
nám, 11 tækniteiknarar, 6 úr 2. stigi
vélskóla og 7 úr raungreinadeild
Tækniskóla.
Hæstu einkunnir hlutu: Bragi
Árnason úr Meistaraskóla, Sigur-
laug Anna Sigtryggsdóttir úr
tækniteiknun, Örvar Ármannsson
rafvirkjanemi og Olgeir Helgason
úr raungreinadeild og hlaut hann
verðlaun frá Norðurlandsdeild
Tæknifræðingafélags íslands fyrir
frábæra frammistöðu í raungrein-
um, verðlaunin afhenti Páll Hlöð-
versson formaður deildarinnar.
Nú er unnið að teikningum og
öðrum undirbúningi að byggingu
verknámshúsa á vegum bygginga-
nefndar Verkmenntaskóla á Akur-
eyri. Formaður bygginganefndar er
Haukur Árnason formaður skóla-
nefndar Iðnskólans. Þetta verður 1.
áfangi skólans, 800 m2 að flatarmfi,
og mun leysa húsnæðisvanda
málmiðnaðarkennslunnar.
eöa
s<;>00'
tur
uU1
tiou
CUa
pv/rSt arK®6'’ X '3*'a'
tió „rtefö „Vársins
e>u,ll:>>Vtur
iöuf
be'r
eða s|9'þve<5l7a
ð"11"1 \úkusB. att)urðar seif 6’
•At(a,t'd^Viað
AWð'r sert1
Ö'a
gf .
sun13
sKÍP
tut
VEIADEILD
SAMBANDSIN
Ármúla 3 Reykjavík S. 38 900
( HALLARMÚLAMEGIN )
CHEvROLtT
DAGUR.7