Dagur - 16.06.1981, Blaðsíða 10

Dagur - 16.06.1981, Blaðsíða 10
„Það má segja að golfíþróttin bjóði iðkendum sínum upp á fjöldamargt og menn stunda þessa íþrótt sér til skemmtunar og heilsubótar allt frá barns- aldri og fram á elliár,“ sagði Frímann Gunnlaugsson for- maður Golfklúbbs Akureyrar í viðtali við Dag. Ritstjórinn heimtaði „golf- síðu“ í blaðið, sagðist vilja fá að vita hvað það væri við þessa íþrótt sem ylli síauknum vin- sældum hennar. Sjálfur þékkti hann ekkert til goifsins, en þar sem sá er þessar línur ritar hefur verið að sniglast í kring um golfmenn endrum og eins þótti tilvalið að senda hann í verkefnið. „Það er margt sem stuðlar að vinsældum golfsins“ sagði Frí- mann. „Að sjálfsögðu er um holla útiveru að ræða, menn ganga um stórkostlegur og samheldni manna í golfinu er mikil. Þetta er stórgóður félagsskapur því sá sem ekki kann mannasiði þrífst ekki í golfklúbb." Á Norðurlandi eru fimm golf- klúbbar, og eru þeir á Akureyri, Húsavík, Siglufirði, Ólafsfirði og á Sauðárkróki. Klúbburinn á Akureyri er þeirra elstur og fjöl- mennastur. Hann erstofnaður 19. ágúst 1935 og fer því að nálgast fimmtugsafmælið. Fyrst á Eyrinni Fyrsti völlur klúbbsins var nið- ur á Eyri þar sem Slippstöðin er nú, en síðan fluttist klúbburinn upp í Þórunnarstræti og var þar til 1970 að flutt var að Jaðri þar sem klúbburinn hefur komið sér upp hinni myndarlegustu að- stöðu og þar er ekkert lát á framkvæmdum. „Félagatalan var lengi þetta Þorvaldur Asgeirsson golfkennari kemur ávallt nokkrar ferðir til Akureyrar á hverju sumri. Hér sést hann fylgjast með sveiflunni hjá Jóninu Pálsdóttur. „Sá sem ekki kann mannasiði þrífst ekki í golf klúbbi11 um leið og virkir félagar verða fleiri, verður auðveldara að ráð- ast í stærri verkefni. Þannig erum við núna langt komnir með að byggja upp 9 holur til viðbótar þeim 9 sem fyrir eru, og er áformað að vígja 18 holu völlinn formlega 22. og 23. ágúst er Minningarmótið um Ingimund Árnason fer fram.“ „Púttin“ eru nákvæmnisverk og vissara að vanda sig við þau. 10 km ef þeir leika 18 holur sem er mjög algengt að menn geri 1 hvert skipti er þeir skreppa upp á völl. Þetta er tilvalin fjölskyldu- íþrótt því eftir að börnin eru orðin 10-12 ára getur öll fjölskyldan farið saman í golf og allir skemmta sér hið besta. Og eins og ég sagði áðan þá leika menn golf fram á gamalsaldur. Og ekki má gleyma félagsskapnum sem er 50-100 manns,“ sagði Frímann. „En það má segja að upp úr 1975 hafi komið verulegur kippur í fjölgun golfleikara á Akureyri og á henni er ekkert lát enn þann dag í dag. Á síðasta ári gengu um 100 manns í klúbbinn og var félaga- talan þá orðin á fjórða hundrað manns.“ „Þessi aukna aðsókn er auðvit- að mjög gleðileg fyrir okkur, því Dýrt en ekki dýrt „Jú þetta er dálítið dýrt sport, það er að segja á meðan menn eru að koma sér upp áhöldum. Það er best fyrir byrjendur að kaupa sér notaðar kylfur af þeim sem lengra eru komnir og eru að endurnýja. en það má komast af með nokkr- ar kylfur til að byrja með. Ég myndi ætla að byrjandi geti fengið sér tæki fyrir upphæð á bilinu 1000-2000 krónur." „Ársgjöldin höfum við þannig að þeir sem eru að byrja greiða lægra árgjald en aðrir eða kr. 400,00. Á öðru ári greiða menn 800,00 krónur og fullt árgjald er 1.200,00 krónur. þá höfum við sérstakt gjald fyrir 13 ára og yngri sem er 120,00 krónur, og loks má nefna hjónagjald sem er 1.500,00 krónur. Það má því e.t.v. segja að ársgjaldið sé ekki svo dýrt, menn fá sennilega ekki allstaðar veiði- leyfi í góðri laxveiðiá fyrir Golflcikar eru á öllum aldri. Hér er einn úr hópi þeirra yngstu að skila boltanum i holuna. Golfklúbburinn hefur hina myndarlegustu aðstöðu að Jaðri, og fyrirhugað eru frekari byggingar þar. Ljósmyndir: g.k. 1.200,00 krónur sem er fullt ár- gjald hjá okkur í dag.“ Forgjöfin Eitt er það sem gerir golfið skemmtilegri íþrótt en margar aðrar en það er forgjafarfyrir- komulag það sem viðhaft er þeg- ar menn reyna með sér. Þegar byrjandi kemur í golfklúbb fær hann 24 högg í forgjöf. Þeir sem lengst hafa náð í íþróttinni hér á landi eru með 2-3 högg í forgjöf þannig að ef byrjandinn hættir sér út í keppni við snillingana 21-22 högg í forgjöf gegn þeim. Þetta gerir það að verkum að í golfinu getur hver sem er keppt við hvern sem er á „jafnréttisgrundvelli.“ „Réttu tökin strax í byrjun“ Golfklúbbur Akureyrar hefur kappkostað að nýjir félagar klúbbsins hafi jafnan átt þess kost að njóta tilsagnar, og hefur Þor- valdur Ásgeirsson golfkennari komið að Jaðri 2-3 sinnum á sumri og þá staðið við í 7-10 daga hverju sinni og haft nóg að starfa. „Það er nauðsynlegt að hugsa vel um þetta atriði, ekki hvað síst þegar nýliðum hefur fjölgað jafnmikið og raun ber vitni,“ sagði Frímann. „Ef menn gera hiutina ekki rétt í byrjun þá getur orðið erfitt að lagfæra vitleysurn- ar þegar fram í sækir, og menn skyldu ekki láta það blekkja sig þótt þeir sjái furðulegar sveiflur á golfvelli sem gefa árangur. Það eru alltaf einhverjir sem fara „eigin leiðir" í þessu eins og öðru, en þeir eru undantekningin sem sannar þá reglu að menn skyldu læra rétt handtök strax í byrjun.“ „Jákvætt andrúmsloft“ ( lokin báðum við Frímann Gunnlaugsson að skýra okkur frá því hvernig bæjaryfirvöld hafi búið að þessari íþróttagrein und- anfarin ár. „Við höfum alltaf lifað í mjög jákvæðu andrúmslofti gagnvart bæjaryfirvöldum, og kvörtum ekki. Hinsvegar er geysilega dýrt að reka golfklúbb, það þarf allt að vera til, flatarsláttuvélar, braut- arsláttuvélar og fleira og fleira og viðhald vallarins er dýrt. En við höfum mætt skilningi og það, ásamt þeirri aukningu sem hefur átt sér stað í félagatali okkar gerir það að verkum að við göngum hræddir til verkefna þeirra sem leysa þarf. Þannig erum við nú auk þess að vera að ljúka við uppbygningu 18 holu vallarins að fara út í viðbyggingu við skála- húsið okkar og það er margt fleira í deiglunni.“ 10.DAGUR

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.