Dagur - 16.06.1981, Blaðsíða 12
Sumarmatseðill
veitingahúsanna
26 veitingastaðir innan Sam-
bands veitinga- og gistihúsa
munu í sumar hafa í boði sér-
stakan ferðamannamatseðil,
og er hann kynntur undir heit-
inu „Sumarmatseðill S.V.G.“
Þessi matseðill verður á boð-
stólum frá 1. júní til 30. septem-
ber. Hámarksverð á tvíréttaðri
fiskmáltíð verður 52 krónur, og á
tvíréttarði kjötmáltíð 61 króna.
Börn 12 ára og yngri greiða hálft
verð, börn 5 ára og yngri fá frían
mat.
Á meðal þeirra staða sem
munu bjóða þessa þjónustu í
sumar eru Hótel Húsavík, Hótel
Höfn Siglufirði, Hótel KEA Ak-
ureyri, Hótel Mælifell Sauðár-
króki, Hótel Reykjahlíð við
Mývatn, Hótel Reynihlíð við
Mývatn, Hótel Varðborg Akur-
eyri, Hótel Varmahlíð Skagafirði,
Staðarskáli Hrútafriði, Sumar-
hótelið Ólafsfirði og Valaskjálf
Egilsstöðum.
Kartöf lubændur funduðu
Stofnfundur Landssambands
kartöflubænda var haldinn í
Reykjavík nýlega. Þar voru
mættir fulltrúar frá félögum
kartöfluframleiðenda á Suður-
landi og við Eyjafjörð. Áheyrn-
arfulltrúi var frá kartöflubænd-
um í A.-Skaftafellssýslu. Gert er
ráð fyrir að kartöflubændur
myndi með sér félög í öllum
landshlutum og standi síðan að
landssamtökunum.
Formaður landssamtakanna var
kosinn Magnús Sigurðsson, bóndi í
Birtingarholti en meðstjórnendur
voru kosnir Eiríkur Sigfússon,
Sílastöðum og Ingvi Markússon,
Oddsparti.
Hótel KEA, eitt þeirra hótela norðanlands sem bjóða gestum sinum sérstakan ferðamannamatseðil.
DMGUE
Áhrifamikill
auglýsingamiðill
BM3UE
AUGLYSINGAR
OG ÁSKRIFT:
24167-
Nýkomið
Hudson sokkabuxur
í öllum stærðum
w
HAFNARSTR. 91-95 - AKUREYRI - SÍMI (96)21400
Forfallaþjónusta Búnaðarsambands Eyjaf jarðar:
„Vona að sem minnst
þörf sé fyrir þetta“
— segir Ævarr Hjartarson, ráðunautur
„Þetta hefur gengið vel hjá
okkur, en það er með þetta eins
og löggæsluna, maður vonar að
sem minnst þörf sé fyrir þessa
starfsemi,“ sagði Ævarr Hjart-
arson ráðunautur hjá Búnaðar-
sambandi Eyjafjarðar, en hann
veitir forstöðu forfallaþjónustu
sem Búnaðarsambandið rekur á
Eyjafjarðarsvæðinu.
Starfsemi þessi hófst á miðju s.l.
ári og voru í upphafi tveir menn
fastráðnir til að starfa að þessu
verkefni. Ekki höfðu þeir mikið að
gera í fyrstu, en frá síðasta hausti
hefur einn maður verið í fullu starfi
í forfallaþjónustunni og haft nóg að
gera.
Allir bændur og þeir sem veita
búum forstöðu, svo og makar
þeirra, eiga rétt á aðstoð forfalla-
þjónustunnar enda hafi þeir meiri-
hluta tekna sinna af landbúnaði.
Þeir bændur sem hafa meirihluta
tekna sinna af öðru en landbúnaði
eiga þó rétt sem er allt frá 25 til
15%.
„Þetta hefur eingöngu verið rek-
Sumar-
hótel
opið að
Bifröst
Sumarheimilið í Bifröst verður
rekið í sumar með sama hætti
og verið hefur undanfarin ár, og
er forstöðumaður Guðbjörg
Þórhallsdóttir. Starfsemin byrj-
ar með aðalfundi Sambandsins.
en eftir það tók við húsmæðra-
vika dagana 5.-12. júní. Síðan
hefur verið opið með sama
hætti og verið hefur. Á sumar-
heimilinu er lögð sérstök á-
hersla á kalt borð í kvöldmat á
sunnudögum, og má benda á að
það er kjörið fyrir fólk, sem
dvelst í sumarhúsum í nágrenn-
inu, að koma þangað í mat.
Þegar er byrjað að taka við
pöntunum í síma 93-7500.
ið sem veikindaþjónusta," sagði
Ævarr. „Kostnaðurinn er greiddur
af ríkinu sem borgar 8 tíma vinnu á
dag en það sem er umfram það svo
og ferðakostnaður og uppihald er
greitt af þeim sem óskar eftir þjón-
ustunni.“
„Við höfum haft ágæta menn í
þessari þjónustu, menn sem þekkja
öll störf sem vinna þarf á bónda-
Aðalfundur Neytendasamtak-
anna á Akureyri og nágrenni
(NAN) var haldinn fyrir
skömmu.
í skýrslu stjórnar kom m.a. fram
að á árinu komu út 4 tölublöð
NAN-frétta, sem send voru félags-
mönnum. Yfirleitt tókst að leysa úr
kvörtunarmálum, er bárust skrif-
stofunni. Minna var leitað til
kvörtunarþjónustunnar en áður.
Útbúin var spjaldskrá um efni
fjögurra erlendra neytendablaða,
sem NAN kaupa, og er fljótlegt að
leita upplýsinga um hvaðeina í
henni.
Stjórn NAN var endurkjörin og
hana skipa: Steinar Þorsteinsson,
formaður, Stefanía Arnórsdóttir,
varaformaður, Jónína Pálsdóttir,
gjaldkeri, Valgerður Magnúsdóttir,
ritari og Stefán Vilhjálmsson,
meðstjórnandi. í varastjórn eru:
Margrét Ragúels, Sigríður
Jóhannesdóttir, Úlfhildur
Rögnvaldsdóttir og Þórarinn Þor-
bjarnarson.
Keyptar bækur og
blöð fyrir 33 þús.
Samkvæmt skýrslu bókavarðar
á Siglufirði voru keyptar bækur
fyrir 33.153,07 kr. á sl. ári.
Nánar tiltekið voru þetta 176
eintök af bókum og 84 tímarit.
Hljóðbókaþjónusta hjá bóka-
safni Siglufjarðar hefur aukist
smávegis og lánuð hafa verið seg-
ulbandstæki til þeirra sem ekki áttu
slík tæki.
býlum,“ sagði Ævarr að lokum, en
það kom greinilega fram 'í máli
hans að full þörf hefur verið á
þjónustu sem þessari, bændur
standa ekki uppi í algjörum vand-
ræðum þótt veikindi steðji að og
þeir verði að liggja rúmfastir og er
vissulega öryggi fyrir þá að vita af
þessari þjónustu.
Nú fer fram endurskoðun á
heildarskipulagi Neytendasamtak-
anna. NAN eiga fulltrúa í skipu-
lagsnefnd, sem kosin var á aðal-
fundi NS í Reykjavík 4. apríl s.l.
Stefnt er að því, að stofna formlega
í haust Landssamtök neytenda með
aðild deilda eða félaga um allt
land.
Hringfargjöld
f sumar verða Flugleiðir með á
boðstólum svokölluð hring-
ferðafargjöld um landið. Þau
hafa til þessa mest megnis verið
notuð af útlendingum, þótt
einstaka íslenskar fjölskyldur
hafi nýtt þennan ferðamáta.
í hringferðunum er flogið með
Flugleiðum, Flugfélagi Norður-
lands og Flugfélagi Austurlands, og
hefja má ferð frá hvort heldur er
austur um eða vestur um. Ef farið
er vestur um er flogið frá Reykjavík
til ísafjarðar, eftir viðkomu þar til
Akureyrar, þá til Egilsstaða frá
Egilsstöðum til Hornafjarðar og frá
Hornafirði til Reykjavíkur. Einnig
er hægt að fara milli færri við-
komustaða en hér er getið og
breytist fargjaldið í samræmi við
það.
í hringferðum sem þessum dvel-
ur fólk nokkra daga á viðkomandi
stað. Á öllum þessum viðkomu-
stöðum eru bílaleigur, og áætlun-
arbifreiðir aka um nágrennið. Með
síhækkandi bensínverði má búast
við að æ fleiri nýti sér hringflug
Neytendur með
landssamtök
12.DAGUR