Dagur - 16.06.1981, Síða 13
Eitt stig til Þórsara
Á laugardaginn léku í fyrstu
deild Þór og ÍA og var ieikið á
Þórsvelli. Nokkur gola þvert á
völlinn setti mark á leikinn sem
annars var frekar daufur, og
lauk með markalausu jafntefli.
Jafntefli voru sanngjörn úrslit
leiksins þar sem segja má að
hvort liðið um sig hafi átt eitt
gott marktækifæri, en tækifæri
Þórs var þó betra, en þá hafnaði
skot frá Óskari í þverslá!
Skagamenn byrjuðu vel og
sóttu að marki Þórs en þeim
tókst ekki að skapa sér umtals-
verð marktækifæri.
Á fyrstu mín leiksins fengu
Skagamenn nokkrar horn-
spyrnur, og a.m.k. einu sinni
varði Eiríkur markmaður hjá
Þór vel í hom. á 22. mín fengu
Þórsarar aukaspyrnu rétt utan
vítateigs, og gott skot Árna
Stefánssonar fór aðeins fram-
hjá. Besta tækifærið í fyrri hálf-
leik fékk Kristján Olgeirsson
þegar hann einlék upp hægri
kantinn og lék á hvern Þórsar-
ann af öðrum þangað til hann
var kominn í dauðafæri eins og
það er kallað, en þá geigaði skot
hans og fór gróflega framhjá.
Strax á fjórðu mín. síðari
hálfleiks var Guðmundur
Skarphéðinsson í góðu færi en
hitti boltann illa.
Á ,7. mín. fengu Þórsarar
aukaspyrnu rétt utan við vinstra
vítateigshorn og Árni gaf góð-
an bolta fyrir markið, en engum
Þórsara tókst að skalla boltan.í
netið. Besta marktækifæri
leiksins kom svo á 32. mín.
Þá fengu Þórsarar auka-
spyrnu á miðjum vellinum, og
enn gefur Árni góðan bolta inn
að markinu og í þvöguna sem
þar var. Óskar Gunnarsson af-
greiddi boltan viðstöðulaust að
markinu og lenti hann í þver-
slá og aftur út í teig en á elleftu
stundu björguðu Skagamenn í
hom. Nokkru síðar fengu Þórs-
arar óbeina aukaspyrnu rétt við
vinstra markhornið, eftir að
markmaður ÍA hafði verið
heldur grófur við Guðmund
Skarphéðinsson. Þeim tókst
ekki að nýta þetta og lA hreins-
aði frá markinu.
Leiknum lauk því með
markalausu jafntefli og var
jafntefli sanngjörn úrslit leiks-
ins. Þrátt fyrir það er töluverður
munur á leikaðferðum liðanna.
Þór byggir flestar sínar sóknir á
löngum sendingum á Jón Lár
eða Guðmund, en Skagamenn
spila mikið upp kantana, og
stundum er eins og þeir vilji
helst spila alveg inn fyrir mark-
línu.
Víkingar fengu KA í heim-
sókn á sunnudagskvöldið og
að loknum góðum leik með
góðri baráttu beggja liða
sigraði Víkingur með tveimur
mörkum gegn einu, og bættu
tveimur stigum í stigasafnið
sitt, en þeir trjóna nú efstir í
dcildinni. Þeir hafa leikið sex
leiki og fengið níu stig.
Strax eftir leikinn náði
íþróttasíðan sambandi við
Ragnar Ragnarsson fararstjóra
KA. Hann sagði leikinn hafa
verið vel leikinn af báðum aðil-
um, og mikil og góð stemming
hjá áhorfendum. Hann sagði
fyrsta markið hefði komið á 11.
mín., en þá hefði bakvörður
Víkinga leikið vel upp kantinn
og rennt boltanum á Lárus
Guðmundsson sem var á auð-
um sjó og skoraði hann örugg-
lega. Eftir markið fóru KA
menn að sækja meira og fengu
a.m.k. þrjú góð marktækifæri,
sem annað hvort Diðrik Ólafs-
son markmaður Víkinga varði
vel, eða þá að KA menn hittu
ekki markið. Skömmu fyrir lok
fyrri hálfleiks kom fyrir mjög
umdeilt atvik í leiknum.
Gefinn er góður bolti inn í
teiginn hjá Víkingi og Erlingur
skallar og í netið. Rétt í sömu
andrá og Erlingur skallar, rekur
einn varnarmaður Víkings fót-
inn upp undir andlitið á Erlingi
og Víkingar telja að dómarinn
hafi verið búinn að flauta á það
Tilþrif á
Jaðarsvelli
Á föstudagskvöldið var hald-
in all sérstæð goifkeppni á
Jaðarsvelli. Þar kepptu
félagar sem flesta daga
drekka saman kaffi við
hringborðið svokallaða á
matstofu KEA. Þar hittast
venjulega þeir fyrstu kl. 08.00
á morgnana og síðan eru
menn að koma og fara allt
fram til kl. 10.00. Síðan tekur
það sama við seinnipartinn.
Aðaláhugamál þeirra sem
þarna drekka eru íþróttir
ýmiskonar, enda flestir á
einhvern hátt tengdir
íþróttahreyfingunni.
Akurnesingar gerðu oft harða hríð að marki Þórsara, en þar fundu þeir Eirík markvörð fyrir, og hann sá til þess að þcim
Golfkeppnin fór þannig fram
að tveir og tveir kepptu saman
og slóu til skiptis, og í þessu
tveggja manna leiði er einn
tækist ekki að skora. Mynd: KGA.
Góður leikur KA nægði
ekki gegn Víkingum
vanur golfleikari og annar
óvanur.
Alls tóku sextán menn þátt í
keppninni sem nú fór fram í
þriðja sinn. Sporthúsið gaf
verðlaunaskjöld til keppninnar,
og er meiningin að sá skjöldur
hangi í framtíðinni á veggnum
hjá borðinu.
Það var golfleikarinn Jón
Steinbergsson nýkominn frá
New Jersi og amatörinn Gísli
Sigurgeirsson blaðamaður sem
sigruðu í þessari keppni. Að
vísu fannst sumum að Gísli
sigldi undir fölsku flaggi þar
sem hann sýndi undraverða
getu í þessari íþrótt, sló t.d. eitt
upphafshöggið alveg inn á grín á
einni af stuttu brautunum. Að
keppninni lokinni var hring-
borð myndað í golfskálanum og
verðlaun afhent og nokkrar
ræður haldnar.
VÖLSUNGAR NÁÐU
í TVÖ DÝRMÆT STIG
Það má með sanni segja að
leikur Völsunga við Skalla-
grím frá Borgarnesi hafi ver-
ið sögulegur. Skallagrímur
náði yfirhöndinni í fyrri hálf-
leik, staðan í leikhléi var tvö
mörk gegn engu fyrir Skalla-
grím. En Völsungar mættu
tvíefldir til leiks í seinni hálf-
leik og skoruðu þrjú mörk
áður en flautað var til leiks-
loka.
Völsungar voru heldur daufir
í fyrri hálfleik, engu líkara en
þeir hefðu skilið baráttuviljann
eftir heima. Skallagrímur sótti
stíft, og um miðjan hálfleikinn
skoraði Gunnar Orrason, eftir
vamarmistök hjá Völsungúm.
Skallagrímur bætti svo öðru
marki við; þar var að verki
Garðar Jónsson.
Völsungar hristu svo af sér
slenið í seinni hálfleik, og sýndu
hvað í þeim býr. Þeir ná að
minnka muninn snemma í
hálfleiknum. Brotið var á Eiríki
Sigurðssyni og dæmd víta-
spyrna sem hann sá sjálfur um
að skora úr. Skallagríms-
mönnum vannst rétt tími til að
taka miðjuna, þá náðu Völs-
ungar boltanum af þeim og Ol-
geir leikur upp að endamörkum
og skot hans þaðan rataði í net-
möskvana hjá Skallagrími. Þar
með höfðu Völsungar skorað
tvö mörk á 30 sekúndum og
jafnað leikinn. En ekki þótti
þeim nóg að gert; þegar um 15
mínútur voru til leiksloka skor-
aði Helgi Benediktsson úr
þröngri aðstöðu þriðja mark
Völsunga; sendi boltann í netið
gegnum klof markvarðarins.
Það sem eftir lifði leiksins
pressuðu Völsungar svotil
stöðugt, Skallagrímur náði þó
sóknum, en ekki tókst þeim að
jafna. Völsungar héldu því
heim með tvö stig.
brot áður en boltinn fór í
markið. Dómarinn Róbert
Jónsson dæmdi fyrst markið
gilt, en eftir mótmæli leik-
manna Víkings og eftir að hafa
ráðfært sig við línuvörðinn
dæmdi hann aðeins óbeina
aukaspyrnu á þá inni í vítateig
þeirra. Síðan sagði Ragnar að
Eyjólfur hefði skotið á markið,
en einn varnarmanna Víkings
varið með hendi á línu. Þetta
hefðu flestir séð nema dómar-
inn, og þess vegna sagði Ragnar
að hiti hefði verið í leikmönn-
um í hléinu.
í síðari hálfleik byrjuðu Vík-
ingar vel, en smám saman náði
KA betra valdi á leiknum, en
skyndilega áttu Víkingar góða
sókn sem lauk með marki frá
Jóhanni Þorvarðarsyni. Aðeins
tveimur mín síðar minnkaði
Donni muninn í tvö gegn einu
en þrátt fyrir margar góðar
sóknir KA manna, og hörku-
skot frá Gunnari Blöndal tókst
Diðrik að halda markinu hreinu
það sem eftir var leiksins, og
tryggja Víkingum bæði stigin.
Þrátt fyrir tapið sagði Ragnar
leikinn hafa verið góðan hjá KA
mönnum og sagðist engu kvíða
um framhaldið í sumar.
Jón Steinbergsson og Gisli Sigurgeirsson með verðlaunaskjöldinn og hjá
þeim er Sigbjörn Gunnarsson eigandi Sporthússins sem gaf vcrðlaunagripinn.
Einhver stakk þvi að Sigbirni að skjöldurinn væri grunsamlega likur KA
merkinu i iaginu. Mynd Ó.Á.
DAGUR.13