Dagur - 16.06.1981, Page 16
MONROEJ
MONRO-MATIC ®
SHOCK ABSORBER
m
U 8
HOG0DEYFAR
í FLE5TA BÍLA
Æfingar eru nú á ftillu hjá |>eim sem standa að væntanlegri revíusýningu í Sjálf-
stæöisluisinu og fvrirhugað er að sýningar hefjist á fljótlcga upp úr mánaðamótuin.
Hér eru höfuðpaurarnir Hermann Arason og Þorvaldur Þorsteinsson að syngja um
sældarlífið á Costa del Losta. en þangað er förinni lieitið. Mynd: H. Sv.
Bæjarráð Akureyrar:
Næsta átak i iðnaði
verði við Eyjafjörð
Á fundi bæjarráðs Akureyrar í
síðustu viku var samþykkt
ályktun varðandi nýiðnað á
Eyjafjarðarsvæðinu og því beint
til bæjarstjórnar að skora á
ríkisstjórnina að næsta átak í
uppbyggingu nýiðnaðar, stór-
iðja með talin, verði á Eyja-
fjarðarsvæðinu.
I ályktuninni, sem samþykkt var
af meirihluta bæjarráðs, er ítrekuð
afstaða bæjarstjórnar Akureyrar til
iðnaðar og stóriðju sem fram komu
í ályktunum hennar frá 25. nóvem-
ber og 2. desember í fyrra. í álykt-
uninni segir síðan:
„Bæjarstjórn er þeirrar skoðunar
að ein mikilvægasta aðgerð til efl-
ingar byggðajafnvægis í landinu sé
efling Akureyrar og Eyjafjarðar-
byggða. Því skorar bæjarstjórn á
ríkisstjórnina að hefja nú þegar
markvissar rannsóknir á Eyjafjarð-
arsvæðinu og undirbúning þess að
næsta átak í uppbyggingu nýiðn-
aðar, þar með talin stóriðja, sem
ríkisvaldið beiti sér fyrir. verði á
Eyjafjarðarsvæðinu."
Svæðisáætlun komi í
stað hreppasjonarmiða
Að tillögu Tryggva Gíslasonar,
formanns skipulagsnefndar Ak-
ureyrar, sem samþykkt hefur
verið í nefndinni, hefur verið
ákveðið að undirbúa og vinna að
svokallaðri svæðisáætlun fyrir
Eyjafjarðarsvæðið. Aðild að
þessu geta átt allir sveitahrepp-
arnir við Eyjafjörð auk Akur-
eyrar, Dalvíkur og Ólafsfjarðar
og raunar einnig Grímseyjar,
eða alls 16 aðilar.
Að sögn Tryggva Gíslasonar er
hér um að ræða áætlun um byggð,
landnýtingu, samgöngur og at-
vinnuuppbyggingu, auk skóla- og
heilbrigðismála. Nýlega var hald-
inn fundur þar sem fulltrúar flestra
aðila komu saman. auk Snæbjörns
Jónassonar. vegamálastjóra, sem er
formaður samstarfsnefndar um
skipulagsmál á Akureyri og í ná-
grenni og hefur verið formaður
Skipulagsstjórnar ríkisins.
Tryggvi gat þess, að undirtektir á
þessum fyrsta fundi hafi verið mjög
góðar og enginn hefði mælt gegn
þessum hugmyndum. sem væru
fyrst og fremst til þess ætlaðar að
tryggja örugga og samfellda at-
vinnu á Eyjafjarðarsvæðinu og
gera það betur undir atvinnu-
uppbyggingu búið og hugsanleg
skakkaföll í atvinnumálum.
Tryggvi sagðist aðspurður ekki
hafa orðið var við hreppasjónar-
mið, sem oft er rætt um að séu við
lýði, heldur næman skilning á
nauðsyn samvinnu.
Sveitarstjórnirnar hafa frest til 1.
september til að tilkynna um aðild
að þessari svæðisáætlun fyrir Eyja-
fjarðarsvæðið.
Um helmingur læknanna
hefur sagt upp störfum
„Á Akureyri eru ekki og hafa
aldrei verið í gildi neinir sér-
samningar við lækna. Þess
vegna áskiljum við okkur allan
rétt að ganga út með dags fyrir-
í næstu viku, nánar tiltekið á
Jónsmessunótt, er áformað að
stofna nýtt ferðafélag, og verður
stofnfundurinn haldinn í
Baugaseli í Barkárdal, gömlu
eyðibýli sem verið hefur í eyði í
mörg ár.
Þeir sem að stofnun þessa ferða-
félags standa eru íbúar úr fjórum
hreppum, Glæsibæjarhreppi,
Öxnadalshreppi, Skriðuhreppi og
Arnarneshreppi, og var haldinn
undirbúningsstofnfundur 5. júní.
Þar mættu 15 manns og margir
fleiri hafa lýst áhuga sínum á mál-
inu þótt þeir hafi ekki mætt þar.
Að sögn Bjarna Guðleifssonar
sem er einn af stofnendum félags-
ins er ætlunin að félagið hafi að-
setur í Baugaseli, en þaðan eru
skemmtilegar gönguleiðir. Fyrir þá
sem ekki hafa áhuga á gönguferð-
um eru bílferðir jafnvel fyrirhug-
aðar. og einnig ferðalög á hestum.
Þá er ekki loku fyrir það skotið að
vara“ sagði Ólafur Hákansson
aðstoðarlæknir á Sjúkrahúsinu
á Akureyri í samtali við Dag í
rnorgun, en Ólafur er einn þeirra
10 lækna sem hafa sagt upp
félagið beiti sér fyrir utanferðum ef
til lengri tíma er litið.
Þessir 10 læknar eru um helm-
ingur starfandi lækna sjúkrahúss-
ins, og að sjálfsögðu eru uppsagnir
þeirra komnar til af sömu ástæðum
og læknanna fyrir sunnan.
„Það spilar líka inn í þetta að við
vorum farnir að fá beiðnir urn pláss
að sunnan, og það gengur auðvitað
ekki“ sagði Ólafur. „Það ýtti á
okkur, það er ekki rétt að við vinn-
um eins og ekkert hafi í skorist á
sama tíma og læknarnir fyrir sunn-
an eru í kjarabaráttu sem við mun-
um svo njóta góðs af.“
Ólafur tók sérstaklega fram að
allri neyðarþjónustu á sjúkrahús-
inu yrði sinnt áfram eins og ekkert
hefði í skorist.
Nú stcndur vfir sýning á pastelmyndum Arnar Inga i sýningaraðstöðu hans að
Klettagerði 6. Sýningin hcfur gengið mjög vel og vakið almenna hrifningu þeirra sem
séð hafa. Fyrstu sýningarhelgima seldust 13 myndir, en 29 myndir eru á sýningunni.
Hún stendur til næstkomandi sunnudagskvölds. Nú mun afráðið að Örn Ingi sýni á
Kjarvalsstöðum í haust og cr hann þegar farinn að undirbúa þá sýningu, sem verður
mjög frábrugðin þeirri sem nú stendur yfir. Á mcðfylgjandi mynd er örn Ingi við eina
af óhlutbundnum myndum sínum, en mikið er þar cinnig af fallegum landslags-
myndum. Mynd: H. Sv.
Ætla að stof na
ferðafélagá
Jónsmessunótt
D
§ Hanastél
„Neysla áfengis verður sífellt
almennari hér á landi og hef-
ur farið mjög vaxandi undan-
farna áratugi. Vandamálin
fylgja á eftir margefld og þau
varða okkur öll. Það horfir í
óheillaátt. En með samstilltu
átaki getum við snúið á rétta
leið.“ Þannig segir í heldur
óvenjulegum bæklingi sem
nefnist „Hanastél'* og er gef-
inn út af samtökum sem bera
heitið „Átak gegn áfengi". f
því eru yfir 30 samstarfsaðil-
ar, félagasamtök og stofnan-
ir, og markmiðið er að hafa
áhrif til breytingar á viðhorf-
um til áfengisneyslu svo að
heildarneysla minnki og úr
áfengistjóni dragi.
£ 70-80 dauðs-
föll á ári
[ bæklingnum „Hanastél"
kemur meðal annars fram, að
meiri hluti afbrota sé framinn
undir áhrifum áfengis, m.a.
nær allir ofbeldisglæpir, og
áberandi oft eru þeir sem fyrir
verða einnig undir áhrifum
áfengis. Þar kemur einnig
fram að líklegt sé talið að
70-80 íslendingar a.m.k. lát-
ist á ári hverju vegna afleið-
inga áfengisneyslu. Þá segir
frá því að niðurstöður ranns-
ókna bendi til þess að einn af
hverjum fimm áfengisneyt-
endum verði háður áfengi og
helmingur þeirra drykkju-
sjúklingar. f bæklingnum
segir einnig að íslensk ung-
menni hefji áfengisneyslu
fyrr en áður og hlutur ungs
fólks í heildarneyslunni fari
stöðugt vaxandi. Ennfremur
að því yngri sem menn hefji
áfengisneyslu því meiri hætta
sé á að þeir verði ofneytendur
eða drykkjusjúkir.
§ Fyrirbyggjandi
Fjölmargt fleira kemur fram í
nefndum bæklingi, sem fólk
hefur gott af að kynna sér.
Efnið er sett fram á fordóma-
lausan og einfaldan hátt. Auk
þess sém hér er nefnt eru í
bæklingnum nokkur góð ráð
til þeirra sem vilja leggja sitt
af mörkum til að draga úr
áfengistjóni, en hér eins og
víða annars staðar veldur of-
notkun áfengis ómældu tjóni
og sífellt fleiri aðilar taka þátt
í baráttunni. T.d. eru það ekki
aðeins hefðbundnir baráttu-
menn gegn áfengisnotkun
sem standa að þessum
bæklingi og samtökunum
heldur má í því sambandi
nefna Alþýðusamband fs-
lands og Kvenfélagasam-
band íslands. Það er með
þetta mál eins og svo mörg
önnur, að betra er að byrgja
brunninn áður en barnið
dettur ofan í og vonandi
verður „Átaki gegn áfengi"
vel ágengt í fyrirbyggjandi
starfi sínu. Þess má svo geta,
að í bæklingnum er að finna
nokkrar uppskriftir af
óáfengum „hanastélum".