Dagur - 16.04.1982, Side 11
Hljómleikar í Skemmuimi
Sextíu og þriggja manna
hljómsveit flytur tónlist eftir
Vaughan Williams í íþrótta-
skemmunni á Akureyri, laug-
ardaginn 17. aprfl og daginn
eftir í Hamrahlíðaskólanum í
Reykjavik, og hefjast tónleik-
arnir kl. 17 á báðum stöðum.
Hljómsveitin - „Að sunnan
og norðan“ - er skipuð ungu
tónlistarfólki frá Reykjavík
og Akureyri.
Mark Reedman stjórnar
hljómsveitinni, en hann er
stjómandi Strengjasveitar Tón-
listarskólans í Reykjavík, sem
leikur með í stóru hljómsveitinni
og mun bráðlega taka þátt í al-
þjóðlegri keppni strengjasveita í
Júgóslavíu. Guðný Guðmunds-
dóttir kosertmeistari í Sinfóníu-
hljómsveit íslands, leikur ein-
leik með hljómsveitinni í tón-
verkinu The lark ascending,
seneröðu fyrir fiðlu og hljóm-
sveit, sem er nú flutt í fyrsta
skipti hér á landi, og gerir
óvægnar tæknilegar kröfur til
einleikarans.
Fantasía um lagið Green-
sleeves, sem er eitt af vinsælustu
hljómsveitarverkum tónskálds-
ins, concerto grosso fyrir
strengjasveit og fantasía um stef
eftir Thomas Tallis kemur til
með að gleðja tónleikagesti.
Akureyrarkirkja rúmar ekki
svo fjölmenna hljómsveit svo
ákveðið var að gera nauðsynleg-
ar lagfæringar á íþróttaskemm-
unni fyrir tónleikana á laugar-
daginn, enda er strengjasveitin
sú fjölmennasta sem leikið hefur
á tónleikum utan Reykjavíkur.
Auk strengjanna tekur hópur
blásara þátt í flutningnum.
Vaughan Williams er eitt vin-
sælasta og virtasta tónskáld
breta. Hann var frumkvöðull í
söfnun þjóðlaga í heimalandi
sínu, og notaði síðan oft lögin
sem uppistöðu og efnivið í tón-
smíðar sínar.
Tónleikarnir á Ak-
ureyri verða haldnir á vegum fé-
lagsins á þessu starfsári. Sala að-
göngumiða fer fram í bókabúð-
inni Huld á Akureyri og við inn-
ganginn á báðum stöðum.
Lexía
áplötu
Nýlega kom út hljómplata
með hljómsveitinni LEXÍU,
sem er starfandi danshljóm-
sveit í Miðfirði í Vestur-
Húna-vatnssýslu. Mun þetta
vera í fyrsta sinn sem hún-
vetnssk hljómseit gefur út
plötu, enda hafa Húnvetning-
ar tekið henni vel og hafa þú
þegar pantað á annað hundr-
að eintök af plötunni.
Platan með LEXÍU er hin
áheyrilegasta og greinilegt að
þarna eru engir viðvaningar á
ferð, þó enginn hljómsveitar-
meðlima hafi hljómlistarflutn-
ing að aðalstarfi. Hljómsveitina
skipa Axel Sigurgeirsson
(trommur) en hann er bóndi í
Miðfirði, Björgvin Guðmunds-
son (gítar, raddir) er mjólkur-
fræðingur á Hvammstanga,
Guðmundur Þór Ásmundsson
(hljómborð, söngur, raddir) er
skólastjóri í Laugabakkaskóla,
Marinó Björnsson (bassi, gítar,
raddir) er kennari við sama
skóla og Ragnar Jörundsson
(söngur, raddir, ásláttur) er
múrari og býr að Laugabakka.
Á plötunni eru tólf lög, öll
eftir bassaleikarann Marinó
Björnsson. Textar eru eftir Arn-
ór Benónýsson, Ragnar Inga
Aðalsteinsson og LEXÍU.
Hljóðritun fór fram í Hljóðrita í
Hafnarfirði, en útgefandi er
Tónaútgáfan á Akureyri.
Fríðarftindiir
Síðastliðinn vetur hefur starfað
á Akureyri hópur áhugafólks
um friðar- og afvopnunarmál.
Kveikjan að þessu starfi er sú
mikla umræða sem orðið hefur í
kjölfar andólfs evrópskra friðar-
hreyfinga gegn kjarnorkuvíg-
búnaði. Það hefur sýnt sig að
þessar hreyfingar geta með
andófi sínu haft áhrif á gang
kjarnorkukapphlaupsins. Eitt
áþreifanlegasta dæmið er að
ráðamenn í Vestur-Evrópu virð-
ast veigra sér við að taka á móti
þeim meðaldrægu kjarnorku-
eldflaugum sem staðsetja á í álf-
unni. Afleiðing þessa er sú að at-
hyglin hefur beinst æ meir að því
að koma kjarnorkueldflaugum
fyrir í skipum og kafbátum á
höfum úti. Þessi þróun mála get-
ur haft þau áhrif að hafið í kring-
um ísland verði í æ ríkara mæli
vopnabúr stórveldanna.
Kjarnorkuvopn eru alvarleg-
asta ógnun við tilveru mann-
kynsins. Menn deila t.d. um
hvort hægt sé að eyða Evrópu 20
eða 30 sinnum með þeim vopn-
um sem þegar eru fyrir hendi.
Til að ræða þessi mál og hugs-
anlegar leiðir til úrbóta, hefur
verið ákveðið að halda fund á
Hótel KEA, sunnudaginn 18.
apríl: Þar mun Knútur Árnason
eðlisfræðingur tala um samsetn-
ingu og eyðingarmátt kjarn-
orkuvopna. Sr. Gunnar Krist-
jánsson Reynivöllum í Kjós
mun ræða um vígbúnaðarkapp-
hlaupið og friðarhreyfingar.
Síðan kynnir Guðmundur G.
Þórarinsson alþingismaður til-
lögu sína um að halda hér á landi
alþjóðlega friðarráðstefnu sem
m.a. myndi fjalla um friðlýsingu
hafsins í kringum ísland gegn
kj arnorkuvopnum. Fundar-
stjóri verður Tryggvi Gíslason
skólameistari.
Ef áhugi er fyrir hendi er
meiningin að stofna formleg
friðarsamtök á fundinum. Þeir
aðilar sem vilja hafa áhrif á
stefnumörkun samtakanna eru
sérstaklega hvattir til að mæta.
Fréttatilkynning.
Gunnlaugur Bjömsson, Brynjólfur Snorrason og Jón Steindórsson í nýju versluninni.
GBJ s/f opnar á Akureyri
Sl. laugardag var opnuð ný versl- áherslan lögð á að hafa gasvörur Einnig hefur verslunin á boð-
unaðSkipagötul3áAkureyri,og ýmiskonar í miklu úrvali. Má stólum þrekhjól, reiðhjól og
heitir hún GBJ sf. Eigendur versl- nefna að þar fást allar gasvörur í þrektæki. í sama húsnæði að
unarinnar eru Gunnlaugur sumarbústaðinn frá litlum hellum Skipagötu 13 er einnig til húsa
Björnsson, Brynjólfur Snorrason og upp í frystikistur, lagnir og allt Vídeóleigan sf.
og Jón Steindórsson. sem til þarf. Þá er GBJ sf. einnig
í hinni nýju verslun er aðal- með allar gasvörur í útileguna.
Lausn
Valdatafl
Lelrhaus í
Mývatnssveit
Á annan í páskum frumsýndi
Ungmennafélagið Mývetningur
Leirhausinn í félagsheimilinu
Skjólbrekku. Leirhausinn er
gamanleikrit í þremur „atrenn-
um“ eftir Starra í Garði. Tónlistin
er eftir Örn Friðriksson og fleiri.
Leikstjóri er Þráinn Þórisson.
Leikendur eru 10. Leikurinn ger-
ist í Mývatnssveit á sjöunda ára-
tug aldarinnar og tekur mið af at-
burðum, sem þá voru að gerast.
Fullt hús var á frumsýningunni og
fékk leikurinn framúrskarandi
viðtökur. Næstu sýningar á Leir-
hausnum verða sem hér segir: I
Skjólbrekku, Þórshöfn á Laugar-
dag og Vopnafirði á sunnudag.
Að lokinni þessari leikför er fyrir-
hugað að sýna aftur í Skjólbrekku
og ef til vill víðar. JI.
S-Mt ápríí 1S82-ÍDAGUR 11