Dagur - 20.04.1982, Page 1
MIKIÐ
ÚRVAL
FERMINGAR
GJAFA
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
65. árgangur
Akureyri, þriðjudagur 20. aprfl 1982
42.tbl.
Eining:
Tekið verði
miðaf
yfir-
borgunum
Verkalýðsfélagið Eining hélt
almennan félagsfund 13. aprfl
s.l., þar sem aðallega var fjall-
að um stöðuna í kjaramálum og
m.a. samþykkt ályktun, þar
sem höfuðáhersla er lögð á að
bætt verði kjör verkafólks í hin-
um lægri launaflokkum, ekki
síst með tilliti til þess, að nýleg
könnun sýni, að fólk í efri launa
flokkum nýtur í ýmsum tilvik-
um talsverðra yfírborgana, sem
hins vegar eru nær óþekktar í
lægri launaflokkum.
I ályktun fundarins eru for-
dæmd harðlega þau vinnubrögð
Vinnuveitendasambands íslands,
að neita fneð öllu leiðréttingu á
kjörum launafólks innan ASÍ.
„Lágmarkskrafa er að samning-
arnir verði að minnsta kosti færðir
til samræmis við það sem gerist í
raun í dag og að lægst launaða
fólkið sem ekki nýtur slíkra yfir-
borgana fái umtalsverðar launa-
hækkanir, umfram þá betur
settu“, segir í ályktun fundarins
og er skorað á stjórnvöld að sker-
ast í leikinn og tryggja með ein-
hverjum ráðum, að þessi hópur
fái nú réttarbætur, sem ekki
hverfi eins og dögg fyrir sólu.
Þá samþykkti fundurinn stuðn-
ing við byggingu steinullarverk-
smiðju á Sauðárkróki. Ennfrem-
ur var samþykkt að félagið leggði
30.000 kr. sem hlutafé í Iðnþró-
unarfélagi Eyjafjarðarbyggða.
Loks var samþykkt að færa elli-
heimilinu á Olafsfirði gjöf á
sumardaginn fyrsta, en þá verður
heimilið formlega vígt.
Umsóknarfrestur um starf tækni-
manns við útibú Ríkisútvarpsins á
Akureyri rann út í síðustu viku.
Umsækjendur um stöðuna eru
þessir: Árni Jóhannsson, Akur-
eyri, Vébjörn Eggertsson, Akur-
eyri, VilhjálmurRúnarHendriks-
son, Akureyri, Davíð Jónsson,
Akureyri, Björn Sigmundsson,
Akureyri, Snorri Hansson, Akur-
eyri og Helgi Jónsson, ísafirði.
Krossanesverksm i ojan:
Mengun úr sögunni
og minni orkunotkun
— stjórn verksmiðjunnar sendi fólki
í Þorpinu konfektkassa í þakklætis-
skyni fyrir þolinmæðina
Helgi Bergs bæjarstjóri og Pétur Antonsson framkvæmdastjóri við gangsetn-
ingu tækjabúnaðarins. Mynd: H.Sv.
Sem þakklætisvott fyrir um-
buröarlyndið undanfarin ár
vegna mengunar úr Krossa-
nesverksmiðjunni sendi stjórn
hennar 130 konfektkassa, af
stærstu gerð, í jafnmargar
íbúðir í Glerárþorpi austan
Hörgárbrautar sl. föstudag.
Tilefnið var það að langþráðum
áfanga var náð, þegar ný tæki
voru tekin í notkun, sem m.a.
valda því að mengun frá verk-
smiðjunni er úr sögunni. Þessi
nýju tæki gera Krossanesverk-
smiðjuna eina allra nýtískuleg-
asta sinnar tegundar, orku-
notkun mun minnka um nær
helming með endurvinnslu
þeirrar orku sem áður fór út í
Ioftið og öllum vinnslurásum er
tölvustýrt úr sameiginlegri
stjórnstöð.
Ný gerð þurrkara hefur verið
tekin í notkun í Krossanesverk-
smiðjunni, svokallaður óbeinn
loftþurrkari, í stað gamla eld-
þurrkarans. Hin nýja þurrkaðferð
veldur því m.a. að mjölið verður
mun ljósara á litinn og er talið allt
eins góð afurð og frá gufu-
þurrkara, að sögn Péturs Antons-
sonar, framkvæmdastjóra verk-
smiðjunnar. Með nákvæmri stýr-
ingu á öllum stigum vinnslunnar
er tryggður hagkvæmasti vinnslu-
máti, þ.e. hámarksnýting hráefn-
is, framleiðslutækja og vinnslu-
afls. Kostnaður við þessar fram-
kvæmdir og þær breytingar sem
þurft hefur að gera nemur um 15
miiljónum króna.
Pétur Antonsson framkvæmda-
stjóri, lýsti með nokkrum orðum
þeim breytingum sem gerðar hafa
verið á verksmiðjunni við gang-
setningarathöfnina á föstudag.
Helgi Bergs, bæjarstjóri og
stjórn'arformaður Krossanesverk-
smiðjunnar, gangsetti hana síðan
og sagði í stuttu ávarpi, að það
hefði verið áhyggjuefni stjórnar
verksmiðjunnar um langa hríð,
hversu mengunin væri mikil frá
henni. Frá 1976 hefði verið unnið
að miklum endurbótum og nú
væri svo komið að nær öll verk-
smiðjan hefði verið endurnýjuð,
nema helst grunnurinn og stálbit-
arnir sem héldu húsunum uppi.
Ýmislegt væri þó eftir að gera og
t.d. væri hugmyndin sú, að reisa
starfsmannaaðstöðu og skrifstofu
hús á lóð verksmiðjunnar. í lok
ræðu sinnar þakkaði bæjarstjóri
bæjarbúum umburðarlyndið á
undanförnum árum, sérstaklega
þeim sem búa í Glerárhverfi, en
þeim hefði vafalaust oft súrnað í
augum.
Að Iokinni ræðu Helga tók full-
trúi Rafhönnunar og Raftákns til
máls og afhenti skrautritað skinn,
sem gestir við athöfnina rituðu
síðan nöfn sín á. Þessi fyrirtæki
höfðu umboð fyrir tölvubúnað og
stýrikerfi verksmiðjunnar. Megn-
ið af tækjabúnaðinum kom frá
Noregi, en starfsmenn verksmiðj-
unnar sáu um uppsetningu og
fyrirtækin Ljósgjafinn, Norður-
ljós, Raf og Raforka önnuðust
raflagnir.
Búið að stofna Iðnþróunar-
félag Eyjafjarðarbyggða
samtök á
Á laugardag var haldinn fram-
haldsstofnfundur Iðnþróunar-
félags Eyjafjarðarbyggða, en
fyrri hluti stofnfundar var laug-
ardaginn 20. mars. Gengið var
frá stofnun félagsins og eru að-
ilar að því um 30 talsins, sveit-
arfélög, sýslufélög, stéttar-
samtök og kaupfélög á Eyja-
fjarðarsvæðinu. Hlutafjár-
loforð á stofnfundi námu 1 mill-
jón króna en heimilt er að
hækka það upp í tvær milljónir.
Tilgangur félagsins er að stuðla
að iðnþróun og eflingu iðnaðar
við Eyjafjörð, m.a. með skipu-
lagðri leit að hagkvæmum fjár-
festingartækifærum á sviði iðnað-
ar og með frumkvæði að stofnun
nýiðnaðartækifæra, hugsanlega í
samvinnu við aðra aðila.
Stjórn félagsins er þannig
skipuð: Helgi Bergs, bæjarstjóri á
Akureyri, formaður, Valur Arn-
þórsson, kaupfélagsstjóri KEA,
varaformaður, Valdimar Braga-
son, bæjarstjóri á Dalvík, ritari og
meðstjórnendur Elías I. Elías-
son, sýslumaður og Jón Helga-
són, formaður verkalýðsfélagsins
Einingar.
Friöar-
samtöká
Akureyri
S.l. sunnudag voru stofnuð
Friðarsamtök á Akureyri. Á
almennum fundi sem haldinn
var á Hótel KEA voru mættir
um 140 manns og framsögu-
menn voru séra Gunnar Krist-
jánsson, Knútur Árnason eðlis-
fræðingur og Guðmundur G.
Þórarinsson alþingismaður og
fundarstjóri var Tryggvi Gísla-
son skólameistari.
Friðarsamtökin á Akureyri eru
frjáls samtök einstaklinga, flokks-
pólitískt óbundin. Markmið
þeirra er að efna til umræðu um
friðarmál og afvopnun og var á
fundinum samþykkt ályktun (sjá
bls. 10). Innan tíðar verður fund-
að með stofnfélögunum 90 talsins
og framhaldið ákveðið.
Nýr Drangur í júní
Loks er búið að ganga frá kaup-
um á nýjum Drangi, sem not-
aður verður til siglinga um
Eyjafjörð. „ ,
JJ Skipið sem keypt
var, er smíðað í Rúmeníu árið
1981. Það er tæpar 300 lestir að
stærð, 37.5 metra langt og 10
metra breitt og er ganghraði
þess 10 sjómflur.
Nú er verið að vinna að breyt-
ingum á skipinu, en þegar þeim er
lokið ér gert ráð fyrir að verð
skipsins verði rúmar 14 milljónir
króna. Nýi _<rangurervæntanleg-
ur til heimahafnar um miðjan
júní. Það er útbúið fyrir gáma-
flutning og er með skutlúgu þann-
ig að hægt er að aka um borð.
Skipið getur bæði flutt gáma, bíla
og þungavinnuvélar og það er út-
búið með bómu með 56 lesta lyfti-
getu. Aðstaða er fyrir 50-60 far-
þega.