Dagur - 20.04.1982, Qupperneq 6
f
Síðbúin kveðja
Jóhannes Oli Sæmundsson
Fæddur 10. júlí 1906- Dáinn 17. janúar 1982
Þegar við nú félagarnir í Styrktar-
félagi vangefinna á Norðurlandi
höfum hvatt höfðingja okkar og
vin, Jóhannes Óla Sæmundsson,
getum við tekið okkur í munn orð
Páls postula er hann segir: „Hann
miðlaði mildilega, gaf hinum
snauðu, réttlæti hans varir að ei-
lífa“.
Meginþáttur í lífsstarfi Jóhann-
esar Ola var að miðla samferð-
armönnunum einkum þeim yngri
af reynslu sinni og visku og berjast
fyrir betri kjörum til handa þeim
er bágast áttu.
Jóhannes Óli var í senn mikill
hugsjóna- og framkvæmda-
maður. Með brjóstvitið og bjart-
sýnina að megin vopni, barðist
hann af eldmóði fyrir því að gera
hugsjónir sínar að veruleika og
var hann þá hvorki smátækur eða
lítilþægur.
í starfi sínu sem kennari og
námsstóri varð Jóhannesi Óla
ljóst hvað vangefnir voru afskiptir
í skólakerfinu og samfélaginu.
Fyrir atbeina Jóhannesar Óla og
nokkurra vina hans var Styrktar-
félag vangefinna á Norðurlandi
stofnað 1959. Tilgangur félagsins
var að standa vörð um hagsmuni
vangefinna á Norðurlandi. Fyrsta
verkefni félagsins var að byggja
vistheimili þar sem vangefnir
mættu njóta sem mestrar og bestr-
ar þjónustu óg kennslu. Barátta
Jóhannesar Óla fyrir þessu óska-
barni Norðlendinga sem síðar
hlaut nafnið Vistheimilið Sólborg
var einstök og um leið lýsandi
dæmi um bjartsýni og baráttu-
gl.eði hans þegar góður málstaður
var annars vegar. Og ef einhver
kynni að efast um faðerni óska-
barnsins, þá skal það upplýst hér
að faðirinn var Jóhannes Óli.
Jóhannes Óli var formaður
Styrktarfélags vangefinna á
Norðurlandi frá stofnun þess til
ársins 1980 og sat í stjórn Vist-
heimilisins Sólborgar frá upphafi
til ársins 1980, en þá baðst hann
undan endurkjöri í báðum stjórn-
unum vegna heilsubrests. Fjöl-
mörgum öðrum trúnaðarstörfum
gegndi hann hann á sviðum menn-
ingar og mannúðar sem ekki
verða tíunduð hér.
Kærar þakkir Jóhannes Óli
fyrir það sem þú hefur fyrir okkur
gjört, tvöfalt mun það teljast hin-
um megin, því trauðla til fulls það
metið verður hér.
Við sendum ástvinum öllum
samúðarkveðjur.
F.h. Styrktarfélags vangefinna
á Norðurlandi.
Kolbrún Guðveigsdóttir.
(iil)
1957-1982
Nýjar
plötur
BEE GEES, living eyes
BEACH BOYS
Bestu lög 6. áratugsins
BOB STROLL ROLL,
safnplata
CHARLIE DANIELS
BAND.
DIANA ROSS
DAVID BOWIE
DANCE DANCE DANCE,
safnplata
EGO, breyttir tímar
EGLA
ELTON JOHN, greatest
hits
FOREIGNER
GO,GOS
GULLNA HLIÐIÐ
ÍSLANDSKLUKKAN
JÓHANN HELGASON
JOURNEY, i úrvali
JAKOB MAGNÚSSON,
í úrvali
JETRO TULL, í úrvali
LEXÍA
NÆST Á DAGSKRÁ,
íslensk safnplata
O.M.D.
POINTER SISTERS
PLACIDO DOMINGO
RITA COOLIDGE
ROLLING STONES,
ýmsar
ROCK CLASSICS
SARAGOZZA BAND
SPYRO GYRA
TOM ROBINSON BAND
THE KINKS og fleira.
SENDUM I' PÓSTKRÖFU
■acrm .
P KAHZJm
—TSfc.
Im%
feyri J
Minningarmót
um Jón Ingimarsson, hefst fimmtudaginn 29.
apríi kl. 20 í Skákheimilinu og lýkur sunnudag-
inn 2. maí.
Umhugsunartími er 11/2 tími á 36 leiki og síðan
V2 tími að Ijúka skákinni. Tefldar verða 7 umf.
eftir Monrad kerfi.
Keppendur verða að skrá sig fyrir þriðjudaginn 27.
apríl, í síma 25245, 23926 og 23635 eftir kl. 17.
Skákfélag Akureyrar.
Takið eftir
Okkur vantar bifvélavirkja og iaghentan mann
sem allra fyrst.
Mazda-þjónustan.
Bifreiðaverkstæði Bjarna Sigurjónssonar,
símar 21861 og 25857.
Óskum að ráða einn til tvo
smiði nú þegar, (ákvæðisvinna).
Smári hf my sími 21234.
Óskum að ráða vana
byggingaverkamenn
nú þegar.
Smári hf.,
sími 21234.
H-100 þriggja ára
Veitingahúsið H-100 á Akur-
eyri var stofnað þann 22. aprfl
1979, og verður þessi vinsæli
skemmtistaður Akureyringa
þvi 3 ára n.k. fimmtudag,
sumardaginn fyrsta.
Eigendur H-100 eru þeir Rúnar
Gunnarsson og Baldur Ellerts-
son, en þeir hafa átt staðinn frá
upphafi og stýrt honum. Þeir ætla
að efna til hátíðarhalda á afmælis-
daginn, en „þjófstarta“ reyndar á
miðvikudagskvöldið. Þá mæta
„undanfarar" á staðinn en á
fimmtudagskvöld verður húsið
opnað kl. 20
Allar dömur fá blóm í barminn,
og kl 22 verður boðið upp á af-
mæliskokteil. Sérstakir hátíðar-
gestir þetta kvöld verða allir þeir
sem hafa verið plötusnúðar í H-
100 síðan staðurinn var opnaður
1979.
Massey Ferguson
MF
VELAR
Varanleg vél á góðu verði
KAUPFÉLÖGIN OG
Suðurlandsbraut 32 - Sími 86500
Reykjavík
Wim ræstiduft
aðeins kr. 5.50 - 300 gr. box.
Nauðungaruppboð
Laugardaginn 24. apríl nk. kl. 14 verður að kröfu innheimtu-
manns ríkissjóðs og ýmissa lögmanna selt á nauðungarupp-
boði við lögreglustöðina á Akureyri ýmisskonar lausafé, s.s. bif-
reiðarnar A-6192, A-8268, A-2241, A-1867, A-8287, A-4196,
A-5922, A-7606, A-1622, A-4712, A-1347, A-5724, A-5309,
veðskuldabréf að fjárhæð kr. 90 þúsund, frystikista, ísskápur,
þvottavél og 36 bindi af ritverkum Halldórs Laxness.
Fyrir hönd bæjarfógetans á Akureyri,
Erlingur Óskarsson.
6 - DAGUR-J20. apríl 1982