Dagur - 22.04.1982, Blaðsíða 3

Dagur - 22.04.1982, Blaðsíða 3
SporthúycL HAFNARSTRÆTI 94 SIMI 24350 þúert á beinni linu til Rey einu sinni í viku Með aukinni strandferðaþjónustu býður Eimskip þér beint samband viö Reykjavík, Akureyri og ísafjörð einu sinni í viku. Hálfsmánaðarlega er einnig siglt á Siglufjörð og Húsavík og þannig haldið uppi tíðum og öruggum strandferðum. Við flytjum fyrir þig jafnt stóra vöru sem smáa í gámum eða frystigámum sé þess óskaö. Eimskip annast aö sjálfsögðu flutning alla leið á áfangastaðef það þykirhenta, bæði hérlendisogerlendis. Reykjavík Aðalskrifstofa Pósthússtræti 2 Sími 27100 - telex 2022 Innanhússímar 230 og 289 ísafjörður Tryggvi Tryggvason Aðalstræti 24 Simi94-3126 Akureyri Eimskip Oddeyrarskála Simi 96-24131 - telex 2279 Siglufjörður Þormóður Eyjólfsson hf. Sími 96-71129 Húsavík Kaupfélag Þingeyinga Simi 96-41444 Siglingaáætlunin apríl ’82 Frá Reykjavík Frá Isaflrðl Frá Akuroyri Frá Slgluflrði Frá Húsavík Tll Reykjavíkur 3/5 4/5 6/5 7/5 9/5 10/5 11/5 13/5 14/5 16/5 17/5 18/5 20/5 21/5 23/5 24/5 25/5 27/5 28/5 30/5 1/6 2/6 3/6 4/6 6/6 7/6 8/6 10/6 11/6 13/6 14/6 15/6 18/6 16/6 20/6 21/6 22/6 24/6 25/6 27/6 28/6 29/6 1/7 2/7 4/7 5 n 6/7 8/7 9/7 11/7 12/7 13/7 15/7 16/7 18/7 19/7 20/7 22/7 23/7 25/7 26/7 27/7 29/7 30/7 1/8 Vörumóttaka i Reykjavik: A-skáli, dyr 2 til kl. 15.00 á föstudögum. Alla mánudaga frá Reykjavík Á Akureyri alla miðvikudaga Alla leiö meó EIMSKIP * SIMI 27100 Hanskar, peysur, buxur Ný plata með Geirmundi Ennvar lífíhrússa Bóndi nokkur á Svalbarðsströnd á gamlan hrút, sem hann lét ganga með ánum sl. vetur. Taldi bóndi að hrússi, sem bæði er lasinn og haltur, væri til fárra hluta nýtileg- ur, en hrúturinn bjó yfir þrótti sem enginn átti von á. Fyrir nokkrum vikum bar ein áin þrem lömbum og þykir sannað að gamli lasni hrúturinn sé faðir þeirra. Bóndi hefur ekki í hyggju að láta þann gamla ganga með ánum næsta vetur. F.v. Hörður Ólafsson. Geirmundur Valtýsson, Pálmi Guðmundsson og Pálmi Stefánsson. Geirmundur Valtýsson? Auð- vitað þekkir þú hann. Hljóm- sveit Geirmundar Valtýssonar frá Sauðárkróki er ein lífseig- asta hljómsveitin hér á landi - og þó víðar væri leitað. í ára- raðir hefur þessi hljómsveit spilað á dansleikjum víða um land og mun eflaust gera það næstu árin. Og án efa hefur hljómsveit Geirmundar oft átt ríkan þátt í að leiða saman sálir - með Ijúfu lagi í Iok dansleiks - sálir sem vissu ekki hvað ætti að verða til þess að þær þyrðu að Ieggja saman kinn við kinn. Um daginn hitti blaðamaður Dags þá Pálma Stefánsson og Geirmund á götu og fljótt kom í Hlekktist á í lendingu Skömmu fyrir hádegi á þriðju- dag hlekktist einni flugvél Flug- félags Norðurlands á í Iendingu á ísafírði. Óhappið varð með þeim hætti að þegar flugvélin var við það að lenda, lenti hún í niðurstreymi og rakst þá annar vængur hennar niður. Flugmanninum tókst fljót- lega að rétta farkost sinn af og skilaði farþegunum, 16 talsins, heilum á húfi til ísafjarðar. Að- stæðum háttar svo til að flug- brautin er skökk fyrir og þarf því að beygja við brautarendann þeg- ar flugvélum er lent og var það í þessari beygju sem vélin tók niður. Skemmdir urðu ekki telj- andi á vélinni, nema hvað bláendi vængjarins hruflaðist lítilsháttar. Bráðabirgðaviðgerð fór fram á Isafirði en í gær var vélinni flogið til Akureyrar þar sem gert verður betur að sárum hennar. ljós að út í Glerárgötu unnu þeir og fleiri í Stúdíó Bimbó við hljóð- blöndun á nýrri plötu, sem Tóna- útgáfan gefur út. Það varð úr að blaðam. slóst í för með þeifn fé- lögum, en í Stúdíó Bimbó var Hörður Ólafsson, sem starfað hefur með Geirmundi undanfarin ár. Geirmundur: Við erum að ljúka við að hljóðblanda plötuna. Nú verður hún send utan í skurð, en síðan á eftir að pressa plötuna. Það er áætlað að hún komi á markað um mánaðamótin maí/ júní. Lögin eru öll eftir mig og Hörð Ólafsson. Hörður: Lögin á plötunni eru af ýmsu tagi. Ég held að hún höfði til fólks á öllum aldri. Geirmundur: Við erum með sjó- mannalög, rólegar ballöður og popplög. Pað má segja að þetta sé örlítið sýnishorn af því sem við flytjum á dansleikjum. Hörður: Við spilum á dansleikj- um vítt og breytt um allt land. Það er nóg að gera. Til dæmis höfum við spilað mikið í Eyjafirði, en það hefur dofnað mikið yfir að- sókn á sveitaböll í Eyjafirði. Það veit engin ástæðuna fyrir þessari þróun. Á sumrin og þegar færð er góð förum við til fjarlægari staða. Sl. haust fórum við t.d. til Kefla- víkur og spiluðum fyrir hjóna- klúbb Keflavíkur og á almennum dansleik, en við höfum enn ekki komist á Vestfirði. Geirmundur: Þú spyrð hvort sé betra að skemmta Skagfirðingum eða Þingeyingum. Ef ég mætti svara þessu þá vil þá vil ég segja að þeir séu mjög svipaðir. Eyfirð- ingar eru ekki alveg eins. Það er svipaður blær yfir Skagfirðingum og Þingeyingum. Það er oft verið að tala um loft í Þingeyingum. Ég sé ekki betur en það sé töluvert af því líka í Skagfirðingum. Nýkomið: Kjólar mikið úrval, nr. 38-46. Kápur margar gerðir Ný sending af töskum, umslög, buddur, seðla- veski úr leðri og vinel. * Nýjar vörur væntan- legar næstu daga. Markaðurinn 22. ápríl 1982 - DAGUR - 3

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.