Dagur - 22.04.1982, Blaðsíða 16
BME
Akureyri, fimmtudagur 22. apríl 1982
Smiðjan er opin aiia daga í hádeginu og á kvöldin. Þorvaidur
Hallgrímsson spilar dinnermúsik um helgar. Helgina 30. apríl
til 2. maí skemmtir Graham Smith og Jónas Þórir
kl. 20 og 22.30 hvert kvöld.
Allt að fyllast 30. apríl. Pantið borð tímanlega.
Bautinrt og Smiðjan óska öllum gleðilegs sumars.
Ur
sömlum
Dem
I>ann 21. janúar árið 1953 skýr-
ir Dagur frá því að einkenni-
legt Ijósfyrirbæri hafí sést á
Infti frá bænum Tjörnum í
Eyjafírði. Bóndinn þar, Gunn-
ar V. Jónsson skýrði þannig frá
atburði þessum:
„Klukkan átti eftir fáar mín-
útur í sjö, mánudagskvöldið
12. janúar. Við feðgarnir sát-
um þrír saman í vesturherbergi
íbúðarhússins og töluðum
saman í myrkrinu og hirtum
ekki um að draga fyrir
gluggann. Sáum við þá skyndi-
lega hvar eldhnöttur fór með
feikna hraða suður hlaðið og
fylgdi honum hnýr mikill. Virt-
ist okkur hann fara sem svaraði
10 m frá húsinu og svífa yfír
símalínuna. - Hnötturinn var í
meter í þvermál og dró hann á
eftir sér bláleitan hala um tvo
metra að lengd . . .“
Gunnar skýrir síðan frá því
að þeir feðgar hafí þust út til að
fylgjast með fyrirbærinu, en
þeir sáu þá ekkert óvenjulegt.
Hinsvegar komu stúlkur úr
cldhúsinu og spurðu hverju
hefði sætt sá hávaði sem þær
hefðu heyrt útivið. Höfðu þær
ekkert séð þar sem dregið var
fyrir glugga eldhússins, en háv-
aðann höfðu þær heyrt engu að
síður. “ Mál þetta mun vera
óupplýst.
Prúðmannlegasta
afmælisveisla
Knattspyrnufélag Akurcyrar
átti 25 ára afmæli þann 8.
janúar þetta ár og var afmæiis-
ins minnst í fjölmennri veislu á
Hótel Norðurlandi. Veisluna
sátu um 230 manns, og var hún
hin prýöilegasta og prúðmann-
lcgasta í alla staði. I frétt Dags
af þessum atburði kom fram að
stofnendur KA hafí verið 12
drengir í bænum og hafí megin-
áhersla í fyrstu verið lögð á ið-
kun knuttspyrnu.
Glákomblindur
ofsatrúarmaöur
I Degi þann 4. mars má lesa
cftirfarandi: - „Svohljóðandi
klausa birtist í síðasta tbl.
kommúnistablaðsins hér:
Veistu að Sósíalistaflokkurinn
er eini sanni alþýðuflokkurinn,
eini sanni framsóknarflokkur-
inn og eini sanni sjálfstæðis-
flokkurinn á íslandi . . .“
Síðan segir Dagur:
„Skemmtilegast er að cinhver
glákomblindur ofsatrúar-
maður hefur skrifað þetta á
blað í alvöru!“
Heitt
á lögreglustöðinni
Hitabylgja hefur gengið yfir
landið undanfarna daga, með
sunnanátt allhvassri á stundum
og rigningaskúrum. Á mið-
vikudaginn var, 11. mars, var
hér sunnanstrekkingur og
hvasst með köflum, en hlývirði
svo mikið að minnti á bestu
vordaga. Hitinn komst hæst í
15 stig á mælinn hjá lögreglu-
stöðinni . . .“ - Það hefur því
væntanlega verið heitt á lög-
reglumönnunum á þessum
fagra marsdegi á Akureyri.
Skemmdarverk í
kirkjugarðinum
Siðlaus athæfí voru framin á
þessum árum ekki síður en í
dag. Þann 28. maí skýrir Dagur
frá því að skemmdarverk hafí
verið unnin í kirkjugarðinum á
Akureyri. - „Er svo að sjá sem
grjóti hafí veriö kastað í leg-
steina og gler yfír blómum, og
traðkað hafí verið á gróðri á
leiðum . . .“
Samþykkt aö loka
„Ríkinu“
Alþingiskosningar voru um
mánaðarmótin júní/júlí. Akur-
eyringar kusu sér ekki einungis
alþingismann fyrir næsta kjör-
tímabil, heldur greiddu þeir
um leið atkvæði um það að
loka skyldi áfengisútsölunni í
bænum. Urslit þeirrar kosn-
ingar urðu þau að 1730 vildu
láta loka, á móti voru 1247,
auðir seðlar voru 332 og ógildir
33.
Dúfan fékk málsverð
Eftirfarandi klausa úr blaðinu
16. september verður að fá að
fljóta með í lokin: „Frú ein í
bænum heyrði þrusk í mið-
stöövarklefa. Rotta, datt henni
í hug. Hún hélt að sér pilsunum
og lagði till orrustu með vatns-
slöngu að vopni. Sprautaði
kringum miðstöðvarketilinn
en ekkert skeði. Þá heyrði hún
að þruskið kom úr sjálfum
katlinum. Þar var rottan auð-
vitað. Frúin skipulagði því nýj-
ar hernaðaraðgerðir. Hún
vætti bréf í olíu og ætlaði að
svæla rottuna út úr miðstöð-
inni. En þegar hún opnaöi eld-
hólfíð flaug dúfa út úr katlin-
um. Varð hún frelsinu fegin,
og húsmóðirin varð líka harða
glöð að sjá að gesturinn var
ekki ferfættur. Gaf hún dúf-
unni góðan málsverð og sleppti
henni síðan. Vafalaust er, að
dúfan hefur arið niður rey kháf-
inn. Miðstöðin hafði ekki verið
notuð í sumar.“
„Eyddi öUum pask-
uniim í HlíðarfjaUl46
„Þetta er ákaflega fjölbreyt og
líflegt starf og virkilega gaman
að takast á við það“ sagði
Guðmundur Sigurbjörnsson
hafnarstjóri á Akureyri er við
rákumst á hann á dögunum.
Tilvalið var að spjalla stuttlega
við hann, og orð Guðmundar
hér að framan voru svar hans
við spurningunni hvort það
væri skemmtilegt að vera hafn-
arstjóri á Akureyri.
Guðmundur er 32 ára, borinn
og barnfæddur Akureyringur, og
tók við starfinu 1980. Hann er
byrggingafræðingur að mennt og
starfaði áður hjá Vegagerð ríkis-
ins og hjá tæknideild Akureyrar-
bæjar.
„Starfið er fólgið í því að hafa
umsjón með daglegum, rekstri
hafnarinnar og framkvæmdum.
Undir þetta embætti falla öll hafn-
armannvirki frá Krossanesi og inn
að Höfnersbryggju auk reksturs
hafnarvogar, lóða og húseigna
sem heyra undir höfnina.“
- Nú blasir það við út um
gluggan á skrifstofu þinni að verið
er að fylla upp í dokkina á Torfu-
nefi. Hvernig líst þér á þær fram-
kvæmdir?
„Mér líst illa á þær á meðan
ekkert annað kemur í staðinn.
Annars er ekki svo mikill skortur
á athafnarrými hér á Akureyri
fyrir báta. Það eru einungis þrír
stórir bátar sem eiga hér heima
höfn og þeir landa ekki á Akur-
eyri. Hinsvegar liggur það ljóst
fyrir eftir þessar framkvæmdir að
það vantar athafnarrými fyrir
Drang, og vissulega er sjónar-
sviftir af dokkinni eftir að búið er
að fylla hana upp.“
- Snúum talinu að öðru.
Guðmundur er mikill íþrótta-
áhugamaður og hefur starfað
mikið fyrir félag sitt Þór.
„Ég hef verið í stjórn Knatt-
spyrnudeildarinnar undanfarin
fjögur ár, en hætti sl. haust. Þó er
maður ekki alveg laus, ég lofaði
að hjálpa til við fjáröflunina sem
tekur ávallt nær allan þann tíma
sem menn hafa til að sinna mál-
efnum íþróttafélaganna hér eins
og annarsstaðar. Ég er einnig full-
trúi Þórs í stjórn íþróttabandalags
Akureyrar.“
- Einhver önnur áhugamál en
knattspyrnan?
„Já, ég eyddi öllum páskunum í
Hlíðarfjalli, ætli það segi ekki
svolítið. Svo er ég í byggingar-
stússi, búin að vera að byggja í 4
ár og á tvö ár eftir. Það er þetta
hefðbundna basl sem ungt fólk
þarf að glíma við.“
Guðmundur Sigurbjörnsson.
'mumjih
IqN t e r n at i o n al
- ■#
Triuniiili
I NTE RNATIONAL
Ný sending
afþessum
glæsilega
undirfatnaði