Dagur - 04.05.1982, Blaðsíða 1
MIKIÐ
ÚRVAL
FERMINGAR
GJAFA
GULLSMIÐIR
SiGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
65. árgangur
Akureyri, þriðjudagur 4. maí 1982
47. töiublað
Dyravörður í Alþýðuhúsinu á
Akureyri varð fyrir fólskulegri
líkamsárás sl. föstudagskvöld.
Hann kom þar að sem gestir
voru að deila og ætlaði að stilla
til friðar, en þá skipti engum
togum að annar deOuaðilanna
réðst á hann og sló tíl jarðar.
Hann lét ékki þar við sitja held-
ur sparkaði í dyravörðinn svo
sprakk fyrir augnabrún. Dyra-
vörðurinn var fluttur á sjúkra-
húsið og var þar gert að sárum
hans, en árásarmaðurinn í
fangageymslur lögreglunnar.
Að sögn lögreglunnar var mikil
ölvun á Akureyri um sl. helgi og
alls gistu sex fangahúsið vegna
ölvunar á almannafæri. Tveir
ökumenn voru teknir - grunaðir
um ölvun við akstur. Um helgina
valt bifreið við Sílastaði í Kræk-
lingahlíð. Ökumaður, sem var
einn í bifreiðinni, slasaðist ekki.
Harður árekstur varð á gatnamót-
um Mýravegar og Skógarlundar.
Miklar skemmdir urðu á bifreið-
unum og lítilsháttar meiðsl á
fólki.
Rytju-
tíðá
Fjöllum
„Það er rytjuhríð hjá okkur
núna en annars hefur ekki
snjóað mikið,“ sagði Kristján
Sigurðsson bóndi og símstöðv-
arstjóri á Grímsstöðum á FjöO-
um í samtali við Dag á föstu-
daginn síðasta.
Kristján sagði veturinn hafa
verið ansi leiðinlegan. Hefði hann
lagst snemma að, eða strax í lok
september. Skammdegið hefði
verið kalt, en þó hefði tíðarfarið
skánað í mars og hefði verið ágætt
þar til nú að aftur hefði kólnað í
veðri. Mannlífið sagði Kristján
hafa verið með ágætu móti á fjöll-
unum í vetur en ekki hefði verið
mikið um félagslíf. Fyrir all-
nokkru hefði vegurinn um öræfin
verið opnaður og væri hann
óvenju lítið skemmdur eftir vet-
urinn.
lli.ii.m——
Kosningaskrífstofa
FramsóknarOokksins
er að Hafharstræti 90
Opin virka daga kl. 09-22, um helgarld. 13-18.
Símar: 21180-24442-24090.
Stuðningsmenn B-tistans
sýnum nú samtakamáttinn,
mætum til starfa á skrífstofunni.
Áframhaldandi
framsókn
tiiifamfara v
* JMBl
áAkureyrí
Jón Sigurðarson um álvershugmyndir sjálfstæðismanna:
„Virðast ekkert hafa lært
af fyrri álsamningi“
„Flestir Akureyringar eru sam-
mála um það, að atvinnumálin
séu aðalmál komandi bæjar-
stjórnarkosninga. Nauðsynlegt
er að um þessi mál verði vönd-
uð og málefnaleg umræða í
kosningabaráttunni. Það veld-
ur því miklum vonbrigðum,
þegar sjálfstæðismenn á Akur-
eyri reyna að þyrla upp mold-
viðri rangtúlkana og blekkinga,
í stað þess að stunda málefna-
lega umræðu.“
Þannig kemst Jón Sigurðarson,
fimmti maður á lista framsóknar-
manna á Akureyri, að orði í grein
í opnu blaðsins í dag, þar sem
hann fjallar um atvinnumálin.
Hann segir ennfremur: „Sjálf-
stæðismenn skortir vel grundaða
afstöðu í þessum málum. Væru
þeir trúir hugsjón sinni ættu þeir
að halda því fram að óheft ein-
staklingsframtak eitt gæti leyst
allan hugsanlegan vanda í
atvinnumálum Eyjafjarðar-
byggða . . . Álverskalþað verða,
hvað sem það kostar og fram-
sóknarmenn skulu kallaðir
stefnulausir um atvinnumál fyrir
þá sök eina að þeir vilja láta fara
fram nauðsynlegar athuganir
áður en ákvörðun um álver er
tekin.“
Ennfremur segir Jón Sigurðar-
son í grein sinni: „Sjálfstæðis-
menn hafa einu sinni haft forystu
um samningsgerð við erlent áliðn-
aðarfyrirtæki. Alkunna er hvern-
ig þá tókst til. Furðulegt má heita
að þeir virðast ekkert hafa lært af
reynslunni og vilja enn ana áfram
að óathuguðu máli.“ Sjá grein í
opnu.
Um síðustu helgi sátu nokkrír félagar í Lionsklúbbnum Hæng og pökkuðu herðatrjám. Félagsmenn munu ganga í hús
nk. laugardag og bjóða fólki herðatré til kaups og verður ágóðanum varið til styrktar öldruðum. Félagarnir sem Dagur
ræddi við sögðu að þeir ætluðu að seija 10 þúsund herðatré og töldu engin vandkvæði á að losna við þau öll. Mynd: áþ.
Vegir
víða
ófærir
Hjá Vegagerðinni fengust þær
upplýsingar í gær, að fært væri yfir
Öxnadalsheiði en stórhríð í
Skagafirði stæði í vegi fyrir
mokstri yfir Vatnsskarð. Að sjálf-
sögðu var Ólafsfjarðarmúli ófær í
gær en til Dalvíkur var rutt frá
Akureyri, en á þeirri leið var
Hámundastaðahálsinn mestur
flöskuháls að vanda. Einnig var
brautin rudd til Húsavíkur í gær
en þar var þæfingsfærð fyrir jeppa
áður. Þá var ætlunin að moka til
Þórshafnar og Vopnafjarðar í
gær. Starfsmenn vegagerðarinnar
voru búnir að taka snjóverkfæri af
tækjum sínum þegar óveðrið skall
á, eins og þruma úr heiðskíru lofti
og urðu þess vegna seinir fyrir við
moksturinn. Bílaeigendur voru
einnig flestir komnir með sumar-
dekk á ökutæki sín og mega því
passa sig á hálkunni.
Bjartsýni að
húsið verði
tekið í
notkun
í haust
Jóhann Pálsson forstöðumaður Listigarðsins:
„Lítið annað hægt að gera
en krossa sig og bíða“
„Það er lítið annað hægt að
gera en krossa sig og bíða,“
sagði Jóhann Pálsson forstöðu-
maður Listigarðsins í gær, innt-
ur eftir áhrifum veðráttunnar á
gróðurfar hér á Akureyri.
Jóhann sagði að páskahlýind-
unum í fyrra hefði gróður verið
kominn álíka langt og nú fyrir
hretið og þá kom einnig kulda-
kast, en með vægara frosti en nú.
Þá urðu nokkrar skemmdir á
gróðri. Gætum við því búist við
jafnvel meiri skemmdum nú, t.d.
er hætt við að ribs, reynir og jafn-
vel ösp láti á sjá. Jóhann sagði
ennfremur að mest væri hættan ef
hæð kæmi yfir landið með sólfari á
daginn og frosti um nætur. „Ég er
ekki ýkja hræddur um fjölærar
jurtir, þær eru ekki eins viðkvæm-
ar og trjágróðurinn. T.d. eru sum
tré ekki ennþá búin að ná sér eftir
kalda sumarið 1979,“ sagði Jó-
hann að lokum.
Dagur hafði samband við Ævarr
Hjartarson ráðunaut og sagði
hann að tún hefðu komið ágæt-
lega útlítandi undan snjó í vor og
víða hefðu þau verið tekin að
grænka fyrir hretið. Það væri bót í
máli að snjórinn hlífði gróðrinum
fyrir frostinu en héldi þessu veður
lagi eitthvað áfram væri ómögu-
iegt að segja hvað gerast kynni.
Vorverk tefjast að sjálfsögðu hjá
bændum vegna veðráttunnar en
aftur á móti fresta kindurnar ekki,
burði þött illa ári og mun erfiðari
verður sauðburðurinn bændum í
þessu tíðarfari en þegar vel vorar.
„Það er nánast bjartsýni að
gera ráð fyrir að húsið verði
tekið að einhverju leyti í notk-
un í haust,“ sagði Hermann
Sigtryggsson íþróttafulltrúi
þegar Dagur spurðist fyrir um
hvernig liði byggingu svæðis-
íþróttahússins.
Fjárframlög frá bænum hafa
verið lækkuð en fjárveiting frá
ríkinu var mun minni en búist
hafði verið við. Af þessum sökum
hefur framkvæmdaáætlunin verið
endurskoðuð og er því óvíst hvort
takist að ganga frá salnum og 2
búningsklefum eins og stefnt var
að. Nú erunnið af krafti við pípu-
lagningar í húsið „og við vonumst
til að geta tekið salinn í notkun í
síðasta lagi í vetur, en ég held að
það sé best að segja sem minnst.
Þetta ræðst allt af þeim fjárfram-
lögum sem fást.“