Dagur - 04.05.1982, Blaðsíða 3
Skógraektarfélag Akureyrar:
Halldórsmótið í bridge:
Öruggur sigur hjá
sveit Alf reðs
Nýlokið er hjá Bridgefélagi
Akureyrar svokölluðu „Hall-
dórsmóti“, en mót þetta er
haldið til minningar um Hall-
dór Helgason sem um árabil
var einn af máttarstólpum fé-
lagsins.
Að þessu sinni sigraði sveit
Alfreðs Pálssonar, en auk hans
eru í sveitinni Mikael Jónsson,
Angantýr Jóhannsson og
bræður Halldórs heitins þeir Jó-
hann og 'Ármann Helgasynir.
Röð efstu sveita varð þessi:
1. Alfreð Pálsson 192 stig
2. Jón Stefánsson 171 stig
3. Páll Pálsson 165 stig
4. Ferðaskrifst. Ak. 145 stig
5. Sveinn Sigurgeirss. 135 stig
6. Stefán Ragnarsson 135 stig
7. Gissur Jónasson 131 stig
Alls spiluðu 12 sveitir og
keppnisstjóri var Albert 5ig-
urðsson.
Sigurvegararnir í Halidórsmótinu. Aftari röð: Mikael Jónsson og Angantýr
Jóhannsson og fremri röð: Jóhann Helgason, Alfreð Pálsson með verðlauna-
gripinn og Ármann Hclgason.
4250 plöntur
gróðursettar
Aðalfundfur Skógræktarfélags
Eyfirðinga var haldinn fyrir
skömmu. í skýrslu Hallgríms
Indriðasonar, framkvæmda-
stjóra kom fram að alls voru
unnar um 8 þúsund vinnu-
stundir á útivistarsvæðunum sl.
ár. Helstu verkefnin voru lagn-
ing trimmbrautar og girðingar-
framkvæmdir. Gróðursettar
voru 4.250 plöntur. Unnið var
að grisjun og hirðingu planta
allt sumarið. Aðsókn að svæð-
inu fer vaxandi bæði sumar og
vetur.
Hafin var bygging á nýju gróð-
urhúsi, sem verður um 250 ferm.
að stærð. Einangraður var sá hluti
skemmu, sem verður kæligeymsla
í framtíðinni. Plöntuframleiðsla
fer vaxandi. Sáð var 240 ferm.
Fjölgað með græðlingum um
58.000. Afgreiddar plöntur úr
stöðinni 1981 voru um 50.000 að
tölu.
Viðhald girðinga var mikið á
árinu 1981. Endurgirtur var
Bjarkarreitur í Öngulsstaða-
hreppi. Vaxandi kostnaður er við
hirðingu Leyningshóla og Vaðla-
reitar, vegna umferðar fólks um
reitina. Lokið var við girðingu á
Laugalandi. Vegagerð ríkisins
lagði til efnið. Gróðursettar voru
um 6.000 plöntur við Laugaland
og 4.700 í Bæjarbrekkum.
Á fundinn voru sérstaklega
boðaðir bændur í Eyjafirði, sem
hafa áhuga á að hefja skógrækt-
sem aukabúgreinar. Sigurður
Blöndal skógræktarstjóri flutti er-
indi um héraðsskógrækt og á
fundinum var ákveðið að Skóg-
ræktarfélag Eyfirðinga gangist
fyrir gerð áætlunar um héraðs-
skógrækt í Eyjafirði. Alls hafa 35
jarðeigendur sýnt málinu áhuga.
Landsmót
skóia-
hljómsveita
Árlegt landsmót skólahljóm-
sveita tónlistarskólanna á Is-
landi er fyrirhugað á Akureyri
28.- 30. maí n.k. Slíkt mót var
fyrst haldið 1969 og flest ár
síðan, alltaf á suðvesturhorni
landsins þar sem flestir skól-
arnir eru, þar til nú. Blásara-
sveit Tónlistarskólans hér mun
taka þátt í mótinu og annast um
framkvæmd þess með tilstyrk
fyrst og fremst kennara sinna,
en einnig Foreldrafélags Blás-
arasveitarinnar, sem nýlega var
stofnað.
Dagskrá er ekki fullmótuð enn,
en fullvíst má telja að a.m.k. 10
sveitir taki þátt í mótinu og
haldnir verði hljómleikar 29. og
30. mái, bæði inni og úti, ef veður
leyfir, svo og skrúðgöngur sveit-
anna. Hér er um nýjung í bæjarlífi
á Akureyri að ræða, sem getur
orðið bæjarbúum til ánægju og
frætt þá um það starf, sem þessar
sveitir vinna.
Bak við svona mót liggur mikil
vinna, ekki aðeins skipulagning
og undirbúningur á mótsstað,
heldur engu síður vinna sveitanna
við æfingar og ferðalög. Það er
von þeirra, sem að mótinu standa,
að Akureyringar taki sem mestan
þátt í mótinu á sinn hátt: Gefi því
gaum, mæti á hljómleika.
„Anna Lísa“:
SÍÐUSTU
SÝNINGAR
Góð aðsókn hefur verið að leikriti
Helga Más Barðasonar, „Önnu
Lísu“ sem sýnt hefur verið í Dyn-
heimum að undanförnu. Vegna
fjölda áskorana hefur Leikklúbb-
urinn Saga ákveðið að hafa tvær
sýningar til viðbótar á leiknum og
verða þær í Dynheimum í kvöld
og annað kvöld. Báðar sýningarn-
ar hefjast klukkan 20.30 en miða-
sala er opin frá kl. 16.00.
Petta verða allra síðustu sýn-
ingar Sögu á „Önnu Lísu“ á
Akureyri. Leikritið fjallar um
unglinga en er ætlað fólki á öllum
aldri og er með g’amansömu ívafi.
Um næstu helgi sýnir klúbbur-
inn „Önnu Lísu“ í Hrísey og á
Grenivík.
Nýja línan frá
Vorum að fá sendingu af þessum glæsilegu
kvenkápum frá Gazella - ný snið, nýjir litir,
KVENBUXUR.
frá BRAUTEX,
LEECOOPER ÍSMMá
og DUFFYS
miMð litaúrval, falleg snið
JAKKAR og STAKKAR
JRAUTEX og DUFFYS BÓMULLAREFNI köflótt og röndótt
■4. maí1982- DAGUR-3