Dagur - 04.05.1982, Page 6
Hver vill kaupa
geislavirkan fisk
af íslandsmiðum?
:
Nú fyrir skemmstu voru stofn-
uð Friðarsamtök á Akureyri.
A fjölmennum stofnfundi að
Hótel KEA hélt Knútur
Arnason, eðlisfræðingur,
framsöguerindi og ræddi þar
um eðli og áhrif kjarnorku-
sprengingar. Knútur hefur
verið manna virkastur í undir-
búningi að stofnun þessara
samtaka og leituðum við því
til hans með spurningar
tengdar samtökunum og hlut-
verki þeirra.
Koma öllum viö
Hver eru tildrögin að stofnun
Friðarsamtaka á Akureyri?
Það var í byrjun nóvember
að hópur manna kom fyrst
saman til að ræða friðarmál og
möguleikann á því að koma
þessum samtökum af stað.
Síðan var fundað nokkuð
reglulega í vetur þar sem mál-
in voru rædd fram og aftur og
árangurinn af því starfi var
síðan þessi vel heppnaði fund-
ur 18. apríl, þar sem Friðar-
samtökin á Akureyri voru
■
v.
'
MYND II.
Við sömu sprengingu og á mynd I. Innan innsta hringsins er eyðileggingin
alger, 80% deyja vegna geislunar innan innsta geirans, 50% innan þess
næsta og 20% innan þess ysta.
formlega stofnuð og 86 manns
skráðu sig sem stofnfélaga.
En til hvers að stofna friðar-
samtök hér á Akureyri?
Vígbúnaðarmál eru mál
sem koma öllum við. Vopna-
búnaður í heiminum nú er
orðinn það fullkominn að
ekki skiptir lengur meginmáli
hvar þau eru staðsett, þeim er
nánast hægt að skjóta í kring
um hnöttinn. En .það sem
snertir okkur íslendinga hvað
harkalegast er það að nú í
seinni tíð hefur áhugi her-
veldanna beinst æ meir að því
að færa kjarnorkueldflaugar
sínar af landi út í kafbáta.
Stafar þetta bæði af aukinni
andstöðu Evrópubúa gegn
fyrirhuguðum kjarnorkueld-
flaugum staðsettum í Evrópu,
en einnig af því að kafbátar
eru mun hreyfanlegri og auð-
veldara að fela þá en eld-
flaugastöðvar á landi. Þessi
þróun er vægast sagt uggvæn-
leg fyrir íslendinga því haf-
svæðið í kring um landið er
afar hernaðarlega mikilvægt
og komi til átaka með þátt-
töku stórveldanna verða lík-
lega átök, og þau hörð, ein-
mitt hér í kring. íslendingar
byggja afkomu sína á fisk-
veiðum í þessu hernaðarlega
mikilvæga hafi og fari nú svo
að barist verði í sjónum, og
kjarnorkuvopn notuð, þá
getum við beðið guð að hjálpa
okkur. Hver vill kaupa geisla-
virkan fisk af íslandsmiðum?
GIUK-hliðið
í hverju er þetta hernarðar-
lega mikilvægi íslands fólgið?
Sovétmenn eru með aðal
flotastöð sna á Kólaskaga þar
sem norðurfloti þeirra hefur
aðsetur. Til þess að komast út
á Atlantshafið þarf hann að
sigla í gegn um sundin í kring
úm ísland, hið svokallaða
GIUK-hlið á hernaðarmáli
(Greenland, Iceland, United
Kingdom). í þessu hliði er
neðansjávarhryggur og haf-
dýpi minna en annars staðar,
og opnar það möguleika fyrir
NATO-herinn að stöðva sov-
éska flotann í þessu hliði. Fari
svo að ófriður, t.d. í
Evrópu, dragist á langinn
mun fljótlega þurfa að koma
til birgðaflutninga milli
Bandaríkjanna og Evrópu.
Þessa flutninga munu Sovét-
menn væntanlega reyna að
stöðva með kafbátaflotanum
og þess vegna munu NATO-
herirnir reyna með öllum til-
tækum ráðum að stöðva hann
í GIUK-hliðinu. í þessum
átökum yrðu flugherir afar
mikilvægir og þ.a.l. aðstaða á
íslandi, en óvíst er að annar
aðilinn mundi una hinum
þeirrar aðstöðu. Einnig eru
herstöðin í Keflavík og
njósnastöðin á Stokksnesi
NATO-herjum afar mikil-
vægar til að njósna um ferðir
kafbáta. Ég vil taka það fram
að þessar upplýsingar eru ekki
tilbúningur, heldur eru þær
byggðar á áætlunum NATO. (
Hins vegar er erfiðara að ráða •<
í hvað Sovétmenn hyggjast
fyrir þar eð upplýsingar þaðan
liggja ekki á lausu.
Þær hafa náð árangri
En hvers eru friðarhreyfingar a
megnugar gagnvart þessuni j
risum?
Það hefur sýnt sig að þær
friðarhreyfingar sem að
undanförnu hafa sprottið
uppí Evrópu hafa vissulega
náð arangri. T.d. er mjög
óvíst hvort Hollendingar og
Belgíumenn taka við þessum
margumræddu meðaldrægu
eldflaugum vegna andstöðu
hreyfingarinnar þar, og e.t.v.
má líka að einhverju leyti
þakka það friðarhreyfingum
að Sovétmenn og Bandaríkja-
menn skuli ræðast við um af-
hennar hlýtur einnig að vera
að miðla upplýsingum og
vekja almenna umræðu.
Langtímamarkmið friðar-
hreyfingar hlýtur að vera al-
þjóða afvopnun en það gerist
ekki nema almenningur um
allan heim krefjist þess.
Att þú von á því að stofnun
Friðarsamtaka á Akureyri
eigi eftir að leiða til stofnunar
slíkra samtaka víðar um
landið?
Já, ég á von á því. Á ísafirði
veit ég að starfandi er friðar-
nefnd, einnig í Keflavík og
munum við setja okkur í sam-
band við þær og reyna að
stuðla að stofnun friðarsam-
taka sem víðast, en það gerist
ekki nema fyrir tilstuðlan al-
mennings sjálfs.
MYND I.
Á myndinni er sýnd dreifinggeisTunar frá hugsanlegri sprengingu (1 MT)
kjarnorkusprengingu yfir Miðnesheiði í VS-V átt (vindhraði 25 km/klst).
Svæðið innan ysta ferilsins yrði óbyggilegt í u.þ.b. 1 viku, innan þess næst
ysta í ca. 1 mánuð, þess þriðja í ca 5 mánuði og innan þess innsta í ca. 1 ár.
Einhliöa afvopnun
vopnun í Genf. Almenn-
ingsálit getur haft áhrif á víg-
búnaðarmál.
Getur friðarhreyfing á íslandi
haft einhver áhrif, og hver
ættu verkefni hennar að vera?
Verkefni friðarhreyfingar-
innar á íslandi er náttúrulega
að reyna að sporna við þeirrir
þróun að hafið hér í kring
verði gert að vopnabúri fyrir
kjarnorkuvopn. Friðarhreyf-
ing á íslandi getur beitt stjórn-
völd þrýstingi til að taka á
þessum málum. Hlutverk
Nú hefur það oft verið gagn-
rýnt að friðarhreyfingar í Evr-
ópu berðust fyrir einhliða af-
vopnun og sambærilegar
hreyfingar fyrirfinndust ekki
austan járntjaldsins. Hverju
vilt þú svara þessu?
Þessu er því til að svara að
nú er staðan í vígbúnaðar-
kapphlaupinu orðin það fá-
ránleg að þó svo að annað ris-
aveldið gerði eins harkalega
skyndiárás og mögulegt er og
hreinlega þurrkaði hitt ris-
aveldið út af landakortinu,
myndi hið burtþurrkaða ríki
samt sem áður vera í stakk
búið til að gjöreyða hinu á
eftir. Á árunum upp úr 1960
lét Robert S. McNamara þá-
verandi varnarmálaráðherra
Bandaríkjannna gera kjarn-
orkuvígbúnaðaráætlun sem
hljóðaði upp á það að ef til
uppskiptastríðs kæmi milli
risaveldanna, gætu Banda-
ríkjamenn eytt Sovétríkjun-
um (þ.e. drepið 30% Sovét-
manna og lagt 75% iðnaðarins
í rúst). Sérfræðingar reiknuðu
út hversu mikið magn kjarn-
orkuvopna þyrfti til að geta
náð þessu marki. Árið 1979
höfðu NATO-ríkin u.þ.b.
sextánfalt þetta magn kjarn-
orkuvopna. Af þessu má sjá
að þó svo að NATO-ríkin
fækkuðu kjarnorkuvopnum
sínum um helming, hefðu þau
samt sem áður margfalt það
magn vopna sem þarf til að
gjöreyða Sovétríkjunum.
Friður á jörðu
En ef við snúum okkur að
Friðarsamtökunum á Akur-
eyri aftur. Hvernig getur fólk
sem áhuga hefur á þessum
málum, nálgast samtökin?
Enn sem komið er eru sam-
tökin á götunni en við munum
væntanlega halda framhalds-
stofnfund fljótlega þar sem
framhaldið verður ákveðið og
samtökin sett í fastari
skorður. Ég vil benda þeim
sem vilja kynna sér málin að
hér á landi hafa verið gefin út
rit um þau. Öryggismálanefnd
hefur gefið út rit sem heitir
GIUK-hliðið og einnig rit um
friðlýsingu Indlandshafs og
hvaða lærdóm við getum
dregið af því. Þá er fyrirhuguð
útgáfa á riti frá síðustu jólúm
sem helgað er friðarmálum.
En umfram allt vil ég hvetja
fólk til að hafa samband við
samtökin. Ef nógu margir
fylkja sér undir kjörorðið,
Friður á jörðu, er e.t.v. von
um að mannkynið geti forðast
sjálfstortímingu.
mmm.
,
Sil i
-
Jón Sigurðarson:
„Vandaða og málefnalega
umræðu um atvinnumár
„Hvað segir fólk í.d. við því, að það flúormagn sem féll tiljarðar
á Norðurlandi í Heklugosinu fyrír tveimur árum erjafnmikið og
130 tonna álverksmiðja mundi skila á 80 árum miðað við að hún
væri búin nutíma hreinsitækjum. “ (Gunnar Ragnars í grein í ís-
lendingi 7. apríl sl.).
Málefnaleg stjórnmálaumræða er
hornsteinn lýðræðis. Því miður
verður þaö að segjast, um suma þá
menn sem áberandi hafa verið í
stjórnmálum þessa lands, að þeir
hafa sinnt meira um slagorðaglamur
en rökræðu. Þessir menn vinna lýð-
ræðinu mikið ógagn. Þcir eru orsök
þeirrar andúðar sem alltof margir
virðast hafa á stjórnmálum.
Hver kannast ekki við setningu
eins og þessa: „Það er ekkert að
marka þessa pólitíkusa." -Sem bet-
ur fer hefur umræða um bæjarmál á
Akureyri veriö með öðru sniði.
Menn hafa varst ótímabær stóryrði,
útúrsnúninga og blekkingar.
Atvinnumálin
eru aðalmál
Flestir Akureyringar eru sammála
um að atvinnumálin séu aðalmál
komandi bæjarstjórnarkosninga.
Nauðsynlegt er að um þessi mál
verði vönduð og málefnaleg um-
ræða í kosningabaráttunni. Það
veldur því miklum vonbrigðum,
þegar sjálfstæðismenn á Akureyri
reyna að þyrla upp moldviðri rang-
túlkana og blekkinga, t' stað þess að
stunda málefnalega umræðu.
Sjálfstæðismenn skortir vel
grundaða afstöðu í þessum málum.
Væru þeir trúir hugsjón sinni ættu
þeir aö halda því fram að óheft ein-
staklingsframtak eitt gæti leyst allan
hugsanlegan vanda í atvinnumálum
Eyjafjarðarbyggða. Þeir vita að
þessu trúa fáir. Efling félagslegs
rekstrar, hvort sem hann er á vegum
samvinnuhreyfingarinnar eða ann-
arra, er eitur í þeirra beinum, enda
er Sjálfstæðisflokkurinn í eðli (nu
andfélgaslegur flokkur.
Virðing sjálfstæðismanna á Akur-
eyri fyrir kjósendum er ekki meiri
en svo, að þeir leita ódýrra slagorða
og nú virðast þau fundin.
Álver skal það vera, hvað sem
það kostar og framsóknarmenn
skulu kallaðir stefnulausir um
atvinnumál fyrir þá sök eina að þeir
vilja láta fara fram nauðsynlegar at-
huganir áður en ákvörðun um álver
er tekin.
Ekki sambærilegt
Mengunarmál skulu afgreidd með
samanburði við Heklugos, saman-
ber ofangreinda tilvitnun í grein
Gunnars Ragnars. Úr orðum hans
má lesa að flúormengun úr síðasta
Heklugosi hafi ekki valdið sýnileg-
um skemmdum á gróðri. Þess vegna
hljóti þetta að sleppa til með álver
við Eyjafjörð.
Eldgos og rekstur álvers verða
ekki borin saman og með þeim sam-
anburði afgreitt jafn mikið alvöru-
mál og flúormengun.
Benda má á, að sá flúor sem barst
yfir Norðurland með eldfjallaösku
úr Heklugosinu 1980 skolaðist burtu
með regnvatni á tiitölulega skömm-
um tíma þ.a. jurtir „innbyrðu" ekki
nema hluta þess flúors sem að þeim
barst. Reynslan hefur sýnt, að
gróður sem orðið hefur fyrir flúor-
mengun er fljótur að Iosa sig við
flúor, þegar mengun er ekki lengur
til staðar. Þessu er ekki til að dreifa
þar sem stöðugt berst flúor að gróðri
Jón Sigurðarson.
svo sem í nágrenni álvera.
Flúor sem frá álveri kemur er
mun auðupptakanlegri fyrir gróður
en sá sem er bundinn eldfjallaösku.
Einnig má benda á það, að stór
munur er á flatarmáli Norðurlands
alls og þess svæðis þar sem mengun-
ar mundi gæta frá álveri.
Svona mætti lengi telja, en höfuð-
atriði er, að áður en ákvörðun verð-
ur tekin um það, hvort skuli byggja
álver verður að gera viðamiklar og
vandaðar rannsóknir á veðurfars-
legum aðstæðum. Út frá þeim rann-
sóknum er hægt að segja fyrir um
flúormengun í nágrenni verksmiðj-
unnar.
Með þessar staðreyndir, ásamt
upplýsingum um m.a. þjóðhagslega
hagkvæmni og rekstrargrundvöll
fyrirtækisins er hægt að taka
ákvörðun. Þessir hlutir þurfa að
liggja fyrir hið fyrsta, þannig að
hægt sé að afgreiða þetta mál.
Slæm reynsla af
álsamningum
sjálfstæðismanna
Sjálfstæðismenn hafa einu sinni haft
forystu um samningsgerð vð erlent
áliðnaðarfyrirtæki. Alkunna er
hvernig þá tókst til. Furðulegt má
heita, að þeir virðast ekkert hafa
lært af reynslunni og vilja enn ana
áfram að óathuguðu máli. Þess
vegna er rétt að leyfa öðrum að
rannsaka og taka ákvörðun um ál-
ver við Eyjafjörð.
í stefnuskrá framsóknarmanna
við komandi bæjarstjórnarkosning-
ar á Akureyri segir eftirfarandi um
orkufrekan iðnað:
„Framsóknarmenn á Akureyri
telja rétt að innlend orka verði not-
uð til að efla atvinnulíf og bæta enn
afkomu á Eyjafjarðarsvæðinu. í því
sambandi skal m.a. hafa eftirfarandi
í huga:
a) Eyjafjörður er vistfræðilega
mjög viðkvæmt svæði og land-
búnaður er einn aðalatvinnuveg-
ur íbúanna. Því skal ekki stofna
lífríki svæðisins í hættu.
b) Meta verður félagslega röskun
vegna framkævmda og rekstrar
stórfyrirtækja.
c) Kanna þarf þjóðhagslega hag-
kvæmni og hver fjárhagslegur
ávinningur Eyjafjarðarsvæðinu
er í slíkum fyrirtækjum.“
Þarna er því lýst hvernig við vilj-
um meta þær hugmyndir sem upp
koma um orkuiðnað á Eyjafjarðar-
svæðinu. Þannig viljum við athuga
þær hugmyndir sem nú eru uppi um
álver. Það þarf einnig að leita fleiri
hugmynda um orkuiðnað sem hent-
að gæti við Eyjafjörð. Það er verð-
ugt verkefni fyrir nýstofnað Iðn-
þróunarfélag Eyjafjarðarbyggða.
Við megum ekki láta iðnaðarráðu-
neytið stilla okkur upp gagnvart
tveimur valkostum, álveri eða eng-
um orkufrekum iðnaði.
Starfandi fyrirtæki fái
rekstrargrundvöll
Undirritaður telur t.d. sjálfsagt að
athuga hvort ekki er rétt að stefna
að byggingu kísilmálmverksmiðju á
Eyjafjarðarsvæðinu. Breytir þar
engu þótt ákveðið verði að reisa
slíka verksmiðju á Austurlandi.
Að mati framsóknarmanna er
það þó höfuðatriði við lausn að-
steðjandi vanda í atvinnumálum
Akureyrar, að þeim fyrirtækjum
sem þegar eru starfrækt í bænum
verði skapaður rekstrargrundvöil-
ur, sem geri þeim kleift að fjárfesta
og auka umsvif sín og þar með
atvinnuframboð.
Þrír efstu í Firmakeppninni. Frá hægri: Björn Þorsteinsson, á Bylgju, Elísabet Skarphéðinsdóttir á Þorra frá
Höskuldsstöðum og Jón Olafur Sigfússon á Rispu Sigfúsar Jónssonar.
FIRMAKEPPNI LETTIS:
Margir
fagrir
Hin árlega firmakeppni hesta-
mannafélagsins Léttis var
haldin sunnudaginn 25. aprfl
sl. á Þórunarstræti, vestan
sjúkrahússins. Frekar óhag-
stætt veður var til keppninn-
ar, hvasst og moldryk.
Tæplega 100 fyrirtæki tóku
þátt í keppninni og var keppt í
tveimur flokkum. í unglinga-
flokki kepptu tæplega 30 ung-
lingar og þar sigraði Hugrún
ívarsdóttir og sat hún Óðinn
Gunnars Jakobssonar, en sá
hestur hefur oft á undanförnum
árum verið í eða við fyrsta sætið.
Þau kepptu fyrir Teppaland.
í öðru sæti varð Sigmar
Bragason á Glóa sem hann á
sjálfur og kepptu þeir fyrir
Flugleiðir hf. í þriðja sæti varð
Jón Páll Tryggvason á Mósa sem
hann á sjálfur. Keppti hann fyrir
Rafljós.
Einnig voru veitt knapaverð-
laun og hlaut þau Hugrún ívars-
dóttir. Áberandi er hve ungling-
ar á Akureyri eru yfirleitt á góð-
um hestum og sitja fallega. Er
þar væntanlega að skila sér sú
reiðkennsla sem hefur verið
stunduð á Akureyri undanfarin
ár.
í flokki fullorðinna var jöfn og
skemmtileg keppni og mikið af
góðum hestum mættir til leiks.
Sigurvegari varð Björn Þor-
steinsson á Bylgju sinni Sörla-
dóttur og keppti hann fyrir Val-
smíði. í öðru sæti varð Elísabet
Skarphéðinsdóttir á Þorra frá
Höskuldsstöðum, Sörlasyni.
Keppti hún fyrir Mjólkursamlag
KEA. Þriðji varð Jón O. Sigfús-
son á Risnu Sörladóttur, eig.
Sigfús Jónsson. Keppti Jón fyrir
Tækniteiknistofuna Glerárgötu
20. I fjórða sæti kom svo Árni
Magnússon á graum gæðingi
sem hann á, einnig undan Sörla
frá Sauðárkróki. Knapaverð-
laun fullorðinna hlaut Elísabet
Skarphéðinsdóttir.
Dómarar voru Stefán Frið-
geirsson Dalvík, Albert Jónsson
S.-Garðshorni og Magnús Jó-
hannsson Akureyri. Skiluðu
þeir starfi sínu fljótt og vel. Mót-
ið fór vel fram og þakkar firma-
keppnisnefnd Léttis fyrirtækj-
unum fyrir þátttökuna og knöp-
um fyrir góða mætingu og
drengilega keppni. J.O.S.
6-DAGUR-4. maí 1982
4. maí 1982 - DAGUR - 7