Dagur - 04.05.1982, Blaðsíða 9
Íshokkímenn Skautafélagsins
Ak-mót í fimleikum
Það var ranglega sagt í frétt verður nk. sunnudag í íþrótta-
um Akureyrarmót í fimleik- húsinu í Glerárhveifi og hefst
um í Degi í síðustu viku, að kl. 14.00. Áhorfendur eru
mótið færi fram nú um helg- velkomnir á meðan húsrúm
ina. Hið rétta er að mótið leyfir.
„Öldungamót“ í blaki:
Akureyringar
voru sigursælir
Nanna Leifsdóttir
Nanna skíða-
drottning
Að loknum skíðamótum
vetrarins er árangur kepp-
enda lagður saman og þeir
sem flesta sigra hafa unnið
verða bikarmeistarar Skíða-
sambandsins.
Það gat enginn skákað þeim
Nönnu Leifsdóttur í kvenna-
flokki og Sigurði H. Jónssyni í
karlaflokki, en þau höfðu al-
gjöra yfirburði í þessari keppni.
Annars urðu stig efstu manna
þessi:
KARLAFLOKKUR:
stig
1. Sigurður H. Jónsson í 150
2. Guðmundur Jöhannsson f 125
3. Óiafur Harðarson A 110
4. Björn Víkingsson A 86
5. -6. Bjarni Bjarnason A 75
5.-6. Árni Þór Árnason R 75
KVENNAFLOKKUR:
stig
1. Nanna Leifsdóttir A 150
2. Tinna Traustadóttir A 125
3. Hrefna Magnúsdóttir A 102
4. Guðrún H. Kristjánsd. A 88
5. Ásta Ásmundsdóttir A 83
6. Guðrún J. Magnúsdóttir A 68
Tvö jafn-
tefli í
Eyjum
KA fór um helgina til Vest-
mannaeyja og iék þar tvo leiki
við heimamenn. Fyrri leiknum
lauk með jafntefli, eitt mark
gegn einu og sá síðari fór einnig
jafnt, tvö mörk gegn tveimur.
Um helgina var haldið á Ak-
ureyri öldungamót í blaki, en
þar kepptu karlar 30 ára og
eldri og konur 26 ára og eldri.
Það var blakdeild íþróttafé-
lagsins Eikar sem sá um fram-
kvæmd mótsins. Fjölmörg
blaklið alls staðar að af land-
inu tóku þátt í mótinu en sig-
urvegarar í bæði karla- og
kvennaflokki voru héðan frá
Akureyri. Það voru gestgjaf-
arnir, A-Iið kvennadeildar
Eikar sem sigraði í kvenna-
flokki, en íshokkímenn úr
Skautafélagi Akureyrar sem
sigruðu í karlaflokki. Annars
urðu úrslit þessi:
Lið ÍBA í
„öldungakeppni“
Knattspyrnuráð Akureyrar til-
kynnti þátttöku ÍBA-liðs í
keppni KSÍ 30 ára og eldri á
komandi keppnistímabili.
Leikin verður einföld umferð
og lenti liðið í riðli með Þrótti,
KR, FH; Víking, Haukum og
UBK, en ails eru 13 lið með í
keppninni.
KRA hefur ákveðið fund með
þeim leikmönum er gefa kost á
sér í liðið nk. fimmtudag 6. maí
kl. 18.15 í fundarherbergi ÍBA
íþróttahúsinu við Laugargötu.
Allir þeir er áhuga hafa á þess-
ari tilraun ráðsins eru velkomnir
á þennan fund.
KVENNAFLOKKUR:
1. A-lið Eikar
2. Víkingur
3. Siglfirðingar
KARLAFLOKKUR:
1. Íshokkímenn SA.
2. A-lið Óðins
3. HK úr Kópavogi
Nýr leik-
maður til KA
KA-menn munu fá nýjan leik-
mann í knattspyrnulið sitt nú
næstu daga. Það er Ragnar
Rögnvaldsson sem kemur úr
Breiðabliki. Hann hefur gengið
frá. félagaskiptum en þarf að
bíða tvo mánuði til að mega
leika með KA. Hann verður því
ekki löglegur fyrr en um mán-
aðamót júní-júlí.
Síðasta punktamótið:
Akureyrarstúlkur
í efstu sætunum
Á laugardaginn var haldið í
Hlíðarfjalli síðasta punkta-
mót vetrarins og var keppt í
stórsvigi. Veður og færi var
ágætt, nýfallinn snjór og gott
rennsli. í karlaflokki náði
Haukur Jóhannsson besta
brautartíma í fyrri ferð, en
Nanna Leifsdóttir í kvenna-
flokki. Úrslit stórsvigsins
urðu þessi:
KARLAFLOKKUR:
1. Árni Þór Árnason R
102.79
Þór—KA á laugardag
Seinni leikurinn í Bikarkeppni
Knattspyrnuráðs Akureyrar,
Þór - KA verður á Þórsvelli
laugardaginn 8. maí kl. 14.00, ef
veður verður hagstætt.
Fyrri leiknum lauk með jafn-
tefli og standa því liðin jafnvel
að vígi til sigurs í keppninni. Á
það skal bent að ef þessum leik
lýkur jafnt, verður náð fram
úrslitum með vítaspyrnu.
Áhorfendur eru hvattir til að
mæta og styðja við bakið á félög-
unum. Veglegur farandbikar er í
verðlaun og verður afhentur að
keppni lokinni.
2. Ólafur Harðarson A 103.51
3. Haukur Jóhannsson A 103.85
4. Björn Víkingsson A 105.25
5. Bjarni Bjarnason A 106.10
KVENNAFLOKKUR:
1. Nanna Leifsdóttir A 118.23
2. Guðrún J. Magnúsd. A 119.58
3. TinnaTraustadóttir A 121.88
4. Hrefna Magnúsdóttir A 122.49
5. GuðrúnH. Kristjánsd. A
124.29
4. maí 1982 - DAGUR - 9