Dagur - 04.05.1982, Page 12
Akureyri, þriðjudagur 4. maí 1982
RAFGEYMAR
í BfUNN, BÁTINN, VINNUVÉUNA
VEUIÐ RÉTT
MERKI
Togarar Ú.A.:
Afli
með
minnsta
móti
„Það var ágætur túr hjá Kald-
bak síðast, en afli hinna togar-
anna hefur verið í minna lagi
miðað við það sem verið hefur
á þessum tíma árs,“ sagði Einar
Óskarsson hjá Utgerðarfélagi
Akureyringa er við höfðum
samband við hann fyrir helg-
ina.
Kaldbakur landaði 21. apríl,
269 tonnum og er það langmesti
afli í veiðiferð hjá togurum Ú A að
undanförnu. Hver veiðiferð tekur
12-14 daga og afli hinna togar-
anna var sem hér segir: Svalbakur
landaði 17. apríl 176 tonnum,
Harðbakur 28. apríl 78 tonnum,
Sléttbakur 26. apríl 165 tonnum
ogSólbakur 19. apríl 123tonnum.
Vilja losna
við bílhræin
íbúar í Glæsibæjarhreppi vilja
gjarnan losna við bílhræin sem
komið hefur verið fyrir hjá Berg-
hóli, sem stendur við þjóðveginn
skammt norðan Akureyrar. Vil-
hjálmur Ingi Árnason íþrótta-
kennari, sem búsettur er í Péturs-
borg í Glæsibæjarhreppi lagði
fram tillögu á almennum sveitar-
fundi, sem haldinn var fyrir
skömmu í Glæsibæjarhreppi, en í
tillögunni er eigendum hræjanna
gefinn frestur til að koma þeim í
burtu fyrir 17. júní nk. Tillagan
var samþykkt með miklum meiri
hluta atkvæða.
Hópferð til
Winnepeg
Eins og undanfarin ár munu Sam-
vinnuferðir í samráði við þjóð-
ræknisfélagið á Akureyri gangast
fyrir 14 daga hópferð til Winne-
peg í sumar. Flogið verður þann
23. júlí og gefst farþegum kostur á
að kaupa einungis tlugfarið og
gista hjá ættingjum og vinum, eða
kaupa dvöl á hóteli með. Pjóð-
ræknum þátttakendum gefst kost-
ur á að fara til Gimli á hinn svo-
kallaða íslendingadag þann 2.
ágúst, en þar er jafnan mikið um
dýrðir. Á sama tíma munu Sam-
vinnuferðir og Pjóðræknisfélagið
gangast fyrir komu Vestur-íslend-
inga hingað til lands.
Iðnaðardeild Sambandsins:
Tímabundnir erfið-
leikar í skinnaiðnaði
„Þetta eru tímabundnir erfiö-
leikar sem breyta engu um
framtíðarmöguleika skinnaiðn-
aðarins. Það hefur orðið sam-
dráttur í sölu á mokkaskinnum
og okkar stærstu keppinautar
eru farnir að iækka verð a sinni
framleiðslu. Við verðum lík-
lega einnig að grípa til verð-
lækkunar“, sagði Jón Sigurðar-
son, aðstoðarframkvæmda-
stjóri hjá Iðnaðardeild Sam-
bandsins.
Jón er nýkominn af árlegri
sölusýningu framleiðenda og
kaupenda á fatnaði úr skinna-
vöru, sem haldin var í Frankfurt í
Þýskalandi.
„Markaður fyrir okkar fram-
leiðslu tekur sveiflum eins og
markaður fyrir aðrar iðnaðarvör-
ur og er nærtækt að nefna álið og
málmblendið í því sambandi.
Ýmsir þættir valda þessum sam-
drætti og verðlækkun og má nefna
að tískan er andsnúin okkur í
augnablikinu. Miðað við verð á
eðalpelsum, af t.d. ref og minki,
er verðið á mokkaflíkum of hátt.
Ég lít hins vegar á þetta sem eðli-
lega erfiðleika sem upp koma
með ákveðnu millibili. Állar gær-
ur verða eftir sem áður seldar og
sé rétt haldið á spöðunum njótum
við þess að hafa takmarkað fram-
boð af mjög sérstakri vöru. Því er
ástæða til að ætla að við förum
betur út úr þessu en keppinautar
okkar, sem eru með meira
framboð“, sagði Jón Sigurðarson
að lokum.
55
íþróttavöllurinn á Akureyri:
Veltur allt á
næstu dögum
— segir Hreinn Óskarsson vallarstjóri
„Það leit mjög vel út með
íþróttavöllinn, en ég veit ekki
hvað gerist núna eftir að þetta
hret kom til sögunnar. Það
veltur allt á næstu dögum og
vikum hvenær við getum far-
ið að nota völlinn,“ sagði
Hreinn Óskarsson forstöðu-
maður íþróttavallarins á Akur-
eyri er við spjölluðum við
hann.
„Ég varð var við þann misskiln-
ing að ekki hafi verið komiði
grænt strá á völlinn í síðustu viku,
þvert á móti get ég sagt að völlur-
inn leit mjög vel út áður en hretið
fyrir helgina kom til sögunnar og
er óhætt að segja að ástand hans
hafi verið með allbesta móti. Ég
fór inn á völlinn sl.miðvikudag,
og það leyndi sér ekki að græn
slikja var að koma upp á vellin-
um.
í vellinum er svokölluð sjálf-
græðsla, gras sem kallað er varpa-
sveigur. Þetta er einært gras sem
lifir einungis yfir sumarið og kem-
ur upp af fræi á hverju vori. Þess
vegna er völlurinn ávallt seinni til
en venjuleg tún. Hann hefur ald-
rei verið orðinn fullgrænn fyrr en
komið hefur verið fram í júní. Nú
er bara að bíða og sjá til hvað úr
þessu hreti verður og það veltur
allt á því hvað það stendur lengi
hvenær við getum farið að nota
völlinn,“ sagði Hreinn að lokum.
Umsókninni hafnað
í byggingamefnd
Umsókn Þráins Stefánssonar
og Bjarna Ólafssonar um leyfi
fyrir kanínubú að Óseyri 18
hefur verið hafnað í byggingar-
nefnd á þeim forsendum að hún
stríði gegn ákvæðum heilbrigð-
isreglugerðar um staðsetningu
slíkrar starfsemi. Skv. reglu-
gerðinni er óheimilt að setja bú
sem þetta niður nær manna-
bústöðum eða öðrum atvinnu-
rekstri en 500 m. málinu var því
vísað til skipulagsnefndar og er
framhald málsins í hennar
valdi.
Þeir Þráinn og Bjarni verða því
að bíða átekta enn um sinn, en
ætlun þeirra er að byrja með 5-600
ullarkanínur en snúa sér síðan að
feldkanínum sem þykja arðbær-
ari, enda ágætar til manneldis, en
hafa ekki verið fluttar til landsins
ennþá. Hver ullarkanína gefur af
sér ca. 1500 gr af árlega en nauð-
sinleg tæki við ræktun þeirra eru
fóðurvél, rúningsvélar og sjálf-
virk brynningartæki, en skepnur
þessar kváðu aðallega þrífast á
heyi, rófum og grænmeti allskon-
ar.
Viðræður standa yfir við Bún-
aðarfélag íslands og aðra kanínu-
bændur annarsvegar og fatafram-
leiðendur hinsvedar um nýtingu á
ullinni, en erlendis eru öruggir
markaðir fyrir hana
m
\h
OUM
# Þaðfóraldrei
svo. . .
íslendingur kom út um dag-
inn og eftir því sem S&S
kemst næst, var blaðið borið
út í hvert hús í bænum, meira
að segja fokheld hús (Glerár-
hverfi. Það vakti sérstaka at-
hygli að leiðari blaðsins var
tekinn saman af ritstjóranum.
Þetta mun vera frumraun rit-
stjórans á þessu sviði, en
hann hefur nú starfað sem rit-
stjóri um nokkurra mánaða
skelð.
• Hvertátti
hundurinn
að fara ?
Um klukkan átta sl. fimmtu-
dagsmorgun, þegar einn
starfsmanna Dags var á leið (
vinnu, rak hann augun í bik-
svartan hund af útlendu kyni.
Hundurinn var að ganga örna
sinna á götunni fyrir framan
Nýja B(ó, en eigandi hans
stóð þar skammt frá og ræddi
við tvo kunningja sína. Starfs-
maðurinn sagði við sjálfan
sig að ekki mætti miðbærinn
við þessari viðbót, hann væri
v(st nógu sóðalegur fyrir. Það
væri e.t.v. ekki úr vegi að
skylda alla hundaeigendur að
ganga með plastpoka í vasan-
um og hreinsa saur hund-
anna, ef svo óheppilega vill til
að þeim verði mál á almanna-
færi.
# Flaska út um
glugga
Fyrir nokkru var sami starfs-
maður á ferð eftir Hlíðarbraut
- á undan var bifreið með Þ-
númeri. Skyndilega kom
hönd út um glugga og sleppti
flösku, sem skail í vegarkant-
inn og mölbrotnaði. Ekki veit
S&S hvað umgegnisvenjur
tiðkast á heimili þess er
sleppti flöskunni, en séu þær
í samræmi við umræddan at-
burð má gera fráð fyrir að allt
heimilishald sé ( skrautlegra
lagl.
# Duglegirmeð
radarinn
Undanfarna daga, i góðu
skyggnf, hefur lögreglan
stundað hraðamælingar á
götum bæjarins. Margir hafa
lent í greipum mælinga-
manna, en sá ökumaður sem
á metið mun hafa ekið á rúm-
lega 90 km hraða á Glerár-
götu. Þaðerfátt annað en gott
um þessar mælingar að
segja, þó mætti minna iög-
regluna á að það sakaði ekki
að framkvæma þær ( slæmu
skyggni, í hálku og yfirleitt
þegar akstursskilyrði eru
slæm. íbúi við Oddeyrargötu
vildi og koma því á framfæri
að hraðamælingar væru vel
þegnar á þeim slðum, en fólk
sem býr við þá götu hefur
haldið því fram að þar séu
hraðatakmörk oft þverbrotin.