Dagur - 22.06.1982, Qupperneq 1
gullkeðjur;
8 K. OG 14 K.
ALLAR TEGUNDIR
VERÐ FRÁ
KR. 234,00
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
1 1
I 1
H 1
p 1
1 J
w m
65. árgangur
Akureyri, þriðjudagur 22. júní 1982
65. tölublað
Tæring gerir varl við sig í
ofnum húsa í Glerárhverfi
Ofnakerfí margra húsa í Gler-
árhverfí liggur nú undir
skemmdum vegna tæringar.
Samkvæmt upplýsingum
blaðsins hafa starfsmenn
Hitaveitu Akureyrar miklar
áhyggjur af því, að tæring hef-
ur gert vart við sig víða í Gler-
árhverfí. Á þessari stundu er
ekki fyllilega vitað um orsakir
tæringarinnar, en menn hafa
helst látið sér detta í hug, að
neysluvatn komist einhvers
staðar inn á kerfíð. Þar sem
neysluvatnið er súrefnisríkt,
tærast ofnarnir á tiltölulega
skömmum tíma - 18 til 24
mánuðum. Pípulagninga-
maður, sem blaðið ræddi við í
gærkvöld, sagði að enn von-
uðu menn, að þessi tæring
væri bundin við íbúðir í Gler-
árhverfi, en tók það fram, að
hugsanlegt væri, að dreifikerfi
Hitaveitunnar í götum í hverf-
inu væri farið að tærast.
„Ef lagnir í götum eru farnar
að skemmast, megum við fara
að biðja fyrir okkur, þá er þetta
með allra alvarlegustu málum,
sem Hitaveita Akureyrar hefur
staðið frammi fyrir,“ sagði einn
viðmælandi blaðsins.
Akureyri er skipt í tvö þrýsti-
kerfi og hefur ekki borið á
neinni tæringu annars staðar en í
Glerárhverfi. Ef það er kalda
vatnið, sem veldur þessari tær-
ingu, er líklegt, áð það geti
runnið á milli í blöndunartækj-
um og/eða komist inn á ofna-
kerfið, þar sem vantar þrýsti-
minnkara á inntakið, en þrýst-
ingurinn er mun meiri á kalda
vatninu en því heita.
í síðustu viku var komið með
ofn til starfsmanna Vélsmiðj-
unnar Odda. Við athugun kom í
ljós, að það var gat á ofninum og
þegar búið var að saga hann í
sundur, fór ekki á milli mála, að
tæring var búin að eyðileggja
ofninn. Starfsmenn Hitaveitu
Akureyrar fengu sýnishorn úr
ofninum og samkvæmt upplýs-
ingum Dags er búið að senda
þau suður til rannsóknar.
Eftir því sem blaðið kemst
næst, er fátt sem fólk getur gert,
þar til niðurstöður rannsókna
liggja fyrir. Pað er ljóst, að um
tæringu er að ræða, en ekki
vitað, hve útbreidd hún er. Hins
vegar er óhætt að ráðleggja fólki
í Glerárhverfi að fá sér þrýsti-
minnkara á kalda vatnið og að
láta fylgjast vandlega með íbúð-
um sínum, þegar það fer að
heiman í ferðalög og þ.h.
Vilhelm Steindórsson, hita-
veitustjóri, staðfesti að ofan-
greindar upplýsingar væru
réttar.' Hann sagði jafnframt, að
hann vonaði, að það liði ekki á
löngu, þar til línur færu að
skýrast.
Er í lófa lagið
að kæra íslending
— segir Örn Ingi, myndlistarmaður
„Ég hef ekki ákveðið til hvaða aðgerða ég mun grípa. Samkvæmt
upplýsingum frá lögfræðingi FÍM er mér í lófa lagið að kæra blaðið
fyrir óleyfílega notkun mynda af verkum og fyrir brot á höfunda-
réttarlögum,“ sagði Örn Ingi myndlistarmaður í samtali við Dag. í
síðasta Islendingi er grein þar sem birtar eru ljósmyndir eftir Orn
Inga og fjallað um hann sem myndlistamann á ósmekklegan hátt.
Greinin er skrifuð af ritstjóra íslendings, en Örn Ingi sagði að hann
hefði aldrei séð sýninguna.
„Ég ætla að vona að það sem
kom fram í umræddu blaði um
FÍM sýninguna og Vorvöku, sé
ekki sýnishorn af menningarpóli-
tík Sjálfstæðisflokksins,“ sagði
Örn Ingi. „En manni gæti virst að
svo sé, því miður.“ í umræddu
blaði var sagt, að forsetar síðustu
bæjarstjórnar og bæjarstjóri
hefðu efnt til Vorvöku án nokkurs
samráðs við bæjarstjórn. Einnig
er í blaðinu minnst á kostnað við
væntanlega skíðalyftu í Hlíðar-
fjalli og það mál tengt á óskiljan-
legan hátt við kostnað vegna Vor-
vöku. „Það er dálítið kostulegt að
sjá þegar íslendingur fer að ræða
og skýra bæjarmál. Það er eins og
upplýsingar blaðsins séu fengnar
frá þeim sem ekkert hafa fylgst
með þeim að undanförnu,“ sagði
Sigurður Óli Brynjólfsson, bæjar-
ráðsmaður. „í byrjun júní eru
tekin upp sem ný mál, þau sem af-
greidd voru við síðustu fjárhags-
áætlun og allir bæjarfulltrúar sam-
þykktu, þar á meðal bæjarfull-
trúar Sjálfstæðisflokksins. Þá var
hafnað beiðni um framlög til
skíðalyftu í Hlíðarfjalli á þessu ári
og ákveðið að kostnaður af Vor-
vöku yrði tekinn af liðnum Ýmis
útgjöld. Þetta vissu allir bæjar-
ráðsmenn.“
Hitaveita Akureyrar
Rannsóknar-
boranir í sumar
Eitt hundraðasta og öðru skólaári Menntaskólans á Akureyri var slitið í sól og blíðu á 17. júní. (Jtskrifaðir voru frá
skólanum 116 nýstúdentar, þar af 3 úr öldungadeild. Við skólann stunduðu alls um 700 nemendur nám í vetur
-120 í öldungadeild. Mynd: KGÁ.
„Við boruðum holu á Glerár-
dal síðari hluta vetrar, og sú
hola hefur nú verið tengd og er
komin inn á kerfið“ sagði Vil-
helm. Steindórsson hitaveitu-
stjóri á Akureyri er Dagur
hafði samband við hann í gær.“
Vilhelm sagði að þessi um-
rædda hola gæfi 35sek/lítra af 60
gráðu heitu vatni. Hann sagði
einnig að þegar kaldast væri í
veðri væri reynt að halda hitanum
í 80 gráðum þannig að slíkt vatn
þyrfti skerpingar við. „En þetta
vatn, 35 sek./lítrar af 60 gráðu
heitu vatni hjálpar auðvitað mjög
mikið upp á, “sagði Vilhelm.
í fyrra voru boraðar nokkrar
grunnar rannsóknarholur nokkuð
víða, og sú hola sem nýlega hefur
verið virkjuð á Glerárdal er fram-
hald einnar slíkrar holu. í sumar
verður farið af stað með enn frek-
ari rannsóknarboranir og er á-
formað að þær hefjist í lok þessar-
ar viku. Byrjað verður við Grýtu í
Eyjafirði þar sem boraðar verða
nokkrar rannsóknarholur, en þar
er von á heitu vatni. Þá er áform-
að að dýpka nokkrar rannsóknar-
holur við Reyki í Fnjóskadal, sem
boraðar voru fyrir ári. Að lokum
er fyrirhugað að bora rannsóknar-
holu við Kristnes. „Þetta eru þau
rannsóknarverkefni, sem unnið
verður að í sumar og niðurstöður
mælinga af þessum borunum ráða
væntanlega öllu um áframhald-
ið,“ sagði Vilhelm.
Akureyri:
Búið að úthluta einni af
bestu lóðum bæjarins
A síðasta fundi bæjarráðs gerði
Helgi M. Bergs grein fyrir við-
ræðum, sem hann og Stefán
Stefánsson bæjarverkfræðing-
ur, hafa átt við umsækjendur
um lóð á reit merktum 13A á
miðbæjarsvæðinu. Hér er um
að ræða lóðina á horni Geisla-
götu og Strandgötu, þar sem nú
er biðskýli SVA.
Bæjarráð samþykkti tillögu þar
sem fram kemur að eftirtöldum
lóðarumsækjendum er sameigin-
lega gefið vilyrði fyrir lóðinni til
byggingar verslunar- og skrif-
stofuhúss: Iðnaðarbanka íslands,
Búnaðarbanka íslands, Kaupfé-
lagi Eyfirðinga, verkalýðsfélög-
um á Akureyri, ríkissjóði og Al-
þýðubankanum.
Tilskilið er að umsækjendur nái
samkomulagi um hönnun og geri
sameignar- og rekstrarsamning
um eignina fyrir 1 september n.k.
Fyrirvari er gerður um hvenær
lóðin verður tilbúin til afhending-
ar. í tillögu bæjarráðs kemur og
fram að fyrir lóðarafhendingu
mun bæjarstjórn setja sérstaka
byggingarskilmála fyrir reitinn í
samræmi við heimild í skipulags-
lögum og byggingarreglugerð.