Dagur - 22.06.1982, Síða 8
AKUREYRARBÆR
Félagsstarf aldraðra
Farið verður í dagsferð um Fnjóskadal og Vagla-
skóg þriðjudaginn 29. júní nk. Brottför frá Ferða-
skrifstofunni kl. 10.00. Komið verðurtil Akureyrar
um kl. 17.00. Þátttakendur eru beðnir aö hafa með
sér nesti. Þátttökugjald er kr. 50.00.
Þátttaka tilkynnist í síma 25880, Félagsmála-
stofnun, kl. 9-12 fyrir mánudaginn 28. júní.
AKUREYRARBÆR
Kennarastöður
Kennara vantar að grunnskólum Akureyrar í 7.-9.
bekk í ensku, dönsku, íslensku, landafræði, eðlis-
fræði og í viðskiptagreinum við framhaldsdeildir
Gagnfræðaskóla Akureyrar.
Umsóknarfrestur er til 28. júní. Upplýsingar
hjá formanni skólanefndar i síma 21208.
Skólanefnd Akureyrar.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 3., 8. og 12. tbl. Lögbirtingablaðsins 1982 á
fasteigninni Skarðshlíð 29c, Akureyri, þingl. eign Sigurjóns M.
Egilssonar, fer fram eftir kröfu innheimtumanns ríkissjóðs,
Gylfa Thorlacius, hrl., Ólafs B. Árnasonar, hdl. og Baldurs Guð-
laugssonar, hdl. á eigninni sjálfri föstudaginn 25. júní 1982 kl.
15.30.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á fasteigninni Furulundi 8p, Akureyri, eign-
arhluta Arnars Friðrikssonar, fer fram eftir kröfu innheimtu-
manns ríkissjóðs á eigninni sjálfri föstudaginn 25. júní 1982 kl.
17.00.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 41., 47. og 52. tbl. Lögbirtingablaðsins 1981 á
fasteigninni Sunnuhlíð 2, Akureyri, þingl. eign Fjölnis Sigur-
jónssonar, fer fram eftir kröfu Hreins Pálssonar hdl., v/Útvegs-
banka íslands, Gunnars Sólness hrl. og veðdeildar Lands-
banka íslands á eigninni sjálfri föstudaginn 25. júní 1982 kl.
16.30.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 83., 86. og 91. tbl. Lögbirtingablaðsins 1980 á
fasteigninni Norðurgötu 51 e.h., Akureyri, talinni eign Ellerts
Finnbogasonar, fer fram eftir kröfu Stefáns Hirst hdl. á eigninni
sjálfri föstudaginn 25. júní 1982 kl. 14.00.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 21., 26. og 29. tbl. Lögbirtingablaðsins 1982 á
fasteigninni Ránargötu 17, Akureyri, þingl. eign Fanny Laust-
sen, fer fram eftir kröfu Hreins Pálssonar hdl. og Tryggingar-
stofnunar ríkisins á eigninni sjálfri föstudaginn 25. júní 1982 kl.
14.30.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 6., 11. og 14. tbl. Lögbirtingablaðsins 1982 á
fasteigninni Hafnarstræti 94 hluti, Akureyri, þingl. eign Cesars
hf., fer fram eftir kröfu innheimtumanns ríkissjóðs á eigninni
sjálfri föstudaginn 25. júní 1982 kl. 13.30.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
DON KÍKÓTI
2. bindi eftir Cervantes
Almenna bókafélagið hefur sent
frá sér 2. bindi af Don Kíkótí frá
Mancha eftir spænska meistarann
Cervantes, í þýðingu Guðbergs
Bergssonar. Fyrra bindið kom út
síðastliðið haust og 3. bindið er
væntanlegt í september næstkom-
andi.
Ekki þarf að kynna fyrir íslend-
ingum riddarann sjónumhrygga,
Don Kíkótí. Nafn hans er að
verða hér jafn þekkt og nafn Egils
Skallagrímssonar eða Gunnars á
Hlíðarenda, ekki síst eftir sýning-
ar Alþýðuleikhússins á leikriti um
hann síðastliðinn vetur og prýði-
legan framhaldsmyndaflokk í
sjónvarpinu um hann undir heit-
inu Riddarinn sjónumhryggi. En
söguna um hann höfum við ekki
eignast á íslensku nema í stuttum
úrdrætti fyrr en nú, að við fáum
hana óstytta í afbragðsþýðingu
Guðbergs Bergssonar.
Með Don Kíkótí byrjar Al-
menna bókafélagið á útgáfu
bókaflokks, sem það mun nefna
Úrvalsrit heimsbókmenntanna. í
þessum flokki mun koma margt
sígildra rita, svo sem leikrit
Shakespears í þýðingu Helga
Hálfdánarsonar, Karamazov-
bræður eftir Dostojevskij í þýð-
ingu Gunnars Árnasonar o.s.frv.
VIÐJAR
Ný skáldsaga eftir Jón Dan
„Viðjar“ nefnist ný skáldsaga
eftir Jón Dan, rithöfund, sem
Bókaklúbbur Arnar og Örlygs hf.
hefur gefið út. Er það sjöunda
skáldsaga Jóns Dan, en fyrsta bók
hans, „Sjávarföll", kóm út árið
1958.
í sögunni „Viðjar" fjallar Jón
Dan um umbrot unglingsáranna.
Pað stríð, sem bældar hvatir hafa í
sálarlífi þess, sem ekki þekkir
sjálfan sig, en veit samt sem áður,
að eitthvað er að gerast hið innra.
Óttinn við hið óþekkta, öryggis-
leysið, hefur mótandi áhrif og
hálfkveðnar vísur auka á spurn-
ingar, sem svo erfitt er að fá svör
við. Aðalsöguhetja bókarinnar,
Gústi, finnur að hann er einhvern
veginn öðru vísi en félagar hans.
Hann hefur þegar tekið út þroska,
sem hinir eiga eftir að ná. Slíkt
verður honum síður en svo gleði-
efni. Atvikin haga því þannig,
fyrir tilviljun, að hann missir frá
sér um skeið helsta öryggisventil
sinn - móður sína. Og þá þyrmir
yfir Gústa, sem hvorki er barn né
fullorðinn maður. í öryggisleysi
sínu fær hann útrás. Skilning full-
orðinnar manneskju, sem verður
honum í senn móðir og það afl,
sem leiðir hann í sannleikann um
sjálfan sig, breytir honum úr
mannveru, sem ekki þekkir sjálf-
an sig í fullorðinn mann og vígir
hann inn í heim hins þroskaða og
fullorðna manns.
Bókaklúbbsbókin „Viðjar“ er
einungis seld félögum í Bóka-
klúbbi Arnar og Örlygs og er verð
bókarinnar aðeins kr. 197,00. Fé-
lagar í Bókaklúbbi Arnar og Ör-
lygs hf. eru nú komnir á fimmta
þúsund, og hefur farið ört fjölg-
andi að undanförnu.
gj® Dagskrá
'W trimmdagsins
27. júní 1982 á Akureyri
1. Handknattleikur viö Lundarskóla og Glerárskóla:
Kl. 10.00 12-14 ára
Kl. 11.00 15-16 ára
Kl. 12.00 10 ára og yngri
Kl. 13.30 11-12 ára
Kl 1A30 17áraogeldri
2. Knattspyrna við Lundarskóla og Glerárskóla:
Kl. 10.00 10áraogyngri
Kl. 11.00 11-12 ára
Kl. 13.00 13-14 ára
Kl. 14.00 15-16 ára
Kl. 15.00 17 ára og eldri til kl. 18.00 ef þátttaka verð-
ur næg. Starfshópum og bekkjarliðum er bent á að
koma saman og geta þau óskað eftir ákveðnum
tíma.
3. Golf á Golfvellinum að Jaðri frá kl. 09.00. _
4. Frjálsar íþróttir á (þróttavelli Akureyrar kl. 13.00-
16.00.
5. í Kjarnaskógi verða merktar skokk og göngubrautir
gg blakvellir.
6. í Bjargi verður opið frá kl. 13.30-16.00.
7. Sund I Sundlaug Akureyrarfrá kl. 08.00. Þar verður
einnig tennisvöllur og blak.
8. Siglingar verða frá Höepfnersbryggju frá kl. 13.00-
16.00.
9. Eik verður með íþróttir fyrir þroskahefta í íþróttahús-
inu við Laugargötu frá kl. 11.00-12.00.
10. Badminton verður í íþróttahúsi Glerárskóla frá kl.
10.00-14.00.
11. Hjólreiðar verða frá Glerárskóla kl. 10.30 og
14.00. Skráning hefst 30 mínútum fyrir bröttför.
12. Fimleikar verða í íþróttahúsi Glerárskóla kl. 14.00-
16.00.
13. Lyftingar verða við/í Lundarskóla kl. 13.00-17.00.
14. Körfuknattleikur verður í (þróttahúsi MA kl. 14.00-
17.00.
15. Klifuræfing Hjálparsveitar skáta verður I hömrum
ofan við Kjarnarskóg kl. 13.30.
16. Pallas, líkamsræktarstöð verður opin kl. 10.00-
13.00 fyrir karla og konur kl. 13.00-16.00.
Varðandi þau atriði sem fyrirhuguð eru í (þróttahúsi
Glerárskóla er þess óskað að væntanlegir þátttak-
endur hafi símasamband þar eð hugsanlegt er að
húsið verði upptekið til annarra nota.
ÍBA
Tjaldstæði
á Sauðár-
króki
Á Sauöárkróki hefur verið starf-
rækt tjaldsvæði við sundlaugina
undanfarin 2 ár og verður svo
einnig frá 1. júní f sumar til fyrstu
viku í september.
Á tjaldsvæðinu er ágætis hús
með vatnssalerni, vöskum og
geymslu. Utan á húsinu er vaskur
til uppþvotta, auk þess sem settur
hefur verið upp bekkur með
áföstu matarborði fyrir tjaldgesti,
einnig eru þar rólur, vegasalt og
boltaleikspil fyrir börnin.
Börn yngri en 12 ára fá frítt inn
á tjaldsvæðið en annars er verð
krónur 30 fyrir tjaldið eða krónur
10 fyrir manninn og krónur 10
fyrir tjaldið.
1
Fréttatil-
kynning:
Við í kvennaframboðinu á Ak-
ureyri viljum vekja athygli á því
að við hyggjumst halda áfram
störfum af fullum krafti, þótt
kosningar séu afstaðnar.
Starfið í sumar verður með því
móti að áhugahópar um hin ýmsú
bæjarmál munu hittast og móta þá
stefnu sem kvennaframboðið
mun fylgja eftir í nefndum bæjar-
ins og bæjarstjórn.
Laugardaginn 29. maí var hald-
inn stuðningsmannafundur, þar
sem kosið var í stjórn, ritnefnd og
húsnefnd. Næsti stuðnings-
mannafundur verður haldinnn
fimmtudaginn 1. júlí n.k. kl. 2030
í Kvennarisi.
Opið hús verður í Kvennarisi í
sumar öll fimmtudagskvöld. Er
fólk hvatt til að koma og fylgjast
með og taka þátt í störfum
Kvennaframboðsins. Einnig
verða opnir bæjarmálafundir í
Kvennarisi annað hvert miðviku-
dagskvöld, sá fyrsti var 9. júní kl.
20.30.
Símatími í Kvennarisi er kl. 17-
19 á mánudögum.
Það er von kvennaframboðsins
að þeir sem stuðluðu að fram-
gangi þess verði með í að móta
stefnuna.
a-r DAGUR - 22; júni1982
Stjórnin