Dagur - 22.06.1982, Qupperneq 9
Hinrik stóð sig vel á ísafirði.
Hinrikskoraði tvö
— þegar KA lagði ísfirðinga á þeirra eigin heimavelli
KA náði góðum leik á ísafirði
á móti heimamönnum og sigr-
aði með tveimur mörkum
gegn einu. Þetta var jafnframt
annar sigur KA ■ fyrstu deild-
inni. Leikur þessi var nokkuð
spennandi og skemmtilegur
og oft á tíðum brá fyrir ágæt-
isleikköflum. Liðin skiptu
með sér leiknum, þannig að
ísfirðingar voru betri í fyrri
hálfleik en í þeim síðari voru
KA-strákarnir mun betri.
ísfirðingar sóttu oft hart að
KA-markinu í fyrri hálfleik og
segja má að Aðalsteinn mark-
maður hjá KA hafi bjargað liði
sínu frá tapi í leiknum. Mark-
varsla hans var oft á tíðum stór-
kostleg,
manna,
að sögn eins
sem á leikinn
heima-
horfði.
Þórsarar og KA-menn
Áprentuðu bolimir eru komnir
er KA-maður
Eg
(gulir og bláir)
Ég er Þórsari
(hvítir og rauðir)
Fást í Borgarsölunni
Hins vegar tókst ísfirðingum að
skora eitt mark rétt fyrir lok fyrri
hálfleiks og var vel af því staðið,
en sumir leikmanna KA vildu
halda því fram að sá sem skoraði
hefði verið rangstæður.
í síðari hálfleik tóku KA-
menn völdin á vellinum og sóttu
stíft að marki ísfirðinga. Marg-
sinnis áttu þeir góð marktæki-
færi, sem þeim tókst þó ekki að
nýta fyrr en á 29. mín. í*á skor-
aði Hinrik sitt fyrsta mark á
sumrinu við mikinn fögnuð
sinna manna. Hinrik bætti um
betur nokkrum mín. síðar þegar
hann afgreiddi fyrirgjöf frá El-
mari viðstöðulaust í netið og
tryggði KA bæði stigin.
efsta sæti deildarinnar a.m.k. í
einn dag, en staðan í deildinni er
mjög flókin og aðeins örfá stig
sem skilja efsta og neðsta liðið.
Loks
leikið
ágrasi
Loksins geta Akureyringar
fengið að sjá knattspyrnu
leikna á grasi, en það hefur
ekki staðið til boða fyrr í
sumar.
Leikur Þórs og Leifturs frá
Ólafsfirði í Bikarkeppni Knatt-
spyrnusambandsins verður háður
á grasvelli Þórs annað kvöld og
hefst hann kl. 20. Völlurinn er í
þokkalegu ástandi og Þórsarar
sáu ekki ástæðu til annars en að
ieika á honum.
Þess má gea að það lið sem
sigrar á morgun mun leika í 16
liða úrslitum Bikarkeppninnar.
4. deild
Íþróttasíðan hefur frétt úrslit í
nokkrum leikjum fjórðu deild-
ar. Á föstudagskvöldið sigraði
Vorboðinn Dagsbrún með
tveimur mörkum gegn einu.
Reynir frá Árskógsströnd tapaði
fyrir Glóðafeyki með einu marki
gegn engu. Vaskur sigraði nú í
fyrsta sinn í deildinni en þeir
léku gegn Svarfdælingum. Vask-
ur sigraði með þremur mörkum
gegn einu. Mörk Vasks skoruðu
Hákon Hákonarson tvö og
Anton Haraldsson eitt.
Jafnt
hjá HSÞ
og Magna
Á laugardaginn léku í þriðju
deild HSÞ og Magni og var leik-
ið fyrir austan. Leikur þessi var
nokkuð jafn, en HSÞ sótti meira
í fyrri hálfleik án þess þó að ná
að skora en Magni var sprækari í
þeim síðari. Það var Sofanías
Árnason sem skoraði fyrsta
markið fyrir HSÞ, en Bjarni
Gunnarsson jafnaði fyrir Magna
og urðu það úrslit leiksins.
í kvöld, þriðjudagskvöid,
leikur Magni gegn Árroðanum
en það er leikur sem frestað var
fyrir skömmu og verður leikið á
Laugalandsvelli.
Þórsarar
sótlu grimmt
Bestir hjá KA í þesum leik
voru þeir Áðalsteinn og Hinrik.
Eftir þennan sigur er KA í
Þórsarar voru óheppnir að hirða
ekki bæði stigin er þeir léku gegn
Einherja á Vopnafirði um helg-
ina. Þórsarar sóttu mun meira
og áttu góð marktækifæri í síðari
hálfleiknum. En það er ekki nóg
að sækja, það eru mörkin sem
gilda og Þórsarar hafa ekki verið
iðnir við markaskorun í sumar.
Staða liðsins fer líka að verða
alvarleg í deildinni. Liðið hefur í
fjórum síðustu leikjum sínum
aðeins hlotið 3 stig og það er of
lítið fyrir lið sem ætlar sér upp í
1. deild.
í leiknum á Vopnafirði sem
var leikinn á litlum og erfiðum
velli var jafnræði með liðunum í
fyrri hálfleik en í þeim síðari
tóku Þórsarar völdin og þá skor-
aði Örn Guðmundsson eftir
fyrirgjöf Bjarna Sveinbjörns-
sonar. Eianherji skoraði sitt
mark í fyrri hálfleik.
Völsungar óheppnir
Völsungar léku á laugardaginn
við Njarðvíkinga. Þrátt fyrirþað
að þeir fengu óskabyrjun og
skoruðu fyrsta markið dugði það
ekki til, því Njarðvíkingar gerðu
tvö mörk á næstu mínútum. Það
var Jónas Hallgrímsson sem
skoraði mark Völsunga. Völs-
ungar voru óheppnir að tapa
þessum leik, þeir voru meira
með boltann, en gekk erfiðlega
að koma honum í markið. Krist-
ján Kristjánsson fyrrum leik-
maður hjá KA, hefur nú gerst
leikmaður hjá Völsungi og mun
leika með þeim næsta leik.
2fi.'júnlf1982S= ÐÁG0WÁ9