Dagur - 17.12.1982, Blaðsíða 8

Dagur - 17.12.1982, Blaðsíða 8
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI RITSTJÓRNARSlMAR: 24166 OG 24167 SlMI AUGLÝSINGADEILDAR OG AFGREIÐSLU: 24222 RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARM.: HERMANN SVEINBJÖRNSSON BLAÐAMENN: ÁSKELL ÞÓRISSON, GYLFI KRISTJÁNSSON OG ÞORKELL BJÖRNSSON AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: JÓHANNES MIKAELSSON FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. Friðar-jól Boðun friðar hefur ávallt verið einn megin- tilgangur kirkjunnar. Þessa hefur ekki síst gætt á jólum, þessari stórhátíð kristinna manna um allan heim, þegar minnst er fæð- ingar frelsarans og friðarboðans. Á síðustu tímum hefur meira borið á þessum friðarboðskap og ekki að ástæðu- lausu. Viðsjár í heiminum hafa sjaldan verið meiri en einmitt núna. Þrátt fyrir margra ára og jafnvel áratuga tal um afvopnun fara sí- fellt meiri fjármunir í smíði gereyðingar- vopna til að viðhalda jafnvægi óttans. Þetta streitujafnvægi getur brostið hvenær sem er. Nú kreppir að í öllum hinum vestræna heimi. Meðal kreppueinkenna er minnk- andi umburðarlyndi og aukin árásargirni. Mennirnir bregðast til varnar lífskjörum sínum og hagsmunum og því meir sem að kreppir þeim mun harðari verða viðbrögðin. Sjaldan eða aldrei hefur friðarboðskapurinn átt meira erindi til mannanna en einmitt núna. Kirkja Krists um allan heim hefur nú sam- einast um boðun friðar á aðventu og jólum. Hér er um að ræða sameiginlega dagskrá kirkjudeilda um víða veröld. Krafa um frið er mikilvægasta krafa samtímans. Þess vegna hafa kirkjunnar menn um allan heim tekið höndum saman um að gera „Frið á jörðu“ að kjörorði jólanna sem nú fara í hönd. íslendingár munu minnast friðar- og líkn- arboðskapar Krists eins og oft áður með stuðningi sínum við Hjálparstofnun kirkj- unnar. Þeir ættu líka alhr sem einn að taka þátt í ákallinu um frið á jörðu með því að tendra friðarljósið á aðfangadagskvöld og láta það bera birtu til náungans, sem tákn vonar og vináttu allra manna nær og fjær. Gleðilegjól! Gleðileg jól, farsælt komandi ár Þökkum viöskiptin á árinu sem er að líða Nýja bíó, Strandgötu Ofnasmiðja Norðurlands hf. ÓlafurB. Ámason, lögfrœðistofa ogfasteignasala Olíufélagið Skeljungur hf. Olíuverslun íslands hf Plasteinangmn hf. Plastiðjan Bjarg Bugðusíðu 1 Péturog Valdimar Draupnisgötu 6 Prentverk Odds Bjömssonar hf. Samvinnubankinn Húsavík Sana hf. Norðurgötu 57 Sandblástur og málmhúðun sf. við Hjalteyrargötu Sindrafell hf. Draupnisgötu 1, sími 25700 .... ...........................-....

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.