Dagur - 17.12.1982, Blaðsíða 16

Dagur - 17.12.1982, Blaðsíða 16
FRÉTTAANNÁLL FRÉTTAANNÁLL FRÉTTAANNÁLL FRÉTTAANNÁLL FRÉTTAANNÁLL Frá fyrsta fundi nýkjörinnar bæjarstjómar Akureyrar á árinu. Bfl var stolið frá versluninni Hljómver og var honum ekið í höfnina á Akureyri. Tæring kom upp í kerfi Hitaveitu Akureyrar á árinu, og nokkrir ofnar tærðust í sundur. Frá flugdegi a Akureyn. bjarga út, en einn grís varð eldinum að bráð.. 22. . . Ijúníkomíljóstæringíofn- um húsa í Glerárhverfi á Akureyri og lá ofnkerfi margra húsa í hverfinu undir skemmdum af þeim sökum. Um fá mál hefur verið eins mikið fjallað á árinu og þetta og enn eru ekki öll kurl komin til grafar eða ljóst hversu umfangsmikið það er. 22. . . Óttar Proppé var ráðinn bæjarstjóri á Siglufirði, en þar í bæ mynduðu Framsóknarflokkur, Al- þýðuflokkur og Alþýðubandalag bæjarstjórnarmeirihluta að bæjar- stjórnarkosningum loknum. 24. . . Tveir eldhressir minkaban- ar, Haraldur Skjóldal og Hilmar Stefánsson, drápu 27 minka í ná- grenni Krossaness og í Hrafnagils- óhöpp og þótti öll framkvæmd mót- sins takast sérstaklega vel. 13. . . Hinn nýi togari Útgerðar- félags N-Þingeyinga, Stakfell, kom til landsins. í fyrstu veiðiferð skips- ins kom upp vanstilling í spilútbún- aði skipsins. Var hún lagfærð og hef- ur togarinn aflað vel síðan. 15. . . Stefán Jón Bjarnason frá Húsavík var ráðinn bæjarstjóri á Dalvík, og bæjarritari var ráðinn Snorri Finnlaugsson. 20. . . Útibú KEA á Grenivík flutti í nýtt og glæsilegt húsnæði. Var öllum íbúum Grenivíkur og ná- grennis boðið að skoða þessa stór- bættu verslunarmiðstöð. 22. . . Nú er lokið við að malbika allar götur á Blönduósi og er það mál manna að bæjarfélagið hafi tekið al- gjörum stakkaskiptum. Ekki er út í hött að tala um að Blönduós sé snyrtilegasta bæjarfélag á landinu. 22. . . í skýrslu Fiskifélags íslands kom fram að fyrstu 6 mánuði ársins kom fram að heildaraflinn frá ára- mótum var 57.645 tonn en var á sama tíma 1981 84.402 tonn. Afli á Norðurlandi hafði minnkað um 32%. 27. . . „Ástandið er vægast sagt hroðalegt og ég veit ekki hvað þetta getur druslast svona lengi,“ sagði Bjami Jóhannesson útgerðarstjóri hjá KEA í Hrísey. „Útgerðin.væri löngu stopp ef við hefðum ekki þann bakhjarl sem KEA er. Við höfum ekki fengið neina fyrirgreiðslu frá t.d. byggðasjóði þó margoft hafi ver- ið fram á slíkt þótt við vitum að aðrir aðilar hafi fengið þar mikla fyrir- greiðslu,“ sagði Bjami. 29. . . „Lánsfjáráætlun og fjárlög gera ráð fyrir 60 milljónum til fram- kvæmda vegna Blönduvirkjunar á þessu ári og sú upphæð skiptist á ýmsa verkþætti," sagði Sigurður Eymundsson rafveitustjóri á Blönd- uósi um framkvæmdir við Blönd- uvirkjun á árinu sem senn kveður. 29. . . „Ég hef ekki verið dellum- aður í laxveiðinni til þessa,“ sagði Örn Gústafsson á Akureyri, en hann krækti í 27 punda lax í Laxá í Aðal- árinu var gamli Drangur seldur og nýr keyptur í hans stað. hér um að ræða íbúðir í fjölbýlis-, raðhúsum og einbýlishúsum. Á fundi bæjarráðs 22. júlí var sam- þykkt að fela stjórn verkamanna- bústaða að leita heimildar hjá Hús- næðisstofnun ríkissins til að hefja smíði allt að 40 nýrra íbúða á árinu 1983 auk þeirra íbúða sem eftir kunna að verða vegna heimilda á yfirstandandi ári. 12. . . Vindmyllahefurveriðreistí Grímsey og er henni ætlað að fram- leiða hita með svokallaðri vatns- bremsu og getur hún í 7 vindstigum framleitt >/2 tonn af 70° heitu vatni á klukkustund. 17. . . Sl. laugardag hófst föst starfsemi Ríkisútvarpsins - RÚVAK - tók formlega til starfa með föstu starfsliði. Var flutt sérstök dagskrá af þessu tilefni og tóku um 20 manns þátt í henni. Starfsemi RÚVAK er fyrst um sinn til húsa í gamla hljóðhúsinu við Norðurgötu. 24. . . Breyting var gerð á lána- kerfi til skipasmíða innanlands og nýtur skipasmíðaiðnaðurinn því sömu lánafyrirgreiðslu og ullar- og skinnaiðnaðurinn fékk á sl. ári. Gunnar Ragnars sagði að þessi breyting ylli því að hægt væri að smíða skip á um 20% lægra verði en áður. 31. . . „Það sem mér fannst mark- verðast koma fram á þessu þingi var sú samstaða sem náðist um nauðsyn þess að jafnframt breytingum á hlut- föllum á Alþingi með fyrirhugðum breytingum á kosningalögum komi aukið valdajafnvægi á öðrum sviðum og meiri dreifing opinberrar þjón- ustu um landið," sagði Áskell Ein- arsson, framkvæmdastjóri Fjórð- ungssambands Norðurlands, að loknu þingi sambandsins á Sauðár- króki. 31. . . „Það virðist heldur hafa sig- ið á ógæfuhliðina undanfarið. Vart Frá Landsmóti hestamanna á Vindheimamelum. aðskotahlutur í höfðinu á mér.“ Þetta sagði Eyjólfur Ágústsson, ung- ur Akureyringur sem gekk með 10 cm langan loftnetsbút f höfðinu f þrjá mánuði eftir að hafa velt vél- sleða sínum á nýársdag. Maí 4. . . Mjögmikilölvun vará Akur- eyri fyrstu helgi mánaðarins. í Al- þýðuhúsinu réðst gestur á dyravörð og veitti honum mikla áverka. Var dyravörðurinn fluttur á sjúkrahús en gesturinn fékk að kynnast innrétt- ingum fangageymslu lögreglunnar um nóttina. 4. . . „Það er nánast bjartsýni að gera ráð fyrir að nýja íþróttahúsið verði að einhverju leiti tekið í notk- un í haust,“ sagði Hermann Sig- tryggsson, íþróttafulltrúi Akureyr- ar, í samtali við Dag. - Hafi Her- mann verið bjartsýnn á að það myndi takast var sú bjartsýni á rökum reist, því húsið var tekið f notkun fyrsta sunnudag í desembermánuði. 6. . . „Að sjálfsögðu erum við ánægðir með þessar niðurstöður," sagði Hjörtur Eiríksson, fram- kvæmdastjóri Iðnaðardeildar SÍS. Ástæðan fyrir ánægju Hjartar var sú að í skýrslu um launagreiðslur til Iðjufélaga voru þær hæstar á landinu hjá Iðnaðardeildinni. 11. . . Aðalfundur Kaupfélags Eyfirðinga var haldinn 7. og 8. maí. í ræðu Vals Arnþórssonar, kaupfé- lagsstjóra, kom fram að árið 1981 hafi verið gott fyrir Kaupfélag Ey- firðinga. Efnahagur væri traustur, reksturinn hefði farið batnandi, og í starfsemi þess hefði þróast öflugur vaxtarbroddur til eflingar eyfirskum byggðum, íslensku samvinnustarfi og íslensku efnahagslífi. 13. . . Malbikaðar götur hafa lengst um 90% á því kjörtímabili sem nú er að ljúka og verða yfir 50 km á lengd á þessu sumri. Allt kjör- tímabilið hefur verið unnið að gatna- gerð og nú er lokið endurbyggingu Júní 3. . . Fyrsti fundur nýkjörinnar bæj arstj órnar Akureyrar var haldinn 1. júní. Á fundinum var Helgi M. Bergs endurráðinn bæjarstjóri til næstu 4 ára og Valgerður Bjarna- dóttir kjörinn forseti bæjarstjórnar. í upphafi fundarins gerði Sigurður Óli Brynjólfsson grein fyrir nýju meirihlutasamstarfi Framsóknar- flokks, Alþýðubandalags og Kvennaframboðs. 8. . . Ríkisútvarpið hefur keypt hús Pan h.f. við Fjölnisgötu á Akur- eyri og verður stofnunin þar til húsa í framtíðinni. „Þetta hús verður bæði notað af útvarpi og sj ónvarpi. Þama verður gott talstúdío og stór upptökusalur fyrir útvarp og sjónvarp,“ sagði Hörður Vilhjálmsson fjármálastjóri Ríkisútvarpsins við þetta tækifæri. 8. . . „Menn eru þegar farnir að panta en ég get ekkert sagt um hvaða bátur fer fyrstur í sleðann,“ sagði Þórður Haraldsson, skipasmiður á Húsavík. Dráttarbrautin var svo tek- in í notkun í síðasta mánuði. 8. . . „Það er allt að verða brjálað," sagði einn starfsmanna KÉA í Hrísalundi. Geysileg verslun var víða um bæinn vegna yfirvofandi allsherjarverkfalls, en ekkertvarð úr verkfallinu því samningar tókust áður en það kom til framkvæmda. 15. . . Það er sennilega rólegt að vera starfsmaður í slökkviliði Blönduóss. Frá 7. desember 1980 til 6. mars 1982 var ekkert útkall hjá lið- inu og sagði Þorleifur Arason slökkviliðsstj óri að brunavarnir á svæði Brunavarna Austur-Húna- f vatnssýslu væru mjög góðar. 15. . . Slökkviliðsmenn á Akur- eyri lentu hinsvegar í óvenjulegum vandræðum. „Fullorðnu svínin sner- ust gegn okkur þegar við vorum að reyna að bjarga þeim út.“ sagði slökkviliðsmaður á Akureyri. 20 svínum og 200 grísum tókst að hafa mikil áhrif á framleiðslumögu- leika okkar á kindakjöti. „Við verð- um e.t.v. að fækka sauðfé og þá er það mín skoðun að slíkt verði að ger- ast á þeim svæðum þar sem menn geta tekið upp aðra atvinnustarfsemi í staðinn. Ég hef trú á því að eitt það helsta sem menn geti tekið upp sé refaræktin,“ sagði Ingi Tryggvason. 18. . . Samvinnumenn minntust þess þann 20. febrúar að þann dag voru liðin 100 ár frá stofnun fyrsta samvinnufélags hér á landi, Kaupfé- lags Þingeyinga, og 80 ár frá því að kaupfélögin íslensku stofnuðu sín samtök, Samband íslenskra sam- vinnufélaga. Var þessara merku tímamóta minnst með ýmsu móti en hápunktur hátíðahaldanna var aðal- fundur Sambandsins sem haldinn var á Húsavík dagana 18. og 19. júní og sérstakur hátíðafundur að Laugum í Reykjadal 20. júní. Mars 2. . . Rannsóknarlögreglan á Ak- ureyri hafði hendur í hári ungs Akur- eyrings sem hafði falsað 17 ávísanir og verslað fyrir andvirði þeirra á veitingastöðum bæjarins. Hafði fals- arinn þannig komist yfir 8.300 krónur. 4. . . Fjárhagsáætlun Akureyrar- bæjar fyrir yfirstandandi ár var sam- þykkt í bæjarstjórn. Hver einasti lið- ur áætlunarinnar var samþykktur með 11 samhljóða atkvæðum og var það í annað skipti í sögu Akureyrar sem slíkt gerðist. 4. . . Ákveðið var að halda lista- hátíð á Akureyri og hlaut hún nafnið „Vorvaka ‘82“. Mikill fjöldi lista- manna lagði hönd á plóginn, bæði innlendir og erlendir og þótti þessi listahátíð takast með miklum ágæt- • um, en hún fór fram í júní. 16. . . Ólöglegur innflutningur á skjaldbökum til landsins leiddi til þess að upp kom taugaveikibróðir meðal fólks, en skjaldbökur þessar fluttu með sér salmonellusýkil. Nokkur tilfelli af taugaveikibróðir komu upp í Reykjavík, en ekkert á Akureyri þótt þar hafi fundist skjald- bökur sem voru með samonellusýkil- inn. 16. . . Þann 15. mars voru undirrit- aðir samningar milli Rafmagns- veitna ríkisins og fimm hreppsnefnda varðandi Blönduvirkjun og var for- senda samningsins sú m.a. að Blönduvirkjun yrði næsta meirihátt- ar vatnsaflsvirkjun í landskerfinu. Lauslegt mat á upphæð bótakrafna nam 47-50 milljónum króna. Hrepþ- arnir sem undirrituðu samninginn voru Blönduóshreppur, Torfalækj- arhreppur, Svínavatnshreppur vest- an Blöndu, og Lýtingsstaða- og Seyluhreppur austan Blöndu. Hreppsnefnd Bólstaðahlíðarhrepps hafði ekki fallist á samning þennan. 18. . . Stofnað var Iðnþróunarfé- lag Eyjafjarðarbyggða, en tilgangur þess er að stuðla að iðnþróun á Eyja- fjarðarsvæðinu á sviði iðnaðar og hafa frumkvæði að stofnun slíkra fyrirtækja í samvinnu við aðra. 18... „Ég hef lagt mikla áherslu á að lífga upp á Sæluvikuna," sagði Ólafur Jónsson, framkvæmdastjóri Sæluviku Skagfirðinga, sem hófst 20. mars. Mikið var um dýrðir á Sauð- árkróki þá daga sem Sæluvikan stóð yfir og fór hún vel fram í alla staði. 23. . . „Fýlanúrsögunni“.-Í þess- ari fyrirsögn var átt við ólyktina sem borist hefur yfir Akureyrarbæ frá Krossanesverksmiðjunni. Sett voru upp mjög dýr hreinsitæki í verk- smiðjunni „og í framtíðinni mun Ak- ureyringum engin óþægindi stafa af mengun frá verksmiðjunni," sagði í frétt Dags. 30. . . „Við þökkum kærlega fyrir að þetta er hægt,“ sagði Pétur Éin- arsson, aðstoðarflugmálastjóri, er Dagur spurði hann hvort það hefði komið til tals að Akureyrarbær lán- aði ríkinu malbik á lengingu flug- brautarinnar. Sú varð og raunin að það var gert, og lauk malbikunflug- brautarinnar í októbermánuði. þessara ummæla var að Félag ungra sjálfstæðismanna á Akureyri gaf út og lét dreifa í bænum símaskrá fyrir Akureyri. September 2. . . „Framkvæmdir eru hafnar við að breyta Hafnarstræti á Akur- eyri í göngugötu," sagði í frétt Dags. - Unnið var að jarðvegsskiptum og lagningu malbiks í götuna og verður framkvæmdum framhaldið á næsta ári. 2. . . Taliðeraðhérálandifarium ein milljón vinnustunda árlega í það að plokka hringorma úr fiskiflökum sem fara til útflutnings. Gera má ráð fyrir að hver stund kosti um 50 krón- ur með launatengdum gjöldum, þannig að þessi kostnaður nemur því sem næst 50 milljónum króna á ári. 7. . . Að afloknu veiðitímabili í Laxá í Aðaldal kom í ljós að um 150 færri fiskar komu þar á land í sumar en árið áður. Sá fiskur sem veiddist í sumar var hinsvegar yfir höfuð vænni, og virðist því sem smærri fiskinn hafi vantað ána, hvað sem olli. 7. . . „Þetta hefur verið dauft hjá okkur í sumar,“ sagði Jón Jónsson framkvæmdastjóri Rækjuvinnslunn- ar á Skagaströnd. „Það eru fáir bátar sem stunda þessar veiðar, og einnig er slæmur rekstrargrundvöllur fyrir vinnslustöðvarnar að vinna sumar- rækjuna.“ 9. . . Upp úr hádegi í gær fór Drangur frá Akureyri og var áfanga- staður frekar óvenjulegur því Drangur var á leið til Flateyjar á Skjálfanda. Flutningur Drangs til Flateyjar var bor frá Orkustofnun og ýmiss annar búnaður, en þar eru nú að hefjast setlagarannsóknir sem sumir ætla að geti orðið upphaf olíuævintýris, en flestir telja þó að muni ekki verða. En líf mun færast í Flatey á næst- unni, hver svo sem niðurstaða set- lagarannsóknanna verður. 9. . . Vörubifreiðastjórar á Akur- eyri kvörtuðu sáran undan atvinnu- leysi. „Ætli það megi ekki segja að bílarnir hafi haft verkefni þriðja hvern dag,“ sagði Stefán Árnason hjá Bifreiðastöðinni Stefni í samtali við Dag. „Horfurnar eru bágbornar og menn eru þegar farnir að huga að því að selja bílana. Við erum mjög óánægðir með skiptingu opinbers fjár til vegaframkvæmda, næg atvinna er fyrir vörubifreiðastjóra bæði fyrir vestan okkur og austan en hér er ekkert að gerast.“ 9. . . Miklir erfiðleikar hafa verið í hitaveitumálum í Hrísey. Þó hefur rofað til og í upphafi mánaðarins var lokið við að bora 1070 metra djúpa holu sem gefur 15 lítra á sekúndu af 69-70 stiga heitu vatni. Ekki er þó talið að Hríseyingar séu lausir við þá hættu að leir og drulla komist í hol- Apríl 1. . . „1. apríl-frétt“ Dags að þessu sinni var um nýja kvikmynd, „Fynd- ið fólk á Akureyri“, sem frumsýna átti í Lundarskóla þá um kvöldið. Átti þessi mynd að sögn Dags að sýna fólk á Akureyri við ýmsa iðju og hafði hún verið tekin með falinni myndavél. Fjöldi fólks mætti í Lund- arskóla til að skemmta sér yfir mynd- inni þetta kvöld, en því miður . . . 15. . . „Þegar ég sagði lækninum að það hefðu komið örlitlir vírar út úr nefinu á mér lét hann mig fara í myndatöku og þá kom í ljós einhver gatna og holræsa sem gerðar voru fyrir 1960. Ný malbikunarstöð var keypt. Þetta eru helstu framkvæmdir sem unnið hefur verið að á því kjör- tímabili sem nú er að ljúka. 25. . . Kvennaframboðslistinn í bæjarstjórnarkorningunum á Akur- eyri vann mikinn sigur í kosningun- um 22. maí. Fékk kvennalistinn 2 fulltrúa. Framsóknarflokkurinn stóð í stað, um fylgisaukningu var að ræða hjá sjálfstæðismönnum en A- flokkarnir töpuðu miklu fylgi. 27. . . Vanskapað lamb leit dags- ins ljós á bænum Garðshorni á Þela- mörk. Var lambið með 6 fætur. Var lambið eðlilegt framan við miðju en klofnaði þá í tvennt svo afturpart- arnir urðu tveir og afturfæturnir fjórir. Jarðborinn Narfi hefur undanfama mánuði verið í Ólafsfirði. Á leið á borstaðinn festist borinn í ÓlafsQarðará og síðar í borholunni sjálfri. dal og var það sennilega stærsti lax sumarsins hérlendis. S Agúst 5. . . Jarðborinn Narfi kom til Ól- afsfjarðar. Á leið á borstaðinn festist borinn í Ólafsfjarðará en náðist upp og síðan var boruð um 1500 metra djúp hola. Þegar taka átti borinn upp festist hann í holunni og þegar þetta er skrifað situr hann enn fastur þar. Er óhætt að segja að Narfi hafi farið hálfgerða „festuferð" til Ólafsfjarð- ar að þessu sinni. 12. . . Stjórn verkamannabústaða á Akureyri hefur á árinu afhent 16 íbúðir til einstaklinga af 40 íbúðum sem afhentar verða á þessu ári. Er 17. . . Kaupfélag Svalbarðsreyrar hóf útflutning á dilkakjöti í heilum skrokkum, einn skrokkur í kassa og er sumt kjötið nýtt en hitt reykt. Fékk tilraunasending af þessu tagi til Danmerkur mjög góðar viðtökur. 19. . . Aurskriður féllu á Siglu- fjarðarbæ úr Strengjagili í Hafnar- fjalli fyrir ofan bæinn. Flæddi aurinn yfir nokkrar götur bæjarins og lóðir íbúðahúsa og var eitthvað um það að fók flýði hús sín af þessum sökum. 24. . . „Það var alveg komið að því að stjórnin spryngi á laugardag, því er ekki að leyna,“ sagði Ingvar Gíslason, menntamálaráðherra. En svo fór ekki, og þennan sama laugar- dag náðist samkomulag innan stjórn- arinnar um bráðabirgðalög til bjarg- ar efnahagsvandanum og jafnframt var samþykkt yfirlýsing vegna að- gerða í efnahagsmálum. var við aukin vanskil strax upp úr áramótum," sagði Gestur Jónsson, fulltrúi í Búnaðarbanka íslands á Akureyri.“ 31... „Samkeppni við innflutning hefur aukist gífurlega á síðasta ári og það sem af er þessu ári. Samkeppnis- staða innanlands hefur versnað stór- lega gagnvart innflutningi vegna þess að allur tilkostnaður innanlands hef- ur hækkað mun meira en verð á er- lendum gjaldeyri," sagði Gunnar Kjartansson hjá Iðnaðardeild Sam- bandsins er rætt var við hann um dökkar horfur í fataiðnaði. 31... „Ég hef skrifað bæjarfógeta bréf þar sem ég óska eftir því að fram fari rannsókn á því hvort þarna sé um brot á fjarskiptalögum að ræða, sem þetta er að okkar áliti,“ sagði Ársæll Magnússon, umdæmisstjóri Pósts og Síma á Akureyri. Tilefni hreppi á tveimur dögum. „Þetta er ekki búið enn, við eigum eftir að fara í hólmana í Eyjafjarðará og þá bætist örugglega eitthvað við,“ sögðu þeir félagar í samtali við Dag. 24. . . í gær hóft framleiðsla á mal- biki eftir stutt hlé í malbikunarstöð Akureyrarbæjar, en þá hafði verið tengt svartolfukerfi í stöðinni. Er gert ráð fyrir að sparnaður við það nemi 200-300 þúsund krónum á ári. Júlí 6. . . „Égfannfjársjóð,“sagðiung stúlka frá Akureyri við mömmu sína, er sú litla hafði fundið lítinn pappakassa undir brú í Reiðgili á Öxnadalsheiði. Verið var að fylgja hestamönnum á Landsmót hesta- manna á Vindheimamelum er pappakassinn fannst, og reyndist hann innihalda ávísanir sem stolið hafði verið úr innbrotinu hjá Höldi sf. á Þorláksmessu 1981. 6. . . Brotist var inn í verslunina Hljómver við Glerárgötu. Stálu þjófarnir nokkrum sambyggðum seglubands- og útvarpstækjum og að auki hirtu þeir bifreið verslunarinnar sem stóð innandyra. Fannst bifreiðin þremur dögum síðar í sjónum við Oddeyri. 8. . . Haukur Halldórsson, for- maður Sambands»slenskra loðdýra- ræktenda, upplýsti að félagið hefði lagt til við stjórnvöld að minkastofn- inn yrði skorinn niður og uppbygging nýs stofns hafin. „Það er ekki hægt að byggja minkarækt í framtíðinni á þeim sjúka stofni sem hér er fyrir hendi á þremur minkabúum af fjórum,“ sagði Haukur. 8. . . Þórður Þórðarson frá Kópa- vogi var ráðinn bæjarstjóri á Sauð- árkróki en alls sóttu 8 um stöðuna. Þórður starfaði áður sem dómari hjá fíkniefnadómstólunum. 13. . . Talið er'að um 10 þúsund manns hafi sótt Landsmót hesta- manna sem fram fór á Vindheima- melum í Skagafirði. Þrátt fyrir þenn- an mikla fjölda urðu engin stór- 16 - DAGUR -17. desember 1982 17. desember 1982 - DAGUR -17

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.