Dagur - 17.12.1982, Síða 21
Brandarar
Jóhann litli var að læra dálítið í reikn-
ingi hjá pabba sínum:
„Og hvað kemur á eftir níu?“
Strákurinn hugsar sig um andartak og
segir svo:
„Þegar þú ert í vinnunni, kemur ná-
granninneftirníu.“
☆ •ír ☆
Gleðileg jól, farsælt komandi ár.
Sigurður Runólfsson, húsasmíðameistari,
Langholti 17, Akureyri, sími 21017, Trésmiðja Óseyri 13.
Dansskóli Sigvalda óskar öllum nemendum
og velunnurum skólans:
Gleðilegra jóla
og farsæls komandi árs.
Heilsuinniskór og tréklossar
í 5 litum, barna- og fullorðins-
stærðir.
Einnig mikið úrval af skóáburði, skólit
og vatnsvörn. Verið veikomin.
Gleðileg jól, farsælt komandi ár.
Skóvinnustofa Akureyrar
Hafnarstræti 88, sími 23450.
Frænka gamla, sem var bæði stór og
mjög feit, segir við Elsu litlu:
- Hvað ætlar þú að gera þegar þú ert
orðin eins stór og ég?
- Fara í megrunarkúr...
☆ ☆☆
- Hve gamall er ég?
- Þú ert jafngamall og puttarnir eru
margir á annarri hendi þinni.
- Jo, hvernig skyldi hendin líta út,
þegar óg verð 50 ára...
☆ ☆☆
Þau voru að byrja á desertinum.
- Fáðu þér nú duglega á diskinn,
sagði mamman við soninn - þetta er
dýrðlegur búðingur, mjúkur eins og
konubrjóst.
- Pabbi, er það rétt, sem mamma
segir?
- Hef ekki hugmynd um það, ég hef
aldrei káfað á búðingi...
☆ ☆☆
Skipstjóri (tekur á móti nýjum létta-
dreng): „Jæja, drengur minn, ég geri
ráð fyrir, að það sé gamla sagan með
þig - sá heimskasti í fjölskyldunni
sendurtil sjós.“
Drengurinn: „Nei, nei, herra. Þetta er
allt orðið breytt frá því að þér voruð
ungur."
☆ ☆ ☆
Pabbinn var í viðskiptaferð úti á landi
og hringdi heim til að vita hvernig fjöl-
skyldan hefði það. Litli sonur hans
svaraði I símann:
„Jú, jú, við höfum það f int. Sótarinn var
hér fyrr í dag og nú er mamma í baði!"
☆ ☆☆
Tommi: Þú lofaöir mér að fara með mér
og sýna mér apana í dag, mamma.
Mamma: Elsku Tommi minn, hvernig
getur þú leyft þér að langa til að fara að
skoða apa, þegar hún amma þín er í
heimsókn?
☆ ☆ ☆
Frissi litli kom æðandi inn og hrópaði:
- Mamma, mamma! Ég fann skeifu!
- Veistu hvað það þýðir, góði minn?
spurði mamman.
- Já, það þýðir, að einhver hestur
gengur á sokkaleistunum út um allan
bæ...!
☆ ☆ ☆
Pabbi var að spyrja Báru hvernig henni
hefði gengið í prófunum.
- Áttir þú í nokkrum vandræðum með
spurningarnar? spurði hann.
- Nei, það var allt í lagi með spurning-
arnar, en það voru svörin sem vöfðust
fyrirmér...!
☆ ☆☆
Lítill drengur kom hlaupandi inn f
myndavélaverslun.
„Það er mannýgt naut að elta bróður
minn,“ stundi hann upp lafmóður.
„Hvað get ég gert að því?“ spurði af-
greiðslustúlkan.
„Settu nýja filmu í myndavélina mína.“
☆ ☆☆
„Hvað er þetta Palli minn, kemurðu
aftur með peningana. Keyptirðu ekki
frfmerkið?"
„Nei, nei mamma. Ég laumaði bréfinu
bara í póstkassann fyrir utan.“
☆ ☆☆
- Veiddir þú þennan stóra fisk alveg
ein, stúlka mín?
- Nei, nei, dálftill ormur hjálpaði
mér...
Ljósmyndir Hallgríms Einarssonar
Akureyri í upphafi nýrrar aldar
[ þá daga hétu verslanir á Akureyri stórum nöfnum eins og Hamborg, París og Berlín. ( dag segja
margir að KEA merkið sé einkenni Akureyrar. En þó að verslanirnar hafi skipt um nöfn og liðin séu rúm
50 ár síðan Hallgrímur Einarsson tók þessa Ijósmynd, þekkjum við flest, ef ekki öll, myndefnið: Horn
Kaupvangsstrætis og Hafnarstrætis. Þessi mynd, sem tekin er ágrunni hótel KEA1931, erfurðu lík
því sem sjá má enn þann dag í dag á KEA horninu.
Myndin er aðeins eitt
sýnishorn af fjölmörgum
Akureyrarmyndum í bókinni
Akureyri 1895-1930, bókinni
þar sem höfuðstaður
Norðurlands birtist í myndum
á hverri síðu. Saga Akureyrar
er skýrt dregin í listafallegum
Ijósmyndum Hallgríms
Einarssonar, Ijósmyndara.
Myndaperlur Hallgríms eiga
erindi inn á hvert heimili, þar
sem menn unna fögru
handverki -fallegum myndum
- góðri bók - og sögu
forfeðranna, fólksins sem lagði
grunn að velferð okkar í dag.
BÓKAÚTGÁFAN HAGALL Bárugötu 11, Reykjavík sími 17450.
ÞAÐ ER í ÞÁGU ÞJÓÐAR AÐ TAKA Á MEÐIÐNAÐINUM
Dúkrista eftir G. Armann „Afl þeirra hluta sem gera skal".
Myndin Ketilhúsið er úr myndröðinni „Maður og maskína", sem unnin var í góðri samvinnu við starfsmenn Sambandsverksmiðjanna.
Óshum starfsfólhi okkar og viðskiptauinum
GLEÐILEGRA JÓLA
og farsældar á nýju ári.
Þökkum samstarfið á árinu, sem er að líða.
IÐNAÐARDEILD SAMBANDSINS
47. desember 1982 - DAGUR -21