Dagur - 07.01.1983, Side 11

Dagur - 07.01.1983, Side 11
HVAÐERAÐ GERAST? Fj ölskyldu- skemmtun Fjölbreytt og skemmtileg sýning í Klettagerði Sýningu fjórtán lista- manna í Klettagerði 6 á Akureyri, sem staðið hefur síðan fyrir jól, lýkur nú um helgina. Hún verður opin á laug- ardag og sunnudag kl. 15-22 báða dagana. Sýningin er ákaflega fjölbreytt. Flestir sýnend- ur eru frá Akureyri, en auk þess sýnir Elías B. Halldórsson frá Sauðár- króki og einnig má segja að Manúela Wiesler, flautuleikari, taki þátt í henni, en nýútkomnar fjórar plötur hennar eru sýndar og fást í Kletta- gerði og ekki annars stað- ar á Akureyri. Aðrir þeir sem taka þátt í sýningunni eru Aðalsteinn Vestmann, Alice Sigurðsson, Guð- mundur Ármann, Guð- mundur Oddur Magnús- son, Guðbrandur Sig- laugsson, Haraldur Ingi Haraldsson, Óli G. Jó- hannsson, Ólafur Torfa- son, Páll Sólnes, Ragnar Lár, Sigurður Aðalsteins- son og Örn Ingi. Á sýningunni eru olíu- myndir, vatnslitamyndir pastelmyndir og teikning- ar, tréskúlptúr, grafík og grafíkmöppur, kort og eftirprentanir, bækur og hljómplötur. Hjá mörg- um þessara höfunda er um nýjungar að ræða í listsköpun. Sýningin hefur hlotið mjög lofsverða dóma þeirra sem hana hafa séð og er fólk hvatt til að fara og létta sér upp í svartasta skammdeginu með því að sjá sýninguna. Full starfsemi að hefj ast Hlíðarfjall verður opið lyfturnar opnaðar J.vö j -<V>- y ^ /> • -g -g # Hlíðarfjall verður opið um helgina og senn má fara að búast við því að Akureyringar taki að flykkjast í fjallið sér til ánægju og heilsubótar. Veitingasalan í hótelinu verður opnuð í fyrsta skipti á vetrinum um helgina. Lyftur og hótelið verður opið frá klukkan 10-17. Að sögn ívars Sig- mundssonar, forstöðu- manns Skíðastaða, er skíðafæri ekki gott í fjallinu í augnablikinu (á fimmtudag) en strax og einhver snjór kemur má búast við að það lagist. Á hótelinu er hægt að kaupa kaffi, kakó og brauðmeðlæti, auk goss og sælgætis. í næstu viku verða lyfturnar opnaðar tvö kvöld í viku, á þriðju dögum og fimmtudög- um. Verða þær opnar til kl. 22 og þannig áfram fram eftir vetri. Skíðalyfturnar tvær sem pantaðar voru fyrir Hlíðarfjall liggja nú á hafnarbakkanum á Ak- ureyri og bíða þess að verða leystar út en pen- inga vantar til þess. Lyfturnar kosta um 300 þúsund krónur, en ívar sagðist ekki gera ráð fyrir að kostnaður yrði mikill við að setja þær upp. Starfsmenn fjalls- ins myndu annast það og ætti það verk ekki að taka nema 2-3 daga. ívar sagði að lyfturnar yrðu settar upp í Hóla- braut, en lyftan sem þar var hefur nú verið tekin niður, enda forngripur hinn mesti. Hugsanlegt er að önnur nýja lyftan verði færð upp í Hjalla- braut þegar líður á vet- urinn. Hvor lyftan um sig flytur um 700 manns á klukkustund. KAí íþrótta- höllinni KA-menn á Akureyri fagna 55 ára afmæli fé- lagsins, sem er á morgun, með miklum hátíðahöldum. Fjöl- skylduskemmtun verð- ur í íþróttahöllinni um eftirmiðdaginn og um kvöldið verður afmælis- og árshátíð í Sjallanum. Fjölskylduskemmtunin í íþróttahöllinni hefst kl. 14 og þar eru ýmsar íþróttir á dagskrá. Auk þess verður brugðið á leik og hið „heimsfræga“ stjörnulið Ómars Ragn- arssonar, sem skipað er landsþekktum köppum og grínurum, leikur þar gegn úrvalsliði. Pá verður einnig bingó og fleira og fleira og fleira eins og segir f auglýsingu KA um skemmtunina. Þessi mynd er eftir Sigurð Aðalsteinsson og er gerð nyrst á Grænlandi. /T' 7. járiúár 1983 - DAGUR -11

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.