Dagur - 18.03.1983, Qupperneq 12
Bswa
Degi
áiiö 1948
Bærinn verslar
1. febrúar. Á bæjarstjórnarfundinum sl. þriðjudag var
samþykkt álit veganefndar, í tilefni erindis Bilstjórafélags
Akureyrar, þess efnis að bærinn kaupi veghefil og jarðýtu,
svo framarlega að takast megi að útvega þessi tæki.
Færeyingar með forgang
22. febrúar. Síðustu fregnir herma að ríkisstjórnin geri
sig líklega til að veita færeysku skipunum 63 sem hún hef-
ur tekið á leigu forgang að fisktöku umfram íslensk skip.
Útgerðarmenn um allt land eru að undirbúa samtök um að
tilkynna ríkisstjórninni að láti hún ekki af þessari stefnu
verði skipshafnir íslensku skipanna afskráðar og skipun-
um lagt upp. Rílcisstjórnin beið sinn fyrsta ósigur í þinginu
nýlega varðandi þetta mál. Færeyski samningurinn var
lagður fyrir þingið til samþykktar og óskaði ríkisstjórnin
skjótrar afgreiðslu, ennfremur að málið yrði ekki sett í
nefnd. Þessu var ekki sinnt og fór málið til aUsherjar-
nefndar...
„Jerúsalem“ brann
8. mars. Laust eftir kl. 9 sl. mánudagsmorgun varð eldur
laus í húsinu Hafnarstræti 93 hér í bænum sem í daglegu
tali er nefnt „Jerúsalem". Þetta er stórt timburhús, þrjár
hæðir á kjaUara og áfast við verslunarhús KEA að sunnan
og Hótel Goðafoss að norðan . . . Á rishæð bjó frú Jórunn
Bjarnadóttir ijósmóðir og sonur hennar. Ennfremur var
þar tU húsa sængurkona og nýfætt barn hennar. Fólkið
bjargaðist nauðulega út á þak hússins en innbú allt
brann . . .
Þjóðverjar handteknir
9. mai. í siðustu viku bar það tU tíðinda í Leirhöfn í N.-
Þingeyjarsýslu að þýsk Junkersflugvél nauðlenti þar.
Áhöfnin, 4 menn, var tekin tU fanga og afhent hernaðaryf-
ix-völdum. í fréttatUkynningu frá hemum segir að fangarn-
ir séu aUt ungir menn í þýska flughernum, þrír þýskir og
einn austurrískur. Þeir fóru frá flugstöð í N.-Noregi og áttu
að gera veðurathuganir á svæðinu Jan Mayen tU íslands.
VélarbUun varð þess valdandi að þeir lentu hér.
Var mosi á þeim?
28. júní. Síðastliðinn þriðjudag komu þingeysku bænd-
urnir heim úr ógleymanlegri för tU Suðurlands. Ekkert hef-
ur heyrst um það hingað norður hvort Reykvíkingarnir
hafi séð á þeim mosa og fiður, hvað sem seinna verður.
Jón bóndi á Einarsstöðum í Reykjahverfi (ekki Haralds-
son) skrifar skemmtUega vitlausa grein í „Þingey" þar
sem hann segir að samvinnumenn hór i héraði séu búnir
að snúa við boðorðum Sigurðar á Felli og afneita sannleik-
anum. En samtímis reka flokksbræður hans á Siglufirði 70
manns úr Kaupfólagi Siglfirðinga. Það telur að Jón sé ekki
til að snúa við boðorðum Sigurðar á Felli.
Skothríð í Vaglaskógi
2. ágúst. Samkvæmt upplýsingum sem blaðið hefur frá
lögreglunni hefur verið óvenju mUcið um ölvun í bænum að
undanförnu. Hefur lögreglax\ tekið óvenju marga úr
umferð, aðallega aðkomumenn. Þá hefur borið talsvert á
óvarlegri og gálausri meðferð skotvopna og er ekki ólík-
legt að ölvaðir menn hafi verið þar að verki. Fyrir nokkru
var haldið uppi skothríð í Vaglaskógi innan um tjöldin á
tjaldstæðinu í skóginura. Slíkt er vitanlega stórhættulegt
athæfi og auk þess algjörlega bannað að fara með skot-
vopn í skóginn . . .
Smiðjan um helgina:
Graham Smith og Jónas Þórir skemmta í Smiðju
föstudags-, iaugardags- og sunnudagskvöld.
Einnig kl. 15-17 á sunnudag á fjölskylduskemmtun
og verðurþar boðið upp á kaffihlaðborð.
Haukur Steinbergsson (t.v.) og Valgeir Stefánsson með „Glaðning“ árgerð 1982 og ekki verður blaðið í ár síðra.
Mynd: ESE
Glaðníngur“ frá
Þelamerkurskóla
9?
Nýlega litu við hér á ritstjórn Dags tveir ungir piltar
úr Þelamerkurskóla. Þeir voru hér þeirra erinda að
safna auglýsingum fyrir skólablaðið „Glaðningur“ í
Þelamerkurskóla og vitaskuld keypti Dagur styrkt-
arlínu í blaðinu.
Þeir Haukur Steinbergsson og
Valgeir Stefánsson, en það heita
piltarnir, sögðu í samtali við
Dag að skólablaðið kæmi alltaf
út nokkru fyrir árshátíð skólans
sem að þessu sinni verður haldin
24.-25. mars nk. Blaðið er selt á
árshátíðinni en auk þess fer
„glaðningurinn" í fjóra nær-
liggjandi hreppa og eitthvað fer
svo í nágrannabyggðarlögin, út í
Hrísey og á Ákureyri. Verð
blaðsins sögðu þeir Haukur og
mZP , #
Kídlhili?
Valgeir líklega myndu verða
u.þ.b. 70 krónur.
- Það hefur bara gengið vel
að safna auglýsingunum og okk-
ur hefur nær undantekningar-
laust verið tekið mjög vel í þeim
fyrirtækjum sem við höfum leit-
að til, sögðu félagarnir, en sam-
kvæmt upplýsingum þeirra kost-
ar styrktarlínan í blaðinu 400
krónur en auglýsingin kostar500
krónur.
Ekki vissu þeir Haukur og
Valgeir hvað blaðaútgáfan
myndi kosta í ár og engin rekstr-
ar- eða útgáfuáætlun hafði verið
gefin út. Þeir voru þó ekki í vafa
um að auglýsingatekjurnar og
söluhagnaðurinn af blaðinu
myndu skila tekjum í ferðasjóð
nemenda. „Glaðningur" er þó
ekkert smáblað og blaðið í fyrra
mun hafa verið um 70 síður.
Ljósritun fer fram í Þelamerkur-
skóla en einn kennaranna hefur
verið ritnefndinni innan handar
og leiðbeint þeim við gerð
blaðsins.
- Við reyndum einu sinni að
láta offsetprenta blaðið en það
var allt of dýrt, sögðu þeir Hauk-
ur og Valgeir að lokum.
L
l.á
ÍSQií
3
micKi
Sænsku furuhúsgögnin
komin aftur.
Póstsendum.