Dagur - 14.04.1983, Side 1
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREVRI
66. árgangur
Akureyri, fímmtudagur 14. aprfl 1983
41. tölublað
Rússnesk
rækja til
K. Jónssonar
Síðustu daga hefur verið unnið
að uppskipun á rækju úr Bar-
entshafi sem rússneskt flutn-
ingaskip kom með til Ak-
ureyrar. K. Jónsson og co. fær
um 500 tonn og tæplega 100
tonn fara til Sigló-sfldar.
Að sögn Kristjáns Jónssonar
hjá K. Jónssyni og co. eru kaupin á
þessari rækju tilkomin vegna þess
að ekki fæst nægilega mikið af
ópillaðri íslenskri rækju en pilluð
rækja er of dýr fyrir vinnsluna.
Óheimilt er að flytja ópillaða
rækju milli staða innanlands og
því er lítið framboð á íslenskri
rækju nema á sumrin.
í fyrra keypti K. Jónsson og co.
um 1200 tonn af rækju af Rússum
og um 200 tonn af íslenskri rækju.
Flugleiða-
vélí
vand-
ræðum
Þegar ein af Fokkervélum
Flugleiða var að búa sig til lend-
ingar á Akureyrarflugvelli á
þriðjudagskvöldið kviknaði
ekki Ijós það sem sýna á að nef-
hjólið hafi læst í lendingar-
stöðu. Sneri flugvélin frá og
lenti á Keflavíkurflugvelli.
Gekk sú lending að óskum.
Farþegar komust hins vegar ekki
norður fyrr en í gærmorgun og
sama var að segja um þá sem
þurftu að komast suður á þriðju-
dagskvöldið og voru mættir út á
flugvöll. Hótel Varðborg hýsti þá
sem t.d. voru komnirfrá Þórshöfn
en ætluðu að taka vél Flugleiða til
Reykjavíkur. Samtals voru far-
þegar í um 2 og hálfan tíma á
flugi.
Óvenjulegir farþegar á Akureyrarflugvelli:
Um 1100 minkalæður
á leið í Skagaf jörðinn
í gær lenti farþegaþota á Akur-
eyrarflugvelli og er óhætt að
segja að farþegar hennar hafi
bæði verið óvenjumargir að
þessu sinni og öðruvísi en þeir
farþegar sem að öllu jafnaði
ferðast með þotum. Hér var
nefnilega um að ræða 1100
hvolpafullar minkalæður frá
Danmörku sem fara áttu til
Sauðárkróks og til Hóla í
Hjaltadal og einnig minka sem
fara áttu á Homafjörð og
Suðuriand, samtals tæplega 2
þúsund minkar.
Eins og skýrt hefur verið frá
hefur verið sýking í íslenska
minkastofninum og má segja að
þessi sending sem kom til Akur-
eyrar í gær sé fyrsta skrefið í því
að skipta um stofn, auk þess sem
hér er um viðbót að ræða.
Öllum minkum hjá Loðfeldi á
Sauðárkróki var lógað sl. haust,
og síðan hefur verið unnið að sótt-
hreinsun í búinu. Minkarækt hef-
ur hinsvegar ekki verið að Hólum
í Hjaltadal til þessa, en þar er
áformað að hefja refarækt einnig.
Þessar 1100 minkalæður sem
voru fluttar landleiðis frá Akur-
eyri í gær til Skagafjarðar eru úr
ósýktum stofni og vonast menn til
að þegar skipt hefur verið um
stofn hérlendis séu vandamál þau
er hrjáð hafa minkaræktina vegna
sýkingar úr sögunni.
Ekki gekk ferðalag minkanna alveg snurðulaust fyrir sig, því a.m.k. þrír þeirra sluppu úr búrum sínum á leiðinni og viðbúnaður var til að handsama fleiri ef
Ijós kæmi að þeir væru lausir eftir að Flugleiðavélin var opnuð. Mynd: H.S
Sparnaðaraðgerðir hjá Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á Akureyri
„Það má eiginlega segja að við
séum að fara úr 105% nýtingu í
85% eða þar um bil, eða með
öðrum orðum að gera þetta lík-
ara því sem er á öðrum sjúkra-
húsum og spara um Ieið. Við
rýmkum á stofunum þannig að
vinnan þar verður auðveldari
og minna af aukavöktum. Við
munum í minna mæli leggja þá
sjúklinga inn sem aðeins eru til
rannsóknar og veita meiri helg-
arleyfi þannig að hægt verði
að fækka sjúklingum. Þá verð-
ur reynt að draga úr starf-
seminni yfir sumartímann.
Okkur var gert að fækka starfs-
liði um liðlega 20 manns en í
raun verður ekki um fækkun að
ræða heldur tilfærslu vegna
nýrra deilda, m.a. öldrunar-
deildarinnar í Systraseli sem
verður flutt í á mogun,“ sagði
Ásgeir Höskuldsson, fram-
kvæmdastjóri FSA í við-
tali við Dag í gær, en breyting
frá daggjaldakerfi yfir í að
rekstur sjúkrahússins sé fjár-
magnaður með fé af fjárlögum
þýðir að beita verður sparnaði
til þess að endar nái saman í
rekstrinum.
Eins og fram kom í máli Ás-
geirs verður ekki um raunveru-
lega fækkun starfsliðs að ræða,
heldur færri ráðningar vegna
nýrra deilda sjúkrahússins. Fjár-
lög gera ráð fyrir því að framlög til
að greiða fyrir stöður sem ráðu-
neytið hefur viðurkennt verði
verðbætt, en ekki greiðslur vegna
annars starfsfólks. Ef samið er um
önnur laun en almennt gerist hjá
rikinu verður FSA einnig að
greiða það sjálft. Annar reksturs-
kostnaður, sem er um 28% af
heildarrekstrarkostnaði sjúkra-
hússins, verður verðbættur með
42% burtséð frá verðlagsþróun-
inni, en þetta eru forsendur fjár-
laganna.
Verði hins vegar verð-
bólgan meiri, sem allt útlit er
fyrir, verður FSA að taka á sig
kostnaðinn, bærinn að köma til
hjálpar eða ríkið að veita auka-
fjárveitingu. Ásgeir sagði að þetta
myndi koma í ljós í sumar. Upp-
hæð til stofnkostnaðar, tækja-
kaupa og viðhalds er föst tala og
hún var aðeins fjórðungur þess
sem farið var fram á.
Ekki á að þurfa að verða um
fækkun á legudögum að ræða
þrátt fyrir spamaðinn vegna þeirr-
ar aukningar sem varð á rekstri
sjúkrahússins í fyrra og verður
með tilkomu Systrasels. Ásgeir
sagði að viss óánægja væri með
þetta meðal sumra starfsmanna,
en flestir hefðu skilning á þessum
vanda og reyndu að hjálpa til við
að leysa hann.