Dagur - 03.06.1983, Blaðsíða 3

Dagur - 03.06.1983, Blaðsíða 3
> jeppinn . . . . . . og upp kemst jeppinn og Halldór líka. fyrirfram. Bergþór ók léttilega upp en síðar kom í ljós að hann hafði fellt hlið og missti því 15 stig af þeim 300 sem hæst var gefið fyrir hverja torfæru. Halldór ók eins og sá sem valdið hefur og nú komu þeir rauðu í hans hlut. Torfæra 7: Fyrir tímabrautina stóð Halldór best að vígi en Bergþór kom skammt á eftir. Berþór ók hringinn eins og hann væri með „Halldór“ á hælunum og náði besta tímanum og varð þar með öðrum 3000 krónum ríkari. Það dugði þó ekki til efsta sætisins því að Halldór varð annar og tapaði aðeins 20 stigum til Bergþórs. Guðmundur Gunn- arsson var einnig með í þessari torfæru og ók greitt. Sérstaklega gerði hann sér dælt við vatnstor- færuna og um leið og hann hvarf undir vatnsskorpuna sagði einn áhorfenda „Þá stundi Dundi“ og nærstaddur bætti við „á sundi". Úrslit: Halldór Jóhannesson, 1815 stig, Bergþór Guðjónsson 1795 stig, en aðrir fengu mun minna. Sigurður Vilhjálmsson varð þriðji og fékk eins og þeir Halldór og Bergþór, bikar fyrir frammistöðuna. Þá fékk Bergþór einnig fagran skjöld fyrir mestu tilþrifin í keppninni. Eftir þessa fyrstu torfæru- keppni sumarsins, sem gefur stig til íslandsmeistaratitils, er staðan þannig að Halldór Jóhannesson er með 4 stig, Bergþór Guðjóns- son 3 stig, Sigurður Vilhjálmlsson 2 stig og Guðmundur Gunnars- son er með 1 stig. Næsta torfærukeppni verður í nágrenni Hellu en þar ætti Bergþór, sem er úr Fljótshlíð- inni, að vera á nokkurs konar heimavelli. Halldór Jóhannesson fylgist með helsta keppinaut sínum í torfærunum og áhyggjusvipurinn leynir sér ekki. „Ég er mjög óhress vægast sagt,“ sagði Björn Árnason þjálfari Þórs eftir að lið hans hafði gert jafntefli við ísafjörð 1:1 á Þórsvelli í fyrrakvöld, í 1. deild íslandsmótsins í knatt- spyrnu. „Ég er aðallega óánægður með að menn skuli ekki hafa kraft í sér til þess að rífa sig upp í bar- áttu. Ef við ætlum ekki að halda áfram að veltast um í þessum miðlungs „standard" þá verður það að gerast. Það þýðir ekkert að tala sífellt um það að við séum að koma upp í 1. deild og annað slíkt. Við vinnum enga leiki án þess að berjast fyrir því.“ - Það var greinilega þungt í Birni, enda eru lið eins og IBÍ, lið sem þarf að sigra á heimavelli. Stigin í innbyrðis viðureignum þeirra liða sem álitin eru þau sem koma til með að skipa neðri helming deildarinnar er upp verður staðið skipta að.sjálfsögðu mjög mikli máli. Við spurðum Björn um álit hans á ísafjarðar- liðinu. „Það er vont fyrir mig að dæma það eftir þesum eina leik. Annars voru þeir ósannfærandi og þungir og komu hingað greinilega í þeim tilgangi að sækja annað stigið og það tókst hjá þeim, því miður.“ Þórsarar náðu aldrei upp þeirri baráttu og spili sem þarf til þess að vinna lið eins og IBÍ, lið sem leikur með 10 menn í vörn og einu sóknaraðgerðirnar eru fólgnar í því að sparka löngum sendingum fram á „hlaupatíkina“ Jón Oddsson. Á móti svona varn- argarði þarf hreyfingu og að láta Brotið var á Bjarna Sveinbjörns- syni inn í vítateig og vítaspyrna dæmd. Úr henni skoraði Guðjón Guðmundsson af öryggi og hann hefði átt að fá aðra vítaspyrnu er einn fjölmargra varnarmanna ÍBÍ handlék boltann inn í víta- teig, en þá guggnaði Guðmundur Haraldsson dómari. - Leikurinn fór að langmestu leyti fram á vall- arhelmingi ísfirðinga en uppskera Þórsara var rýr gegn hinum fjöl- menna varnarvegg enda lítið hugmyndaflug í sóknaraðgerðum liðsins. Rétt fyrir leikslok var Einar Arason, bakvörður Þórs, borinn meðvitundarlaus af velli með ljótt sár á höfðinu, en Einar hafði verið besti maður Þórs í leiknum og sýnt þá baráttu sem þarf. Um- sögn um frammistöðu annarra leikmanna myndi varla vekja neinn fögnuð hjá þeim. gk - „Svona, hafðu þetta vinur!“ myndinni“. - Jónas Róbertsson með boltann á hnakkanum sparkar einum Isfirðingnum „upp úr Mynd: KGA boltann vinna vel, en Þórsarar náðu sér aldrei upp úr meðal- mennskunni. ísfirðingar skoruðu fyrra mark leiksins á 51. mínútu. Þeir fengu aukaspyrnu á miðjum velli út við hliðarlínu, sendu boltann inn í vítateig og þar hafði Guðmund- ur Jóhannsson næði til að athafna sig og nikka boltanum með höfð- inu aftur fyrir sig og í netið. Þórsarar jöfnuðu rétt á eftir. „Við vinnum enga leiki án þess að berjast fyrir því“ Þá hefur þjúöin fengiö stariliæfa meirihlutastjórn og alit bendir þvt' til þess að við sleppum með skrekkinn og Fyrsti Júní sé hættur við að taka okkur. Þessu fagna auðvítað allir þv( Fvrsti Júní var að verða verri en versti óvinur okkar. Verðbólgan vonda. Annað mál er þaö að gleðin er ekki ein við völd. Sumum finnst að þetta hljótí að vera vond stjórn og aðgerðir hennar enn verri. en aðrir blessa stjórnina og kyssa á vöndinn undir kjörorðinu: „Eitthvað verður að gera". Vafalaust eru skoðanir á ríkis- stjórninni jafn margar og mennirnir eru margir en hvað 'sem því liður snýst þetta allt saman orðið um eina spurningu: Fara heimilin á hausinn eða ekki? Það kemur væntanlega í Ijós en varla er hægt að segja að ríkisstjórnin fát „fijúgandi start" hjá þjóðinni þegar ailt virðist sitja við það satna og hækkanaholsketlan kaffærir þessi 8% sem flestir laun- þegar finna drukknuð í launa- umslaginu stnu - margir ekki fyrr en utn næstu mánaðamót. Venjulegu' fólki finnst það líka skjóta skök.ku við að það skuli æxlast þannig að það lendi á einuni stærsta víninntlytj- anda landsins. núverandi fjárroála-' ráðherra. að hækka áfengi og tóbak eftir aðeins nokkra daga í embætti. Auðvitað á ekki að skipta ntáli hver það er sem hækkar eða lækkar verð á hlutunum en samt sem áður þarf enginn að búast viö þvi að almenn- ingur vandi heiidsölunum, stórgróss- erunuttt og •kommissörunum kveðj- urnat þegar seilast á í buddur þegn- anna. Sú spurning hlytur að vaktta hvort þessir menn séu yfirleitt dóm- bærir á það hvað aimennir launam- enn og venjuleg heimili þola? Von- andi eru þeir það og vonandi verður tekið á efnahagsmálunum nteð það mikilli skynsemi að þjóöin geti stað- ið einhuga að baki aðgerðanna. Bregðist sú von þá er illt í efni og svo cr víst búið að byggja á Jótlands- heiðum og takmarka innflutning til Ástralíu. Fótbultinn En það er fleira sem rúllar en ríkis- stjórnin og pólitíkin. Knattspyrnu- vertíðin er hafin og vonandi á bolt- inn eftir aó þenja netmöskvana sem oftast í suntar vitt og breitt um landið. Fyrsti landsleikurinn er að baki og þrátt fyrir að við sterka knattspyrnuþjóð væri að etja finnst mörgum sem landsliðið hafi fallið á þessu prófi. Vissulega var landsliðs- þjálfaranum vandi á höndum þegar hann valdi landsliðið en að vandinn væri svo mikill að það þvrfti að vclja fjóra leikmenn úr annarri deild óraði rnig ekki fyrir. M.a. voru tveir FH- ingar í liðinu, þeir Janus Guðlaugs- son og Viðar Halldórsson, en þeir eru gott dæmi um leikmenn sent eru á æviráðningarsamningi landsliösins. (Það rná geta þess að sama kvöld og þctta er ritað vann Vðlsungur FH á útivelji og flest bendir til þess að FH verði með miðlungslið í sumar). Til allrar blessunar voru þeir Marteinn Gcirsson og Trausti Haraldsson (lúl- egustu leikmenn landsliðsins í fyrra) ekki í leikhæfu ástandi nú. því ef svo hefði verið þá hefði 2. deildar lið Frarn átt þrjá af sex 2. deildarleik- mönnum í landsliðshópnum. Það má e.t.v. segja að þctta séu nokkuð þung orð cn ástæðan fyrir því að á þetta er minnst er sú að það virðist sem svo að oftar sé erfiðara að komast úr landsliðinu í knatt- spvrnu en i það. Forn frægð virðist fleyta mönnum ótrúlega langt - en því miöur er árangurinn ekki í sam- ræmi við það. Hér var minnst á Fram sem dæmi en það lið er ekkert eins- dæmi. Fallkandidatar Breiðabliks sem nú eru víst íarnir að leika „kick and ruir knattspyrnu áttu sex leik- menn í þeim tveim landsiiðshópum sem teflt var fram gegn Spánverjum á dögunum. Er tiokkur furða að manni blöskri? Og er ekki kominn tími til að gefa fleiri efnilegum leik- mónnum tækifæri og hvíla gömlu brýnin? Eiríkur St. Etríkxson. blaðamaður. 3. júní 1983- DAGUR-3

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.