Dagur - 03.06.1983, Side 5
Einar Njálsson, form. Bandalags ísl. leikfélaga.
gert mikið að því að fara í leik-
ferðir til Norðurlanda?
„Já, þau hafa farið í margar
slíkar leikferðir. í fyrra fóru t.d.
tvö leikfélög utan, Saga á Akur-
eyri og Litli leikklúbburinn á ísa-
firði. Leikfélag Húsavíkur hefur
fjórum sinnum farið og sótt heim
Svíþjóð, Finnland og Danmörk
og jafnoft fengið heimsóknir frá
þessum löndum.“
- Er eitthvert sérstakt málefni
sem mun einkenna þessa ráð-
stefnu?
„Á þessum ráðstefnum höfum
við einbeitt okkur að einhverju
ákveðnu máli hverju sinni. Núna
, ætlum við að vekja athygli áhuga-
leikara á því að í okkar norrænu
goðafræði og samnorrænu menn-
ingararfleifð er óþrjótandi upp-
spretta fyrir leikhúsið eða eins og
við segjum á skandinavisku:
„Nordisk kultur som inspirations
kilde til nutidens teater“. Prír
menn flytja erindi á ráðstefnunni
og leiðbeina: Danski leikritahöf-
undurinn, leikstjórinn og mynd-
listamaðurinn, Henning Nielsen,
Böðvar Guðmundsson, skáld og
leikritahöfundur og Hjálmar
Árnason, kennari."
- Að lokum Einar. Hafa við-
fangsefni íslenskra áhugaleikfé-
laga breyst eitthvað á undanförn-
um árum?
„Já, ég tel að veruleg þróun hafi
orðið í átt til bætts verkefnavals á
undanförnum árum. Það ber allt-
af meira og meira á góðum við-
fangsefnum, jafnvel nýstárlegum
viðfangsefnum. Sem dæmi um
slíka nýjung má nefna leikritið
„Ur alda annál“ sem Böðvar
Guðmundsson skrifaði fyrir Litla
leikklúbbinn á ísafirði og sýnt var
á Listahátíð í fyrra. En auðvitað
er ekki því að neita að fjárhagur-
inn sníður leikfélögunum æði
þröngan stakk. Þess vegna grípa
þau enn til þess ráðs að sýna létta
gamanleiki til að geta fjármagnað
alvarlegri viðfangsefni."
-ÞB
Kristján dansaði brúðarvalsinn við Dorriét í Smiðjunni um kvöldið.
Svipmyndir
frá
brúðkaupi
Kristjáns
Jóhannssonar
°g.
Dorriét
Kavanna
^ Sumarblóm
Pottablóm
Fjölær blóm
og svalarkerin vinsælu.
Einnig matjurtir, gúrku- og tómatplöntur.
Sendum á alla staði utan Akureyrar.
Opið er alla daga. Síminn er 31129.
Garðyrkjustöðin Laugarbrekka.
Vm. ——*
Að gefnu tilefni
skal tekið fram að óheimilt er að sleppa hrossum
á afréttir í Saurbæjarhreppi fyrr en eftir 15. júní.
Oddvitinn.
Melgerðismelar
Forskoðun hrossa vegna fjórð-
ungsmótsins verður laugardag-
inn 4. júní.
Stóðhestar kl. 9.00.
Afkvæmahryssur kl. 10.30.
Hryssur 4ra vetra kl. 11.00.
Hryssur 5 vetra kl. 13.00.
Hryssur 6 vetra og eldri kl. 14.30.
Búnaðarsamband Eyjafjarðar.
Sumardvalarheimili
að Skúlagarði
Dagana 12.-25. júní verður starfrækt sumardvalar-
heimili fyrir telpur á aldrinum 6-7 ára að Skúlagarði,
Kelduhverfi. Þeir sem hafa áhuga hafi samband sem
fyrst við Báru Snorradóttur, Skúlagarði, í síma 96-
41111, sem veitir nánari upplýsingar.
Alþýðuflokksfólk
Akureyri
Fundur verður haldinn laugardaginn 4. júní
kl. 14.00 að Strandgötu 9.
Gestir fundarins ver&a:
Árni Gunnarsson og
Karl Steinar Guðnason.
Stjórnirnar.
3; júní 1983 - DAGUR - 5