Dagur - 22.06.1983, Qupperneq 4
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SlMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 120 Á MÁNUÐI - LAUSASÖLUVERÐ 15 KR.
RITSTJÓRIOG ÁBYRGÐARM.: HERMANN SVEINBJORNSSON
FRÉTTASTJÓRI: GlSLI SIGURGEIRSSON
BLAÐAMENN: EIRlKUR ST. EIRlKSSON, GYLFI KRISTJÁNSSON,
ÓLAFUR JÓHANNSSON (SAUÐÁRKRÓKI) OG
ÞORKELL BJÖRNSSON (HÚSAVlK)
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: JÓHANNES MIKAELSSON
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Sjálfstæðisbaráttan
er ævarandi
Nú eru liðin 39 ár síðan við íslendingar öðluð-
umst fullt sjálfstæði og tókum öll mál lands
og þjóðar í eigin hendur. Fyrir okkur sem þjóð
er líklega ekkert eins mikilvægt og það að við
gerum okkur fulla grein fyrir hvernig til hefur
tekist á þessu tímabili, hvað áunnist hefur og
hvað miður hefur farið sem hægt væri að lag-
færa með sameiginlegu átaki.
Slíka úttekt er nauðsynlegt að gera öðru
hverju til þess að umræður um þjóðfélagsmál-
in séu meira byggðar á staðreyndum en verið
hefur um sinn. Uttekt sem byggð er á stað-
reyndum og sýnir hvernig þjóðfélagið hefur
þróast að undanförnu og er unnin þannig að
erfitt er að véfengja hana er sennilega áhrifa-
mesta leiðin til þess að draga úr áhrifum lýð-
skrumara sem vaða nú uppi og virðast hafa
ótrúleg áhrif á skoðanamyndun í landinu.
Ein mikilvæg ástæða fyrir þessari nauðsyn
er að meirihluti þeirra sem nú eiga setu á Al-
þingi muna ekki einu sinni viðreisnarárin,
hvað þá lengra aftur í tímann. Eins er um
ýmsa aðra ráðandi aðila hér og þar í þjóðfé-
laginu sem hafa því ekki yfirsýn um það sem
gerst hefur í landinu síðan við endurheimtum
sjálfstæði okkar og eru því ekki færir um
vegna eigin reynslu að meta hvað hefur verið
að gerast í þjóðfélaginu á þessum tíma.
Ég hygg að slík úttekt myndi sýna að fram-
kvæmdir og framfarir hafi orðið meiri hér á
landi en annars staðar á umræddu tímabili.
Hins vegar hafa fylgt þessum miklu breyting-
um ýmsir fylgikvillar sem þjóðin gerir sér
naumast nægilega grein fyrir og hafa staðið í
vegi fyrir að við næðum þeim árangri í efna-
hagslegu og siðferðislegu tilhti sem auðvelt
væri að ná ef skilningur og samstaða væri
fyrir hendi.
Það er t.d. athyglisverð staðreynd að meiri-
hluti íslendinga kaupir frekar erlendan varn-
ing en íslenskan þrátt fyrir sambærilegt verð
og gæði. Svo langt hefur þetta gengið að
sumir framleiðendur hafa gripið til þess ráðs
að senda framleiðslu sína á innlendan mark-
að merkta erlendum nöfnum með góðum ár-
angri. í nágrannalöndum okkar, ekki síst á
Norðurlöndum, er viðhorf almennings að
þessu leyti allt annað.
Þar ganga menn framhjá innfluttum vörum
þótt þær séu eitthvað ódýrari en innlend
framleiðsla. í þjóðarsálinni býr sú vitund að
eigin framleiðsla sé sú besta, sé eftirsóknar-
verðari vegna þess að það sé eitthvað sem
fólkið í landinu hefur skapað. Fólkið í þessum
löndum er stolt af sinni framleiðslu líkt og for-
eldrar af börnum sínum og tekur hana því
fram yfir allt annað. Er þetta ekki sú sjálf-
stæðiskennd sem okkur skortir mest nú og
leysa myndi ýmis vandamál sem þjóðin
stendur frammi fyrir? Ef þjóðin fengi sömu til-
finningu og trú á eigin framleiðslu og hún
hefur fyrir móðurmálinu myndi það sennilega
nægja til að tryggja efnahagslegt sjálfstæði
þjóðarinnar.
S.V.
Júlíus Snorrason ávarpar gesti við opnun „Sæluhússins“. - Eins og sjá má eru innréttingar hinar vönduðustu en þær
eru hannaðar af Davíð Haraldssyni.
- segir Júlíus Snorrason, sem rekur
veitingastaðinn „Sæluhúsið“ á Dalvík
þjónustu í sal, en í hádegi erum
við með „teríufyrirkomulag".
Við höfum sæti fyrir 60-70
manns.“
- Leigið þið út aðstöðu fyrir
einkasamkvæmi?
„Það hefur ekki komið til þess
ennþá og verður að koma í ljós
hvort það verður hægt. Ég geri
ekki ráð fyrir að það verði þægi-
legt að eiga við það í sumar en án
efa betra við að eiga þegar kemur
fram á haustið."
- Hvað olli því að þú fórst út í
að opna þennan stað, hefur þú
starfað við veitingarekstur áður?
„Ekki ég sjálfur, en konan mín
hefur fengist við þetta. En ástæð-
an fyrir því að við förum út í
þetta er sú að við erum hér með
150 fermetra húsnæði þar sem við
rákum áður skinnasaumastofu.
Það var brostinn allur grundvöll-
ur fyrir þeim rekstri og við vild-
um reyna að nýta húsnæðið.
Veitingahús eins og þetta hefur
vantað hér á Dalvík og við vild-
um láta reyna á það hvort ekki
væri grundvöllur fyrir svona fyrir-
tæki hér.“
- Er það ekki fjárfrekt að
koma svona stað á laggirnar?
„Jú, það er það. Við töldum að
það þýddi ekkert að bjóða upp á
svona stað nema hann gæti stað-
ist samanburð við aðra staði, eins
og t.d. á Akureyri, og þar af leið-
andi var þetta kostnaðarsamt.
Við vonum bara að Dalvíkingar
kunni að meta þetta framtak og
líti hér inn annað slagið,“ sagði
Júlíus að lokum.
Þess má að lokum geta að
Júlíus og kona hans, Aðalbjörg
Árnadóttir, hafa heimavist Dal-
víkurskóla á leigu í sumar. Þar
hafa þau gistirými fyrir 40 manns
í mjög rúmgóðum og skemmti-
legum herbergjum og bjóða einn-
ig upp á morgunverð.
Ekki er annað að sjá en að vel hafi faríð um gesti „Sæluhússins“ við opnun-
ina. Myndir: Rögnvaldur.
„Það er búið að vera opið hjá
okkur í rúmlega hálfan mánuð
og það hefur verið töluvert
rennsli, talsvert um að fólk
hafi komið og skoðað hvað hér
er á boðstólum,“ sagði Júlíus
Snorrason, sem opnaði 4. júní
sl. veitingahúsið „Sæluhúsið“
á Dalvík og er það eina veit-
ingahúsið þar í bæ.
„Við höfum aðeins séð bregða
fyrir fólki úr nágrannabæjunum
en ekki mikið ennþá. Enn hefur
þetta byggst upp hjá okkur á
heimafólki og svo vinnuhópum
sem hafa átt hér leið um. Við
opnum kl. 9 á morgnana og höf-
um opið til kl. 22 alla virka daga
og til 23 um helgar.“
- Einhverjar nýjungar sem þið
eruð með?
„Það má segja það, við vorum
með „dinnertónlist“ um síðustu
helgi og það er ekki útilokað að
við gerum eitthvað svipað í fram-
tíðinni ef aðstæður leyfa. Við
höfum auglýst þetta á Akureyri
og mér þykir ekki ósennilegt að
fólk þar hafi gaman af því að
renna hingað, það er stutt að fara
og hér er nýr staður með allar
veitingar og vínveitingar fyrir
matargesti.
Við erum með mjög gott
starfslið og höfum verið með
- ■
mmm ^
----- vw
Hvnmw
Stiítl
- -.'■t wir
HAfmnmn
t. uso*d m q
'■M.a *. lm
i
: $ . t f': * í <. i
f ff”,
hfi 1
mI 1 •
Júlíus Snorrason og Aðalbjörg Ámadóttir, eigendur „Sæluhússins“.
„Vona að Dalvíkingar
kunni að meta
þetta framtak“
4 - DAGUR - 22. júní 1983