Dagur - 22.06.1983, Page 9
GLÆSIMÖRK
— þegar t*ór og Valur skildu jöfn á Akureyrarvelli í gærkvöldi
- Það vantaði aðeins herslu-
muninn hjá okkur I þessum
leik. Við lékum vel í fyrri hálf-
leik og vorum betri aðilinn í
þeim síðari, en það má e.t.v.
segja að jafntefli hafí ekki ver-
ið svo ósanngjöm úrslit þrátt
fyrir allt, sagði Bjöm Árnason,
þjálfari Þórs eftir Ieik Þórs og
Vals í 1. deildarkeppninni í
gærkvöldi.
Áhorfendur fengu að sjá þrjú
glæsimörk í þessum fyrsta leik
1. deildar á Akureyrarvelli og það
var svo sannarlega leikið fyrir
áhorfendur fyrstu mínúturnar.
Fyrsta markið kom þegar á 3.
mínútu en þá fengu Þórsarar
dæmda hornspyrnu. Guðjón
Guðmundsson, besti maður vall-
arins hafði betur í baráttunni við
varnarmenn Vals og náði að
skalla boltann til Sigurðar Péturs-
sonar sem gaf sér góðan tíma fyrir
framan Valsmarkið og skoraði af
stuttu færi. Sigurður sem kom inn
í Þórsliðið fyrir Helga Bentsson
sem var í leikbanni var svo aftur
á ferðinni á 16. mínútu en þá
skaut hann lúmsku langskoti af
um 30 metra færi yfir Sigurð Har-
aldsson, markvörð sem hafði
hætt sér of framarlega. Sannar-
lega glæsilegt mark og staðan allt
í einu orðin 2:0 Þórsurum í vil.
Golfklúbbur Akureyrar:
2 mót um helgina
Tvö golfmót verða hjá Golf-
klúbbi Akureyrar um belgina.
Reyndar var ekkert mót á
dagskrá samkvæmt mótaskrá, en
þar sem fresta varð opna Sauðár-
króksmótinu vegna slæmra. vall-
arskilyrða voru tvö frestuð mót
sett á dagskrá.
Á laugardag verður Olíubikar-
inn á dagskrá, 18 holu höggleikur
og er hér um „uppstilingu" að
ræða, en það þýðir að keppend-
um verður síðan raðað upp eftir
árangri til þess að leika holu-
keppni með úrsláttarfyrirkomu-
lagi. Á sunnudag er svo 18 holu
drengjamót með forgjöf á
dagskrá.
Bikarleikir á Húsa-
vík og Ólafsfirði
I kvöld fæst úr því skoríð
hvaða tvö lið það verða úr
Norðurlandsriðli Bikarkeppni
Knattspyrnusambands íslands
sem komast í aðalkeppni 16
liða, en þá mæta liðin úr 1.
deild til keppni.
Stórleikur verður því á Húsa-
vík í kvöld þegar Völsungar fá
hina baráttuglöðu Siglfirðinga í
heimsókn til sín. Siglfirðingar
gerðu sér lítið fyrir og slógu KA
út í fyrstu umferðinni á Siglu-
firði, en þá unnu Völsungar lið
Vorboðans úr 4. deild.
Hinn leikurinn er á milli Leift-
urs og Tindastóls og fer hann
fram á Ólafsfirði. Á pappírnum
eru Tindastólsmenn sterkari en
Leifturs-liðið hefur bitið hressi-
lega frá sér í leikjum sínum í
sumar og skora mikið af
mörkum.
Jakob verður áfram hjá KA.
Þessi mörk Þórsara virtust
virka eins og köld vatnsgusa
framan í Valsmennina því að nú
hófu þeir að sækja af miklum
krafti og mínútu síðar höfðu þeir
minnkað muninn í eitt mark. Ingi
Björn Albertsson tók langt inn-
kast og eftir nokkra þvögu barst
boltinn út í teiginn til Gríms
Sæmundssonar sem skaut föstu
jarðskoti í stöng en þaðan fór
boltinn í bakið á Þorsteini Ólafs-
syni, markverði og í netið. Glæsi-
mark númer tvö var orðið stað-
reynd en lokaorðið í þessari
glæsimarkasyrpu átti svo marka-
kóngurinn Ingi Björn Alberts-
son. Þetta var á sjálfri markamín-
útunni (43. mín) en þá braust
Bergþór Magnússon upp kantinn
og sendi boltann beint á Inga
Björn sem hamraði knöttinn í
netið. Glæsilegt skallamark og
Þorsteinn fékk ekki rönd við
reist.
Síðari hálfleikur var ekki eins
fjörlega leikinn en Þórsarar voru
samt sem áður betri aðilinn.
Reyndar léku Valsmenn aðeins
tíu allan hálfleikinn þar sem fyrir-
liðanum Grími Sæmundssyni var
vikið af leikvelli þegar á 46. mín-
útu. Góður dómari leiksins Frið-
geir Hallgrímsson sýndi Grími
rauða spjaldið eftir að Grímur
hafði stöðvað Bjarna Svein-
björnsson á klaufalegan hátt með
handafli. Þrír leikmenn til við-
bótar fengu að sjá guia spjaldið,
þeir Sigurbjörn Viðarsson og Sig-
urður Pálsson hjá Þór og Hilmar
Sighvatsson hjá Val. Besta mark-
tækifæri hálfleiksins átti Guð-
mundur Þorbjörnsson, Val en
Þorsteinn varði hörkuskot hans í
slá og þaðan fór knötturinn aftur
fyrir endamörk.
- Það var blóðugt að ná ekki
báðum stigunum, sagði Guð-
mundur Sigurbjörnsson, formað-
ur knattspyrnudeildar Þórs eftir
leikinn. - Við sóttum án atláts en
gæfan brosti ekki við okkur að
þessu sinni. - ESE
Staðan
ÞÓR - VALUR KR - ÍBÍ ÍBV 7 3 2 2 13:6 2:2 0:0 8
UBK 7 3 2 2 6:4 8
KR 7 2 4 1 8:9 8
ÍA 6 3 12 7:3 7
Valur 7 3 13 12:14 7
ÍBÍ 7 2 3 2 7:9 7
Þór 7 14 2 8:9 6
Þróttur 7 2 2 3 8:12 6
Vík 6 13 2 5:7 5
ÍBK 5 2 0 3 7:8 4
Halldór Áskelsson þramar knettinum í átt a Valsmarkinu. Ingi Bjöm Albertsson sem skoraði sitt 103 mark í 1.
deildarkeppninni í leiknum er til vamar. Ingi Björa er nú markhæstur í 1. deild með 5 mörk. Mynd: KGA
„Jakob verður
áfram h|á KA
„Það er enginn uppgjafartónn
í okkur KA-mönnum og of
snemmt að afskrífa okkur,“
sagði Þorieifur Ananíasson,
leikmaður og fyrirliði KA í
handknattleik, er við ræddum
við hann. í síðustu viku sögð-
um við frá því að KA væri búið
að missa fimm leikmenn og
tveir til viðbótar færu hugsan-
lega og því væri erfítt framund-
an hjá KA í 1. deildinni.
„Auðvitað verður þetta erfitt
en við höfum séð það svart áður.
Það er afráðið að Jakob Jónsson
verði áfram hjá okkur þótt það
kosti hann hugsanlega sæti í ung-
lingalandsliðinu. Handknatt-
leikssambandið vinnur nefnilega
eftir „Esju-kenningunni“ en hún
er þannig að allt sé nothæft í
landslið sem er Reykjavíkurmeg-
in vði Esjuna, hitt má eiga sig.
En Jakob ætlar að vera hér og
hjálpa okkur í baráttunni.
Þá eigum við einnig von á yngri
leikmönnum. Við höfum verið
með ágæta yngri flokka og t.d.
var 2. flokkur okkar í fyrra mjög
góður og stóð sig vel í íslands
mótinu. Þá er það ákveðið að ef
Erlingur Kristjánsson, sem verð-
ur við nám í Reykjavík, spilar
handknattleik þá spilar hann með
KA en ekki öðru félagi.
Við munum því bíta á jaxlinn
þrátt fyrir þann mannamissi sem
við höfum orðið fyrir og gefumst
ekki upp, sagði Þorleifur.
Vinabæjarmót í Randers
Dagana 5.-7. ágúst nk. fer
fram vinabæjarmót I Randers
í Danmörku. Keppt verður í
knattspyrnu drenga og frjáls-
íþróttum stúlkna og pilta á
aldrinum 12-14 ára.
Ferðin verður þátttakendum
að kostnaðarlausu, en ferða-
kostnað greiðir Akureyrarbær og
Randers. Þeir unglingar á þess-
um aldri sem áhuga hafa á að æfa
frjálsíþróttir með þátttöku í huga
hafi samband við Ingunni Einars-
dóttur þjálfara símar 26191 eða
26000 eða formann ÍBA Knút
Otterstedt í síma 24164 eða 21000
sem allraTyrst.
22. jún( 1983-DAGUR-9