Dagur - 20.07.1983, Blaðsíða 3
„Fleiri neikvæðar hliðar
virðast þó vera bundnar
tækjunum,t .d. að þau
geti skapað spilafíkn,
hafí einangrandi og
sljóvgandi áhrif, ýti
undir afbrotahneigð og
stuðli að auðgunarbrot-
um,“ segir m.a. í bókun
félagsmálaráðs Akur-
eyrar, þar sem fjallað er
um tölvuleiktæki. I
bókun sinni fjallar ráðið
um hvernig staðið skuli
að afgreiðslu umsókna
um leyfí til starfrækslu
leiktækjasala. Bókunin
fer orðrétt hér á eftir.
„Eftir miklar umræður var
gerð svohljóðandi bókun: í máli
þessu hefur félagsmálaráð fyrst
og fremst að leiðarljósi velferð
barna og unglinga og vonar að
svo verði einnig þegar bæjar-
stjórn og bæjarráð móta afstöðu
sína.
Tölvuleiktæki eru nýleg fyrir-
bæri og virðast einkum sett upp
fyrir unglinga og notuð af þeim,
a.m.k. hér á landi (víða erlendis
hafa þó upp komið vandamál
samfara notkun ellilífeyrisþega á
slíkum tækjum). Ýmsar athugan-
ir hafa verið gerðar og benda
bæði á kosti og galla slíkra tækja.
Meðal kosta sem nefndir eru má
nefna að tækin eru talin minnka
tölvuótta, veita árásarhvöt útrás
og einnig hefur verið bent á að
nýta mætti þau í skólastarfi.
9 Nauðsynlegt
að fara varlega
Fleiri neikvæðar hliðar virðast
þó bundnar tækjunum, t.d. að
þau geti skapað spilafíkn, hafi
einangrandi og sljóvgandi áhrif,
ýti undir afbrotahneigð og stuðli
að auðgunarbrotum (síðast talda
atriðið virðist þegar komið fram
hér á Akureyri skv. upplýsingum
lögreglunnar). Auk þess virðast
ýmis önnur félagsleg áhrif mjög
neikvæð en þess skal getið að
tækin sjálf eru misjöfn hvað varð-
ar hættu á fíkn eða ofbeldi.
Pótt niðurstöður séu ekki
ótvíræðar af rannsóknum og
reynslu af leiktækjum virðist þó
ljóst að nauðsynlegt sé að fara
varlega í þessum efnum. Þótt tal-
að sé um að tölvuleiktækin séu
liður í óumflýjanlegri þróun er
brýnt að maðurinn ráði yfir tækn-
inni en ekki öfugt. Félagsmálaráð
telur einnig mikilvægt að um-
ræðan einangrist ekki við leik-
tækjasali heldur sé hún sett í
samhengi við umræður um tóm-
stundir unglinga og afskipti og
skyldur bæjaryfirvalda í þeim
efnum. Þar sem leiktækjasalir
hafa verið settir upp virðast þeir
leysa að hluta þörf unglinga fyrir
samkomustað. Spyrja má hvort
ekki sé æskilegra að koma til
móts við þá þörf með öðrum
hætti.
# Rekstur Las
Vegas víti til
varnaðar
Félagsmálaráð hefur nokkrum
sinnum fjallað um starfsemi leik-
tækjasalarins „Las Vegas“ og tel-
ur að rekstur þess staðar ætti að
vera víti til varnaðar.
í félagsmálaráði eru nokkuð
skiptar skoðanir um rekstur
tölvuleiktækja en allir eru þó
sammála um að ströng skilyrði
þurfi að vera fyrir uppsetningu
þeirra ef leyfi er veitt. Þar má
nefna:
- Að þar sem börn og unglingar
undir 18 ára aldri hafi aðgang að
fyrrgreindum leiktækjum sé einn-
ig boðið upp á annars konar tóm-
stundastarf, þannig að stuðlað sé
„Las Vegas“ er
víti til varnaðar
— segir í bókun Félagsmálaráðs Akureyrar um leiktækjasali
að aukinni virkni og sköpunar-
gleði til mótvægis við hin sljóv-
gandi áhrif sem áður er á minnst
að notkun leiktækja af þessu tagi
hafi í för með sér.
- Að leiktæki séu sérstaklega
valin með tilliti til þess að þau
hafi ekki skaðleg áhrif á þann
sem spilar.
- Að starfsmenn slíkra staða séu
ekki yngri en 18 ára og hafi
m.a. því hlutverki að gegna að
stuðla að auknum félagsþroska
þeirra er þangað sækja.
- Að aldur sé takmarkaður við
14 ár.
- Að slíkir staðir séu ekki opn-
aðir fyrr en kl. 15.00 og opnir
til kl. 20.00 fyrir unglinga
innan 16 ára aldurs.
- Að slíkir staðir uppfylli í einu
og öllu kröfur heilbrigðisyfir-
valda svo sem um hreinlætisað-
stöðu og hljóðmengun.
- Brot við reglum þessum varði
áminningu og ítrekað brot
leyfissviptingu án frekari fyrir-
vara.
# Fulltrúar
Alþýðubanda-
lagsins og
Kvennafram-
boðsins með
sérbókun
Fulltrúar Alþýðubandalags og
Kvennaframboðs í félagsmála-
ráði telja þó að takmarka eigi
sem frekast er kostur uppsetn-
ingu töivuleiktækja. Telji bæjar-
yfirvöld hins vegar brýnt að Ak-
ureyringar eigi aðgang að slíkum
tækjum er lögð á það áhersla að
einungis þeim er fara með æsku-
lýðsmál á vegum bæjarins verði
veitt leyfi til reksturs þeirra og
þá í tengslum vð aðra starfsemi.
Mjög óheppilegt er að vonin um
skjótfenginn gróða ráði starfsemi
sem þessari, eins og raunin hefur
því miður orðið. Notkun slíkra
tækja ætti að vera endurgjalds-
laus til að koma í veg fyrir hugs-
anleg auðgunarbrot þeirra vegna.
Telji bæjaryfirvöld gjaldtöku
hins vegar óumflýjanlega skal
verði stillt í hóf en hugsanlegur
gróði komi unglingunum sjálfum
til góða við uppbyggingu félags-
starfs.“
Spiiakassamir hafa skapað vanda-
mál hjá öldruðum í Bandaríkjunum.
FULLT HÚS AF SUMARVÖRUM
Sumarfatnaður í Vefnaðarvörudeild
Ný sending af bómullarbolum
frá Lindon á góöu verði.
Léttar og ódýrar sumarkápur
í mjög miklu úrvali.. Verö frá kr. 1.527.
Regnkápur á aðeins 148.
Cartt&i*
Barnafatnaður nýkominn
Fallegur og vandaður fatnaður frá Carters.
Bómullargarn í öllum sumarlitum.
Vefnaðarvörudeild.
Léttur sumarfatnaður
ódýr sportfatnaður
Herraskyrtur í þúsundatali, stutterma, langerma með
maókraga, kjólskyrtuflibba eða venjulegum flibba frá Melka,
Jac Tissot og Lee Cooper.
Barnabuxur
frá Carrera í sumarlitunum, stór snið.
T-skyrtur.
Bómullarbolir
Erum búin að taka upp stórkostlegt úrval af bómullar
sumarbolum frá Carrera. Verð frá kr. 160.
Fyrir grillveisluna
Grill, margar tegundir, grillkol og olía.
Garðhúsgögn
Eigum glæsilegt úrval af garðhúsgögnum, sólstólum,
bekkjum og furuhúsgögnum.
Reiðhjól á góðu verði
Eigum enn nokkur reiðhjól á eldra verði.
Sumarjakkar
melka
Léttir sumarjakkar frá Melka, fallegir, vandaðir og ódýrir.
Léttir, Ijósir sumarjakkar frá Kóróna og sir
Herradeild.
Sumarskórnir fást í Skódeild
Fyrir dömurnar:
Filmumóttaka
Tökum á móti öllum filmum til framköllunar.
Fljót og góð afgreiðsla.
_______________________________________Sportvörudeild.
Allt til að snyrta garðinn
Garðáhöld, allar gerðir. Slöngur í metravís og slöngustatív.
Sláttuvélar, margar gerðir.
Bláir netskór með fylltum hæl á mjög góðu verði.
Sandalar í úrvali. Léttir kvenskór í litum, þrjár hælahæð
Vandaðir inniskór m/innleggi.
elefonten
Sumarskór á börnin.
Herraskór í mjög glæsilegu úrvali.
Skódeild
20. júlí 1983 - DAGUR - 3