Dagur - 25.07.1983, Blaðsíða 11

Dagur - 25.07.1983, Blaðsíða 11
 Iðnþróunarfélag stofnað fyrir frumkvæði sýslunefndar - Aðalfundur sýslunefndar Austur-Húnavatnssýslu Sýslufundur Austur-Húnavatns- sýslu var haldinn dagana 2. og 3. maí og fram haldið 14. júní. Sú venja hefur skapast að fundurinn er í tvennu lagi á hverju vori, venjulega um mánaðamótin apríl - maí, og svo framhaldsfundur í byrjun júní. Svo er haldinn fund- ur sýslunefndar í nóvember eða desember. Á milli funda fer sýsluráð með sýslumanni með málefni sýslunnar. Að venju komu allmörg mál fram á fundinum og ályktanir gerðar. Niðurjafnað sýslusjóðsgjald nemur kr. 2.730.000 og stærsti út- gjaldaliðurinn er til heilbrigðis- mála, eða kr. 1.790.000. Til vega- mála er varið kr. 1.400.000. Á undanförnum árum hefur sýslusjóður byggt íbúðir fyrir aldraða á Skagaströnd og Blönduósi. Væntanlega hefjast framkvæmdir við byggingu dval- arheimilis aldraðra á Skaga- strönd nú í sumar. Þá hefur verið steyptur sökkull undir viðbygg- ingu við sjúkrahúsið á Blönduósi. Þar er ætlunin að verði heilsu- gæslustöð og ný sjúkradeild. Að frumkvæði sýslunefndar var stofnað iðnþróunarfélag hér í héraðinu nú í vor og vænta menn þess að það verði að gagni við uppbyggingu atvinnutæki- færa. Lítt hefur verið hugað að ferðamannaiðnaði hér í héraði, fram að þessu, en nú hefur sýslu- nefnd kosið 3 menn í nefnd til þess að mynda kjarnann í ferða- málaráði sýslunnar sem væntan- lega verður hvatning að aukinni uppbyggingu ferðamannaað- stöðu og væntanlega fjölgun þeirra manna sem vilja dvelja hér um lengri eða skemmri tíma. Ríkissjóður hefur ekkert greitt í sýsluhúsinu - segir í frétt frá sýslunefnd Vestur-Húnavatnssýslu Aðalfundur sýslunefndar Vestur- Húnavatnssýslu var haldinn dag- ana 16. og 17. maí og framhalds- fundur 20. júní sl. Sú venja hefur skapast að fundirnir eru haldnir í tvennu lagi að vorinu og svo aukafundur í nóvember - des- ember. Á milli funda fer svo sýsluráð með málefni sýslunnar ásast með sýslumanni. Niðurjafnað sýslusjóðsgjald var kr. 1.218.000. Helstu útgjaldalið- ir eru til heilbrigðismála tæpl. kr. 300.000, til atvinnumála liðlega kr. 300.000 og til byggingar sýslu- húss um kr. 250.000. Auk þess styrkir sýslusjóður ýmiskonar menningarstarfsemi í héraðinu. Til vegamála er varið liðlega 1.400.000. Helstu framkvæmdir á vegum sýslunnar er bygging heilsugæslu- stöðvar. Var byggingin fokheld á sl. ári. Ætlunin er að ljúka verkinu á þessu og næsta ári. Verkið hefur þegar verið boðið út. Þá er verið að ganga frá sýslu- húsi en sýslusjóður á lU hluta í 600 m2 3 hæða húsi sem byggt hefur verið á Hvammstanga sem verslunarhús, iðnaðarhús og skrifstofuhúsnæði. í þessu húsi eru skrifstofur lögreglunnar á Hvammstanga og þarna er til húsa héraðsskjalasafnið í mjög góðu plassi og einnig héraðs- bókasafnið. Þá eru þarna skrif- stofur Búnaðarsambands og Ræktunarsambands, svo og bók- halds og endurskoðunarskrifstofa og til bráðabirgða tannlækna- stofa, eða þar til heilsugæslustöð tekur til starfa. Rétt er að taka fram að ríkissjóður hefur ekkert greitt í þessu svokallaða sýslu- húsi. Bifreiðastjórar: Hafið bílbænina i bílnum og orð hennar hugföst, þegar þið akið. Driittmn Guð. veit mér vi.rnd og lát nuri minnast ébyrgðar minnar *..*r ég i k þessari bifreið i J e s ii n a f n i A m e n Fæst í kirkjuhúsinu Reykjavík og Hljómveri, Akureyri. Til styrktar Orði dagsins Á mölinni mætumst með bros á vör — ef bensíngjöfin er tempruð. Umboðsmenn Dags Siglufjörður: Matthías Jóhannsson, Aðalgötu 5, sími 71489. Blönduós: Guðrún Jóhannsdóttir, Garðabyggð 6, sími 4443. Sauðárkrókur: Gunnar Pétursson, Dalatúni 6, sími 5638. Ólafsfjörður: Helga Jónsdóttir, Hrannarbyggð 8, sími 62308. Hrísey: Heimir Áslaugsson, Norðurvegi 10, sími 61747. Dalvík: Gerður Jónsdóttir, Miðtúni, sími 61247. Grenivík: Kjartan H. Pálmarsson, sími 33112. Húsavík: Hafliði Jósteinsson, Garðarsbraut 53, sími41765. Mývatnssveit: Þuríður Snæbjörnsdóttir, sími 44173. Kópasker: SólveigTryggvadóttir, Akurgerði 5, sími 52145. Raufarhöfn: Friðniundur H. Guðmundsson, sími 51225. Bændur athugið Notaðar vélar á söluskrá: Zetor 6945 árg. 1980. Zetor 5718 árg. 1973. Úrsus 65 ha. árgerðir 1976 - 78 - 79. Ford 2000 árg. 1974. Ferguson 135 árg. 1973. Tveir Taarup sláttutætarar, vinnslubreidd 110 árg. 1975. Kverelands gnýblásari. Carboni heyhleðsluvagn, 26 rúmmetra Fhar heyþyrla 4ra stjörnu, 6 arma, árg. 1981. Claas heyþyrla 4ra stjörnu, 6 arma, árg. 1979 f||u>|f| j qI Fjölnisgötu 2a, Akureyri, Umyi Oln sími 96-22466. f I A SOLUSKRA: Tveggja herbergja íbúðir: Sunnuhlíð: önnur hæð. Laus 15. september. Tjarnarlundur: Önnur hæð, einstaklingsíbúð. Strandgata: Efri hæð. Ibúðin er öll endurnýjuð. Eiðsvallagata: Neðri hæð í tvíbýli. Þriggja herbergja íbúðir: Seljahlíð: Raðhúsaíbúð. Hrísalundur: Fjórða hæð. Tjarnarlundur: Þriðja hæð í skiptum fyrir 2ja herb. Oddeyrargata: Ibúð í parhúsi. Furulundur: Ibúð á efri hæð í tveggja hæða raðhúsi. Stórholt: Neðri hæð, bílskúrsréttur. Smárahlíð: Önnur hæð. Skarðshlíð: Önnur hæð í blokk með svalainngangi. Laus Fjögurra herbergja íbúðir: strax Furulundur: Endaíbuð í raðhúsi. Akurgerði: Raðhúsaíbúð með bílskúr, laus strax. Hrísalundur: Fjórða hæð, endaíbúð. Steinahlíð: Raðhúsaíbúð á tveim hæðum. Tjarnarlundur: Þriðja hæð. Grenivellir: Ibúð í 5 íbúða húsi í skiptum fyrir 2jaherbíbúð Langamýri: Efri hæð í tvíbýli. Bílskúr fylgir. Arnarsíða: Raðhúsaíbúð. Á jarðhæð er fjögurra herb. íbúð en að auki er óinnréttað 45 fm ris. Keilusíða: Önnur hæð, afhending samkomulag. Seljahlíð: Endaíbúð í raðhúsi, skipti á ódýrara. Fimm herbergja íbúðir: Miðholt: Einbýlishús á tveim hæðum, skipti á 4ra herb. raðhúsi í Glerárhverfi. Norðurgata: Hæð og ris, afh. strax. Birkilundur: Einbýlishús. Laust strax. Bæjarsíða: Einbýlishús á einni hæð, steyptir sökklar fyrir bílskúr. Lerkilundur: Einbýlishús með uppsteyptum bílskúr. Sólvellir: (búð á tveimur hæðum í parhúsi. Hraungerði: Einbýlishús með bílskúr. Vanabyggð: Efri hæð í tvíbýlishúsi. Norðurgata: Steinsteypt einbýlishús á tveimur hæðum, skipti möguleg á ódýrara. Akurgerði: Endaíbúð í raðhúsi. Vanabyggð: 146 fm endaíbúð í raðhúsi. Mikligarðir á Hjalteyri: 230 fm íbúð í parhúsi. Símsvari tekur við skilaboðum allan sólarhringinn. Fasteignasalan hf opið frá Gránufélagsgötu 4, .. _ _ . efri hæð, sími 21878 e.h. Hreinn Pálsson, lögfræðingur Guðmundur Jóhannsson, viðskiptafræðingur Hermann R. Jónsson, sölumaður Smáauglýsinga- móttaka frá kl. 9-17 alla virka daga. 25. júlí 1983 - DAGUR - 11

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.