Dagur - 22.08.1983, Page 3
Eigendur Kaffistofunnar, Sigmundur H. Jakobsson, Sveinn Jónsson og Jósep Guðbjartsson, ásamt Iðunni Ágústs-
dóttur í hinni nýju kaffistofu. Mynd: KGA.
Málverkasýning í
nýrri kaffistofu
Kaffístofan hefur verið opnuð
í verslunarmiðstöðinni Kaup-
angi. Eigendur staðarins eru
þrír, Sigmundur H. Jakobsson,
Sveinn Jónsson og Jósep Guð-
bjartsson.
Kaffistofan er opin frá klukkan
níu á morgnanna og til tíu á
kvöldin. Upplagt aö skreppa í
morgunkaffi þegar nýkomið er úr
sund>.
Og nú stendur yfir málverka-
sýning Iðunnar Ágústsdóttur.
Hún sýnir þar 14 olíumálverk, öll
máluð á þessu ári. Þau eru til sölu.
Þetta er önnur einkasýning Ið-
unnar, en hún hefur tekið þátt í 6
samsýningum.
Til stendur að halda áfram með
myndlistarsýningar í Kaffistof-
unni, og í ráði er að alltaf verði
sýning uppi. Þegar sýningu Ið-
unnar lýkur, mun Óli G. Jóhanns-
son taka við.
Sporthú^idhf
HAFNARSTRÆTI 94
SÍMI 24350
Addidas Evrópa
allar stærðir
Hreinn.
„Með 4 tonn
af úrvals kola“
Þeir voru önnum kafnir við að
landa úr Guðrúnu Björgu, í
kvöldkyrrðinni, þegar tíðinda-
maður Dags átti leið um hafn-
arsvæðið. Óskar skipstjóri
Karlsson stóð uppi á bryggj-
unni og tók á móti aflanum sem
menn hans mokuðu upp í lönd-
unarháfinn.
„Þetta er fyrsti túrinn okkar á
kolaveiðum," segir Óskar. „Við
máttum að vísu byrja í gær, en
komumst ekki út fyrir brælu. Við
erum með 4 tonn af úrvals kola
sem við fengum vestur undir
Fiskaskeri. Það er um 50 mínútna
stím á miðin og túrinn tekur 14-15
tíma.“
Óskar sagði að nokkrir Húsa-
víkurbátar hefðu stundað kola-
veiðar í mörg ár. Veiðitíminn
byrjar 15. ágúst ogstendur til nóv-
emberloka. Hann sagði að veiðin
hefði verið svipuð frá ári tii árs, í
kringum 100 tonn. Hann kvað
góðan markað fyrir kolann, sér-
staklega væri það Bretinn sem
keypti. Kolinn er flakaður og
hvert flak pakkað sérstaklega og
flutt þannig út. Aðspurður um
hvort ekki væri talsvert af lúðu í
aflanum svaraði Óskar að mikið
hefði verið af þeim góða fiski hér
á árum áður. Hins vegar væri
mjög lítið um að lúða veiddist nú.
Óskar.
22. ágúst 1983 - DAGUR - 3