Dagur - 09.09.1983, Qupperneq 9
ÁHÆL-
UNUM
Það er oft erfitt að vera lítill,
ekki síst þegar fiðluleikur og of
víðar buxur eru annars vegar.
Þetta tvennt fékk hinn ungi
fiðluleikari Solomon Goodman,
4 ára að reyna er hann spilaði í
Suzuki stofnuninni í Kansas.
Solomon lék eins og engill
þangað til buxurnar fóru að síga
en sá stutti lét sér hvergi bregða
og hysjaði upp um sig buxurnar
áður en þær voru komnar niður
á hæla. Það fylgir sögunni að
það eina sem stráksi hafi misst
niður hafi verið nokkrar nótur.
Það þarf engar venjulegar þvottavélar þegar hinn sviss-
neski trúður Chico þvær buxurnar sínar og af þvotta-
efni þarf gnótt.
Það eru heldur engar venjulegar buxur sem Chico
notar við sýningar sínar því þær eru rúmir fimm metrar
á lengd og við erum hræddir um að jafnvel Jóhann risi
úr Svarfaðardalnum passaði ekki í slíkar buxur. En
lappirnar á trúðnum eru svo sem ekkert sérstaklega
langar utan sviðsins - það er bara þegar hann bregður
sér á stulturnar að hann þarf langlokumar á leggina.
FLUGPRIK
Það eru fleiri en hann Húnn Snædal sem flogið
geta á heimasmíðuöum „rellum'* og „prikum"
um loftin blá. Húnn á t.d. kollega í Englandi
sem heitir John Small sem þrátt fyrir nafnið hef-
ur sýnt og sannað að margur er knár þótt hann
sé „smár“.
Jón smái notar hið sérsmíðaða flugprik sitt til
þess að fylgjast með rollunum sínum, tólf
hundruð að tölu. Segir Jón að það sé engu líkt
að svífa svona á eftir skjátunum og í raun það
eina sem dugi. Landið sé svo erfitt yfirferðar á
ökutækjum á vissum árstímurn að loftleiðin sé
sú eina færa. Á vetrum geti hann t.d. lent á priki
sínu í djúpum snjó og bjargað þannig sauðum
sínum og þannig megi lengi telja.
Kannski er þarna komin lausn fyrir norð-
lenska bændur sem ekki komast inn á tún sín á
vorin sökum snjóa og aurbleytu og fyrir sunn-
lenska bændur sem ekki eiga svifnökkva, kaf-
báta eða sérútbúna vatnabíla.
Jeppaeigendur ath.
Nýkomin:
Originai Lödu Sport dekk á hagstæðu verði.
Cooper jeppadekk, mjúk, sterk.
Hvítar jeppafelgur.
Greiðsluskilmálar.
Bílaþjónustan
Tryggvabraut 14 sími 21715.
Frá Tónlistarskólanum
á Akureyri
Innritun nemenda og greiösla skólagjalda fyrir
haustönn fer fram í Tónlistarskólanum, Hafnar-
stræti 81, dagana 12.-16. september kl. 13-17
Hafið meöferðis stundaskrár úr öörum skólum.
Skólinn verður settur í Akureyrarkirkju
sunnudaginn 18. sept. kl. 17.00.
Skólastjóri.
FVSA FVSA
Fjölskylduferð
Félag verslunar- og skrifstofufólks á Akureyri
og nágrenni fyrirhugar dagsferð sunnudaginn
18. september kl. 10 árdegis.
Farið veröur með rútu frá Brekkugötu 4, ekiö aö
lllugastöðum og snæddur hádegisveröur. Síöan
verður ekiö um Aðaldal og komið heim síðdegis.
Verö kr. 150 fyrir fulloröna og kr. 75 fyrir börn.
Félagar láti skrá sig í síma 21635 eigi síðar en
miövikudaginn 14. september.
Stjórnin.
FVSA FVSA
Félagsfundur
Félag verslunar- og skrifstofufólks á Akureyri og
nágrenni heldur almennan félagsfund á Hótel
KEA þriöjudaginn 13. september nk. kl. 20.30.
Fundarefni: Kosning fulltrúa á 18. þing Al-
þýðusambands Norðurlands, kosning fulltrúa
á 14. þing jandssambands íslenskra verslun-
armanna. Önnur mál.
Stjórnin.
Framtíðaratvinna
Viljum ráöa laghentan mann á góðum aldri til
vinnu nú þegar.
Skóverksmiðjan Iðunn
Sími 21900.
Kostnaður varð að hagnaði
Meinleg villa var í fyrirsögn á for- ina því þar stóð að skuldin væri
síðu miðvikudagsblaðs þar sem vegna rekstrarhagnaðar, sem all-
talað var um skuldir ríkissjóðs ir ættu raunar að sjá að fær ekki
við sveitarfélög vegna rekstrar- staðist. Er beðist velvirðingar á
kostnaðar síðasta árs. Fyrirsögn- v þessum mistökum.
in var ekki í samræmi við grein-
9. september 1983 - DAGUR - 9