Dagur - 19.10.1983, Blaðsíða 8
Estrella-flögur
í pökkum tvær stærðir
100 gr á 24 kr. 200 gr á 47 kr.
All-Bran morgunfæða
375 gramma pakki á aðeins 31 kr.
Komið og gerið
betri matarkaup
^—————<
Bifreiðaeigendur —
Bifreiðastjórar athugið:
Við höfum fagmenn í öllum greinum,
sem lúta að bifreiðaviðgerðum og þeir
eru reiðubúnir til að gera við eða
undirbúa bifreið þína undir veturinn.
Síðan treystum við þér til að aka
með tillitssemi og öryggi
á vel búinni bifreið.
Pantið tíma fyrir vetrarskoðun.
Höfum umboð fyrir VW bifreiðir
og m ♦ A* N b>freiðir-
Einnig höfum við þjónustuumboð
fyrir GM, AMC og Volvo.
Framsóknarkonur
Fjölmennið á þing Landssambands fram-
sóknarkvenna sem haldið verður á Húsavík
síðustu helgina í október.
Nánari upplýsingar gefa Ingibjörg Magnúsdóttir,
Húsavík sími 41529, Jónína Hallgrímsdóttir,
Húsavík sími 41477 og Valgerður Sverrisdóttir,
Lómatjörn sími 33244.
v/Tryggvabraut,
Akureyri, sími 22700.
Aðalfundur
Framsóknarfélags Akureyrar
verður haldinn fimmtudaginn 27. október að Hótel
KEA (Gildaskála) og hefst kl. 20.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Kosning fulltrúa á kjördæmisþing.
Ingvar Gíslason, alþingismaður mætir á fundinn.
Stjórnin.
8 - DAGUR - 19. október 1983
'nónhóll
YTRí HRYGGUR
RaöIóÁRVELlIR *
1. AFANGI
MERKIS-
TJORN
BAN04GERÐI!
HVAMMJR
KOTÁRBORGlR
600 íbúðir verða
í Giljahverfi
„Áætlað er að um 600 íbúðir
verði í þessu hverfi, sem er
samtals 43 hektarar. Þar af
fara um 7 hektarar undir skóla,
leikvelli, dagvistir, opin svæði
o.s.frv., en gert er ráð fyrir að
þetta verði sérstakt skólahverfi
og sérstakt verslunar- og þjón-
ustuhverfi með einni hverfa-
verslun. Þá er hugmyndin að
þarna verði hægt að starfrækja
atvinnurekstur í smáum stfl í
tengslum við íbúðir og að sér-
staklega verði gert ráð fyrir
því,“ sagði Jónas Karlesson,
formaður skipulagsnefndar
Akureyrar, en deiliskipulag
fyrir Giljahverfi er nú langt
komið.
Giljahverfi markast af Borgar-
braut að norðan, Hlíðarbraut að
austan, Rangárvöllum og Rang-
árgili að sunnan og 100 metra
hæðarlínu að vestan á svokölluð-
um Langamel. Segja má að með
þessi hverfi hringtengist bærinn,
en hverfið verður byggt i tveimur
áföngum. Vinna við deiliskipulag
hverfisins hófst í fyrrahaust, en
var frestað þar sem mikið var til
af ónotuðum lóðum í Seljahverfi.
Enn er nokkur fjöldi lóða til úti í
Seljahverfi, en þar sem jarðvegs-
dýpi er víða mikið hafa menn
ekki verið ginnkeyptir fyrir að
taka lóðirnar. Jónas sagði það
sína skoðun að veita ætti góðan
afslátt af slíkum lóðum, þar sem
jarðvegsdýpt væri mikil, svo
menn fengjust til að byggja á
þeim.
Skipulagsnefnd mun fjalla um
þetta nýja hverfi á fundum sínum
á næstunni, en óvíst er hvenær
úthlutun lóða í hverfinu hefst.
„Eitt sinn
clrofj
ávallt skáti“
Kvenskátafélagið Valkyrjan er
að hefja vetrarstarf sitt. Félagið
starfar í fjórum deildum ljósálfa
og skáta. Lágmarksaldur er 9
ár. Félagið mun hefja innritun
fyrir nýja og gamla félaga næst-
komandi miðvikudag 19. október
milii kl. 17 og 19 í Skátaheimilinu
Hvammi, í Völubóli Helga-
magrastræti 17, í Lundarskóla og
í kjallara Síðusels í Glerárþorpi.
Eldri skátar, takið nú fram bún-
inginn og komið til starfa. Eitt
sinn skáti, ávallt skáti.
Bændur
Haustverö á heyvinnuvélum
Eigum á lager:
heytætlur,
sláttuþyrlur,
m-na heyhleðsluvagna
Guffen mykjudreifara,
mykjudælur,
ÍMM|Ih||||! áburðardreifara.
Véladeild KEA
Véladeild Sambandsins Sími (91)38900.
oc ALFA-LAVAL