Dagur - 24.10.1983, Síða 7
Guðmundur Benediktsson hampar hér verðiaunagrip sínum sem hann fékk fyrir að vera „Markakóngur Akureyrar
1983“.
sendan fyrir því að ég fer út í
þjálfun að ég hætti að spila. Ég
held að það geti ekki gengið að
þjálfa og spila líka þótt dæmi
séu til um það að slíkt hafi
tekist.“
- Veist þú um einhverjar
breytingar á Þórsliðinu?
„Nei ég veit það ekki. Ekki er
annað vitað en að allir Akureyr-
ingarnir í liðinu verði áfram en ég
veit ekki með Helga Bentsson og
Sigurjón Rannversson. Ég veit
ekki heldur hvort við fáum ein-
hverja nýja menn til liðs við
okkur.“
ræðum við forráðamenn KA og
virtust þær viðræður vera á loka-
stigi. Ætlaði Þorsteinn að þjálfa
KA-liðið en ekki leika með því.
Þórsarar voru ekki beint ánægðir
með þessa þróun máia, og
ákváðu því að bjóða Þorsteini
stöðu þjálfara Þórs. Var gengið
frá ráðningu hans á föstudags-
kvöld.
Þórsarar létu Björn Árnason
vita það kl. 23 á föstudagskvöld
að hann yrði ekki þjálfari félags-
ins næsta keppnistímabil. Kl. 10
morguninn eftir var Björn kom-
inn með samning við knatt-
spyrnudeild Víkings upp á vas-
ann og er því ljóst að hann hefur
verið búinn að ganga frá þeim
málum áður en hann fékk afsvar
Þórs, aðeins átt eftir að skrifa
undir.
„Marka-
gerðinni
„Við eram að sjálfsögðu ekk-
ert hressir með framkomu KA-
manna í þessu máli, en þegar
við stóðum frammi fyrir því að
velja á milli Þorsteins Ólafs-
sonar og Björns Árnasonar
sem þjálfara þá völdum við
Þorstein eftir að leikmenn
okkar höfðu lýst áhuga sínum
á því að hann yrði ráðinn“,
sagði Guðmundur Sigur-
björnsson formaður.
Þórsarar höfðu átt viðræður
við Björn Árnason sem þjálfaði
liðið sl. keppnistímabil með mjög
góðum árangri, og ekkert virtist
benda til annars en að Björn yrði
ráðinn aftur til Þórs. Jákvæðar
viðræður höfðu farið fram, og
því kom ráðning Þorsteins um
helgina mjög á óvart.
Þá hafði Þorsteinn verið í við-
Notts County - Stoke
QPR - Liverpool
Sunderland - Man. Utd,
West Ham - Norwich
Wolves - A. Villa
Brighton - Sheff. Wed.
Man. City - Middlesb.
Úrslitaröðin á getraunaseðli
helgarinnar varð þessi:
Jakobína Káradóttir veitti viðtöku hinuin glæsilega verðlaunagrip sem fylgir
nafnbótinni „Knattspymumaður ársins“ á Akureyri. Jóhann Jakobsson er
fluttur til Reykjavíkur og Jakobína frænka hans tók að sér að koma verð-
laununum í réttar hendur.
Arsenal - Nott. Forest
Birmingham - Tottenham
Coventry - WBA
Everton - Watford
Luton - Southampton
Þorsteinn Ólafsson hefur verið
ráðinn þjálfari 1. deildarliðs
Þórs í knattspyrnu og verður
þetta frumraun hans sem þjálf-
ari. Frá þessu var gengið um
helgina, en sl. vikur hafði Þor-
steinn verið í viðræðum við
forystumenn KA og stóð tii að
hann þjálfaði KA-liðið næsta
keppnistímabil.
Þetta var talsvert „heitt“ mál í
sl. viku og er víst að margir Þórs-
ara voru mjög óhressir með það
að KA væri að reyna að fá Þor-
stein til liðs við sig. En á föstu-
dagskvöld var sú ákvörðun tekin
að bjóða Þorsteini þjálfarastarf
hjá Þór og gengið var frá þeim
málum þá um kvöldið.
„Viðræður mínar við KA voru
komnar það langt að búið var að
sameinast um umræðugrund-
völl,“ sagði Þorsteinn. „Ég setti
fram skilyrði sem þeir töldu sig
geta gengið að,“ sagði Þorsteinn.
Nei, það var ekki meiningin að
ég myndi spila með KA og ég
reikna ekki með að ég muni spila
með Þór næsta sumar. Það er for-
Þorsteinn Ólafsson.
Hann er ekki hár í loftinu pilt-
urinn sem ber titilinn „Marka-
kóngur Akureyrar“ í knatt-
spyrnu þessa dagana. Hann er
leikmaður með 6. flokki Þórs
og skoraði í fjórum leikjum
sínum með liðinu í sumar alls 8
mörk.
Hann heitir Guðmundur Bene-
diktsson og er með þeim allra
minnstu í „bransanum“. En hann
kann sitt fag þe'gar upp að marki
andstæðinganna kemur og sýnir
og sannar það í leikjum sínum að
margur er knár þótt hann sé
smár. Guðmundur er sá yngsti sem
hefur hlotið markakóngstitilinn.
1x2
1x2
Þorsteinn Olafsson
þiálfar lið
kóngur“
af minni
„Völdum Þorstein
fremur en Björn“
„Þórsarar ættu að
þakka okkur fyrir“
- segir Stefán Gunnlaugsson formaður knattspymudeildar KA
„Við vorum einfaldlega að bjóða
þessum manni vinnu hjá okkur,
það er svo einfalt mál“, sagði
Stefán Gunnlaugsson nýkjörinn
formaður knattspyrnudeildar
KA, er við ræddum við hann og
spurðum hvort KA hefði verið að
reyna að klekkja á Þór með því
að ráða Þorstein Ólafsson mark-
vörð Þórs sem þjálfara KA.
„Við stóðum í þeirri meiningu ég og
Þorsteinn að Þór væri búinn að ráða
Björn Árnason sem þjálfara. Ég vil
miklu fremur líta þannig á þetta mál að
áhugi okkar á Þorsteini sem þjálfara
sé virðing við Þór en að við værum að
reyna að klekkja á þeim. Við vorum að
bjóða einum leikmanni þeirra þjálfun
á 1. deildarliði og það þurfti KÁ-mann
til þess að uppgötva þjálfara í þeirra
eigin herbúðum enda réðu þeir hann
um helgina. Ég held að þeir ættu frem-
ur að þakka okkur fyrir þetta, enda hef
ég trú á Þorsteini sem þjálfara og óska
honum góðs gengis“, sagði Stefán.
Á aðalfundi knattspyrnudeildar KA
um helgina var kjörin ný stjórn, og
sitja í henni auk Stefáns, Eiður Eiðs-
son, Gestur Jónasson, Indriði Jóhanns-
son, Gunnar Kárason, Hermann Árna-
son, Sigbjörn Gunnarsson, Siguróli
Sigurðsson og Regína Siguróladóttir.
Stefán sagði að fjárhagsstaða KA
væri slæm um þessar mundir. „Það er
nokkur hundruð þúsund króna skulda-
hali sem við þurfum nú að glíma við“.. ■
:
■
rsteinn
ertsson
Jóhann Jakobsson hefur verið
kjörinn „Knattspyrnumaður
ársins 1983 á Akureyri“ og var
tilkynnt um kjörið í hófi Knatt-
spyrnuráðs Akureyrar í Sjall-
anum í gær.
Alls hlutu 10 leikmenn atkvæði
hjá knattspyrnuráði þegar at-
Jóhann Jakobsson.
kvæðagreiðsla um „Knattspyrnu-
mann ársins“ fór fram. Þrír
þeirra skáru sig þó nokkuð úr, og
þurfti að fara fram aukaatkvæða-
greiðsla á milli þeirra áður en
málin komust á hreint. Þetta
voru þeir Jóhann Jakobsson,
Þorsteinn Ólafsson sem varð í 2.
sæti og Jónas Róbertsson sem
varð þriðji.
Þetta er í 9. skipti sem „Knatt-
spyrnumaður ársins" á Akureyri
er kjörinn. Það kom fram í
ávarpi Marinós Víborg fomanni
KRÁ í gær að Jóhann Jakobsson
hóf að leika með ÍBA liðinu um
1970 og síðan hefur „Donni“
staðið í fremstu víglínu, fyrst
með ÍBA og síðan KA. Hann
þykir sérlega snjall leikmaður og
er frægur fyrir „gullsendingar"
sínar sem hann „spreðar“ venju-
lega af mikilli list um allan völl.
Jóhann hefur nú ákveðið að
flytja til höfuðborgarinnar og
mun leika með Þrótti á næsta
keppnistímabili.
I hófinu í gær voru afhent
verðlaun til yngri flokka sem
urðu sigurvegarar í Akureyrar-
mótinu í sumar. Alls voru leiknir
50 leikir á vegum KRA sem er
talsverð aukning frá fyrra ári. í
þessum 50 leikjum urðu úrslitin
þau að KA sigraði í 25, Þór í 15
en 10 lauk með jafntefli. KA sigr-
aði í meistaraflokki karla og
kvenna, 1. flokki, 2. flokki, 4.
flokki, 4. flokki b og 6. flokki c.
Þór sigraði í öðrum flokkum.
6 - DAGUR - 24. október 1983
24. október 1983 - DAGUR - 7