Dagur - 24.10.1983, Síða 12
Hótel KEA stækkað
innan skamms?
Stjórn ferðamálasjóðs átti
fund með stjórn Hótels KEA
um fyrri helgi og eftir þann
fund sagði Heimir Hannesson,
formaður sjóðsins að þeir
hefðu lýst yfír áhuga sínum að
aðstoða við uppbyggingu
hótclsins.
Stækkun á gistirými Hótels
KEA hefur verið alllengi til um-
ræðu og m.a. lýsti fyrrverandi
hótelstjóri því yfir í blaðaviðtali
fyrir tæpu ári að ákveðið hefði
verið að nýta fyrrverandi hús-
næði Brauðgerðar KEA við hlið
hótelsins undir þessa stækkun.
Myndi rúmafjöldi hótelsins auk-
ast um tæpan helming við þetta.
Pað hve hótelþörfin á Akur-
eyri er brýn, lýsir sér best í því að
nýtingin á Hótel KEA mun yfir-
leitt hafa verið tæp 90% undan-
farin ár og segja menn kunnugir
hótelrekstri að vart sé hægt að
gera betur og víst er að hótelin
fyrir sunnan þakka fyrir á meðan
nýtingin hjá þeim nær 60%.
Allmargir aðilar hér á Akur-
eyri hafa lýst yfir áhuga á þvf að
ráðast í hótelrekstur og m.a. rætt
við ferðamálasjóð í þvf sam-
bandi. Að sögn Heimis Hannes-
sonar hefur hingað til þó aðeins
verið um óformlegar fyrirspurnir
að ræða.
Nýtt fyrirtæki á Húsavík:
Framkallar
litmyndir
Fyrsta fyrirtæki sem framkallar
myndir utan Reykjavíkursvæðis-
ins hóf starfsemi sína á Húsavík
í gær, 14. október. Pað heitir
Mynd h.f. og framkallar allar
venjulegar litmyndir og annast
stækkanir og eftirtökur mynda.
Mynd h.f. var stofnað í maí á
þessu ári. Pað er almennings-
hlutafélag og eru hluthafar 38.
Fyrirtækið er búið fullkomn-
ustu tækjum sem völ er á í dag,
og mun það leggja áherslu á
vandaðar og góðar myndir. í því
sambandi má geta þess, að allar
myndir sem framkallaðar eru,
verða yfirfarnar og rannsakaðar
af fagmanni.
Roy Phillips, filmtæknifræð-
ingur, veitir fyrirtækinu forstöðu.
Hann hefur um árabil unnið við
slík störf, bæði í Reykjavík og í
Englandi.
Fyrirtækið býður fram þjón-
ustu sína sem víðast um landið í
gegnum umboðsmenn sína.
Auk þess sem að framan er
sagt, geta viðskiptavinir fengið
myndir sínar brenndar á diska,
sem veggskraut og fleira. For-
maður stjórnar Mynd h.f. er Árni
Haraldsson.
Roy Phillips við prentarann í Mynd hf.
Hér er Jón Andrésson við skinnaverkun hjá Sambandsverksmiðjunum.
Ljósm: KGA
Iðnaðardeild Sambandsins:
Fullvinnsla skinna
hefur aukist um 50%
„Slátrun er nýlokið og við
erum í sölumannsfötunum
þessa dagana,“ sagði Jón Sig-
urðarson hjá Iðnaðardeild
Sambandsins er við ræddum
við hann.
Jón sagði að sölu á ullarafurð-
um væri ekki lokið hjá Iðnaðar-
deildinni að þessu sinni, en byrj-
unin nú lofaði góðu og væri betri
en þeir hefðu átt von á. „Samn-
ingar hafa náðst við finnskt fyrir-
tæki um sölu á 150 þúsund
gærum, fullunnum og hálfunn-
um. Ef við náum góðum samn-
ingum í Póilandi sem er næst á
dagskrá þá má segja að sölumálin
líti vel út,“ sagði Jón.
Jón sagði að þeir hjá Iðnaðar-
deildinni hefðu stóraukið full-
vinnslu á skinnum. „Þetta hefur
hingað til mest verið selt pæklað
og lítið unnið, en nú erum við
búnir að auka fullvinnsluna um
50%. Þetta eru að mínu mati
góðar fréttir fyrir atvinnulífið
hérna, við höfum verið að fjölga
fólki og ekki að sjá að það verði
lát á þessari þróun.
Þá erum við að byrja með nýj-
an iðnað sem er afullun og það
eru okkar fyrstu skref í leður-
vinnslu sem auka veltu og
umsvif. Ég þori ekki að segja
hvað fjölgun starfsfólks verður
mikil vegna þessa, að það liggur
ekki alveg fyrir. Við erum að nýta
það hráefni sem fór algjörlega
óunnið úr landinu áður og það er
aðal málið.
Við höfum lengi framleitt
mokkakápur og ætlum okkur að
auka þá framleiðslu. Þá erum við
byrjaðir að framleiða pelsa úr
lambaskinnum og erum að afla
markaða fyrir þá framleiðslu. Ég
vona að þetta sé vísir að ein-
hverju sem getur orðið mikið
meira er fram líða stundir. Við
leggjum mikla áherslu á að þetta
sé gæðavara, höfum náð góðum
tökum á vinnslunni og stefnum
nú að því að ná góðum tökum
einnig á markaðsmálunum,"
sagði Jón Sigurðarson.
Veður
í dag verður hlýtt hér
norðanlands með suð-vest-
an átt; stundarhlé fyrir
norðanáttinni, eins og einn
veðurfræðingur hjá Veður-
stofunni orðaði það í
morgun. En í nótt fer hann
að halla sér aftur í norðan
eða norðaustanátt með élja-
gangi og þannig er veðurút-
litið á morgun, en það er
reiknað með hægum vindi.
Sömu sögu er að segja um
miðvikudaginn, nema hvað
þá verður vindur ögn norð-
lægari.
# Formann fyrir
imbann
Styrmir Gunnarsson, ritstjóri
Morgunblaðsins, skrifar
opnugrein um síðustu helgi
um formannaskipti í Sjálf-
stæðisflokknum. Rekur hann
þau frá fyrstu tíð og fjallar
svo ítarlega um það sem
framundan er á næsta lands-
fundi, þar sem nýr formaður
tekur við af Geir Hallgríms-
syni. Helst er að skilja á
Styrmi að það sem Sjálfstæð-
isflokkinn vanti sé formaður
sem tekur sig vel út í sjón-
varpi, en leiðtogahæfileikarn-
ir séu ekki aðalatriðið. Hver
þeirra Birgis, Friðriks eða
Þorsteins skyldi vinna vin-
sældakosninguna?
# Giljagaurar
og...
Það kannast allir Akureyring-
•ar við nafngiftirnar „Eyrar-
púki“, “Brekkusnigill“ og
„Þorpari“ sem Akureyringar
hafa gefið hverjir öðrum, en
nafngiftir þessar fara að sjálf-
sögðu eftir því hvort menn
eiga heima á Brekkunni, Eyr-
inni eða í Glerárþorpi. - í
Degi sl. miðvikudag sögðum
við frá nýju hverfi sem byggt
verður upp sunnan við Síðu-
hverfið f bænum. Það á að
heita Giljahverfi, og þeir sem
þar búa verða því væntan-
lega kaliaðir „Giljagaurar“ og
konur þeirra „Gilitruttur".
# Músagangur
og veturinn
Nú er vetur genginn í garð
samkvæmt almanakinu og
einnig í raun, það höfum við
Norðlendingar fengið að
finna. Margir óttast harðan
vetur. Þeir sem spá slíku
benda á mikinn músagang í
bænum þessa dagana, sem
sönnun þess. Sex mýs urðu
á vegi eins heimildarmanns
S&S í Skarðshlíðinni á fyrsta
vetrardag og einn af starfs-
mönnum Dags dundaði við
það aðfaramótt fyrsta vetrar-
dags, að moka músum upp í
fötur, í draumi að vísu! Aðrir
segja músagang ekki meiri
en gengur og gerist á þess-
um árstfma og spá tiltölulega
léttum vetri. Vonandi að það
rætist.
# Hver fær
Hafþór?
Útgerðarfélag Akureyringa
hefur gert tilboð f Hafþór,
skip Hafrannsóknarstofnun-
arinnar. En það eru fleiri sem
hafa áhuga á að kaupa
skipið, m.a. Þormóður rammi
á Siglufirði, og samkvæmt
óstaðfestum heimildum S &
S var tilboð ÚA það lágt, að
vonlaust mun vera að félagið
fái togarann.