Dagur - 19.12.1983, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - 19. desember 1983
„Mikil gleðitíðindi
fyrir fjmskylduna“
— segir Ólafur Bjömsson í samtali frá Boston
Ragnhelður Stelndórsdóttlr I My fatr
Lady.
Leikfélag Akureyrar
My fair
Lady
Sýningar
32. sýning á annan í jólum
kl. 20.30.
33. sýning þriðjudag 27. des.
kl. 15.00.
34. sýning fimmtudag 29. des.
kl. 20.30.
35. sýning föstudag 30. des.
kl. 20.30.
Ath! Miði á My fair Lady
er tilvalin jóiagjöf
Miðasala opin alla daga kl.
16-19, kvöldsýningardaga
kl. 16-20.30 og dagsýn-
ingardaga kl. 13-15.
Lokað 24. og 25. desember.
Sími 24073.
Ósóttar miðapantanir seldar
tveimur tímum fyrir sýningu.
Handhafar áskriftarkorta
á Galdra-Loft hafið sam-
band við miðasölu.
Leikfélag Akureyrar.
Askrift&augiýsingar
9624222
[" STRANDGATA 31 S yC']
l AKUREYRI J
„Þetta eru mikil gleðitíð-
indi fyrir okkur; mig
skortir satt að segja orð
til að lýsa tilfinningum
mínum og þakklæti til
barnanna og raunar allra
þeirra sem stutt hafa við
bakið á okkur,“ sagði
Ólafur Bjömsson, þegar
Dagur hringdi til hans í
Boston færandi tíðindi af
fjársöfnun barnanna í
Lundarskóla og Barna-
skóla Akureyrar, til
styrktar Ingva Steini, syni
Ólafs og Lilju Gunnars-
dóttur.
Ingvi Steinn er til læknismeðferð-
ar í Boston vegna meðfædds
nýrnagalla. Eftir 2-3 mánuði
verður annað nýrað úr Ólafi flutt
í Ingva, en í heild má reikna með
að læknismeðferðin taki rúmt
hálft ár, jafnvel hátt í ár. Það er
því ljóst að róðurinn verður erf-
iður fjárhagslega fyrir fjölskyld-
una, því læknismeðferðin er dýr
og á sama tíma eru Ólafur og
Lilja frá vinnu.
Frá þessu var sagt i Degi á
miðvikudaginn þar sem sagt var
frá lofsverðu framtaki barna í
Lundarskóla, sem slepptu jóla-
gjöfunum, en gáfu þess í stað 50
kr. í sjóð til styrktar Ingva Steini.
Slíkt hið sama gerðu börn í
nokkrum bekkjardeildum í
Barnaskóla Akureyrar og Dagur
hefur haft spurnir af söfnunum á
vinnustöðum eftir að fréttin birt-
ist í blaðinu. Framlögum er veitt
móttaka á afgreiðslu Dags en
einnig geta gefendur snúið séi
beint til Árna Björnssonar hjá
Bílasölunni. Hann er bróðii
Ólafs.
0 Meðfæddur
nýrnagalli
Ólafur var spurður um veikindi
Ingva Steins.
„Þetta er meðfæddur nýrna-
gaili,“ sagði Ólafur, „og vegna
hans hefur Ingvi Steinn þurft að
dvelja á sjúkrahúsum af og til,
stundum oft á ári, en hann er nú
fimm ára. Hann var fjögurra
mánaða þegar þetta uppgötvað-
ist. Þetta hefur hamlað líkamleg-
um þroska hans, því hann hefur
alltaf verið lystarlaus og það hef-
ur verið erfiðleikum bundið að
fá hann til að borða. Þar að auki
hefur hann ekki alltaf haldið
matnum niðri. Hann er samt ekki
mikið minni heldur en jafnaldrar
hans, en hann er léttur, ekki
nema 13 kg. Hann hefur einnig
átt erfitt með gang, þarf að hafa
spelkur, og hann hefur verið
þróttlaus.“
- En hvenær fenguð þið að
vita hvers kyns var og hvað þyrfti
að gera?
„Það eru nokkur ár síðan það
lá ljóst fyrir, að þessi aðgerð væri
óumflýjanleg. En það var okkar
keppikefli, að hann gæti sem
lengst komist af með sín nýru,
þó gölluð séu, þannig að hann
væri orðinn eldri og þroskaðri
þegar að aðgerðinni kæmi. En á
þessu ári fór honum að versna og
ferðirnar á sjúkrahús í Reykjavík
urðu tíðari og tíðari. Það varð til
þess að ákveðið var að fara í að-
gerðina og áætlunin var að við
færum utan eftir áramótin. En
þá versnaði drengnum mjög
snöggt, hánn fór að fá krampa og
hafði slæma líðan, þannig að ekki
var um annað að ræða en flytja
hann út í skyndi.“
- Hvernig komust þið í sam-
band við þetta sjúkrahús í
Boston?
„Læknarnir Árni Þórsson og
Sævar Halldórsson hafa aðallega
stundað Ingva og þeir þekktu til
á þessu sjúkrahúsi, höfðu starfað
þar. Þetta er mjög góður staður
og aðbúnaður allur hinn besti.“
- Hvers vegna var ákveðið að
bíða með aðgerðina í 2-3 mán-
uði, eða jafnvel lengur?
„Það er tengd slanga í kviðinn
á honum, til að hjálpa nýrunum
og það hljóp ígerð í gatið. Það er
ekki óalgengt að slíkt gerist í til-
vikum sem þessum, en læknarnir
taka enga áhættu og vilja því að
þetta sé gróið um heilt áður en
farið er í aðgerðina. Einnig vilja
þeir nota tímann til að styrkja
drenginn líkamlega. Auk þess
hefur honum verið gefið blóð úr
mér, til að undirbúa líkama hans
undir að fá mitt nýra, þannig að
minni líkur verði til þess að lík-
ami Ingva hafni því.“
- Hvað reiknið þið með að
þurfa að vera lengi úti?
„Björtustu vonir okkar segja
hálft ár, þannig að við getum
komist heim í sumar. En það get-
ur líka dregist fram á haustið.“
# Kostnaðurinn
mikill
Það má því búast við því að Ingvi
Steinn og foreldrar hans verði
Ingvi Steinn.
ytra allt að því ár og ljóst er að
kostnaðurinn við þessa læknisað-
gerð hleypur á hundruðum þús-
unda. Stóran hluta af þeim kostn-
aði greiðir Tryggingarstofnunin,
en þrátt fyrir það verður róður-
inn erfiður. Sem dæmi má nefna,
að húsaleigan ein er hátt í 30 þ.
kr. íslenskar á mánuði. Á sama
tíma er fjölskyldan tekjulaus, þar
sem Ólafur er frá störfum sem oft
fyrr vegna veikinda Ingva Steins.
Framlag frá samborgurunum
kemur því í góðar þarfir. Margt
smátt gerir eitt stórt. Það sýndi
sig best í framtaki barnanna. Þau
lögðu fram 50 kr. hvert og þannig
söfnuðu þau nokkur þúsund
krónum.
Næst var Ólafur spurður um
líðan Ingva Steins.
„Hann hefur verið heldur
slappur og krampinn er enn að
plaga hann. Hann mókir mikið,
enda á sterkum lyfjum, en lyfja-
gjafimar hafa verið minnkaðar
smátt og smátt. Hann hefur ekki
talað við okkur, en hann hefur
aldrei verið meðvitundarlaus. í
dag komu jólasveinar í heimsókn
á sjúkrahúsið og hann brosti til
þeirra og tók við pakkanum.“
- Era þetta sjaldgæfar aðgerð-
ir?
„Já, þetta eru mjög sjaldgæfar
aðgerðir, að því ég best veit, en
mér er þó kunnugt um unga
stúlku frá Akranesi, sem fékk
nýtt nýra hér á sama sjúkrahúsi
á síðasta ári. Hún heimsótti okk-
ur á Landakot áður en við fórum
út og hún var alveg eins og engill,
eins og þar stendur, og mjög
hress. Það var okkur mikils virði
að sjá það með eigin augum,
áður en við héldum út í það
sama. Það gaf okkur ástæðu til
bjartsýni,“ sagði Ólafur Björns-
son í lok samtalsins, og hann bað
fyrir kveðju sína og sinna til vina
og vandamanna hér heima.
SETBERG KYNNI
,ALLSKONAR GOÐGÆTF
I þes»s»ari ayju boh er alKkonar
goðyætl: rtauta.steik med smjor-
steíktuin k.utoMum, Gnsakotel-
etturmed ijomavmssosu, Kjukl
iucjapottur, steiktur la v i livitvms-
sósu, Fin fiskisupa, Ekta vmar-
snitsel, llainborgarhryggur i
portvmshlaupi, rireindýrspottur,
Maispounukokur med kjuklingi,
Veislms írá Sikiley og fleira og
„Allskonar godgæti" ei ný
matreidslubok med fjolmorguin
i gómsætum rettum.
Þctta er þridja bokin scm Set-
berg gefur ut eltir sænska mat-
icidsluincistaraun Agnetc Lampe
og Gudrunu llroun llilmarsdottur
; húsmædrakcnnara. Ilinartvær
voru: „INú bokumvid" og „Attu von
örg hundruð litmyndir sýna
:ttina og handtökin við gerð þeirra.
SETBERG
Fieyjugötutl
Tómas Ingi Olrich:
Um jólatrjáasölu
í íslendingi, dags 14. desember
síðastliðinn, er vikið að jóla-
trjáasölu Skógræktarfélags Ey-
firðinga. Blaðamaður íslendings
ræðir við Matthías Þorbergsson,
verslunarmann og eiganda
blómabúðarinnar Akurs á Akur-
eyri, og komast þeir að þeirri
niðurstöðu að Matthías hafi
hnekkt „einokun Skógræktarfé-
lagsins á sölu jólatrjáa á Akur-
eyri“. Tré þau, sem Matthías
selur, eru fengin hjá Skógrækt
ríkisins að Vöglum í Fnjóskadal.
Skógræktarfélag Eyfirðinga er
félag áhugamanna, sem hefur
tvíþætt takmark; að rækta skóg í
Eyjafirði og efla skógrækt sem
búgrein; að rækta skóg í landi
Akureyrar og í nágrenni bæjarins
þéttbýlisbúum til gagns og yndis-
auka og til að búa ýmiss konar
tómstundastarfi og íþróttum það
umhverfi sem hæfir. Skógrækt-
arfélagið ræktaði Kjarnaskóg.
Þar er nú útivistarsvæði bæjarins,
öllum til sóma jafnt Akureyri
sem Skógræktarfélagi Eyfirð-
inga. Félagið ræktaði Vaðlaskóg,
sem blasir við bæjarbúum hand-
an við Pollinn, einn fegursti staður
í Eyjafirði. Vegna þess hvers eðl-
is starfsemi félagsins er, hefur
Akureyrarbær, og nú á síðari
árum önnur sveitarfélög í
héraðinu, veitt félaginu ríflegan
styrk og átt við það giftudrjúgt
samstarf.
Ríkissjóður, sem styrkti félag-
ið talsvert áður fyrr, hefur hins
vegar dregið svo úr framlögum
sínum að þau skipta ekki lengur
máli og eru raunar tekin aftur í
sköttum. Skógræktarfélag Ey-
firðinga hefur haft verulegar
tekjur af sölu jólatrjáa á undan-
förnum árum. Hver eyrir af
ágóðanum hefur runnið til starf-
semi í héraðinu, mest þó í ná-
grenni Akureyrar og í landi
bæjarins. Markaður fyrir jólatré
á Akureyri er þekkt stærð. Félag-
ið hefur séð fyrir þörfum þessa
markaðar og boðið sama verð og
annars staðar tíðkast hér á landi.
Nýir söluaðilar auka ekki mark-
aðinn, í hæsta lagi tekst þeim að
minnka sölu Skógræktarfélags
Eyfirðinga. Kaupmenn á Akur-
eyri hafa hingað til ekki séð
ástæðu til að veikja þennan
tekjustofn félagsins með því að
keppa við það.
Skógræktarfélagið hefur ekki
haft einokun á sölu jólatrjáa á
Akureyri. Til þess hefur það ekki
vald. Ef til dæmis innflytjendum
í Reykjavík dettur í hug að bjóða
Akureyringum jólatré, þá getur
Skógræktarfélag Eyfirðinga ekki
spornað við því. Hins vegar hefur
stjórn félagsins bent skógræktar-
stjóra ríkisins á það að það skjóti
skökku við að Skógrækt ríkisins
keppi við Skógræktarfélag Ey-
firðinga um Akureyrarmarkað-
inn. Skógræktarstjóri hefur hing-
að til sýnt þessu viðhorfi skilning
og er vonandi að svo verði áfram.
Þeim, sem vilja efla starfsemi
Skógræktarfélags Eyfirðinga,
mun áfram gefast kostur á að
kaupa jólatré af félaginu. Er ósk-
andi að sú tekjulind, sem þessi
viðskipti hafa verið félaginu,
verði áfram til að efla starf þess.
Akureyri 16.12. 1983
Tómas I. Olrich
form. Skógræktarf. Eyf.
Athugasemd vegna sölu á jóla-
tijám til blómaverslunarinnar
Akurs.
Þegar eigandi Akurs leitaði til
mín um kaup á jólatrjám sagði ég
ekkert því til fyrirstöðu, enda
ekki um umtalsvert magn að
ræða. Framkvæmdastjóra Skóg-
ræktarfélags Eyfirðinga bauð ég
að eiga hlut að sölunni til Akurs,
sem hann hafnaði. Með þökk
fyrir birtinguna.
Isleifur Sumarliðason,
skógarvörður Vöglum.